Morgunblaðið - 16.08.2022, Síða 16

Morgunblaðið - 16.08.2022, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Sími 555 2992 / 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Töluverðu er kostað til einhvers sem heitir Brothættar byggðir. Markmið Brothættra byggða er eftirfarandi: . Sterkir innviðir og öflug þjónusta . Stígandi í atvinnulífi . Stolt og sjálfbært samfélag . Fjölskylduvænt og skapandi samfélag . Umhverfisvæn úti- vistarparadís . Gott mannlíf og fjölbreytt at- vinnulíf . Öflugir innviðir og einstakt um- hverfi . Traustur landbúnaður og sjávar- útvegur . Einstakt menningarlandslag og náttúra . Traustur grunn- atvinnuvegur . Heillandi umhverfi og sérstæður áfangastaður . Blómstrandi mennt- un Svo kemur ráðherra Vinstri-grænna, ráð- herra landbúnaðar og sjávarútvegs, og lokar á strandveiðar og legg- ur þar með mörg sjáv- arplássin á hliðina. Á meðan strandveiðarnar eru blómstra sjávar- plássin. Þá iðar allt af lífi, sól skín í heiði og allir brosa. Færibönd sam- félagsins snúast sem aldrei fyrr. Nei, ráðherra bara segir stopp. Kvótinn sem ykkur var ætlaður er búinn og þá bara hættið þið veiðum. Á miðju sumri, hugsið ykkur. Í stað- inn fyrir að hliðra til og búa til nokkur kíló svo strandveiðin gæti róið áfram og klárað sumarið. Hvar eru brothættar byggðir nú? Sjávarplássin, sem áður iðuðu af lífi, eru nú sannkallaðir draugabæir. Ekki sést sála neins staðar, meira að segja börnin skynja breytinguna og hætta að leika sér úti. Strandveiðifélag Íslands reyndi mikið að fá fund með ráðherra sjáv- ar í allt sumar en án árangurs. Reyndar áttum við í Strandveiði- félaginu fund með ráðherra 9. ágúst, of seint til að bjarga einhverju í ár en vonandi síðar, því okkur í Strand FÍ fannst ráðherra og hennar fylgd- arlið gefa okkur gaum og því sem við höfðum fram að færa. En við í Strandveiðifélaginu vorum búin að finna leið fyrir hana í sumar til að búa til kvóta öllum að meinalausu. Það er að úthluta minna af þorski til skel- og rækjubóta á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september nk. Á yf- irstandandi fiskveiðiári varð engin skerðing á rækju- og skelbótum. Í þær bætur fóru alls 1.472 tonn. Það skal tekið fram að þessar bætur áttu að vera tímabundin aðgerð, alltaf að skerðast frá ári til árs, en það hefur ekki gengið eftir. Ef við miðum við 15% skerðingu fengjust u.þ.b. 220 tonn. Í almennan byggðakvóta fyrir næsta fiskveiðiár var úthlutað 3.626 tonnum. Áætlað er að um 40% af honum fari til dagróðrabáta, sem við leggjum til að verði ekki skert. Restin yrði sett til strandveiða og notuð til að tryggja veiðar í júlí/ ágúst 2022. Hér myndu fást rúm 2.000 tonn. Nú er komið í ljós að á skipti- markaði uppsjávarskipa (þorskur fyrir makríl) fékk ríkið um 770 tonn í sinn hlut. Þetta ætti allt að fara í strandveiðar. Samtals gerir þetta u.þ.b. 2.990 tonn. Þessar aðgerðir myndu bæta bú- setuskilyrði, nýliðun og lífsgæði myndu margfaldast í sjávar- byggðum um land allt. Allt myndi blómstra og hamingjan myndi drjúpa af hverju strái umhverfis landið. Nei, ráðherra sem kennir sig við sjávarútveginn kýs að brjóta niður sjávarbyggðirnar þvert á eitthvað sem eflir brothættar byggðir. P.s. Við í Strandveiðifélaginu er- um ánægð með útkomu fundar með ráðherra og hlökkum til áframhald- andi samstarfs með strandveið- arnar. Sanngirni eða tómur tvískinnungur? Eftir Hjört Sævar Steinason »Nei, ráðherra bara segir stopp. Kvótinn sem ykkur var ætlaður er búinn og þá bara hættið þið veiðum. Á miðju sumri, hugsið ykkur! Hjörtur Sævar Steinason Höfundur er sjómaður. hjortur@jakinn.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkom- andi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Mig langar til að leggja orð í belg um þrjú óskyld mál sem hafa verið til umræðu að undanförnu. Ég geri mér grein fyrir því að skoðanir mínar falla ekki að öllu leyti saman við skoðanir þeirra sem oftast láta til sín heyra, en um- ræðan er vonandi frjáls. Fyrsta málið varðar aðstreymi erlends fólks sem vill setjast hér að. Þetta aðstreymi er mikið og á sjálfsagt eftir að aukast enn þegar fólk fer að flýja svæði sem verða óbyggileg sökum hita og vatns- skorts. Íslensk yfirvöld hafa lítið gert til að hafa stjórn á þessum fólksflutningum. Þá sjaldan þau aðhafast eitthvað, til dæmis með því að fylgja viðteknum reglum og samningum um flóttamenn, fylgja því jafnan hávær mótmæli. Hvað flóttamennina varðar ætti að huga að því hverjir séu líklegastir til að aðlagast íslensku samfélagi. Þar kemur margt til álita, ekki síst trúarskoðanir fólks. Sjálfur er ég ekki trúmaður, en mér þykir augljóst að kristnir menn eigi auðveldara með aðlög- un hér á landi en menn sem aðhyllast önnur trúarbrögð, og að stjórnvöld ættu að taka mið af því, sé þess kostur. Jafn- framt ættu menn að hugleiða hvort ekki beri að tak- marka aðflutninginn. Hér er að vísu rúm fyrir fleira fólk, en víð- áttan er eitt af því sem gefur land- inu aðdráttarafl, landkostur sem við viljum helst ekki missa. Með ferðamennskunni hefur þegar ver- ið gengið mjög á þá auðlind. Annað málið varðar „hinsegin fólk“ sem svo er kallað. Kvartað hefur verið yfir því að bakslag hafi orðið í viðhorfum til þessa fólks; það hefur verið hrakyrt og smánað á ýmsan hátt, og er það miður. En spyrja má hvort „bakslagið“ sé ekki að sumu leyti sjálfskaparvíti. Kannanir benda til þess að um 4% mannfólks séu kynhverf. Á síðustu árum hafa flestir Íslendingar sennilega sætt sig við það að kyn- hverfa sé samofin mannlegri hegð- un og ástæðulaust að gera veður út af henni. Alltaf finnast þó of- stækisfullir menn sem eru ann- arrar skoðunar. Þegar kynhverfir auglýsa sig með göngum og fánum og mála stræti og torg eru þeir óviljandi að egna þessa ofstækis- menn. Sýnu gæfulegra væri fyrir kynhverfa að láta sem minnst fyrir sér fara og falla þannig eðlilega inn í samfélagið, eins og vænt- anlega er markmið þeirra. Þetta á ekki við um kynskiptinga („trans fólk“), sem eru örlítill hluti af „hinsegin fólki“ og hljóta óhjá- kvæmilega að skera sig úr fjöldan- um. Sá hópur krefst ýmissa breyt- inga sem eru áberandi og varða allan þorra fólks. Þriðja málið sem mikið er í um- ræðunni eru þær ráðstafanir sem Íslendingar eru að gera til að draga úr notkun jarðefnaelds- neytis. Þessar ráðstafanir eiga að vera til mótvægis við hlýnun jarð- ar. Ég hef áður bent á það í blaða- grein (Mbl. 2. apríl) hversu fárán- legt það er að við séum að leggja í þessar kostnaðarsömu aðgerðir þegar orkuframleiðsla hérlendis er að mestu leyti (90%) vistvæn. Á sama tíma eru Kínverjar að auka við árlega kolanotkun sína, og nemur aukningin allt að hundr- aðfaldri árlegri orkuframleiðslu Íslendinga úr olíu og bensíni. Litl- ar sem engar horfur eru á því að hækkun hitastigs á jörðu verði stöðvuð með mannlegu framtaki. Skynsamlegast er því að búa sig undir þá hlýnun sem fram undan er og hætta að sóa fjármunum í ómarktækar aðgerðir. Eftir Þorstein Sæmundsson » Í greininni lýsir höfundur skoðun sinni á þremur ólíkum málum sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu Þorsteinn Sæmundsson Höfundur er stjörnufræðingur. Í umræðunni Ég undirrituð skora á dagskrár- stjórn Stöðvar 2 að gera fleiri þátta- raðir af Ísskápastríði, þeim frábæru þáttum, og líka Allir geta dansað. Guðrún. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Stöð 2 Þarftu að láta gera við? FINNA.is Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.