Kirkjublaðið - 31.10.1953, Síða 6

Kirkjublaðið - 31.10.1953, Síða 6
6 KIRKJUBLAÐIÐ Ávarps- og kveðjuorð Flutt í nafni prestastéttarinnar og Prestafélags fslands af Ásmundi Guðmundssyni prófessor. í nafni Prestafélags íslands vil ég mæla hér nokkur þakkar- orð til biskups vors látins, dr. Sigurgeirs Sigurðssonar. Margt er hér að þakka. En ég tel þó aðeins fátt, það er mestu varðar frá mínu sjón- armiði. Biskupinn var gæddur lista- mannseðli, og sérstaklega var það hljómlistin eða sönglistin, sem hann unni. Hann vissi það, að hún túlkar oftast betur en allt annað tilfinningar hjartans og hún er vegur milli himins og jarðar. Fyrir því felldi hann fagran söng og hljómlist inn í kirkjulegar athafnir, er hann framkvæmdi, svo sem við prests vígslu. Hrifning fór um hugina, er kirkjan ómaði öll: Sanctus. Sanctus. Og hann vildi, að fagur safnaðarsöngur yrði sem ríkast- ur þáttur í guðsþjónustum kirkju vorrar um land allt. Hugsaði hann um það vakinn og sofinn, hvernig svo mætti verða. Og hann sá leið til þess, sem aðrir höfðu ekki séð, og gerðist brautryðjandi. Söngflokkar mynduðust við kirkjurnar, fleiri og fleiri, og hafa prestarnir eignazt við það fjölda samstarfsmanna. Mun kirkjusöngur nú orðinn miklu betri hér á landi en hann hefir nokkru sinni verið fyrr eða síð- ar. Guð hefir blessað svo þetta starf biskups vors, að það hefir líklega orðið þar giftudrýgra en allra annarra biskupa á Islandi. Að minnsta kosti má í þeim efnum setja nafn hans við hlið nafni Jóns Ögmundarsonar. Biskup leitaðist einnig við það af alefli að bæta aöstöðu prestanna til þess að vinna sem mest og bezt kristni og kirkju. Áhugi hans, eljan og þraut- seigja var meiri en allra ann- arra, sem sem ég hefi kynnzt. Hann þekkti af eigin raun starfskjör prestanna og vildi bæta þeim það, sem hann hafði sjálfur farið á mis við. Hann gerði vissulega það, sem í hans valdi stóð. Og honum varð mjög mikið ágengt. En þegar á móti blés og seinna gekk en hann vildi, eða alls ekki, þá varð það honum þung raun, jafnmiklum kappsmanni. Eru ekki einnig allar hans andvökunætur þakk- arefni? Fyrir fáum árum sagði vinur hans í prestastétt eitthvað á þessa leið um hann: Hann berst fyrir okkar prestana eins og hetja og mun halda áfram að berjast, unz hann hnígur í sína gröf. — Nú mega menn sjá, hve þetta er satt. Heimili sitt vildi hann gefa öðrum með sér. Það fór vel á því, að húsið hans skyldi heita Gimli. Þar byggðu dyggvar dróttir, og þar var yndis að njóta. Engin girðing er um- hverfis blettinn fyrir framan húsið. Allir, sem vilja, geta gengið um hann uppi við húsið. Ég hygg, að biskupnum hafi ekki verið það fjarri, sem segir um biskupinn í Vesalingunum, að hús hans stæði opið dag og nótt, svo að hver sá mætti koma þangað inn, er væri hrelldur í hug og hjálpar þurfi, hvenær sem væri. En einkum vildi hann, að heimilið laðaði prestana að sér. Og þar stóð hann með opinn vinarfaðm, eins og faðir eða bróðir, og bauð oss velkomna með svo hlýju handtakí, að aldrei gleymist. „Lítið á þetta heimili eins og ykkar heimili“, sagð hann oft. Og það voru sannarlega ekki orðin tóm. Heldur tókst þeim hjónum að gjöra biskupsgarðinn að sam- eiginlegu heimili prestastéttar- innar, þeim til styrks og sálu- bótar, og lagði þaðan ylríka strauma um land allt, kristni- lífi þjóðarinnar til ómetanlegrar blessunar. Og með starfsævi sinni gaf biskupinn prestastétt íslands fagurt fordæmi, sem lengi mun í minnum haft. Hann kunni aldrei að hlífa sér við nokkurt starf, svo að mér kom oft í hug, að við hann ættu orðin, sem sögð voru fyrr um Tómas Sæm- undsson, að hann hefði verið ólmur maður. Hann varð prest- unum áskorun um það, að leggja sig alla fram í starfinu fyrir kirkjuna. Hann var líkrar skoð- unar og Nathan Söderblom, er hann mælti til prestanna, sem hann var að vígja: „Þér eigið að slíta yður út, en hægt og hægt“. Sigurgeir biskup gjörði hið fyrra, bæði innan lands og utan, og þar var hann nýlega kosinn forseti í stjórn Kirknasambands Norðurlanda. En hinu síðara hlýddi hann ekki. Hann sleit sér ekki út hægt og hægt, heldur hratt. Þegar á hann var kallað, var hann alltaf viðbúinn að koma. Hann sinnti öllu, jafnt bæði stóru og smáu, unz hann gat ekki meir. Æ, hvað sagði ég? Hvað er stórt og hvað er smátt í raun og veru? Er það ekki flest eða allt með einhverj- um hætti mikilvægt ? Mér fannst biskupinn benda oss með dæmi sínu á sannleiksboðskap Frels- arans, um að týna lífi sínu — og finna það. Hvílíkt þakkarefni er það! En meir en öll störf biskups viljum vér þakka það, er hann sjálfur var oss: Einarður, djarfur, heilhuga, góðhjartaður, ástúðlegur og barnslega hrifinn og glaður — lærisveinn Krists, sem ekki deyr, eins og komizt er að orði í Jóhannesarguð- spjalli um lærisveininn elskaða. Já, hversu margt er það í Heil- agri Ritningu, sem mun minna oss á hann: Biskupsvígslutexti hans, er hér var lesinn áðan: „Vísa. mér vegu þína, Drott- inn, kenn mér stigu þína. Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, á þig vona ég liðlangan daginn“. Eða orðin: „Til er sá vinur, sem er trygg- ari en bróðir“. Eða: „Verið í bróðurkærleikanum ástúðlegir hver við annan .... verið ekki hálfvolgir í áhugan- um, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni; verið glaðir í voninni . . . staðfastir í bæninni . . . stundið gestrisni". Eða áminningin um Guðs rík- is starfið, sem lýsir honum bezt: „Ver allur í þessu“. Já, vér þökkum, hver hann var. En í dýpstum skilningi þökk- um vér það allt ekki honum, heldur Guði, sem gaf. Frá hon- um er það komið og nú horfið aftur til upphafs síns. Hann gefi yöur af rikdómi dýrðar sinnar aö styrkjast fyrir anda sinn aö krafti hiö innra með yður, til þess að Kristur megi fyrir trúna búa í hjörtum yðar og þér verða rótfestir og grundvallaðir í kærleika . . . (Ef. 3.16) 1 dag gangið þið, kæru ungu vinir, út í lífsstarf ykkar, með hátíðlegum hætti. Hér verða tímamót í lífi ykkar. Kvödd eru æsku- og undirbúningsár. Þar er margs að minnast, sem við- kvæmt er að skilja við. Lífið er oft auðugt, fagurt og heill- andi á þeim árum og þá gefast oss ýmsar gjafir, sem endast lífið allt. Ég veit, að þakkarefni ykkar við fortíð ykkar eru ó- endanleg, þakkarefni við Guð, hinn ástríka föður, fyrir gjafir hans, þakkarefni við hann, sem hjálpaði, studdi og leiddi. Þessi dagur knýtir ykkur þannig föst- um böndum við fortíðina — við ástvinina heima á árum bernsk- unnar, fræðara, félaga og vini. Þessi dagur tengir ykkur þeim öllum fastar í kærleika og þökk. Klukkur helgidómsins hljóm- uðu, er þið komuð hingað í morgun. Jafnframt því sem þær kölluðu ykkur og oss öll til þess- arar vígsluhátíðar, hringdu þær inn hið nýja tímabil, sem er að Ó, blessuð stund, er burtu þokan líður — er fundir verða á feginsdegi og vér fáum aftur að sjá vorn hjartans vin. Þá munum vér einnig minnast þessa dags og fagna, að sárs- auki hans er liðinn hjá. Vér þökkum þér, biskup, Sig- urgeir Sigurðsson, en fyrst og síðast, síðast og fyrst þökkum vér Guði fyrir þig. Vér kveðjum þig með fyrir- bæn fyrir sjálfum þér og ávexti alls góðs, er þú sáðir. Verði sá ávöxtur á komandi tíð í góðri jörð að þrítugföldu, sextugföldu og hundraðföldu. Verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á Guðs ríkis braut. Algóður Guð vaki yfir kristni Islands og leiði hana til sigurs um aldir alda. Eilíft ljós hans lýsi anda þín- um í æðra heimi. Drottinn sé með þér og ást- vinum þínum. Tak þú — og þér öll blessun Drottins. Drottinn blessi þig . . . hefjast í lífi ykkar. Þær kölluðu ykkur umfram allt til þjónustu, til hinnar helgustu þjónustu á jörðu, til starfsins í víngarði heilagrar kirkju, kirkju Jesú Krists. Óskir, vonir og bænir vina ykkar og fjölda margra, sem þið ekki vitið um, fylgja ykkur út í hið mikla og ábyrgð- arríka starf, sem þér takist á hendur í dag. Það er kirkjan, sem kallar. Þeir eru orðnir margir, sem far- ið hafa héðan frá þessu altari út í hið veglega starf. Og marg- ir þeirra hafa reynzt einlægir og sannir þjónar og komið mörgu og fögru til leiðar í íslenzku þjóðlífi. Fyrir þeirra starf varð bjartara og betra yfir vegum þjóðarinnar. Þeir urðu eigi að- eins merkisberar hinna fegurstu og æðstu hugsjóna og boðendur þess boðskapar, sem mesta blessun hefir flutt mannkyninu. Þeir komu líka þangað sem ljóss var vant, þangað, sem mennirn- ir sátu í myrkri og skuggum dauðans. Og fyrir þeirra starf og fyrir hina framréttu bróður- hönd varð mörgum léttara um ganginn, en ella hefði orðið. Is- lenzka þjóðin finnur það öll, _að hún stendur í þakkarskuld við þjóna kirkjunnar, lífs og liðna, enda þótt þeir gætu ekki allir Framh. á næstu síðu. VÍGSLURÆÐ A Flutt í Dómkirkjunni í Reykjavík 4. október 1953 við prestsvígslu guðfræðikandidatanna, Árna Sigurðssonar og Braga Reynis Friðrikssonar. Þetta er síðasta ræðan, sem biskupinn dr. Sigurgeir Sigurðsson flutti í Reykjavík.

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.