Morgunblaðið - 16.08.2022, Side 4

Morgunblaðið - 16.08.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Guðrún Sigríður Arnalds gsa@mbl.is Alls gengu 6.685 manns að gosstöðv- unum í Merardölum síðastliðinn sunnudag samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Aldrei áður hafa svo margir gengið að gosinu á einum degi. Hjördís Guðmundsdóttir, upp- lýsingafulltrúi almannavarna, segir að það hafi engum komið á óvart þar sem veður var tiltölulega gott. Þá hafi flestir lagt af stað snemma morguns þar sem mikil mannmergð kom að gosstöðvunum rétt fyrir há- degi. Hápunktur dagsins var klukk- an tólf þegar Ferðamálastofa taldi um 600 manns á svæðinu. Svipaður fjöldi gekk að stöðvunum á laugar- dag, 6.496 talsins, en 28.140 manns hafa gengið þangað á síðastliðnum sjö dögum. Hjördís segir að það hafi verið ákveðin áskorun fyrir starfsfólk á svæðinu að koma öllum fyrir í þeim bílastæðum sem eru við gönguleiðir gosstöðvanna. „Það veit enginn hversu lengi þetta gos verður, en við verðum að finna lausn á þessu, þar sem ferðamenn eiga ennþá eftir að sækja gosstöðvarnar þegar líður á haustið.“ Taka einn dag í einu Almannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra fundar daglega um framvindu á gosstöðvunum, en að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suð- urnesjum, hefur lögreglan ekki þurft að vísa fólki frá bílastæðum. „Við reynum að taka einn dag í einu og meta aðstæður hverju sinni, t.d. er frekar slæmt veður á miðvikudag [á morgun] og þá gerum við ráð fyrir að loka svæðinu þann dag.“ Úlfar bætir við að erfitt sé að meina fólki að leggja bílum sínum lengi í bílastæðunum við gönguleið- irnar, þar sem ferðalangar hafi gengið tímunum saman til að sjá gosið. „Gangan tekur marga klukku- tíma og fólk vill njóta þess að vera á gosstöðvunum, en geymir á meðan bílana á takmörkuðu bílastæði.“ Hann segir að nú séu miklir álags- tímar hjá björgunarsveitafólki og sjálfboðaliðum sem eru við gosstöðv- arnar og þegar vel viðrar verður álagið ennþá meira. Íslendingar, jafnt sem erlendir ferðamenn, sýni oft mikla óvarkárni og hafa sumir jafnvel freistast til þess að ganga yf- ir storknað hraun eða farið hættu- lega nálægt hraunflæði. Hraun- flæðið í Meradölum virðist vera svipað því sem var í gosinu í Fagra- dalsfjalli í fyrra. Þá sýna niðurstöður mælinga úr Pleiades-gervitunglinu frá því á sunnudag að hraunflæði síðustu tíu daga hafi verið að meðaltali 10,4 m3/s, sem er svipað því sem var að meðaltali í gosinu í fyrra. Jón Grétar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Atlantsflugs, segist gera ráð fyrir því að bókunum í út- sýnisferðir með þyrluflugi muni fjölga með haustinu. „Hér er vertíð- in núna og við einblínum á það en við reynum að láta gosið ekki gleypa öll önnur verkefni hjá okkur.“ Atlants- flug hefur á snærum sínum tvær þyrlur sem fljúga núna um sex ferðir hvor um sig á dag og að sögn Jóns, verða þær að mestu leyti nýttar til útsýnisflugs yfir gosastöðvarnar. Nú séu flugmenn að tínast inn úr sumar- fríum sem geri þeim kleift að fljúga fram eftir kvöldi og mæta aukinni eftirspurn. „Við áætlum að bæta við okkur ferðum þegar líða fer á ágúst- mánuð og munum fljúga allt að tutt- ugu ferðir á dag.“ Jón segir annað eldgos vera helsta áhyggjuefni þeirra fyrirtækja sem bjóða upp á útsýnisferðir með þyrluflugi, þar sem þá fyrst verði erfitt að mæta eftirspurn. Aldrei eins margir gengið að gosinu - 6.685 manns gengu að gosinu á sunnudag - Áskorun að koma öllum í bílastæði - Fólk hættir sér út á storknað hraun - Hraunflæði líkt og í fyrra gosi - Allar þyrlur nýttar í útsýnisflug - Morgunblaðið/Ingó Hættuspil Nokkrir einstaklingar vildu greinilega komast nær gosinu um helgina og hættu sér út á hraunið sem rann í fyrra við rætur Stóra-Hrúts. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gott framboð er orðið á helstu teg- undum útiræktaðs grænmetis á markaði. Gæði eru með ágætum, að sögn framkvæmdastjóra Sölufélags garðyrkjumanna. Helst er talin hætta á að ekki hafist undan að skera blóm- kálshausa fyrir ört vaxandi markað. Ræktun á grænmeti sem ræktað er úti í görðum fór vel af stað í vor. Gunnlaugur Karlsson, framkvæmda- stjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir að kuldakast snemma sumars hafi hægt á. Hann segir þó að einn sólríkur og hlýr dagur bæti upp marga kalda daga og nú sé framboð af flestum tegundum káls og annars útiræktaðs grænmetis orðið gott. Gæðin séu með ágætum þar sem plönturnar hafi ekki skemmst í vor- kuldum. Sölufélagið er með nóg af selleríi, grænkáli, hvítkáli, rófum og spergil- káli, sem dæmi. Nefnir hann að garð- yrkjubóndi sem rækti spergilkál telji að kálið hafi aldrei litið jafn vel út og nú. Gunnlaugur segir að vissulega skipti veðurfar mestu máli varðandi uppskeru og gæði en ræktunin sé þó ótrúlega flókin við aðstæður eins og ríkja hér á landi og bændur séu stöð- ugt að tileinka sér nýja þekkingu til þess að plöntunum líði sem best í jarðveginum og gefi af sér sem bestar afurðir fyrir neytendur. Rófan aftur í tísku Neysla á ýmsum káltegundum hef- ur aukist mikið, eins og blómkálið er gott dæmi um. Kuldakastið setti strik í reikninginn með ræktun þess, að sögn Gunnlaugs, og ekki víst að bændum takist að framleiða nóg fyrir íslenska markaðinn. Gunnlaugur nefnir að gamla góða íslenska gulrófan sé að komast í tísku og komi það fram í aukinni sölu. Hann segir að kokkar mæli með að rófurnar séu borðaðar fersk- ar, grillaðar eða steiktar á pönnu eða í ofni, en þær séu ekki soðnar. Rófan sé sykurrík og steiking eða grillun kalli fram góða eiginleika rófunnar og hún geti jafnvel orðið ljúffengasti eftirréttur. Neytendur ráða för Ylræktin gengur sinn vanagang enda tómatar, gúrkur og fleiri afurðir ræktaðar við stýrðar aðstæður inni í gróðurhúsum. „Það lítur vel út með ylræktina. Við þjónum íslenskum neytendum, þeir stjórna ferðinni. Takturinn er góður vegna hvatningar frá þeim. Menn eru að leita leiða til að auka ræktun og fjölga tegundum en þá kemur alltaf að gjaldskrá Rarik,“ segir Gunnlaugur. Ósanngjörn gjaldskrá Nefnir hann sem dæmi að gjaldskrá fyrir dreifingu á rafmagni sé ósann- gjörn gagnvart dreifbýlinu. Garð- yrkjubóndi í Borgarfirði, sem kaupi meira rafmagn til lýsingar en allir íbú- ar Borgarness, þurfi til að mynda að greiða miklu hærra gjald fyrir flutn- ing orkunnar til sín, af því að hann sé í dreifbýli. Staðan væri önnur ef 200 manns byggju á torfunni. „Það getur ekki staðist að túlka heimildir í lögum til að miða gjaldskrá við íbúafjölda á svæðinu en ekki raunverulega notkun og þar með hagkvæmni í flutningi ork- unnar á staðinn,“ segir Gunnlaugur og getur þess að málið sé til skoðunar hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði. Hann telur líklegt að gjaldskráin verði kærð til Samkeppniseftirlitsins. „Það er bara verið að biðja um sanngirni, ekki ölmusu. Ef gjaldskrá- in væri sanngjarnari myndi ræktun aukast enn frekar og tegundum fjölga,“ segir Gunnlaugur. Vel gengur að framleiða kál - Framboð flestra tegunda útiræktaðs grænmetis annar eftirspurn - Kuldakastið dró úr vexti blóm- káls - Gamla góða gulrófan aftur í tísku - Leita réttar síns vegna ósanngjarnrar gjaldskrár raforku Uppskera Garðyrkjubændur vinna að uppskerustörfum allt sumarið og fram eftir hausti. Ágætt útlit er fyrir upp- skeru af flestum útiræktuðum matjurtum í sumar. Veðráttan það sem eftir er ágúst og í september ræður þó miklu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.