Verktækni - 2018, Síða 3
Blaðið VERKTÆKNI er gefið út af Verkfræðingafélagi Íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein.
Leyfilegt er að birta efni úr Verktækni ef heimildar er getið. Skoðanir sem settar eru fram í blaðinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda.
Prentvinnsla: Svansprent · Mynd á forsíðu: Morgunblaðið · Aðstoð við útgáfu: Hænir · Sími: 558 8100 · utgafa@utgafa.is
V E R K T Æ K N I
Að meta viðhorf
Á fyrri hluta ársins 2018 voru birtar niðurstöð-
ur könnunar á viðhorfi félagsmanna til VFÍ.
Þar kom margt gagnlegt og áhugavert fram.
Fyrir það fyrsta eru væntingar félagsmanna til
félagsins auðvitað afar mismunandi. Sumir vilja
að félagið sinni fyrst og fremst kjaramálum,
aðrir vilja leggja áherslu á starfsemi sem tengist
faginu og tengslaneti félagsmanna. Sumir eru
mjög ánægðir aðrir mjög óánægðir, eins og
gengur. En ég fullyrði að starfsfólk skrifstofu
VFÍ er allt af vilja gert til að bæta í og gera enn
betur. Til þess eru mörg tækifæri, sérstaklega
gagnvart þeim hópi sem er tiltölulega hlutlaus í
afstöðu sinni. – Er svona „hvorki né“. Kannski
var það ánægjulegast við könnunina hve þátt-
takan var góð og margir gáfu sér tíma til að
segja skoðun sína og koma með ábendingar
í svörum við opnum spurningum. Þetta kom
kannski dálítið á óvart þegar litið er til afar
lélegrar þátttöku í kosningum hjá mörgum
stéttarfélögum. Þátttaka í viðhorfskönnun VFÍ
var tæp 55%og má kannski túlka á þann veg að
sinnuleysið sé ekki alveg það sama hjá félags-
mönnum VFÍ og víða annarsstaðar. Niðurstöður
viðhorfskönnunarinnar eru á vef VFÍ undir
„útgáfa – ýmis skjöl“.
Þegar þetta er skrifað hefur verið ákveðið
að gera könnun á viðhorfum félagsmanna í
aðdraganda kjaraviðræðna. Hvað er það sem
félagsmenn vilja að lögð verði áhersla á? Er
það mismunandi eftir hópum? – Annars vegar
þeim sem heyra undir kjarasamning við Félag
ráðgjafarverkfræðinga og hins vegar þeim
sem vinna á opinberum markaði. Það verður
án efa fróðlegt að rýna í þær niðurstöður. Þeir
félagsmenn sem heyra undir kjarasamning VFÍ
við SA fá ekki könnunina enda er þar um að
ræða ótímabundinn grunnréttindasamning sem
inniheldur ekki launatölur. Þeirra viðhorf munu
þó koma fram í næstu kjarakönnun VFÍ þar
sem fyrirhugaðar eru breytingar á könnuninni
þannig að fleira verði mælt en bara laun.
Aðsóknin á Dag verkfræðinnar hefur aukist
ár frá ári og síðast mættu á sjötta hundrað
manns. Verður það að teljast góður árangur
en við viljum gera enn betur. Nú er að fara í
gang undirbúningur fyrir Dag verkfræðinnar
2019 og verður það í fimmta sinn sem þessi
viðburður er haldinn. Sú stefna hefur verið far-
sæl að leita eftir hugmyndum félagsmanna og
hafa fyrirlestrar nær undantekningalaust farið
á dagskrá eftir ábendingar frá þeim. Ég vil því
hvetja félagsmenn til að koma með hugmyndir
og jafnvel taka þátt í vinnuhópi um þróun og
framkvæmd Dags verkfræðinnar. Þeir sem vilja
vera með fyrirlestur á Degi verkfræðinnar mega
gjarnan láta vita sem fyrst. Við erum líka alltaf á
höttunum eftir áhugaverðu efni fyrir samloku-
fundina. Áhugasamir geta sent skilaboð gegn-
um Facebook síðu VFÍ eða tölvupóst á sigrun@
verktaekni.is.
Nú er þetta að líkindum í síðasta sinn sem
Verktækni - Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
er gefið út á prentuðu formi. Ég vil þakka þeim
sem lögðu til efni í blaðið, sérstaklega greina-
höfundum og þeim sem tóku að sér að ritrýna.
Á nýju ári verða breytingar á útgáfumálunum
sem vonandi falla í góðan jarðveg. Áherslan
verður á rafræna útgáfu þar sem upplýsingum,
til dæmis um kjaramál, er miðlað til félags-
manna jafnt og þétt samhliða því að gera rit-
rýndu efni hátt undir höfði.
Sigrún S. Hafstein, ritstjóri
L E I Ð A R I N N
VFÍ á Facebook – Rafbílahópur VFÍ
Við hvetjum félagsmenn VFÍ til að fylgja félaginu sínu á Facebook.
Við leggjum áherslu á að setja jafnóðum inn upplýsingar umsóknarfresti
í sjóðum og viðburði á vegum félagsins. Þá er einfalt að senda okkur skilaboð í
gegnum Facebook síðuna, þau komast til skila.
https://www.facebook.com/vfi.1912/
Rafbílahópur VFÍ á Facebook (Rafbílar VFÍ) er í mikilli sókn.
Þar eru áhugaverðar upplýsingar og umræður um rafbílavæðinguna.
Efnisyfirlit
4 Um Sjúkrasjóð VFÍ
6 VFÍ á tímamótum
Ný bók: Haugseldur
8 Af stjórnarborði VFÍ
9 Hugleiðingar formanns
10 Nýtt Tæknifræðisetur Háskóla Íslands
11 Fjölskyldudagur verkfræðinnar og samstarf
við Vísindasmiðju HÍ
12 Dagur verkfræðinnar
14 Af kjaramálum VFÍ
Veikindaréttur og hlutverk sjúkra- og styrktarsjóða
16 Viðurkenningar fyrir lokaverkefni í tæknifræði
17 Viðurkenning fyrir besta veggspjaldið
Rýni 2018
18 Heiðursveitingar VFÍ
20 ANE (Association of Nordic Engineers)
Siðferði og gervigreind
21. Nordic Engineers stand on Artificial Intelligence
and Ethics
Ritrýndar vísindagreinar
25 Bergsprungur og byggingar á höfuðborgarsvæðinu.
31 Hönnun og virkni léttra gróðurþaka við íslenskar
aðstæður
Tækni- og vísindagreinar
42 Falin verðmæti í jarðvarmaorku
VERKTÆKNIGetur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
RARIK rekur í dag stærsta dreifikerfi raforku á Íslandi. Frá árinu 1991 hafa loftlínur markvisst
vikið fyrir jarðstrengjum sem aukið hefur rekstraröryggi dreifikerfisins og dregið úr
sjónrænum áhrifum þess. Nú þegar eru um 59% dreifikerfis RARIK í jarðstrengjum og
stefnt er að því að allt kerfið verði komið í jörð árið 2035.
www.rarik.is