Morgunblaðið - 16.08.2022, Síða 14

Morgunblaðið - 16.08.2022, Síða 14
September 1988 Skáldsagan Söngvar Satans kemur út. Október 1988 Bókin bönnuð á Indlandi. Janúar 1989 Bókabrenna í Brad- ford í Bretlandi. 1991 1998 Ríkisstjórn Írans segist ekki munu framfylgja fatwa yfir Rushdie. 2005 Ali Khamenei, arftaki Khomeini, segir íslam heimila dráp Rushdie. 2007 Rushdie aðlaður af Elísabeti II. 2016 12. ágúst 2022 $2,8 milljónir dala lagðar til höfuðs Rushdie. 14. febrúar 1989 Khomeini erkiklerkur gefur út fatwa (trúarúrskurð) um að Rushdie skuli drepinn. 13. febrúar, 1989 Árás á menningarmiðstöð Bandaríkjanna í Pakistan. Tehran, 14. febrúar 1989 Nýja Delhi, 1999 Japanskur þýðandi Rushdie, drepinn og ítalskur þýðandi stunginn. 1993 farast 37 manns í hótelbruna þar sem tyrkneski þýðandinn dvaldi. Rushdie marg- sinnis stunginn á bókmennta- viðburði í ofan- verðu New York-ríki Salman Rushdie Á flótta undan bókstafstrúarböðlum í 33 ár BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is M örgum brá örugglega, þegar fregnir bárust af því á föstudag að ráðist hefði verið á rithöfund- inn Sir Salman Rushdie. En um leið var þetta árásin, sem margir, kannski flestir, höfðu beðið í 33 ár, æ síðan byltingarklerkurinn Khomeini í Íran hafði kveðið upp úrskurð í krafti kennivalds síns um að Rushdie og all- ir þeir sem komu að útgáfu bókar hans Söngvar Satans og þekktu inn- haldið yrðu að týna lífinu fyrir. Þrátt fyrir árin öll var hættan ekki liðin hjá. Tilræðismaðurinn Hadi Matar, 24 gamall maður frá New Jersey, skráði sig til þátttöku í bókmenntaviðburði í Chautauqua í norðvestanverðu New York-ríki, skammt frá Vötnunum miklu, og not- aði falsað ökuskírteini með nafni eins af leiðtogum Hezbollah, vígamanna- sveitum shíta í Líbanon, sem eru mjög hallar undir Íransstjórn. Óstað- festar fregnir eru uppi um að hann hafi einnig verið í einhverjum tengslum við menn í Íranska bylting- arverðinum, en móðir Matar ber að hann hafi tekið miklum breytingum þegar hann fór til dvalar hjá föður sínum í Líbanon árið 2018, þaðan sem fjölskyldan er ættuð. Heimkom- inn til Bandaríkjanna hafi hann lokað sig af frá henni og systrum hans og áfellst hana fyrir að hafa ekki haldið íslam að sér. Hún hefur fyrir sitt leyti beðið Rushdie afsökunar á tilræðinu og segist ekki eiga neitt vantalað við son sinn. Þó Rushdie sé trúlaus maður fagnaði hann íslömsku byltingunni í Íran á sínum tíma og taldi hana til batnaðar áður en hinn íslamski fas- ismi varð öllum ljós. Ekkert af því skipti máli þegar bók hans kom út, enda virðist fátt benda til þess að erkiklerkurinn Khomeini eða með- reiðarsveinar hans hafi lesið bókina. Frekar en Matar, sem stakk Rushdie 15 sinnum, þar á meðal í háls og bringu, þannig að þó náðst hafi að bjarga lífi hans þá er óljóst hvort unnt var að bjarga öðru auga hans, taugum í öðrum handlegg eða tjasla lifrinni saman. Glatað tjáningarfrelsi Fyrir aldarþriðjungi mótmælti málsmetandi fólk á Vesturlöndum þessum dauðadómi yfir Rushdie, en margir virtust þó vera á því að hann gæti sjálfum sér um kennt, kannski í ljósi fyrrnefndra orða um írönsku byltinguna og hefðbundinnar vinstri- gagnrýni hans á Vesturlönd. Núna eru margir hneykslaðir en það eru enn margir sem yppta öxlum. Kannski vegna þess að svartsýnis- spár Rushdies um hnignun tjáning- arfrelsisins hafa að miklu leyti ræst. Hver ræðir um Charlie Hebdo í dag? Man einhver eftir franska kenn- aranum Samuel Paty sem var af- höfðaður í fyrra? Í Evrópu heldur enginn fyrirlestur eða les upp úr bók um helförina eða þjóðarmorðið á Ar- menum nema undir lögregluverði. Kannski er hitt þó verra að þöggun og ritskoðun hefur læðst inn á Vest- urlöndum og þykir víða ekki aðeins sjálfsögð heldur nauðsynleg. Eða hvað halda menn að slauf- unarmenningin sé annað? Þegar há- skólar loka á óleyfileg viðhorf eða láta gamla texta liggja í þagnargildi svo engum háskólaborgara verði hverft við? Einn þeirra rithöf- unda, sem óskaði Rushdie skjóts bata, var J.K. Rowl- ing, höfundur Harry Pott- er bókanna, sem staðið hefur í nokkru stappi við trans- aðgerðasinna. Hún fékk hughreystandi kveðju á Twitter: „Engar áhyggjur, þú ert næst.“ Rushdie, íslamskir fasistar og slaufunin 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Björn Bjarna- son fyrrver- andi ráð- herra vakti fyrir rúmu ári athygli á glæfralegum hug- myndum um vikur- flutninga um Suð- urlandsveg. Virðist vera þar um að tefla að breyta þjóðveginum á Suð- urlandi í innannámuleið trukka, sem bruni þar um á sjö mínútna fresti! Björn furðar sig réttilega á því undri að ein- hverjum „detti í hug að skipu- leggja slíkan akstur malar- trukka allan sólarhringinn á þessari leið.“ Hann bendir einnig á að það hljóti að vekja spurningar um hvort að nokk- ur skynsemi geti búið að baki slíkum áformum. Í pistli Björns er einnig bent á að Friðrik Erlingsson, rithöf- undur á Hvolsvelli, sem fjallar líka um málið hér á opnunni í dag, hefði um nýliðna helgi vakið athygli Sunnlendinga og annarra á umhverfismats- skýrslu vegna efnistöku á Mýrdalssandi og vörubílaakst- urs allan sólarhringinn þaðan í Þorlákshöfn, árið um kring eft- ir Suðurlandsvegi. Ekki getur verið önnur skýring á því að lítil umræða hafi verið um þessar undarlegu ráðagerðir en að almenningur, nær og fjær, hafi talið að um leið og at- hygli væri vakin á því, hversu fráleitar fyrirætlanir væru þar á ferðinni, yrðu áformin þegar í stað sett upp í hillu, eða í ruslakörfu, sem farið hefði best á. Það eru ótal dæmi til um það, gömul sem ný, hversu sár- grætilega auðvelt er að fá keyptar umsagnir sem eiga að vera veittar í krafti sérfræði- þekkingar, þótt þær sýnist vera öndverðar öllu því, sem blasir við hverjum manni að fái staðist. Hinu er ekki að leyna að að skýrsla af slíku tagi gæti geymt vott um ólíkindalega gamansemi þegar að nið- urstaða hennar er „að aukning umferðar og hljóðvistar vegna malartrukkanna „hafi nokkuð „neikvæð áhrif“ eða svo sem miðlungs áhrif miðað við að flokkarnir fyrir ofan heita: Talsverð neikvæð áhrif, Veru- leg neikvæð áhrif og Óvissa“. Sjálfsagt gætu sérfræðingar í öðrum fræðum selt umsagnir um annað álitaefni, með þeirri niðurstöðu að „almennt væri það ekki lífvænlega hagfellt fyrir menn að láta hengja sig og skjóta í senn“. Ekkert yrði ofsagt í þeirri umsögn og hún væri innan allra vísindalegra marka. Um þetta hefur Friðrik Erlingsson sagt: „Heilbrigð skynsemi segir að slík tröll- aukin viðbót um- ferðar á Suður- landsvegi hafi veruleg óvissu- áhrif; í besta falli verulega neikvæð áhrif. Allt annað er fals og lygi.“ Í skýrslunni kemur umfang fyrirhugaðra flutninga skýrt fram: „Miðað við að flutningar verði stund- aðir um 280 daga á ári eru það 107 ferðir yfir sólarhringinn, eða rúmlega 3 ferðir fyrir hvern vörubíl. Unnið verður á þrískiptum vöktum svo þessar 107 ferðir dreifast yfir allan sólarhringinn. Að meðaltali þýðir það ný ferð á um korters fresti allan sólarhringinn. Ein ferð þýðir fullur bíll til Þor- lákshafnar og tómur til baka, það munu því vörubílar fara um veginn á um 7-8 mínútna fresti.“ Birni Bjarnasyni þykir það með miklum ólíkindum „að ein- hverjum detti í hug að skipu- leggja slíkan akstur malar- trukka allan sólarhringinn á þessari leið“ og segir að það veki „spurningar um hvort nokkur skynsemi búi yfirleitt að baki þeim áformum að opna vikurnámu austan og suð- austan við Hafursey, skammt austan við Vík í Mýrdal. Vikur- inn yrði fluttur með skipum frá Þorlákshöfn út til Evrópu, og jafnvel N-Ameríku, sem íblöndunarefni við framleiðslu á sementi. Magnið á Mýrdals- sandi er talið duga í 100 ár.“ Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær (15. ágúst) að hreppurinn legðist ekki gegn námuvinnslunni, þarna væri skilgreind náma. Miklar efa- semdir séu hins vegar uppi um landflutningana. Hann bendir á að þjóðvegurinn sé lífæð ferðamennsku og vikurflutn- ingarnir mundu hafa „verulega neikvæð áhrif“ á aðra umferð. Svo sannarlega er hægt að taka undir, eins og Björn Bjarnason gerir, þá afstöðu Friðriks Erlingssonar að- „heilbrigð skynsemi segir að þessari trukkaumferð megi ekki undir nokkrum kring- umstæðum hleypa á Suður- landsveg. Svo nú er það spurn- ingin, hvort heilbrigða skynsemi sé nokkurs staðar að finna hjá þeim yfirvöldum sveitarfélaganna og landsins sem hafa með þetta mál að gera. Annars er ekki útilokað að íbúar á Suðurlandi reisi götuvígi og stöðvi alla umferð um Suðurlandsveg. Efnistakan í slíka aðgerð almennings á Suðurlandi gerir ekki kröfur um umhverfismat.“ Fróðlegt væri að heyra afstöðu Vega- gerðar ríkisins og ráðherra hennar um hinar stórkarlalegu fyrirætlanir} Á 7 mínútna fresti í öld Í Morgunblaðinu í gær geystist háskóla- ráðherra fram á ritvöllinn og fjallaði um meint forystuleysi í Reykjavíkur- borg vegna þess að ekki hefur tekist að útvega öllum börnum í borginni 12 mánaða og eldri leikskólapláss. Nú skal alls ekki gera lítið úr vanda fjölskyldna sem bíða eft- ir plássi, en eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum þá má skrifa töf á úthlutun plássa á töf á afhendingu þriggja nýrra leikskóla frá verktök- um. Um er að kenna ástandi í heiminum, fyrst heimsfaraldri sem hægði á byggingu húsnæðis og síðar stríðsástandi sem hægði á afhendingu stálgrinda í húsin. Þetta er auðvitað alls ekki gott en því miður óumflýjanlegt ástand. Sem betur fer munu þó leikskólarnir þrír opna dyr sínar fyrir reykvískum börnum nú í október og nóvember, þökk sé forystu jafnaðarmanna í borginni. Við lestur greinar ráðherrans fór ég að hugsa um hvernig staðið er að málum hjá ríkisstjórn hennar. Biðlist- ar eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu hafa aldrei verið jafn langir. Embætti landlæknis hefur sett fram viðmiðun- armörk um aðgengi að heilbrigðisþjónustu og hvað megi telja ásættanlega bið. Viðmið embættisins er að 80% sjúk- linga komist í aðgerð innan 90 daga eftir að óskað er að- gerðar ella sé staðan óviðunandi. Hafa verður í huga að biðlistar eftir viðtölum hjá læknum eru einnig mjög langir og ná biðlistar einungis yfir þá sem hafa náð að komast að hjá lækni og verið vísað í nauðsynlega aðgerð. Af 18 aðgerðarflokkum sem embættið rannsakar tókst að koma sjúklingum í aðgerð á innan við 90 dögum í fjórum flokkum. Í 14 flokkum var um að ræða umtalsvert lengri bið og eru dæmi þess að allt að 90% sjúklinga hafi þurft að bíða í lengri tíma en þá þrjá mánuði sem miðað er við. Má sjá dæmi um allt að árs- bið eftir nauðsynlegum aðgerðum. Aðgerðum sem í dag kallast valkvæðar en eru það alls ekki. Fólk hefur ekki val um að komast ann- aðhvort ekki fram úr rúminu eða fara í hnjá- eða mjaðmaaðgerð, að láta ekki framkvæma legnám og geta þá ekki sinnt sínum daglegu störfum eða fara í aðgerð eða fara í augn- steinaaðgerð til að auka sjón sína og mögu- leika til áframhaldandi góðs lífs svo dæmi séu tekin. Þetta eru aðgerðir sem eru nauðsyn- legar svo fólk geti búið við góð lífskjör. Það að láta langa biðlista verða að meginreglu frekar en undan- tekningu hefur veruleg áhrif á lífsgæði alls almennings í landinu og við því verður ríkisstjórnin að bregðast. Það skortir forystu í heilbrigðismálum í landinu. Nú fáum við brátt að líta nýtt fjárlagafrumvarp og verður fróðlegt að sjá smáskammtalækningar ráðherra til handa heilbrigðiskerfinu. Við verðum að tryggja heilbrigðisþjón- ustu um allt land til að hér ríki hagsæld til framtíðar. Við þetta ættu allir ráðherrar í ríkisstjórn að hafa hugann. Helga Vala Helgadóttir Pistill Forystuleysi Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingar. helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Ahmed Salman Rushdie er bresk-bandarískur rithöfundur, fæddur í Mumbai (Bombay) á Indlandi árið 1947, en fjölskylda hans er íslömsk frá Kasmír. Hann menntaðist á Englandi og lauk prófi í sagnfræði frá King’s College í Cambridge. Hann hneigðist snemma til skrifta og starfaði sem texta- gerðarmaður auglýsingastofu á meðan hann skrifaði fyrstu skáldsögurnar. Þær eru einatt með sagnfræðilegu ívafi, gjarn- an á mörkum tveggja heima eða tíma, hins austræna og vest- ræna, töfra og veruleika. Hann hlaut Booker-verðlaunin árið 1981 fyrir aðra bók sína og hefur verið talinn meðal fremstu rithöfunda Breta síðan. Sir Salman varð nýlega 75 ára gamall, er fjór- kvæntur og á tvo syni. Hann hefur búið á Man- hattan frá aldamótum. Tveggja heima maður SALMAN RUSHDIE Sir Salman Rushdie

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.