Morgunblaðið - 16.08.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 16.08.2022, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Viðskiptavinur Arion banka var í tví- gang beðinn um að staðfesta greiðslu upp á tæpar 13 milljónir króna þegar hann hugðist greiða fyrir bílaleigubíl í Bandaríkjunum. Bílaleigubíllinn átti að kosta um 130 þúsund krónur. Mað- urinn hefur óskað eftir skýringum frá Arion banka og sent lögreglu ábend- ingu um þetta. Umræddur maður, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir að fyrra tilvikið hafi verið á fimmtudag í síð- ustu viku. Hann var í samskiptum við ferðaskrifstofu vegna bókunar á bíla- leigubíl og var svo beðinn að staðfesta greiðsluna í símanum sínum. Þegar staðfestingarbeiðnin frá Arion kom var upphæðin margfalt hærri en hún átti að vera. Þar sem komið var fram undir lok dags ákvað maðurinn að reyna að nýju daginn eftir. Þá end- urtók sagan sig hins vegar og aftur bað Arion hann um að staðfesta greiðslu upp á tæpar 13 milljónir króna. Þá tók maðurinn skjáskot af beiðninni, hætti við greiðsluna og setti sig í samband við bankann. „Ég fékk engar skýringar af viti, aðeins að þetta gæti verið einhver kommuvilla hjá Valitor. Ég óskaði eftir því að öryggisdeildin tæki þetta föstum tökum. Þá hringdi ég í lög- regluna og var bent á að senda póst á „cyber crime“. Ég sendi erindi þang- að en lögreglan hefur ekkert haft samband við mig,“ segir maðurinn í samtali við Morgunblaðið. Hann kveðst furða sig á því að á sama tíma og lögreglan varar við net- glæpum í fjölmiðlum séu að koma upp raunverulegar villur hjá bönk- unum sjálfum. „Mér fannst tekið frekar kæruleysislega á þessu,“ segir maðurinn að endingu. Gott að korthafar sýni árvekni í viðskiptum Haraldur Guðni Eiðsson, for- stöðumaður samskiptasviðs Arion banka, segir að því miður hafi sumir erlendir færsluhirðar ekki uppfært sinn hugbúnað til að uppfylla kröfur Visa um hvernig miðla skuli upplýs- ingum til Visa um tiltekin viðskipti. „Það getur leitt til þess að upphæðir viðskipta birtist ekki rétt þegar við- skiptavinur á að samþykkja við- skiptin, hvort sem það er í gegnum app eða SMS. Villan felst í því að selj- andi gerir ráð fyrir aurum og bætir tveimur tölustöfum við upphæðina, svo hún virðist 100 sinnum hærri en hún í raun er,“ segir hann. „Það er gott þegar korthafar sýna árvekni í viðskiptum og hafa samband vegna þessa því í kjölfarið getum við upplýst Visa um þá færsluhirða sem eiga eftir að uppfæra hugbúnað sinn, þannig að hann samræmist reglum Visa. En sem betur fer þá hafa langflestir er- lendir færsluhirðar uppfært sinn hugbúnað og því er þetta sjaldgæft,“ segir Haraldur enn fremur. Átti að greiða þrettán milljónir - Fékk svimandi háa rukkun fyrir bílaleigubíl - Uppfæra þarf hugbúnað Rukkun Maðurinn hætti snarlega við þegar hann sá upphæðina. Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Eins og fram hefur komið er mikill skortur á læknum á Íslandi. Nú er svo komið að í nokkrum sér- fræðigreinum er meirihluti lækna yf- ir sextugu og mikill skortur á ný- liðun. Þannig er staðan í augnlækningum í dag. 59% starfandi augnlækna er 60 ára eða eldri og meira en helm- ingur þeirra sem eru eldri en sex- tugir eru komnir yfir sjötugt. Ljóst er að bregðast þarf við þessu grafalvarlega ástandi. Jóhannes Kári Kristinsson, augnlæknir á augnlæknastöð- inni Augljós, segir að ekki hafi verið gerð nákvæm úttekt á því hversu marga augnlækna þurfi til að ástand- ið yrði bærilegt. „Það er erfitt að meta þetta, en hins vegar er alveg ljóst að heilbrigðisyfirvöld, og þá sér- staklega Sjúkratryggingar, hafa að mörgu leyti brugðist sinni skyldu. Augnlækningar eru fag sem byggist oft eingöngu á samningum við Sjúkratryggingar, því það eru ekki allir augnlæknar sem vinna á sjúkra- húsum. Nú hafa samningar verið lausir í fjögur ár, nýir sérfræðingar úr námi hafa átt erfitt með að komast á samning og án samnings eru þeir ekki samkeppnishæfir við aðra augn- lækna. Þeir geta jafnvel séð hag sín- um betur borgið að verða áfram er- lendis eða flytja aftur út með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi.“ Sífellt sami söngurinn Jóhannes var yfirlæknir hjá augn- læknastöðinni Sjónlagi á árum áður. „Á árunum 2006-2008reyndum við að koma á augasteinsaðgerðum fyrir ut- an spítala í fyrsta sinn. Það hafði myndast tveggja ára biðlisti og vand- inn fór sífellt vaxandi. Við áttum sam- tal við þrjá heilbrigðisráðherra og það var alltaf sama sagan. Gríðarleg tregða er gagnvart því að koma verk- um út af spítalanum til að fram- kvæma þau í miklu ódýrara húsnæði. Það endaði með því að við keyptum bara inn tæki til augasteinsaðgerða án þess að hafa fengið samning og þau lágu nær ónotuð í tvö ár. Þetta bjó þó til þrýsting á Sjúkra- tryggingar og á ráðherra. Þó var það ekki fyrr en í ráðherratíð Guðlaugs Þ. Þórðarsonar að loksins var tekin ákvörðun í málinu árið 2008. Í kjöl- farið voru augasteinsaðgerðir boðnar út og þær voru þá framkvæmdar í fyrsta sinn utan spítala hér á landi. Við þetta styttust biðlistarnir hratt og viðbótartilkostnaður varð ekki mikill. Þessir samningar sem verið er að gera við augnlækna utan spítalans eru alveg gríðarlega hagstæðir. Það er stjarnfræðilegur munur á kostnaði við að senda sjúkling til útlanda í að- gerðir eða sinna þeim hér á stofum. Þessi tregða við að gera hlutina ódýr- ar og hagkvæmar er er óskiljanleg.“ Á þessum tíma gerðu heilbrigðis- yfirvöld samninga við tvö fyrirtæki, Sjónlag og Lasersjón. „Núna, ein- hverra hluta vegna hefur þjónustuað- ilum verið fækkað niður í einn, en augnskurðstofan Lentis er nú með samning við Sjúkratryggingar um framkvæmdir augasteinsaðgerða,“ segir hann. Með færri augnaðgerðum utan spítalans eru biðlistarnir að lengjast. Veigamesta skýringin er sú að öldruðum fer mjög fjölgandi í sam- félaginu en þeir eru fjölmennasti hópurinn sem þarfnast aðgerða. Einhvers konar heimsmet „Núna er staðan mjög slæm og lík- lega að verða tveggja ára bið eftir að komast í augasteinsaðgerð. Það er bilaðástand. Þessar hefðbundnu að- gerðir sem flestir fara í taka tíu mín- útur á auga.“ Hann bendir á að önnur aðgerð, sem er nú eingöngu gerð á sjúkrahúsi, ætti betur heima utan þess. „Það eru sprautumeðferðir í augnbotni, svokallaðar glerhlaupsinndælingar. Þá er lyfi er sprautað inn í augað við sjúkdómi sem fellur undir ákveðna gerð af hrörnun í augnbotnum. Þessi aðgerð hefur verið bylting í meðferð á þess- um sjúkdómi. Hún tekur stuttan tíma og er framkvæmd fyrst og fremst af aðstoðarlæknum á spítalanum á skurðstofu, en væri hægt að fram- kvæma á hvaða stofu sem er, eins og víða er gert í löndunum í kringum okkur. Hérlendis má ekki fram- kvæmaþessa aðgerð á stofu, því lyfin sem er notuð eru til að sprauta í aug- un eru með S-merkingu, sem þýðir að eingöngu megi nota þau á spítala. Það er engin ástæða fyrir því að þessi lyf sé S-merkt í þessum tilvikum. Ef því væri breytt væri hægt að fram- kvæma inndælingarnar á stofu sér- fræðinga og nýta skurðstofur spít- alans betur til að stytta biðlista fyrir augasteinsaðgerðir.“ Hann bendir einnig á að þessir löngu biðlistar búi til tvöfalt heil- brigðiskerfi. „Ég var að tala við sjúk- ling í morgun sem sagði: „Ég nenni ekki að bíða eftir þessu í tvö ár, get ég ekki bara borgað fyrir þetta?“ Þetta getur ekki verið niðurstaðan sem við viljum sjá í heilbrigðiskerf- inu.“ Jóhannes segir að samningsleysið við Sjúkratryggingar í fjögur ár hljóti að vera einhvers konar heims- met. „Það er spurning hvort það þurfi eitthvað lagalegt inngrip til þess að þetta verði lagað, því þeim ber skylda að gera samninga við lækna fyrir hönd sjúklinga. Það verð- ur hreinlega að fara að vinda ofan af þessu því þetta hefur aukið greiðslu- þátttöku almennings verulega auk tekjutaps fyrir stofurnar.“ Jóhannes segir að það sé ávallt verið að magna upp átök á milli einkareksturs og ríkisreksturs í um- ræðunni, en í raun sé þetta þáttur sem skipti engu máli. „Aðalmálið er að þjónustan sé góð og reksturinn sömuleiðis. Í öðru lagi þurfi að út- rýma biðlistum og í þriðja lagi verði að vera almennilegt eftirlit með sér- fræðingum. Við erum ekki hrædd við eftirlit og það er mikilvægt að gæði þjónustunnar séu tryggð.“ Hann segir að í stað valdboðs að of- an þurfi heilbrigðisyfirvöld að ræða við lækna. „Þetta snýst um viljann til þess að framkvæma réttu hlutina, jafnvel þótt það þýði einhverjar breytingar fyrir einhverjar stéttir. Við megum ekki missa sjónar á því að við þurfum að bæta okkar þjónustu og það er engin þjónusta að bjóða upp á tíu mínútna aðgerð með tveggja ára biðlista. Það segir sig sjálft.“ Eldri borgarar eru viðkvæmur hópur sem á erfitt með að berjast fyr- ir réttindum sínum og hefur ekki ótakmarkaðan tíma. „Við þurfum að standa okkur gagnvart þessu fólki sem bjó til undirstöður þessa velmeg- unarsamfélags sem við að mörgu leyti búum við. Heilbrigðiskerfið er að bregðast öldruðum.“ Hægt að hagræða Jóhannes segir að víða þurfi að laga til í kerfinu. „Ég hef alltaf undr- ast að Landspítalinn skuli ekki láta innkaupadeild sína flytja sjálfa inn aðföng fyrir spítalann, eins og víða er gert á einkastofum. Kaupa mætti í auknum mæli beint inn tæki og vörur í stað þess að kaupa vörur í gegnum heildsölur sem leggi oft töluvert á innkaupsverðið. Ef þetta kallaði á lagabreytingar þá þurfi bara að gera þær. Við þurfum að hætta þessu sí- fellda tali um ríkisrekstur og einka- rekstur, því eitt af því sem sú áhersla hefur skapað er samkeppni og úlfúð á milli spítala og einkastofa. Hag- kvæmur rekstur er aðal málið.“ Jóhannes segist vonast til þess að samið verði fljótlega en boltinn sé hjá hinu opinbera. „Ég vona svo sann- arlega að þeir reki af sér slyðruorðið og fari að semja. Maður sér fram á al- varlegan skort á augnlæknum á næstu árum ef ekkert verður að gert. Þegar margoft hefur verið sýnt fram á að þetta rekstrarform sé hagstætt, þá veit maður ekki hvaða hvatir liggja þarna að baki. Rökin eru bók- staflega engin og við köllum á taf- arlausar aðgerðir.“ Læknum fækkar og biðlistar lengjast - 59% augnalækna yfir sextugu - Tveggja ára bið eftir tíu mínútna aðgerð - Langir biðlistar bitna mest á öldruðum - Ekki búið að semja í fjögur ár - Spurning um hagkvæman rekstur, ekki pólitík Morgunblaðið/Kristinn Augnlækningar Langir biðlistar eru í augasteinsaðgerðir og þær bitna mest á viðkvæmum hópi aldraðra. 3 9 9 14 16 Aldur augnlækna Fjöldi augnlækna eftir aldurshópum 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70+ ára 59% AUGN LÆKNA ÁÍSLANDIER U60ÁRAOGELDRI Jóhannes Kári Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.