Morgunblaðið - 16.08.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022
✝
Guðrún Helga
Ágústsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum, í
Helli á Vest-
mannabraut 13b,
18. september
1944. Hún lést í
faðmi fjölskyld-
unnar á Landspít-
alanum í Fossvogi
31. júlí 2022 af
völdum heilablæð-
ingar.
Foreldrar hennar voru
Oddný Guðrún Sigurðardóttir,
f. 28. ágúst 1927, frá Helli í
Vestmannaeyjum. Hún lést ár-
ið 1997. Faðir hennar var
Ágúst Eiríksson Hannesson frá
Vestmannaeyjum, f. 2. ágúst
1927. Hann lést ungur að árum
þegar flugvélin Glitfaxi fórst í
Faxaflóa árið 1951.
Guðrún Helga var elst sex
systra, þeirra Magnúsínu, f.
1973. Börn þeirra eru Valdís
Von, f. 2000, Eva Dís, f. 2007,
Ásdís Elva, f. 2011, Viktor
Garðar og Vignir Stefán, f.
2013.
Guðrún Helga giftist eig-
inmanni sínum, Stefáni Þ. Sig-
urðssyni frá Dalvík, árið 1967
og bjuggu þau þá í Hafnarfirði.
Þau fluttu eftir gosið 1973 aft-
ur til Vestmannaeyja og
bjuggu þar í nokkur ár. Árið
1980 fluttu þau síðan aftur í
Hafnarfjörðinn og bjuggu þar
nær alla tíð fyrir utan eitt og
hálft ár sem þau bjuggu á Pat-
reksfirði þegar Stefán var
skipstjóri á togaranum Pat-
reki. Árið 2021 fluttu þau sig
yfir í Garðabæ þar sem þau
bjuggu þar til hún lést.
Guðrún Helga vann ýmis
þjónustustörf og á Landakoti í
tvö ár en lengst af vann hún í
Laugavegsapóteki og naut sín
vel þar. Stefán var stýrimaður
og síðar skipstjóri á ýmsum
fiskiskipum frá Vestmanna-
eyjum, Reykjavík, Njarðvík,
Sandgerði og Patreksfirði.
Útför Guðrúnar Helgu fer
fram frá Víðistaðakirkju í dag,
16. ágúst 2022, klukkan 13.
1946, Oktavíu, f.
1947, óskírðrar, f.
1951 og lést sama
ár, Önnu Maríu, f.
1960, og Haf-
steinu, f. 1967.
Börn hennar
eru: 1) Hafdís, f.
1964, lést af slys-
förum árið 1981. 2)
Aldís Harpa, f.
1967 í Vestmanna-
eyjum. Börn henn-
ar eru Magnús Ísak, f. 1983,
Helga Dís, f. 1987, Blær, f.
andvana árið 1994, og Yrsa, f.
1996. Faðir þeirra er Ásberg
Magnússon. f. 1967. 3) Ásgeir
Örvar, f. 1976 í Vestmannaeyj-
um, giftur Dagbjörtu Ómars-
dóttur, f. 1972. Börn þeirra eru
Dagur Ómar, f. 2000, Hákon
Hrafn, f. 2005, og Diljá Ásta, f.
2009. 4) Oddný Guðrún, f. í
Reykjavík 1980, í sambúð með
Valdimar Þór Ólafssyni, f.
Hinn 31. júlí sl. lést Guðrún
Helga Ágústsdóttir, Strikinu 8,
Garðabæ.
Banamein hennar var heila-
blóðfall sem átti sér stað 16. júní
sl. og var hún þá þegar flutt á
Landspítalann í Fossvogi þar sem
hún dvaldist til dánardags.
Guðrún fæddist 18. september
1944 og foreldrar hennar voru
Oddný Guðrún Sigurðardóttir og
Ágúst E. Hannesson, bæði frá
Vestmannaeyjum. Þau Oddný og
Ágúst eignuðust þrjár dætur, all-
ar fæddar í Eyjum. Þær voru Guð-
rún Helga, Magnúsína og Oktavía.
Í febrúar 1951 þurfti Ágúst að
fara einhverra erinda til Reykja-
víkur og tók sér far með flugvél-
inni Glitfaxa, sem ekki skilaði sér
á áfangastað og fórst Ágúst þar
ásamt öðrum sem í vélinni voru.
Var nú illt í efni hjá Oddnýju sem
sat ein eftir með dæturnar þrjár.
En hún átti hauk í horni sem var
Oktavía móðir hennar sem tók að
sér að annast þær litlu svo Oddný
gæti unnið fyrir sér. 1960 eignast
Oddný fjórðu dótturina sem hlaut
nafnið Anna María og var hún Val-
týsdóttir. Valtýr vann hjá stræt-
isvögnum Reykjavíkur sem vagn-
stjóri og var öðlingsmaður að
minni hyggju, en ekki varð meira
úr þeirra sambandi. Síðar kynnist
Oddný Gunnari Halldórssyni
stýrimanni og eignast með henni
dótturina Hafsteinu og giftast þau
sama ár eða 1967. Þetta sama ár
eignumst við Helga dóttur okkar
Aldísi svo þetta ár var viðburða-
ríkt.
Ég kynntist Helgu í Eyjum, en
þá leigði ég herbergi af ömmu
hennar, Oktavíu Guðmundsdótt-
ur, sem átti húseign þá er nefndist
Hellir og leigði út tvö herbergi í
kjallaranum um árabil. Samband
okkar Helgu þróaðist upp í að
verða hjónaband og lagði Helga til
með sér í búið dótturina Hafdísi
sem hún hafði eignast með fyrri
kærasta, Georg Sigurvinssyni.
Ævi Hafdísar lauk svo með voveif-
legum hætti í apríl 1981 er hún
varð fyrir bíl og lést. Það áfall varð
okkur hjónum afar erfitt, einkum
þó Helgu, en þær mæðgur voru
mjög nánar. Við Helga eignumst
svo saman dæturnar Aldísi og
Oddnýju og soninn Ásgeir Örvar
og gáfu þau okkur svo fjölmörg
barnabörn og einnig barnabarna-
börn sem sannarlega hafa glatt
okkur í gegnum tíðina.
Ég stundaði sjóinn samfleytt í
40 ár, en um 1990 gerðist ég vöru-
bílstjóri hjá fiskvinnslufyrirtæk-
inu Fiskkaupum í sex ár og Ís-
lensku sjávarfangi í önnur sex en
þá var punkturinn settur bæði yfir
og undir i-ið. Helga var síðustu 14
árin á vinnumarkaði í Laugaveg-
sapóteki undir stjórn Odds Thor-
arensen en Oddur hafði hana í
miklu uppáhaldi og bauð okkur
hjónum m.a. til Spánar og var
margt brallað í þeirri ferð. Síðustu
10 árin fór heilsu hennar hægt en
stöðugt hrakandi uns yfir lauk um
mánaðamótin júlí/ágúst sl. Guð-
rún Helga verður borin til grafar
frá Víðistaðakirkju hinn 16. ágúst.
Megi hin fegurstu blóm vaxa upp
af hennar leiði.
Stefán Sigurðsson.
Elsku mamma. Það er hálf
skrítið að skrifa minningargrein
um mömmu sína þegar hún er
ekki eldri en þú varst en það er
samt staðreynd. Nú reynum við að
finna réttu orðin til að minnast þín
og hugsum til baka og förum yfir
lífshlaupið þitt og okkar.
Við höfum verið að rifja upp
ýmsar minningar og myndir og á
þeim sést glögglega að þér fannst
ekki leiðinlegt að sitja á sólar-
ströndu á Spáni eða öðrum heitari
löndum en okkar norðlægu eyju í
Atlantshafi.
Segja má að líf þitt hafi ekki
verið dans á rósum því þú máttir
þola mörg erfið áföll og ástvina-
missi á þinni lífsleið sem mörkuðu
djúp sár í sálina. Þessi sár gréru
ekki svo auðveldlega, enda ekki
mikið um hjálp eða sálgæslu í þá
daga.
Þrátt fyrir öll þessi áföll þá
varstu alltaf svo sterk og dugleg
og stjórnaðir heimilinu og fjöl-
skyldunni meðfram fullum vinnu-
degi þegar pabbi var löngum
stundum á sjónum fjarri heim-
ilinu.
Þessi langi vinnudagur þinn og
fjarvera pabba kenndi okkur að
bjarga okkur sjálf og oftar en ekki
vorum við búin að elda hvað sem
við fundum í skápunum þegar þú
komst heim, dauðþreytt eftir
langan vinnudag. Þetta var allt
fyrir daga Google og YouTube en
oft var gripið til þess ráðs að
hringja í Oddnýju ömmu til að fá
ráðleggingar. Oddný amma var nú
ekki hrifin af pasta eða hrís-
grjónaréttum og spurði stundum
hvort við ætluðum ekki að vera
með kartöflur. Þú fylgdist líka vel
með okkur og þér var mikið í mun
að okkur gengi vel í skóla. Þú
varst stolt af okkur ef við komum
heim með góðar einkunnir en jafn-
framt kröfuhörð ef ein einkunnin
stakk í stúf og var ekki í takt við
hinar.
Ef við lítum til baka til uppvaxt-
aráranna og á fjölskyldulífið og
lífshlaupið okkar, þá má segja að
það sem okkur þótti eðlilegt hafi
öðrum þótt erfitt og auðvitað lit-
aðist það af veikleikum þínum og
geðheilsu.
Eftir mörg áföll á þinni ævi,
sem ekkert var unnið úr, hrakaði
geðheilsu þinni smátt og smátt.
Eftir að þú misstir vinnuna í
Laugavegsapóteki, sem var í raun
þitt haldreipi í lífinu, fannst okkur
heilsu þinni hraka hratt. Á síðari
hluta ævinnar tók sjúkdómurinn
meiri toll og heilsunni hrakaði
smátt og smátt þangað til aðstoð-
ar sérfræðinga var þörf og huga
þurfti að réttri lyfjagjöf. Eftir
þann kafla minnkuðu öldudalirnir
sem fóru hátt upp og langt niður í
dimma þoku og þú varst stöðugri.
Það þýddi um leið að þú fórst
minna og minna út á meðal fólks
og varðst meira einangruð heima
við sem var svo mikil synd, því þú
elskaðir alltaf að vera í góðra vina
hópi. Einnig hrakaði sjóninni
hratt sem hafði líka sín áhrif á
ferðalög þín.
Við Oddný sitjum hér og
grömsum í gömlum myndum og
skrifum en Aldís er fjarri okkur í
Noregi og setti saman þessi fal-
legu orð til þín
Eina gjöf ég gjarnan vil gefa þér
til að sýna þér hversu mikils virði þú
ert mér.
Fallegasti demantur er ekki nóg til þín
mamma sem ert svo falleg, góð og fín.
(Aldís Harpa)
Megi englarnir vernda þig og
geyma elsku mamma.
Ásgeir, Oddný og Aldís.
Elsku Helga. Elsku Helga
amma.
Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund
og fagnar með útvaldra skara.
Þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und,
hve gott og sælt við hinn hinsta blund
í útbreiddan faðm Guðs að fara.
Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Hvíldu í friði og guð geymi þig.
Takk fyrir allt.
Dagbjört, Dagur Ómar,
Hákon Hrafn og Diljá Ásta.
Elsku amma, Guð verndi þig á
himninum.
Margt þú hefur misjafnt reynt,
mörg þín dulið sárin.
Þú hefur alltaf getað greint,
gleði bak við tárin.
(J.Á.)
Ástarkveðja,
Valdimar Þór, Valdís Von,
Eva Dís, Ásdís Elva,
Viktor Garðar og
Vignir Stefán.
Guðrún Helga
Ágústsdóttir
Ásdís Aðalsteins-
dóttir var dóttir
Hermínu ömmu-
systur á Lyng-
brekku í Reykjadal. Ég þekkti
Dísu frá því að ég var lítill en
svo kynntist ég henni og fjöl-
skyldunni betur eftir að ég fór
að búa í Reykjavík sem ungur
maður og var alltaf velkominn
Ásdís
Aðalsteinsdóttir
✝
Ásdís Að-
alsteinsdóttir
fæddist 2. október
1932. Hún lést 12.
júní 2022. Útför
hennar fór fram í
kyrrþey 27. júní
2022.
og þáði marga
kaffibolla og köku-
sneiðar. Kynnin
urðu enn þá meiri
eftir að ég flutti
aftur til Reykjavík-
ur og hús hennar
stóð opið fyrir
mömmu sem þurfti
reglulega að koma
til augnlæknis.
Hlýja, vinátta og
nærvera Dísu er
mér mikils virði og fyrirmynd.
Ég votta börnum hennar, barna-
börnum og öðrum aðstandend-
um samúð og þakka Dísu fyrir
að vera frænka mín.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
stjúpmóðir, tengdamóðir og amma,
ELNA ÞÓRARINSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum
mánudaginn 8. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 13.
Baldvin Elías Albertsson
Matthías Magnússon Þórdís L. Gunnarsdóttir
Sólveig Jenny M. Olsen Colin Smallbone
Sigríður Elín Elnudóttir
Bjarklind Þór Jón Örn Bogason
Inga Elínborg Bergþórsdóttir
Baldvin A. B. Aalen
og fjölskyldur þeirra.
Bróðir minn,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON,
fyrrverandi sýningarstjóri
Borgarleikhússins,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
9. ágúst. Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Skjóls fyrir góða
umönnun.
Fyrir hönd ættingja,
Bjarni Guðmundsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ALBERT JÚLÍUS SIGURÐSSON,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans fimmtu-
daginn 11. ágúst.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 13.
Davíð Freyr Albertsson Tinna Þorvaldsdóttir
María Albertsdóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur
Bróðir minn,
GUÐJÓN BOGASON,
Bríetartúni 24, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 7. júlí.
Útförin hefur farið fram.
Benedikt Bogason og fjölskylda
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SVANHVÍT HANNESDÓTTIR,
Hringbraut 50, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
miðvikudaginn 10. ágúst.
Rúnar Guðmundsson Sigrún Lilja Jónasdóttir
G. Birna Guðmundsdóttir Þorvaldur Aðalsteinsson
Stefán Árni Guðmundsson Hugrún Aðalsteinsdóttir
Hannes S. Guðmundsson
Hilma Lind Guðmundsdóttir Jónas Þorgeir Jónasson
Sólveig D. Guðmundsdóttir
Vilborg Helgadóttir Sverrir Helgi Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku hjartans besti eiginmaður minn, faðir,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
GÍSLI SIGURJÓNSSON,
Mávahrauni 2,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 13. ágúst.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Jóhanna Halldóra Bjarnadóttir
Sæmundur Hreinn Gíslason Anna Lilja Sigurðardóttir
Sigurjón Már Birgisson
Regina H. Mathisen
og barnabörn
Elsku hjartans
Hanna mín, þakka
þér fyrir allt, hvað
þú varst góð vin-
kona, eina vinkonan sem ég hef
átt. Stundum ef mér leið ekki vel
kom ég til þín og það var nóg,
vanlíðanin hvarf. Þú varst svo
einstök, aldrei neitt vesen, þú
gast hlegið að öllu þínum fallega
hlátri og mikið sakna ég þess að
sjá brosið þitt fallega. Það verður
erfitt að geta ekki komið til þín
Jóhanna Svein-
fríður Júlíusdóttir
✝
Jóhanna Svein-
fríður Júl-
íusdóttir fæddist
24. september
1950. Hún lést 19.
júlí 2022.
Útför fór fram
29. júlí 2022.
eða þú til mín.
Veistu að ég hef oft
hugsað um að það
hefði átt að skrifa
um þig bók, um lífs-
hlaup þitt sem hefur
verið svo ótrúlega
fjölbreytt. Engum
hefði leiðst að lesa
um það. Ég elska
þig, þú varst stór-
kostleg, falleg og vel
gefin og elsku
Hanna mín faðmaðu hana elsku
Ingu mína fyrir mig. Ég kveð þig
með söknuði en líka miklu þakk-
læti. Elsku Binni minn og fjöl-
skyldan öll, innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar allra. Ég veit að
þið haldið vel hvert utan um ann-
að.
Heiðbjört.