Verktækni - 2018, Blaðsíða 20
20 VERKTÆKNI 2018/24
TÆKNI- OG VÍSINDAGREINAR
Policy recommendations and guidelines
Nordic engineers’ stand on
Artificial Intelligence and Ethics
Málsvari 360 þúsund félagsmanna
Frá upphafi árs 2018 hefur Verkfræðingafélag Íslands verið aðili að
ANE (Association of Nordic Engineers).
ANE er samstarfsvettvangur sem var settur á laggirnar árið 2007
af félögum verkfræðinga og tæknifræðinga í Danmörku, Svíþjóð og
öðru af tveimur félögum í Noregi. Hlutverk ANE er að gæta hags-
muna norrænna verkfræðinga og tæknifræðinga bæði innan
Norðurlandanna og í alþjóðlegu tilliti. Í dag eru um 360 þúsund
félagsmenn í aðildarfélögum ANE.
Markmiðið er að auka sýnileika og áhrif stéttarinnar og koma
þekkingu og hagsmunum á framfæri inan Norðurlandanna og utan.
Einnig að miðla þekkingu og reynslu milli félaganna. Á árinu hefur
ANE beitt sér á sviði siðferðis og gervigreindar og einnig gert
könnun á hæfniþróun verkfræðinga og tæknifræðinga á
Norðurlöndunum. Niðurstöður könnunarinnar verða birtar í upp-
hafi árs 2019.
Siðferði og gervigreind
Norrænir verkfræðingar og tæknifræðingar taka afstöðu
ANE hefur tekið ákveðið frumkvæði í umræðu um siðferði og gervi-
greind. Um miðjan nóvember voru kynntar niðurstöður vinnufund-
ar um þetta efni. Hér á næstu blaðsíðum eru kynntar fimm tillögur
að stefnumálum og listi með viðmiðum fyrir siðferðilega nálgun í
þróun á sviði gervigreindar og notkun hennar. Ítarefni um verkefnið
er í fréttum á vef VFÍ og undir „útgáfa – ýmis skjöl“. Einnig var
haldinn Samlokufundur á vegum VFÍ og er upptaka á vefnum.
Vinnufundurinn var skipulagður af ANE og Upplýsingatækni-
háskólanum í Kaupmannahöfn (ITU), EthosLab. Þátttakendur á
fundinum voru frá aðildarfélögum ANE, þ.á.m. Verkfræðingafélagi
Íslands, tæknifræðingar, verkfræðingar og tölvunarfræðingar auk
nemenda í þessum greinum og sérfræðingar á sviði gervigreindar.
Í frétt frá ANE segir meðal annars: „Þörf er á sterkum stuðningi frá
stofnunum samfélagsins til að ná árangri í vegferð okkar í átt að
siðferðilega réttum starfsháttum og þess vegna er kerfislegur stuðn-
ingur við málstaðinn algjört grundvallaratriði þegar kemur að sið-
ferði og gervigreind. Verkfræðingar og stofnanir þeirra koma til með
að bera stóran hluta ábyrgðarinnar sem fylgir því að hanna og nota
kerfi sem byggja á gervigreind, en einnig verða viðkomandi stjórn-
einingar norrænu ríkjanna sem og í ESB að axla sína ábyrgð og nýta
þau tækifæri til aðgerða sem til staðar eru. - Þetta er ákall norrænna
verkfræðinga og tæknifræðinga til stjórnmálamanna í norrænu ríkj-
unum sem og í allri Evrópu.“
Þar segir ennfremur að í öllum greinum verkfræðinnar komi sífellt
betur í ljós að siðferðileg álitamál þurfi að vera skýr og óaðskiljan-
legur hluti verkfræðinnar í heimi sem byggir á gögnum og er tengd-
ur sem ein heild. Hins vegar geta verkfræðingar og tæknifræðingar
ekki axlað ábyrgðina einir. Verkfræðilegar lausnir, hvort sem þær
eru byltingarkenndar eða ekki, eru þróaðar í tengslum við viðskipta-
líkön og verða að passa inn í regluverk og ramma sem stjórnvöld
búa til.
Þess vegna leggja norrænir verkfræðingar og tæknifræðingar enn
frekari áherslu í tillögum sínum á þörfina fyrir umræðu á meðal
stjórnmálamanna um þessi mál sem og mikilvægi þess að auka
skilning almennings á gervigreind. Markmiðunum mætti ná með
því að búa til vettvang - fundarsvæði þar sem viðskiptalífið, akadem-
ían, borgaraleg samtök, áhrifafólk og sérfræðingar geta hist ásamt
verkfræðingum og tæknifræðingum, í þeim tilgangi að finna varan-
legar og gagnsæjar lausnir fyrir gervigreind.
Umræðurnar leiddu þar að auki í ljós nauðsyn þess að gera gát-
lista sem taka á siðferðilegum álitaefnum við þróun gervigreindar; í
því skyni að tryggja að manneskjur hafi stjórn á mikilvægum þátt-
um, að getan til að íhuga siðferðileg atriði fái að þroskast, umræður
fari fram og að fólk átti sig á hlutdrægni sinni og annarra.
Hvað er ANE?