Sumardagurinn fyrsti - 19.04.1956, Side 15

Sumardagurinn fyrsti - 19.04.1956, Side 15
SUMARDÁGURINN FYRSTI 13 Lúðrasveitin „Svanur“ 25 ára Margir ágætir skemmtikraftar bæjarins hafa á undanförnum árum veitt „Sumargjöf" aðstoð við hátíðahöldin á sum- ardaginn fyrsta. Meðal þeirra ágætustu er lúðrasveitin „Svanur“ undir stjórn Karls 0. Runólfssonar, tónskálds. Lúðra- sveitin „Svanur" átti tuttugu og fimm ára afmæli á s.l. ári, og irtir „Sumardagurinn fyrsti“ mynd af „svönunum“ ásamt stjórnanda sínum, vegna þessa afmælis. Nokkur orð um barnaskrúðgöngur Um nokkurt árabil hefur, á barnadaginn, verið efnt til skrúðgöngu barna á vegum Barnavinafélagsins Sumargjöf. Það er orðin venja hér í borg að börnin fagna sumri á þennan hátt, og er það til augljósrar gleði þeim börnum sem þar eru þátttakendur og yndis öllum foreldrum og öðrum þeim, sem með því fylgjast, því brosandi og heil- brigð æska, hvar sem hún kemur fram á rpúðmannlegan og skemmtilegan hátt, hlýtur að skapa gleði. Til þess að barnaskrúðgöngurnar fari vel fram þurfa þessi skilyrði að vera fyrir hendi. 1. Skrúðgangan þarf að hefjast frá sama stað og öll börn, sem þátt taka í henni, þurfa að mæta þar. Börnin þurfa að vera sér þess miðvitandi að þau séu þar beinir þátttakendur. 2. Foreldrar og aðrir þeir, sem gjarnan vilja fy'lgjast með börnunum, mega ekki ganga inn í raðir þeirra, en láta þau finna á óbeinan hátt, að það séu þau, fyrst og fremst börnin sjálf, sem mynda skrúðgönguna og séu þar ábyrgir aðilar. Skrúðgöngur barnadagsins hafa fyrst og fremst ein- kennzt af því að vera skrúðgöngur foreldra og barna, og er það ánægjulegt, því fátt gleður börnin meir en að finna samhug foreldra á hátíðastund. Eru það því vinsamleg tilmæli þeirra, sem að þessum hátíðahöldum standa, að foreidrar haldi þeim fagra sið, þó með þeim breytingum einum, að foreldrar gangi á eftir aðalskrúðgöngu barnanna og hafi þá í fylgd með sér yngri börn fjölskyldunnar, þau sem eru svo ung, að varhugavert þyki að láta leika ein laus- um hala í margmenni. Nafnbreyting á blaðinu Rit Sumargjafar hefur nú verið gefið út í 22 ár. Blaðið hefur ýmist verið nefnt Barnadagsblaðið eða Barnadagur- inn. Nú hefur stjórn Sumargjafar breytt nafni blaðsins og heitir það nú „Sumardagurinn fyrsti“, barnadagsblaðið. Útgáfa félagsins er nú orðin hefðbundin, fallin í fastar skorður — Sólskin og Sumardagurinn fyrsti — bók fyrir börnin — blað fyrir foreldrana. — Forsíðumyndin Forsíðumyndin er tekin í Reykjavík á sumardaginn fyrsta í fyrra. — Þá fór vordísin í broddi fylkingar með fríðu föruneyti, ríðandi á rauðum fáki. Nú mun hún hins vegar aka í garð í blómum skrýddum lystivagni. Hún fer fyrir skrúðgöngunni úr Vestur- bænum í Lækjargötu. — Þar mun hún ásamt þjóðkórnum og öllum þátttakendum syngja sumarið í garð.

x

Sumardagurinn fyrsti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumardagurinn fyrsti
https://timarit.is/publication/1751

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.