Morgunblaðið - 16.08.2022, Page 10

Morgunblaðið - 16.08.2022, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Breikkun kafla Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ gengur ágætlega og er á áætlun, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Um er að ræða 520 metra kafla milli Langatanga og Reykjavegar. Þetta er eini kaflinn á Vesturlands- vegi í Mosfellsbæ þar sem aksturs- stefnur eru ekki aðskildar núna. Nú er klapparskurði í syðri kanti lokið og búið að endurgera syðri ak- brautina (til norðurs) og gera nýja afrein frá Vestur- landsvegi að Sunnukrika, upplýsir G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar. Sprengingar í nyrðri kanti hófust 4. ágúst og lýkur í næstu viku. Þá hefst vinna við að koma fyrir nýjum háspennustrengjum Landsnets og Veitna. Búast má við að nyrðri akbrautin (til suðurs) verði malbikuð um miðjan september. Þá er ýmis frágangur eft- ir, s.s. vegrið, lýsing og fleira. End- anleg verklok verði um miðjan nóv- ember. Tilboð í verkið voru opnuð í des- ember 2021. Loftorka í Garðabæ átti lægsta tilboðið, 257,6 milljónir króna. Vegagerðin samdi við fyrir- tækið um að vinna verkið. sisi@mbl.isMorgunblaðið/Árni Sæberg Breikkun á áætlun í Mosfellsbæ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Knapar úr liði Íslands unnu til þrennra gullverðlauna á Norður- landamótinu í hestaíþróttum sem fram fór á Álandseyjum um helgina og knapar úr liðinu komust á verð- launapall í fleiri greinum. Matthías Sigurðsson steig oftast á verðlaunapall af knöpum úr liði Íslands. Hann sigraði í tölti ung- menna á Roða frá Garði ásamt því að næla sér í silfurverðlaun í fjór- gangi og ná bronsverðlaunum í ung- lingaflokki gæðingakeppninnar á Caruzo frá Torfunesi. Eysteinn Tjörvi Einarsson var eini knapi íslenska liðsins sem tók keppnishest sinn með frá Íslandi til þátttöku í mótinu. Laukur frá Varmalæk kom vel út úr ferðalag- inu og veðurbreytingum og sigruðu þeir nokkuð örugglega í gæð- ingakeppni ungmennaflokks. Helga Una Björnsdóttir og Leik- ur frá Lækjarmóti sigruðu í A- flokki gæðinga en þess ber að geta að Helga Una tók við hestinum í úr- slitum fyrir James Faulkner sem kom tveimur hestum í úrslit og varð að velja, en hafnaði sjálfur í 7. sæti. Áhersla á yngri knapa Landsliðsþjálfarar Íslands og landsliðsnefnd ákváðu að leggja áherslu á unglinga- og ungmenna- flokkana þetta árið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landssam- bandi hestamannafélaga. Sendi Ís- land því nokkuð fjölmennt lið til þátttöku í yngri flokkum en fá- mennt en reynslumikið lið fullorð- inna knapa. Niðurstaðan varð sú að aðeins tveir fullorðnir knapar voru skráðir til leiks fyrir Íslands hönd, Sigurður Vignir Matthíasson, sem keppti í fimmgangi og gæð- ingaskeiði á Starkaði frá Egils- staðakoti, og Jakob Svavar Sigurðs- son, sem keppti í fjórgangi og tölti á Hálfmána frá Steinsholti. Almennt eru ekki tök á að flytja út hesta til keppni á Norð- urlandamóti vegna þess að þeir eiga þá ekki afturkvæmt til landsins. Þess vegna kepptu knapar liðsins, aðrir en Eysteinn Tjörvi, á láns- hestum sem þeir þekkja takmarkað við þrautreynd keppnispör annarra landsliða. Lið Svíþjóðar varð stigahæsta lið- ið og vann liðabikarinn ásamt fjölda annarra verðlauna. Danir stóðu sig einnig vel. Næsta stóra verkefni íslenska landsliðsins er þátttaka í Heims- leikum íslenska hestsins sem fram fara í Hollandi næsta sumar. Komu heim með þrjú gull - Fjölmennt lið yngri knapa í landsliði Íslands sem keppti á Norðurlandamótinu í hestaíþróttum á Álandseyjum Ljósmynd/Laura Sundholm Efst Helga Una Björnsdóttir hljóp í skarðið fyrir annan knapa og reið Leik frá Lækjarmóti til sigurs í A-flokki. Skipulagsstofnun vill að Lands- virkjun geri skýrari grein fyrir nokkrum þáttum fyrirhugaðrar stækkunar Sigöldustöðvar við gerð umhverfismatsskýrslu. Það á með- al annars við um áhrif framkvæmd- arinnar á vatnsborð og eftir atvik- um lífríki og áhrif hennar á aðrar virkjanir á svæðinu sem og orku- öryggi. Landsvirkjun skilaði í vor mats- áætlun fyrir stækkun Sigöldu- stöðvar um allt að 65 MW. Tilgang- urinn er að auka sveigjanleika í orkuafhendingu og gera fyrir- tækinu kleift að mæta afltoppum þegar eftirspurn er í hámarki. Ekki er gert ráð fyrir nema lítils háttar aukningu á heildarrafmagnsfram- leiðslu, nema til komi meira rennsli, til dæmis með aukinni bráðnum jökla eða aukinni úrkomu. Orkustofnun vekur athygli á því í umsögn um matsáætlunina að ekki sé vikið að áætlunum um vatnsnýt- ingu, það er að segja hvaða áhrif það hafi á nýtingu virkjunarinnar og annarra raðtengdra virkjana þegar líður að lokum vatnsárs, ef vatnið er nýtt til framleiðslu fyrr á vatnsárinu. Í því sambandi er bent á hættu á skerðingu í raforkusölu, líkt og gerðist síðla vetrar í ár. Munu skýra málið Undir þetta og fleiri athuga- semdir tekur Orkustofnun með því að gefa Landsvirkjun fyrirmæli um að gera grein fyrir áhrifum stækk- unarinnar á rekstur, raðtengdar virkjanir og orkuöryggi. Lands- virkjun lýsir yfir vilja til að gera þetta, í svari við athugasemdum. helgi@mbl.is Gera þarf grein fyrir áhrifum stækkunarinnar - Landsvirkjun undirbýr stækkun Sigöldustöðvar um allt að 65 megavött

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.