Borgarsýn - 2018, Blaðsíða 13
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar 13
mörkum við upphaf leigu, með því að
auka aðgengi að öruggu og viðeigandi
leiguhúsnæði og stuðla að því að
hús næðis kostnaður sé í samræmi við
greiðslu getu leigjenda eða að jafnaði
ekki umfram fjórðung tekna, eins og
segir í 1.gr. laganna.
Til þess að ná fram markmiðum laganna
um aukið framboð af leigu íbúðum á
við ráðan legu verði er ríki og sveitar
félögum heimilt að veita stofnstyrki
til bygg ingar eða kaupa á almennum
íbúðum. Stofnframlag ríkis er 18% af
bygg ingar kostn aði og stofnframlag
sveitar félaga 12%. Íbúðalánasjóður stýrir
fyrir hönd ríkisins veitingu stofnframlaga
en sveitar félögunum er í sjálfsvald sett
hvort þau veita stofnframlög og taki þar
með þátt í uppbyggingu almennra íbúða
á Íslandi.
Hlutverk Reykjavíkurborgar í
uppbygg ingu almennra íbúða
Reykjavíkurborg hefur með viljayfir
lýsingu við Bjarg íbúðafélag samið um
úthlutun lóða fyrir 1000 íbúðir á fjórum
árum. Bygging 155 íbúða við Móa veg
eru fyrstu almennu íbúðirnar sem líta
dagsins ljós samkvæmt sam komu laginu.
Búið er að úthluta lóðum víðsvegar
um borgina fyrir allt að helm ing íbúða
skv. samkomulaginu við Bjarg sem
munu njóta stofn fram lags frá borg
inni. Fleiri verkefni munu því fylgja í
kjölfarið. Aðeins Akureyri, Akra nes
og Hafnarfjörður auk Hafnar í Horn
ar firði hafa útlhutað lóðum til Bjargs
á grundvelli stofn fram lags styrkja auk
borgarinnar. Reykja víkur borg hefur því
með fjölda lóða úthlut una til m.a. Bjargs
og annarra hús næðis sjálfs eigna stofn
anna sem rekin eru án hagnaðar sjónar
mark miða gengið fremst í flokki sveitar
félaga til uppbyggingar almennra íbúða.
Fulltrúar Bjargs íbúðarfélags og
borgarstjóri við skóflustunguna
Skýringarmynd af útliti, Yrki arkitektar