Morgunblaðið - 16.08.2022, Page 1

Morgunblaðið - 16.08.2022, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. Á G Ú S T 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 190. tölublað . 110. árgangur . MEIRIHÁTTAR MÓTORHJÓLA- NÁMSKEIÐ DANIJEL DEJAN DJURIC BJARGAÐI STIGI ÍSLAND Í BRENNI- PUNKTI Í ÁR BESTA DEILDIN 27 NORDIC SONG FESTIVAL 28BÍLAR 16 SÍÐUR Kaflaskil urðu hjá Landhelgisgæslu Íslands í gær þegar form- lega var gengið frá sölu varðskipanna Týs og Ægis og þau af- hent nýjum eiganda. Virðuleg kveðjuathöfn fór fram um borð í Ægi og Tý við Sundahöfn þar sem fyrrverandi skipverjar drógu skutfánann niður á meðan starfsmenn Landhelgisgæsl- unnar stóðu heiðursvörð. Georg Kr. Lárusson, forstjóri, tók við fána Ægis og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, tók við fána Týs. Þar með lauk áratuga farsælli sögu skipanna í þágu íslensku þjóðarinnar. Landhelgisgæslan kvaddi Ægi og Tý eftir dygga þjónustu Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísland er ekki samkeppnishæft um nýja sérfræðilækna eftir sérnám er- lendis, vegna stöðu samninga Sjúkratrygginga Íslands við þá. Þetta er mat Jóhannesar Kára Kristinssonar, augnlæknis á stof- unni Augljós. Hann segir það ekki síst gilda um augnlækna og að ljóst sé að staðan í endurnýjun stéttarinn- ar sé grafalvarleg. Yfir helmingur yfir sextugu Nú er svo komið að 59 prósent starfandi augnlækna á Íslandi eru yfir sextíu ára gamlir. Meira en helmingur þeirra sem eru eldri en sextíu ára, eru yfir sjö- tugu. Samningar SÍ við augnlækna hafa nú verið lausir í fjögur ár. Flestir augnlæknar starfa sjálf- stætt og byggist starfsemi þeirra því að miklu leyti á samningum við SÍ. Jóhannes Kári segir að nýútskrif- aðir augnlæknar geti ekki komið heim til starfa eftir nám án nýrra samninga, þar sem þeir séu ekki samkeppnishæfir við aðra augn- lækna. Auk þess segir hann samninga um augnsteinaaðgerðir, sem gerðar eru utan sjúkrahúsa, vera gríðarlega hagstæða fyrir ríkið þar sem aðgerð- irnar eru framkvæmdar í mun ódýr- ara húsnæði. Aðeins eru í gildi samningar við eina stofu sem sinnir slíkum aðgerð- um. Biðlistar í augnsteinaaðgerðir hafa lengst og eru nú nærri tvö ár. Tekur aðeins tíu mínútur „Það er bara bilað ástand. Þessar hefðbundnu aðgerðir, sem flestir fara í, taka tíu mínútur.“ Lengri biðlistar leiða svo til tvö- falds heilbrigðiskerfis. doraosk@mbl.is Grafalvarlegt ástand meðal augnlækna - Augnlæknar hafa verið samningslausir í fjögur ár MLæknum fækkar og biðlistar … »6 24stundir/Sverrir Aðgerð Starfsemi augnlækna er að miklu leyti bundin við samninga SÍ. Gamla góða íslenska gulrófan er að komast aftur í tísku með ráðlegg- ingum meistarakokka um breytta matreiðslu. Hefur það leitt til auk- innar sölu, að sögn Gunnlaugs Karls- sonar, framkvæmdastjóra Sölu- félags garðyrkjumanna. Gulrófur eru meðal þeirra mat- jurta sem fyrstar náðu útbreiðslu meðal landsmanna og hafa því verið hluti af fæðu Íslendinga í tvær aldir. Þær eru C-vítamínauðugar og eru stundum kallaðar appelsínur norð- ursins. Algengasta matreiðsluað- ferðin, suðan, er nú á undanhaldi, vegna þess að aðrar aðferðir eru taldar draga betur fram eiginleika rófunnar, svo sem að steikja þær á pönnu eða grilla þær. »4 Gulrófur Hægt er að matreiða rófuna á ýmsan hátt, að mati meistarakokka. Rófan aftur í tísku Samtals eru nú rúmlega 60 þús- und erlendir ríkisborgarar búsett- ir á Íslandi samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands. Var 60.171 erlendur ríkisborgari skráður með búsetu hér á landi 8. ágúst síðastliðinn. Hefur þeim fjölgað um 5.192 frá 1. desember í fyrra eða um 9,4%. „Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 564,4% frá 1. desember sl. og voru þann 8. ágúst sl. 1.588 úkraínskir ríkis- borgarar skráðir til heimilis á Ís- landi samkvæmt Þjóðskrá. Þetta er fjölgun um 1.349 manns á tíma- bilinu,“ segir í umfjöllun á vef Þjóðskrár. Fram kemur að ríkisborgurum frá Venesúela hefur einnig fjölgað umtalsvert eða um 60% á þessu tímabili. Nú eru 728 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir á Íslandi. „Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.175 einstaklinga eða um 5,5% og eru pólskir ríkisborgarar nú 5,8% landsmanna.“ Erlendir rík- isborgarar eru nú 60 þús

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.