Kirkjublaðið - 31.10.1953, Síða 8

Kirkjublaðið - 31.10.1953, Síða 8
Innan skamms rrvun heim- urinn ekki sjá mig framar, en þér munuð sjá mig, því aö ég lifi og þér munu'ö lifa. (Jóh. 14. 19). En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mest- ur. (I. Kor. 13. 12). Laugardagur 31. október 1953. Gjafir og áheit Kirkjustaðir... Framh. 21. Fljót. I Kirknaskrá Páls biskups er talin kirkja á Fljóti, en eigi verður með vissu vitað frekari deili á þeim stað. Páll biskup þræðir í skránni all ná- kvæmlega röð kirkjustaðanna. Er Fljóti þar skipað næst eftir Skúmstöðum, en þá Vestmanna- eyjar og síðan kirkjurnar í Fljótshlíð og byrjað innst, þ. e. á Eyvindarmúla. Þar sem Vest- mannaeyjum er hér skotið inn í á milli, ætti Fljót að vera annað hvort vestast í Landeyjum eða innst í Fljótshlíð. Nú er mér ekki kunnugt um bæ í Landeyj- um með þessu eða líku nafni. Hinsvegar heitir innsti bær í Fljótshlíð Fljót. Þykir mér ekki með öllu ósennilegt að þar hafi verið kirkjustaður til forna, þótt eigi finnist þess getið í fomum bréfum annarsstaðar. Önnur handrit af Kirknaskrá Páls biskups benda á, að línu- brengl hafi átt sér stað og að með orðinu Fljót sé ekki átt við neinn kirkjustað, heldur Mark- arfljót sjálft. 22. Eyvindarmúli. Þar var Jóns kirkja postula og átti sem svaraði prestsskyld í heima- landi. Er kirkjunnar getið þeg- ar um 1200. Þaðan var sungið annan hvern helgan dag að Hlíðarenda. — Nokkru eftir siðaskiptin voru Eyvindarmúla- Hiíðarenda- og Teigssóknir sameinaðar í eitt prestakall, er nefndist Fljótshlíðarþing. Þetta kall er síðan með lögum 1880 sameinað Breiðabólsstað, en með landsh.br. 18. nóv. 1896 eru Teigs- og Eyvindarmúla- kirkjur lagðar niður og Hlíðar- endi gjörður að kirkjustað fyr- ir báðar sóknirnar, en þar hafði þá verið kirkjulaust um skeið, eða frá 1802. 23. Hlíðarendi. Þorlákskirkja og átti 20 hundruð í heimalandi. í Vilchinsmáldaga 1397 Hlíðar- endakirkju segir, að þar skuli syngja hvern helgan dag, en í máldaga Eyvindarmúlakirkju, sem talinn er frá sama tíma, er sagt, að Eyvindarmúlaprest- ur skuli syngja að Hlíðarenda annan hvern helgan dag. Er því annað hvort, að kirkjan hefir orðið hálfkirkja um þetta léyti, eða að henni hefir að hálfu verið þjónað frá Teigi og hefir þá Hlíðarendakirkjasenni- lega ekki orðið hálfkirkja fyrr en um siðaskipti. Með bréfi 15. apríl 1724 er hún gerð að þriðj- unga kirkju og 23. apríl 1802 er hún með öllu lögð niður og sóknin sameinuð Teigssókn. Þessu er síðan snúið gjörsam- lega við árið 1896, er Teigs- og Eyvindarmúlakirkjur eru báðar niður lagðar og kirkja fyrir báðar þær sóknir endur- reist á Hlíðaronda. 24. Teigur. Maríukirkja var þar og átti þriðjung heimalands og að auki þriðjung í Butralda- stöðum. Þangað lágu sjö bæir og voru bænhús á þrem þeirra, en eigi er getið á hvaða bæj- um bænhús þessi stóðu. Kirkj- unnar er fyrst getið í kirkna- ski’á Páls um 1200. Samkvæmt máldögum í kaþólskum sið áttu þar að vera bæði prestur og djákn. Teigskirkja var, eins og áður getur, lögð niður ásamt Eyvindarmúlakirkju árið 1896, en kirkja reist á Hlíðarenda fyrir báðar sóknirnar. 25. Kirkjulækur. Þar setti Oddgeir biskup Þorsteinsson kirkju árið 1371. Var það Þor- lákskirkja og átti tíu hundruð í heimalandi. Þetta var hálf- kirkja aðeins og þangað sungið annan hvern helgan dag, senni- lega frá Breiðabólsstað. Kirkju- lækjarkirkja stóð fram yfir siðaskipti, en hefir að líkind- um lagzt af um eða fyrir 1600. 26. Vatnsdalur. Kirkja þar er nefnd í Gíslamáldaga laust eftir 1570, en hefir vafalaust aðems verið hálfkirkja eða fjórðungskirkja og þjónað frá Breiðabólsstað. Máldagar fyrir kirkiu þessa eru ekki til og virðist hún hafa fljótlega hrörnað niður í bænhús. Árni Magnússon segir bænhús stand- verið embættað frá Breiðabóls- andi í Vatnsdal og hafi þar stað „fyrir fjórtán árum“, þ. e. um aldamótin 1700. 26. Ey í Landeyjum. Þar var Péturskirkja og átti tíu hudruð þangað sungið annan hvern dag helgan. Kirkjunnar er ekki getið í Gíslamáldaga um 1570 og hefir því sennilega lagzt niður um eða fyrir siðaskiptin. 27. Lambey. Þar mun verið hafa Maríukirkja og átti tíu hundurð í heimalandi. Var það hálfkirkja og þangað sungið frá Breiðabólsstað annan hvern helgan dag. Fyrsti máldagi í heimalandi. Var kirkjan út- kirkja frá Breiðabólsstað og hennar er frá um 1371. Kirkj- unnar er ekki getið í Gísla- máldaga laust eftir 1570 og virðist þá vera úr sögunni. 28. Þorvarðsstaðir er nú munu nefndir Torfastaðir. Þar var Maríukirkja og átti tíu hundruð í landi. Var hálfkirkja aðeins og þjónað frá Breiða- bólsstað. Kirkjunnar er ekki getið í Gíslamáldaga og hefir því að líkindum horfið úr sögu um eða jafnvel fyrir siðaskipti. Á tímabilinu 1. júlí til 1. okt. s.l. hefir í biskupsskrif- stofunni verið veitt móttaka þessum gjöfum og áheitum. I. Strandarkirkja. N. N. kr. 30,00; F. kr. 10,00; kjósandi á Norðf. kr. 50,00; N. N. Bíldudal kr. 100,00; Elías Hallgrímsson kr. 50,00; frá Akranesi kr.. 100,00; ón. kr. 5,00; S. Þ. kr. 30,00; Á.Þ.G.B. kr. 45,00; M. J. Vestfjörðum kr. 20,00; í. S. Neskaupst. kr. 100,00; S. J. kr. 25,00; J. E. kr. 25,00; Á. H. J. kr. 100,00; J. F. kr. 100,00. Afhent af Morgunblaðinu kr. 9.142,00; E. Ó. kr. 150,00; Unnur kr. 50,00; Ó. D. kr. 50,00; S. Guð- munds. kr. 100,00; J. K. kr. 100,00; F. J. kr. 40,00; E. J. kr. 50,00; M. J. kr. 50,00; Þ. G. kr. 100,00; N. N. kr. 100,00; ón. kr. 100,00. Þ. J. Kornsá kr. 100,00; X kr. 200,00; B kr. 50,00; J. H. kr. 50,00; ón. kr. 25,00; B. Ó. kr. 100,00. Hey- þurrkunarm. kr. 50,00, Hrefna kr. 110,00; N. N. kr. 100,00. G. J. kr. 10,00, N. N. kr. 10,00. S. H. kr. 30,00. Afhent af Mbl. kr. 11.785,00; B. Ós. kr. 100,00; G. H. S. S. S. kr. 50,00; ón. Þórshöfn kr. 50,00; K. L. kr. 20,00; H. K. kr. 150,00; ón. kr. 100,00; G. J. S. kr. 100,00. Einar Bergsteinsson kr. 100,00; kr. 100,00; Guðbj. G. Patreksf. kr. 100,00; V. E. kr. 20,00; ungur piltur kr. 100,00. N. N. Hólmavík kr. 100,00. R. E. kr. 50,00; afhent af Tímanum kr. 310,00; V. kr. 55,00. R. Hólma- vík kr. 10,00; J. J. kr. 50,00; ón. kr. 50,00; gamalt áheit kr. 50,00; Emanúel kr. 30,00; Júlíus kr. 50,00; E. J. B. kr. 50,00; kona kr. 200,00; Guðl. Jóh.d. Ólf. kr. 100,00; gömul kona kr. 30,00; X kr. 50,00; M. M. kr. 30,00; M. F. V. kr. 110,00; G. J. kr. 50,00; ón. kr. 200,00; Sig. Friðsteins. River- ton ki*. 354,66; ón. kr. 25,00; kona Rang. kr. 20,00; vinnu- kona kr. 10,00; J. kr. 100,00. Unnur Jónsd. kr. 100,00; S. F. og J. J. kr. 10,00; afhent af Alþýðublaðinu kr. 185,00; kona kr. 20,00; P. G. kr. 2000,00; ón. kr. 100,00; Inga Hanna kr. 50,00; Afh. af Morgunblaðinu kr. 16.197,88; J.I.E. kr. 200,00; G. V. kr. 50,00; G. G. kr. 100,00; Á. G. kr. 100,00; M. H. K. kr. 100,00; B.A.I. kr. 200,00; J. Magn. kr. 20,00; ón. kr. 25,00; ón. kr. 100,00; H. J. Norðfj. kr. 200,00; ón. kr. 10,00; B. P. Sandg. kr. 50,00; Þ. J. Húnvetningar kr. 750,00; kona kr. 10,00; R. J. kr. 50,00; G. J. kr. 50,00; J. S. kr. 50,00. Kristín Sigmd. kr. 50,00; H. kr. 150,00; ón. kr. 25,00; M. H. kr. 200,00; I. Á. kr. 20,00; kona kr. 50,00; kona kr. 75,00; Ó. D. kr. 40,00; S og S kr. 20,00; Kristín G. kr. 50,00; J. G. kr. 30,00; Hrólfur Þ. kr. 50,00; afhent af Tímanum kr. 575,00; Halla kr. 50,00. 2. HallgHmskirkja. N. N. kr. 100,00; Þ. G. kr. 100,00; K. S. G. kr. 50,00; Sig- ríður kr. 25,00. 3. Hallgrímskirkja í Saurbæ. X kr. 2000,00; afh. af Alþbl. kr. 50,00. 4. Hvalsnesskirkja. Guðj. Kr. Dalvík kr. 60,00; N. N. kr. 30,00. 5. Landakirkja Vestm. Afh. af Morgunbl. kr. 200,00. 6. Skálholtskirkja. Þrjú áheit Þ. Á. kr. 75,00. 7. Prestsbakkakirkja V.-Sk. Guðr. Jónsd. kr. 100,00; St. Sveinsd. kr. 10,00. 8. Prestsekknasjóður. Próf. Ef. samskot kr. 205. Próf. S.-Múl. samskot kr. 100. 9. Voðmúlastaðakapella. Nói kr. 50,00. * Blaðið Vegna andláts biskups, en hann var bæði eigandi og á- byrgðarmaður blaðsins, má bú- ast við að hlé verði á útkomu blaðsins um skeið, eða unz nýr biskup tekur við starfi, er þá kynni að vilja halda blaðinu áfram. Blaðið vill nota þetta tækifæri til þess að þakka þá velvild og þann stuðning, sem það hefir notið undanfarin ellefu ár, um leið og það árnar öllum kaup- endum sínum árs og friðar og blessunar Guðs í nútíð og fram- tíð.

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.