Verktækni - 2018, Side 4
Opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða
LÍFSVERK lífeyrissjóður ¬ Engjateigi 9 ¬ 105 Reykjavík ¬ www.lifsverk.is
∫ Meiri ávinningur réttinda
∫ Hagstæð sjóðfélagalán
∫ Sjóðfélagalýðræði
∫ Jákvæð tryggingafræðileg staða
∫ Ábyrg fjárfestingastefna
∫ Val um sparnaðarleiðir
Lykillinn að góðri framtíð
er að hugsa um hana strax
Munið Sjúkrasjóð VFÍ
Mikilvæg réttindi fást með aðild að Sjúkrasjóði VFÍ sem er fyrir félagsmenn á almennum
markaði. Þau skapast við lögbundið framlag atvinnurekanda. Sjóðfélagar öðlast rétt til
úthlutunar þegar iðgjöld hafa borist í sex mánuði, þar af síðustu þrjá mánuði samfellt.
Athugið að í sumum tilvikum er skilyrði um eins árs aðild að sjóðnum.
Einungis félagsmenn í VFÍ geta átt aðild að sjóðnum.
Dagpeningar eru greiddir í allt að 120 daga eftir
að samnings- eða lögbundinni kaupgreiðslu
vinnuveitanda lýkur. Stjórn sjóðsins er heimilt
að framlengja tímann í allt að 150 daga og
greiða hluta dagpeninga ef sjóðfélagi getur ekki
stundað fulla vinnu. Upphæð dagpeninga er
80% af meðal iðgjaldagreiðslum í sjóðinn sl. 12
mánuði. Þó ekki hærri upphæð en ein milljón á
mánuði.
Sjúkrasjóður VFÍ hefur sérstöðu að því leyti
að sjóðfélagar safna í svokallaðan „pott“ og
fá úr honum ýmiss konar heilsustyrki. Hámark
árlegrar styrkupphæðar nemur 75% af árs
iðgjöldum viðkomandi sjóðfélaga. Heimilt
er að safna iðgjöldum þriggja ára. Greiddur
er styrkur vegna eftirfarandi: líkamsrækt,
sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, sjúkranudd, kirópraktor,
meðferð hjá sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi,
félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða
sambærilegum viðurkenndum meðferðaraðila.
Foreldranámskeið, krabbameinsskoðun, hjarta-,
lungna- og æðaskoðun. Gleraugu, linsur og
heyrnartæki, lyf, tannlækningar, lýtalækningar
og aðrar lækningar sem styrkþegi ber kostnað
af.
Vegna skertra launatekna við langvarandi
veikindi maka og/eða barna greiðir sjóðurinn
dagpeninga í allt að 60 daga.
Greidd er eingreiðsla að fjárhæð kr. 3 milljónir
fyrir 75% örorkumat eða hærra og lækkar í réttu
hlutfalli við minna örorkumat.
Greiddar eru viðbótargreiðslur vegna
fæðingarorlofs jafn lengi og sjóðfélagi
nýtur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.
Viðbótargreiðslur eru vegna andvana fæðingar
eða fósturláts.
Eru hlutfall af launum sem iðgjöld hafa verið
greidd af og er miðað við sl. tólf mánuði fyrir
andlát sjóðfélaga. Maki eða sambýlingur fær
jafngildi einna mánaðarlauna og börn yngri en 18
ára jafngildi hálfra mánaðarlauna. Til aðstandanda
sem stendur straum af kostnaði við útför er
greidd ein milljón króna. Vegna fjárhagslegra
áfalla vegna andláts maka, sambýlings eða barns
sjóðfélaga er greitt jafngildi einna mánaðarlauna.
Greiddur er styrkur allt af 75% af útlögðum
kostnaði að hámarki ein milljón króna.
Greiddur er styrkur allt af 75% af útlögðum
kostnaði að hámarki ein milljón króna.
Endurgreitt er 75% af útlögðum kostnaði að
hámarki 300 þúsund krónur. (Lazeraðgerðir: 150
þúsund kr. hvort auga)
Veikindi eða slys
Heilsustyrkir – líkamsrækt o.fl.
Veikindi maka eða barna
Varanleg örorka
Fæðingarorlof
Dánarbætur
Tæknifrjóvgun
Ættleiðing
Augnaðgerðir
Mikilvægt!
Almennt gildir að forsenda endurgreiðslu er framvísun frumrits fullgildra greiðslukvittana vegna útlagðs kostnaðar.
Skattfrjáls styrkur til heilsueflingar er kr. 55 þúsund á almanaksárinu. Til að nýta þennan rétt verða umsóknir að berast
fyrir 1. desember ár hvert. Þess vegna er best að senda inn umsókn um leið og greiðsla hefur verið innt af hendi.
Þessar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og gildandi starfsreglur sjóðsins. Við hvetjum félagsmenn
eindregið til að kynna sér vel starfsreglur sjóðsins.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Verkfræðingafélags Íslands www.vfi.is