Fréttablaðið - 20.12.2022, Blaðsíða 4
Það þarf að setja húsa-
götur í sérstakan
forgang.
Einar Þorsteins-
son, borgarfull-
trúi Framsóknar-
flokksins
JEEP.IS • ISBAND.IS
PLUG-IN HYBRID
FÆRÐIN ER
ALLTAF GÓÐ
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Leyfðu Jeep® Wrangler Rubicon
Plug-In Hybrid að spreyta sig á krefjandi
slóðum. Leiðin verður rafmögnuð.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
Til greina kemur að Reykja-
víkurborg kaupi pallbíla með
snjótennur til að hreinsa snjó
í íbúðahverfum. Almennings-
skóflur við ljósastaura gætu
létt undir. Vilji er til að efla
forræði borgarinnar í snjó-
mokstri á kostnað verktaka.
bth@frettabladid.is
Reykjavík „Ég er mjög pirruð, ég veit
að allir eru að reyna að gera sitt besta
en við getum gert miklu betur,“ segir
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG í
minnihluta borgarstjórnar.
Snjórinn hefur gert borgarbúum
marga skráveifuna síðustu daga og
lamað samgöngur. Ónógur snjó-
mokstur á höfuðborgarsvæðinu
hefur verið gagnrýndur harðlega.
Líf segist þeirrar skoðunar að borgin
eigi að vera sjálfstæðari í viðbrögð-
um með mannafla, tól og tæki þegar
snjó hleður niður.
„Þessi útboðsumræða kemur
alltaf upp í svona aðstæðum,“ segir
Líf. „En fólk nennir ekki að hlusta á
umræðu um verkferla, það vill bara
komast leiðar sinnar.“
Reykjavíkurborg ætti sjálf að taka
yfir snjómoksturinn í stað þess að
reiða sig alfarið á verktaka að mati
Lífar. Nefnt hefur verið að það gæti
orðið enn kostnaðarsamara fyrir
útsvarsgreiðendur. Líf bendir á að
snjómokstur hafi kostað Reykjavík-
urborg 1,4 milljarða síðasta vetur.
„Þá spyr maður: Eru þessir pen-
ingar að skila okkur betri árangri?“
Umræðan hefur bæði snúist um
stóru línurnar, opnar stofnæðar,
en einnig áskoranir íbúa sem sumir
hverjir sátu fastir um langa hríð í
eigin hverfi. Líf nefnir í því sam-
hengi þann möguleika að opinberir
aðilar dreifi skóflum frítt til íbúa
þegar upp koma aðstæður eins og
síðustu daga.
„Í Japan getur snjóað hressilega
og þar eru skóflur við ljósastaura,
skóf lur sem almenningur getur
notað,“ segir hún.
Alexandra Briem, formaður
umhverfis- og skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar, segir snjómokstur í
stanslausri endurskoðun.
Alexandra telur koma til greina
að borgin ráði sjálf yfir tækjum og
mannafla til að bregðast við mikilli
snjókomu fremur en að öllum verk-
efnum verði útvistað til verktaka.
„Þetta er öryggisatriði,“ segir
Alexandra sem vill þó ekki að samn-
ingum verði sagt upp að óathug-
uðu máli. Hún telur að bæta mætti
viðbragð borgarinnar með því að
borgin keypti snjóruðningstæki og
myndi „efla eigið uppsett afl“, líkt og
hún orðar það.
Einar Þorsteinsson, oddviti Fram-
sóknarmanna í borgarstjórn, telur
að ágætlega hafi tekist til með við-
brögð við erfiðar aðstæður.
„Við höfum nýtt allan okkar
mannskap og öll okkar tæki en það
þarf að bæta þessa þjónustu. Og það
þarf að ráðast í frekari fjárfestingu,“
segir Einar.
Ein hugmynd sem rædd hefur
verið er að sögn Einars að kaupa
stóra pickup-bíla með snjótönn
framan á. Bílarnir gættu sérstak-
lega rutt íbúðagötur og nýst í annað
á öðrum tímum þegar ekki snjóar
svo færð spillist.
„Ég vil efla viðbragð borgarinnar
en það verður að gera það skyn-
samlega í fjárhagslegu tilliti. Setja
þarf húsagötur í sérstakan forgang,“
segir Einar.
Borgarfulltrúarnir eru sammála
um að sérstaklega þurfi að bæta
aðgengismál fyrir eldra fólk og
hreyfihamlaða. n
Borgarfulltrúi segist pirraður vegna
snjómokstursmála í Reykjavíkurborg
Fannfergið síð-
ustu daga hefur
ekki farið fram
hjá neinum.
Borgarfulltrúar
leitast við að
finna leiðir sem
myndu bæta
snjómokstur hjá
borginni.
fréttablaðið/
ernir
bth@frettabladid.is
SamgönguR Margir strætisvagnar
festust í snjó um helgina eða lösk-
uðust, sumum ferðum var af lýst,
upplýsingagjöf var í einhverjum til-
vikum ábótavant.
Eitt dæmi er að farþegar biðu
norpandi eftir strætó á Akureyri til
Reykjavíkur eftir að ákveðið hafði
verið að fella ferð þeirra niður án
þess að skilaboðum væri sem skyldi
komið á framfæri.
Framk væmdastjór i Strætós,
Jóhannes Svavar Rúnarsson, segir að
síðustu dagar hafi verið krefjandi.
Nokkrir strætóar hafi nuddast út í
önnur ökutæki eða annað í hálku,
þeir séu nú bilaðir og úr leik í bili.
„Það eru um átta eða níu bílar bil-
aðir hjá okkur, við þurftum meðal
annars að fella niður ferðir vegna
þessa,“ segir Jóhannes Svavar.
Spurður hvort það hafi komið til
álita að setja keðjur undir strætó-
ana, hlær framkvæmdastjórinn.
„Keðjur hafa ekki verið notaðar í
áratugi, ekki síðan ég var barn.“
Jóhannes Svavar segir að Strætó
muni fara yfir stöðuna og hvernig
hægt sé að bæta upplýsingastreymi
til að reyna að ná til enn breiðari
hóps.
„En það er fullt af snillingum
þarna úti sem þykjast hafa allar
lausnir þegar svona ástand skapast.“
Framkvæmdastjóri Strætós segir
mikilvægt að landsmenn geti fengið
sér far með almenningssamgöng-
um, ekki síst þegar einkabíllinn sé
stopp undir snjó í ómokaðri götu.
„Við gerum okkur far um að halda
úti sem bestri þjónustu, einmitt
vegna þessa.“ n
Margir strætisvagnar bilaðir eftir ófærðina um helgina
Mikil röskun hefur orðið á ferðum
strætó vegna illfærðar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
utanRíkiSmál Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra fundaði í
gær með leiðtogum Sameiginlegu
viðbragðssveitarinnar, JEF, í Ríga
í Lettlandi. Volodimir Zelenskij
ávarpaði fundinn.
Bretar stofnuðu JEF í fyrra sem
telur auk þeirra hin Norðurlöndin,
Eystrasaltslöndin og Holland. n
Zelenskij
ávarpaði leiðtoga
Ísland er meðal 10 ríkja JEF.
bth@frettabladid.is
HeilbRigðiSmál Willum Þór Þórs-
son heilbrigðisráðherra segir að
kuldakastið sem nú stendur yfir
auki sérstaklega á mikilvægi þess að
vandi heimilislausra verði leystur.
Mikilvægt sé að grípa til aðgerða.
„Við verðum að skoða þessi mál
vel með Reykjavíkurborg um neyð-
arskýlin,“ segir Willum.
„Mér finnst ástæða til að skoða
þessi mál sérstaklega í ljósi kulda-
tíðarinnar, við höfum stutt við, bætt
úr í málaflokknum fyrir fólk sem
þarf húsaskjól, en kuldinn hefur
dregið fram nýja stöðu.“ n
Kuldinn dregur
fram nýja stöðu
Willum Þór Þórs-
son, heilbrigðis-
ráðherra
4 Fréttir 20. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðið