Kirkjublaðið - 04.07.1949, Blaðsíða 4
Guð er ljós og myrkur er alls
ekki í honum.
(1. Jóh. 1. 6).
Reykjavík, 4. júlí 1949.
Ekki mun hver sá, er við
mig segir: Herra, herra, ganga
inn í himnaríki, heldur sá, sem
gjörir vilja föður míns.
(Matth. 7. 21).
Ály k tanir
Prestastefnunnar
PRESTASTEFNAN—
Framh. af 1. síðu.
tölur enganveginn til jafnmik-
illar hnignunar í tíðasókn og
trúarlífi hér á landi og ýmsir
hafa látið í veðri vaka.
*
Aðalmál prestastefnunnar að
þessu sinni var sálgæzla og var
það mál aðallega rætt 2. dag
prestastefnunnar. Framsögu
höfðu þeir séra Þorsteinn L.
Jónsson í Söðulsholti og Alfred
Gíslason læknir í Reykjavík.
Voru erindi þeirra ítarleg og
snjöll og vöktu mikla athygli.
Kom það skýrt í ljós í umræð-
unum um málið, að prestarnir
höfðu mikinn áhuga á þessum
vandasömu og viðkvæmu mál-
um og sáu enn betur en áður
hvílík þörf er á því að prestar
kynni sér sem allra bezt sálar-
fræði og sálsýkisfræði og að
sem nánust og bezt samvinna
milli presta og lækna um and-
lega heilsuvernd fólksins, er
bæði æskileg og nauðsynleg í
þessum málum.
Síðasta og 3. dag prestastefn-
unnar var rætt um kirkjuna og
útvarpið og samþykktar ýmsar
ályktanir og tillögur, er birtast
á öðrum stað í blaðin.
Prestastefnunni lauk með
því, að biskup ávarpaði prest-
ana, ræddi um hinar ólíku
stefnur, sem nú bæri allmikið
á meðal prestanna og vaxandi
ágreining þeirra í millum í trú-
fræðinni. Hann kvað það út af
fyrir sig ekki óeðlilegt að menn
greindi á í þessum efnum. Það
væri heldur engin ný bóla innan
kirkjunnar, hvorki hér á landi
né annarsstaðar. En þrátt fyr-
ir allan ágreining ættu menn að
koma drengilega fram og
gleyma því ekki að prestarnir
væru allir bræður -og þjónar
hins eina Drottins. Það væri
ekki fyrst og fremst guðfræði
og því síður trúfræðilegar deil-
ur, sem þjóðin þarfnaðist nú,
heldur þafnaðist hún einingar
og aukins starfs allrar kirkjunn-
ar þjóna að eflingu trúar og sið-
gæðis í anda Jesú Krists. Síðan
var gengið til kapellunnar og
þar sleit biskup þessari presta-
stefnu með ritningarlestri og
bæn. Söngmálastjórinn Sigurð-
ur Bjxkis lék á orgelið og ungur
og einkar efnilegur nemandi
hans, Guðmundur Jónsson, söng
einsöng. Að síðustu sungu prest
arnir sálminn: Son Guðs ertu
með sanni.
Síðar um kvöldið sátu svo
prestarnir boð heima hjá bisk-
upshjónunum.
Á þessari prestastefnu flutti
séra Guðmundur Sveinsson á
Hvanneyri einkar fróðlegt og
merkilegt erindi um áhrif Ras
Sjamra textanna á biblíurann-
1. Sálgæzla.
Prestastefnan leggur til: 1)
Að Kirkjuráð Islands ráði á
næsta sumri tvo menn, prest
og lækni, til þess að ferðast um
landið til að fræða söfnuðina
um sálgæzlu og nauðsyn and-
legrar heilsuverndar, og verði
slíkum ferðum haldið upp í
framtíðinni. 2) Að sérstakir
prestar verði skipaðir til þjón-
ustu við stærstu sjúkrahús
sóknir nútímans. Þá fluttu og í
sambandi við prestastefnuna
opinber erindi í Dómkirkjunni,
Dr. Bjarni Jónsson vígslubisk-
up og séra Björn Magnússon
prófessor. — Vígslubiskupinn
nefndi erindi sitt í gær og í dag.,
en séra Björn talaði um játn-
ingarritin og íslenzku þjóð-
kirkjuna, Var það erindi mjög
fróðlegt og mun verða birt í
heild hér í blaðinu.
Á miðvikudaginn snæddu
prestarnir og konur þeirra há-
degisverð að Hótel Borg í boði
borgarstjórans í Reykjavík. —
Bauð Tómas Jónsson borgarrit-
ari gestina velkomna, og mælti
mjög hlýlega í garð kirkjunnar.
Biskup þakkaði fyrir hönd
prestanna og minntist sérstak-
lega borgarstjórans, Gunnars
Thoroddseft, sem staddur var er-
lendis og gat þess vegna eigi
verið þarna viðstaddur. Kvað
hann samvinnuna milli sín og
bæjarstjórnar hafa yfirleitt ver-
ið hina ákjósanlegustu að því er
málefni kirkjunnar hefði snert,
enda hefði borgarstjórinn jafn-
an sýnt íslenzku kirkjunni
mikla velvild, bæði sem borgar-
stjóri og á Alþingi.
Prestastefnunni bárust kveðju
skeyti frá kirkjumálaráðherra
Eysteini Jónssyni, forseta hins
íslenzka evangelisk lútherska
kirkjufélags í Vesturheimi, séra
Agli Fáfnis, séra Valdimar J.
Eylands, séra Finni Tuliníus,
séra Jónmundi Halldórssyni og
ennfremur ávarp frá prófessor
Dr. Richard Beck.
Enda þótt þessi prestastefna
væri tæplega eins fjölsótt og
verið hefur hin síðustu ár, hygg
ég að hún hafi orðið prestunum
að mörgu leyti lærdómsrík. Þar
voru rædd mál, sem miklu varða
prestana, kirkjuna og raunar
þjóðina alla og ýmisleg viðhorf
urðu skýrari. Og nú eru prest-
arnir að hverfa heim aftur til
starfsins á meðal safnaðanna,
og góður Guð gefi því starfi
sigur. S. V.
landsins eftir tillögu biskups.
3) Að efnt verði til samtals-
fundar með prestum, læknum
og hjúkrunarkonum um sam-
eiginleg verkefni.
2. Kirkjan og útvarpið.
Um leið og Prestastefnan
þakkar samstarfið milli útvarps
og kirkju hingað til, telur hún
eðlilegt og rétt, að biskup lands-
ins hafi framvegis umsjón með
messuflutningi í Ríkisútvarp-
inu. Ennfremur að kirkjunni
verði yfir vetrarmánuðina ætl-
aður hentugur tími í útvarpi,
þar sem flutt verði erindi
kirkjulegs og trúarlegs efnis.
Felur Prestastefnan biskupi að
ræða við stjórn Ríkisútvarps-
ins um það, á hvern hátt, þessu
megi verða heppilegast fyrir
komið í framkvæmd og skipa
að öðru leyti þessum málum í
samráði við Ríkisútvarpið á
þann veg, er hann telur bezt
henta.
3. Skálholt.
Prestastefna Islands skorar
á ríkisstjórnina að beita sér fyr-
ir því, að á næsta Alþingi verði
samþykkt lög um endurreisn
Skálholtsstaðar og veitt nauð-
synlegt fé til þess að endur-
reisa þar dómkirkju og byggja
íbúð fyrir væntanlegan vígslu-
biskup í Skálholti þannig, að
framkvæmdum þessum megi
verða lokið eigi síðar en á 900
ára afmæli Skálholts sem bisk-
upsseturs, árið 1956.
Ennfremur verði unnið að
því með lagasetningu í sam-
bandi við 400 ára ártíð Jóns
Arasonar, að Hólar í Hjaltadal
verði framvegis aðsetur vígslu-
biskupsins í Hólastifti hinu
forna, og komi lögin til fram-
kvæmda við næsta vígslubisk-
upskjör.
4. Fjölgun presta í Reykjavík,
Vegna hins öra vaxtar
Reykjavíkurbæjar, telur Presta
stefnan bera brýna nauðsyn til
þess að prestum verði fjölgað
þar, ekki sízt með tilliti til vax-
andi þarfar á auknu sálgæzlu-
starfi.
5. Kirkjuþing.
Prestastefna Isiands skorar-
á ríkisstjórnina að hlutast til
um að frumvarp það um kirkju-
þing fyrir hina íslenzku þjóð-
kirkju, sem prestastéttin og
Kirkjuráð hafa samþykkt og
sent hefur verið kirkjumála-
ráðherra, verði lagt fyrir Al-
þingi í haust, og væntir þess
eindregið að það verði sam-
þykkt.
IMýstofriaðir
kirkjukórar
1. Kirkjukór Borgarsóknar var
stofnaður að Borg á Mýrum
þann 8. júní síðastl. með 14 með-
limum.
Stjórn kórsins skipa:
Kristján Guðjónsson, Ferju-
bakka, formaður. Gunnar Jóns-
son, Ölvaldsstöðum, ritari. Guð-
finna Einarsdóttir, Bóndhól,
gjaldkeri.
Organisti og söngstjóri er
Guðmundur Jónsson, hrepp-
stjóri, Einarsnesi.
2. Kirkjukór Stafholtssóknar
var stofnaður að Stafholti þann
9. júní síðastl. með 15 meðlim-
um.
Stjórn: Bjarni Valen, Svarf-
hóli, formaður. Jórunn Jó-
hannsdóttir, Neðra-Nesi, ritari.
Bjarni Sveinsson, Eskiholti,
gjaldkeri.
Organisti og söngstjóri: Guð-
mundur Jónsson, hreppstjóri,
Einarsnesi. — Varaorganisti:
•Jóhannes Jónsson, Flóðatanga.
3. Kirkjukór Akrasóknar var
stofnaður að Vogi á Mýrum
þann 12. júní síðastl. með 11
meðlimum.
Stjórn: Sigurður Einarsson,
Vogi, formaður. Guðmundur
Benediktsson, Ökrum, ritari.
Jónas Ólafsson, Hundastapa,
gjaldkeri.
Organisti: Guðrún Sigurðar-
dóttir, Vogi.
Kirkjukórasamband
Mýraprófastsdæmis
Kirkjukórasamband Mýra-
prófastsdæmis var stofnað í
Borgarnesi þann 14. júní síð-
astl. með eftirtöldum kirkju-
kórum:
Kirkjukór Borgarness. Org-
anisti: Stefanía Þorbjarnar-
dóttir. Söngstjóri: Halldór Sig-
urðsson.
Kirkjukór Borgarsóknar.
Organisti og söngstjóri: Guð-
mundur Jónsson, hreppstjóri,
Einarsnesi.
Kirk j ukór Staf holtssóknar.
Organisti og söngstjóri: Guðm.
Jónsson, hreppstjóri, Einars-
nesi. Varaorganisti: Jóhannes
Jónsson, Flóðatanga.
Kirkjukór Akrasóknar. Org-
anisti: Guðrún Sigurðardóttir,
Vogi.
Stjórn sambandsins skipa:
Halldór Sigurðsson, Borgar-
nesi, formaður. Bjarni Sveins-
son, Eskiholti, gjaldkeri. Sig-
urður Einarsson, Vogi, ritari.
Meðstjórnendur: Guðfinna Ein-
arsdóttir, Bóndhól og Guðm.
Jónsson, hreppstjóri, Einars-
nesi.
Trú og þekking
Framh. af 3. síðu.
lífstríði sínu, að framlimirnir
voru stöðugt að lengjast og gera
hana um aldaraðir óhæfari til
þess að bera sig eftir björginni
og forðast gráðuga óvini.
Þegar maður því virðir fyrir
sér þróunina og sögu hennar, þá
er ekki nema um tvennt að velja,
annaðhvort að gefast algjörlega
upp við að skýra orsakir hennar
í verulegum atriðum, eða viður-
kenna það hreinskilnislega, að
yfii-gnæfandi líkur bendi til að
þar sé beinlínis um tilgang að
ræða, líkt og þegar vér sjáum
vegleg tmusteri smátt og smátt
rísa af grunni, þar sem hverjum
steini og hverri súlu er skipaður
sinn staður í ákveðnum tilgangi
samkvæmt vilja og tilgangs-
hyggju (púrposive activity)
byggingameistarans.
Ég held að það sé fjarri því
að vera barnaleg rökfærsla að
álykta af sköpuninni um skap-
arann. Og ég hygg að skynsam-
leg hugsun komist ekki fram hjá
því að draga þá ályktun af þró-
uninni að á bak við hana búi vits
munir og vilji, sem stjórna
henni í meginatriðum að settu
marki, enda þótt hinu skuli ekki
neitað að umhverfi, lífskjör og
ýms önnur atriði, geti þar og
nokkru um valdið í einstökum
atriðum.
Ég hygg, að þrátt fyrir allar
tilraunir vísindanna til þess að
leita sinna skýringa á þróun-
inni, sé oss enn óhætt og skylt
að taka undir með sálmaskáld-
inu:
Guð, allur heimur eins í lágu
og háu
er opin bók um þig er fræðir
mig.
Og hvert eitt blað á blómi jarðar
, smáu
er blað, sem margt er skrifað á
um þig.
Framh.
—■——•—
Séra Trausti Pétursson
skipaður prestur
á Djúpavogi
Séra Trausti Pétursson í
Sauðlauksdal hefir hinn 15.
júní verið skipaður sóknarprest-
ur í Hofsprestakalli í S.-Múla-
prófastsdæmi frá 1. júní þessa
árs að telja.
Skútusta öapr estakali
Umsóknarfrestur um Skútu-
staðaprestakall í S.-Þingeyjar-
prófastsdæmi var útrunninn
hinn 20. júní síðastl. Aðeins
einn umsækjandi hefir gefið sig
fram, Hermann Gunnarsson,
cand. theol. í Reykjavík. Kosn-
ing fer væntanlega fram fyrri
hluta júlímánaðar.