Fréttablaðið - 20.12.2022, Blaðsíða 2
45
metra hviður á sek-
úndu verða mögulega í
Öræfasveit.
TF-EIR sótti sjúkling í Hveragerði
Vegna ófærðar annaðist þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sjúkraflug í gær frá Hveragerði til Reykjavíkur. TF EIR sveif austur fyrir fjall og lenti á hringtorginu
utan við Hveragerði til að sækja sjúkling sem þurfti að flytja á Landspítalann. Ófært var landleiðina eins og víða annars staðar. Hjálparsveit skáta í Hveragerði
aðstoðaði við flutninginn innanbæjar og var samstarf allra viðbragðsaðila á vettvangi til fyrirmyndar. Mynd/LandheLgisgæsLan
ULLARÚLPA
NÁTTÚRUVÆN EINANGRUN
ÚR ÍSLENSKRI ULL
47.990,-
benediktboas@frettabladid.is
Reykjavík Sorphirða Reykjavíkur-
borgar hefur neyðst til að skilja
sorptunnurnar eftir ef ekki er hægt
að komast að þeim til að losa. Óvíst
er hvort það náist að tæma þær
tunnur sem skildar eru eftir fyrir
jól. Sorphirðan lenti í miklum vand-
ræðum í gær eins og margir höfuð-
borgarbúar sem þurftu að vera
á ferðinni og voru búnir að festa
þungan sorphirðubílinn tvisvar
þegar Fréttablaðið sló á þráðinn.
Sorphirðan var að störfum í
Breiðholti í gær og í dag en eftir
það verður farið í Árbæ og Grafar-
vog. Unnið er lengur til að reyna að
tæma allar tunnur fyrir jólin.
„Staðan var ekki nógu góð þegar
við fórum af stað til að hirða. Sums
staðar þurftum við að skilja tunnur
eftir því við komumst ekki að sækja
þær,“ segir Guðmundur B. Frið-
riksson, skrifstofustjóri skrifstofu
umhverfisgæða hjá borginni.
„Við verðum að halda áfram og
förum næst í Grafarvog og Grafar-
holtið. Ef við erum að fara til baka til
að sækja tunnur sem var ekki hægt
að losa núna þá tefur það okkur og
okkar störf. Það bitnar helst á fólki
sem er búið að moka frá og er með
sitt á hreinu,“ segir hann. n
Sorphirðan þurfti að skilja sorpið
eftir þar sem ekki var mokað frá
Margir mokuðu bílaplönin en
gleymdu að moka frá sorpinu.
Björn Jóhann Björnsson,
blaðamaður og rithöfundur,
hefur gefið út sjöttu bókina
með skemmtisögum úr Skaga-
firði. Hann er með leyfi fyrir
öllum sögunum en hefur þó
ekki farið á miðilsfundi til að
fá leyfi frá þeim sem eru látnir.
benediktboas@frettabladid.is
Samfélag „Fólk hefur tekið þess-
um sögum og bókum mjög vel.
Það hefur alla vega enginn lagt í
meiðyrðamál eða neitt slíkt,“ segir
blaðamaðurinn Björn Jóhann
Björnsson en hann hefur skrifað
sjöttu bókina með skemmtisögum
úr Skagafirði. Fyrstu fimm bæk-
urnar komu út á árunum 2011-2016.
Bókaútgáfan Hólar gefur út, líkt og
áður.
Sjöt t a b ók i n , Sk ag f i r sk a r
skemmtisögur 6 – Fjörið heldur
áfram!, hefur að geyma yfir 200
gamansögur úr nútíð og fortíð, en
alls hafa um 1.300 sögur og gaman-
vísur komist á prent. Bækurnar eru
ekki aðeins vinsælar hjá Skagfirð-
ingum því þær má finna í stofum
landsmanna um allt land.
Björn Jóhann hefur unnið sem
blaðamaður og aðstoðarfrétta-
stjóri á Morgunblaðinu í fjölda-
mörg ár en hann er Skagfirðingur í
húð og hár. Ólst upp á Sauðárkróki
og styður Tindastól að sjálfsögðu.
Hann segir uppspretturnar að sög-
unum margar en aðallega fer hann
í kaffispjall og hripar niður.
„Maður fær sendar sögur og
ábendingar um að einhver kunni
góða sögu. Svo tíni ég til eina og
eina sögu héðan og þaðan, ef við-
komandi er til umfjöllunar, og bæti
við. Annars er meginuppspretta
sagnanna að banka upp á og hitta
skemmtilegt fólk,“ segir hann.
Björn segir gamalkunnar og
nýjar sögupersónur koma við
Leggur ekki á sig að fara
á miðilsfundi fyrir leyfi
Björn Jóhann hefur tekið saman yfir þúsund sögur úr Skagafirði í sex bókum.
FréttabLaðið/sigtryggur ari
Álftagerðisbræður
skemmta á Húsavík
Óskar Pétursson, skemmti eitt
sinn á 1. maí hátíðarhöldum á
Húsavík. Þar kom einnig fram
gleðisöngvasveit heimamanna,
Ljótu hálfvitarnir. Óskar mætti
á svæðið ásamt undirleikara
og varð hálf hvumsa við þegar
dyravörður vatt sér að þeim og
spurði höstuglega:
„Eruð þið ljótu hálfvitarnir?“
Það kom smá fát á Óskar við
þessa spurningu.
Þegar svo þingeyska sveitin
steig á svið á eftir Óskari, hafði
talsmaður þeirra, Keldhverf-
ingurinn Sævar Sigurgeirsson,
svipaða sögu að segja og Óskar:
„Þegar við hálfvitarnir mættum
á svæðið tók á móti okkur
maður sem spurði: „Eru þið
þessir ömurlegu Álftagerðis-
bræður?“
sögu í þessari bók. Fyrstan skal
nefna kaupmanninn Bjarna Har,
heiðursborgara Skagafjarðar, sem
féll frá í byrjun þessa árs, á 92. ald-
ursári. Um Bjarna hafa verið sagðar
margar skemmtilegar sögur og hér
bætast við nokkrar í viðbót. Skop-
teikning Andrésar Andréssonar
af þekktustu sögunni um Bjarna
prýðir bókarkápuna. Fleiri kunnir
kappar koma við sögu, eins og Ýtu-
Keli, Dúddi á Skörðugili, Hvati á
Stöðinni og Halli í Enni.
„Oftast veit fólk að það er í bók-
inni. Alla vega þeir sem eru á lífi.
Ég hef ekki lagt það á mig að fara
á miðilsfundi og fá leyfi þaðan,“
segir hann og hlær. „Oft þekki ég
viðkomandi sem er til umfjöllunar
þannig að ég kann ekki við annað
en að fá grænt ljós sem víðast og
kanna um leið sannleiksgildið, sem
sjaldnast er dregið í efa. Sumir hafa
þó kvartað yfir að vera ekki í bók-
inni, enda Skagfirðingar annálað
hégómafólk,“ segir Björn, léttur í
bragði. n
thorgrimur@frettabladid.is
veðuR Búist er við að veðrið á land-
inu verði álíka slæmt í dag og var í
gær. Haraldur Eiríksson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir að
litlar breytingar verði frá illviðri
gærdagsins nema helst að snjóa
muni meira á Norðausturlandi.
Mögulega byrji að draga úr vindi
í kvöld en hvassviðri á Suðaustur-
landi muni endast að minnsta kosti
fram á hádegi.
Haraldur segir að fárviðrið megi
rekja til þess að öflug hæð er yfir
Grænlandi en djúp lægð yfir Íslandi.
Lægðin hreyfist ekki mikið og vind-
strengur sé á milli þessara kerfa. n
Litlar breytingar á
veðurhamnum
Veðrið í dag kemur til með að vera
með svipuðu móti og í gær.
2 Fréttir 20. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðið