Morgunblaðið - 16.08.2022, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022
✝
Sigurlaug Guð-
mundsdóttir
fæddist 3. júlí 1924 í
Tungu í Göngu-
skörðum í Skaga-
firði. Hún lést 25.
júlí 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Þórey
Ólafsdóttir og Guð-
mundur Björnsson.
Systkini hennar eru
Ólafur Björn (lát-
inn) og Þorbjörg. Fjölskyldan
flutti á Sauðárkrók þegar Sig-
urlaug var sjö ára gömul og þar
ólst hún upp.
Sigurlaug giftist Torfa Mark-
ússyni 31. desember 1950. Torfi
lést 1975. Börn þeirra eru: 1)
Þórey Sigríður, börn hennar eru
Sigurlaug Íris Hjaltested, Torfi
Björn Bjarnason, Tinna Bjarna-
dóttir og Bjarki Bjarnason.
Stjúpsynir Þóreyjar eru Bjarni
Grétar Bjarnason og Unnar Þór
Bjarnason. 2) Valgerður, gift
Ragnari Gíslasyni. Börn þeirra
eru Klara Rún og Arna Sigur-
laug. 3) Guðmundur, giftur Elínu
Bjarnadóttur. Börn þeirra eru
Elfar Bjarni, Lára og Hilmar
sínum og Hobbu, systur sinni,
auk þess sem hún var fengin til
að taka við starfi móður sinnar
sem handavinnukennari við
Barna- og unglingaskólann á
Sauðárkróki. Eftir það var henn-
ar aðalstarf umönnun barna, á
barnaheimilum og róluvöllum
Reykjavíkur þar til hún var feng-
in til að veita forstöðu barna-
heimili fyrir Vestmannaeyinga
eftir gosið í Heimaey. Árið 1974
skipti hún um starf. Hún flutti
með fjölskyldu sína á heimavist
Heyrnleysingjaskólans til að
taka við starfinu húsmóðir, en í
því starfi fólst að halda heimili
með átta heyrnarlausum börn-
um. Á heimavistinni lauk hún
formlegri starfsævi sinni.
Sigurlaug flutti 68 ára í Graf-
arvoginn og varð fljótt virk þar í
kirkjustarfi eldri borgara, auk
þess sem hún tók þátt í að stofna
Korpúlfa, félag eldri borgara í
Grafarvogi. Hún nýtti sér vel
ýmiss konar félagsstarf eldri
borgara í Reykjavík, t.d. út-
skurð, postulínsmálningu, sund-
leikfimi, framsögn o.fl. Í um 20
ár fór hún líka einu sinni í viku á
hjúkrunarheimilið Eir, þar sem
hún las fyrir „gamla fólkið“. Árið
2018 flutti hún síðan sjálf á Eir
þar sem hún lést 25. júlí síðastlið-
inn.
Útför Sigurlaugar fer fram
frá Grafarvogskirkju í dag, 16.
ágúst 2022, klukkan 13.
Leó. Stjúpbörn Sig-
urlaugar, börn
Torfa, eru: 1) Guð-
laug Guðrún (látin),
börn hennar eru
Torfi Axelsson og
Auður Axelsdóttir.
2) Hjördís, börn
hennar eru Gunn-
hildur Jónasdóttir,
Anna Karen Frið-
finnsdóttir og Fann-
ey Sigríður Frið-
finnsdóttir. 3) Markús Karl,
giftur Ingunni Þóru Erlends-
dóttur. Börn þeirra eru Torfi,
Erlendur og Pétur Ari. 4) Bryn-
dís, börn hennar eru Jónas Hag-
an og Anna Christína Rosen-
berg.
Sigurlaug gekk í Barna- og
unglingaskólann á Sauðárkróki,
Húsmæðraskólann í Reykjavík
og sótti ýmis námskeið hjá
Námsflokkum Reykjavíkur.
Starfsferil sinn hóf Sigurlaug á
því að fara suður og vinna fyrir
sér sem vinnukona. Þegar
mamma hennar lést 1945 urðu
áform hennar um vefnaðarkenn-
aranám að víkja. Hún fór heim á
Krók og hélt heimili með föður
Elsku amma.
Að skrifa þessi kveðjuorð til þín
vekur upp hafsjó af minningum,
enda er af nógu að taka. Laufa-
brauðsgerð, sundferðir með allan
krakkaskarann og Púkk á gaml-
árskvöld kemur upp í hugann.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
okkur og hvergi jafn gott að vera
og í heimsókn eða gistingu hjá
ömmu. Þar bauðst þú upp á kakó
og bruður, fiskbúðing eða medis-
terpylsur, og kenndir okkur að
spila rommí, blindtrú og fant… og
leyfðir okkur stundum að vinna.
Sérstaklega eru dýrmætar
minningar þar sem við sátum í
fanginu á þér og þú last heilu bæk-
urnar fyrir okkur. Dísa ljósálfur,
Alfinnur álfakóngur og En hvað
það var skrítið voru í miklu uppá-
haldi og lesnar aftur og aftur. Við
lesum núna þessar bækur fyrir
börnin okkar og hugsum til þín,
elsku amma.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Höf. Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku amma, minningarnar
sitja eftir í hjörtum okkar og ylja
okkur um ókomin ár og hvetja
okkur til góðra verka.
Þínar ömmustelpur,
Arna Sigurlaug og
Klara Rún.
Elsku amma Lauga.
Þegar ég hugsa til baka um all-
ar mínar ótal minningar fyllist
hjarta mitt hlýju. Þú kenndir mér
bænirnar mínar og sendir mig í
sumarbúðir KFUM/K. Þegar ég
var barn eyddi ég ófáum stundum
hjá þér í heimavistinni, það var
nánast eins og mitt annað heimili.
Þar fékk ég ávallt kókó og kringl-
ur í morgunmat, fór með þér í
sund í Laugardalslaugina og fékk
alltaf pylsu á eftir. Þegar ég var
orðin unglingur og þú flutt í Veg-
hús breyttust hefðirnar en ég hélt
áfram að koma til þín og gista. Við
gátum spjallað endalaust saman.
Það var svo gott að tala við þig um
allt milli himins og jarðar. Þú lán-
aðir mér íbúðina þína til að halda
afmælispartí og fannst það sko al-
veg sjálfsagt mál, ekki allar ömm-
ur myndu gera það. Þú varst ein-
stök manneskja, svo hjartahlý og
fordómalaus að betri fyrirmynd
var ekki hægt að fá. Þegar ég
eignaðist mína fyrstu dóttur
komst þú og passaðir hana heima
á meðan ég var í vinnu, áður en
hún fékk leikskólapláss. Þetta var
ómetanleg hjálp fyrir litlu fjöl-
skylduna.
Þú kenndir mér svo margt. T.d.
að prjóna og baka pönnukökur, þú
hafðir ómælanlega þolinmæði við
að miðla þekkingu þinni.
Ég er óendanlega þakklát fyrir
að hafa átt þig svona lengi að í lífi
mínu og fjölskyldu minnar.
Ég mun ávallt sakna þín, elsku
amma mín.
Þegar dags er þrotið stjá
þróttur burtu flúinn.
Fátt er sælla en sofna þá
syfjaður og lúinn.
(Rögnvaldur Björnsson)
Sigurlaug Íris.
Mig langar að minnast Sigur-
laugar með nokkrum orðum. Í
heimavist Heyrnleysingjaskólans
var hún mér sem móðir. Hún
kenndi mér ýmsar reglur og góða
siði sem ég er mjög þakklátur fyr-
ir, að taka til í herberginu mínu og
skúra gólfið og vaska upp eftir
matinn. Alltaf á fimmtudögum var
poppað og horft á sjónvarpið, svo
var farið að sofa klukkan ellefu.
Krökkunum í Rauða húsinu og
Græna húsinu þótti gott að koma
til Sigurlaugar og fá mjólk og kök-
ur eða eitthvað að borða. Alltaf var
nóg til af einhverju góðgæti og
alltaf voru þau velkomin. Hún var
okkur öllum mjög góð. Hún gat
líka verið ákveðin. Einu sinni var
ég lokaður inni í herberginu mínu
smá tíma, ég var víst eitthvað pirr-
aður yfir því að þurfa að vaska
upp. Eitt sinn strauk ég heim til
mömmu. Sigurlaug var búin að
leita að mér og var orðin hrædd
um mig þegar mamma hringdi og
sagði henni hvar ég væri. Ég
mætti í skólann daginn eftir og allt
var í lagi. Já, það hefur ekki alltaf
verið auðvelt að vera mamman í
Gula húsinu.
Takk fyrir allt elsku Sigurlaug,
nú ertu farin í sumarlandið og ég
vona að þér líði vel.
Þórhallur Aðalsteinsson.
Elsku Sigurlaug, fóstran mín,
er nú fallin frá. Margar minningar
koma upp í huga minn um þessa
yndislegu konu.
Ég hóf nám við Heyrnleys-
ingjaskólann fjögurra ára gamall
og var á heimavist þar sem fjöl-
skyldan mín bjó út á landi.
Sigurlaug tók á móti mér á
fyrsta degi með opnum örmum og
aðlagaði mig að nýjum aðstæðum
fjarri fjölskyldu. Orð fá því ekki
lýst hversu heppinn ég var að fá
hana til að annast mig alla mína
skólagöngu. Frá fyrsta degi var
hún til staðar fyrir mig og kenndi
mér svo margt, meðal annars að
ganga vel um herbergið mitt og
sinna heimilisstörfum. Hún gerði
mig að sjálfstæðum ungum manni.
Sigurlaug tók mig fljótt undir sinn
verndarvæng og kynnti mig fyrir
sínum frábæru börnum, þeim Þór-
eyju, Valgerði og Gumma, sem
tóku mér svo vel.
Ég á svo margar góðar og fal-
legar minningar um hana elsku
Sigurlaugu, sem gott er að ylja sér
við og munu lifa að eilífu. Þær eru
margar góðar minningarnar sem
leita á hugann en ég man þegar ég
var sex ára gamall og átti að fara
einn í flugvél austur til að heim-
sækja fjölskylduna. Það fannst
mér erfitt og neitaði ég að fara
nema hún kæmi með. Sigurlaug
fór með mér í flugið á inniskónum
og eldhúskjólnum og til baka með
sömu vél, allt til að þóknast mér.
Önnur sterk minning er þegar ég
var nýkominn með bílpróf og var
frekar svekktur að vera ekki bú-
inn að kaupa mér bíl til að fara á
rúntinn. Þá kom hún Sigurlaug
inn í herbergi til mín og rétti mér
lyklana að bílnum sem hún var
nýbúin að kaupa sér og lánaði mér
svo ég gæti farið á rúntinn með
nýja ökuskírteinið.
Sigurlaug reyndist fjölskyldu
minni afar vel og var í góðum
tengslum við móður mína og áttu
þær fallegt og gott samband. Sig-
urlaug átti stóran stað í hjarta
mínu og héldum við góðu sam-
bandi fram á síðasta dag. Það var
alltaf jafn gott að finna hlýja faðm-
inn hennar og þá væntumþykju
sem hún hafði í minn garð.
Hvíldu í friði elsku Sigurlaug
og takk fyrir samfylgdina.
Baldur Hauksson.
Í dag kveðjum við kæra vin-
konu okkar, hana Sigurlaugu Guð-
mundsdóttur.
Ég kynntist henni fyrst í orlofi
eldri borgara í Skálholti og þá
strax urðum við góðar vinkonur.
Þannig vildi til að orlofshópurinn
kom fyrir mistök einum degi of
snemma í Skálholt og því var úr
vöndu að ráða. Húsið var fullskip-
að öðrum hópi og þarna stóðum
við á hlaðinu. Við fengum inni á
hóteli í nágrenni Skálholts fyrstu
nóttina og þar hófust kynni okkar
Sigurlaugar.
Í hópnum voru margir einstak-
lingar sem þurftu mikla aðstoð og
þá kom í ljós hve lánsöm við vor-
um að hafa svo ráðagóða og hjálp-
sama konu með okkur. Þegar við
höfðum komið okkur fyrir og
mættum í kvöldmat, var Sigur-
laug þar og var að búa til jafning.
Þannig vildi til að á staðnum voru
útlendingar sem höfðu soðið sér
hangikjöt en vissu ekki hvernig
ætti að búa til jafning sem þeir
höfðu heyrt að ætti að borða með
þessum mat. Þeir voru svo heppn-
ir að hitta Sigurlaugu, sem að
sjálfsögðu bjó til jafninginn fyrir
þá.
Þannig var hún.
Þegar starf eldri borgara hófst
í Grafarvogskirkju var hún í
fyrsta hóp sem kom þar saman.
Hópurinn var í fyrstu lítill en fór
ört vaxandi og þá var gott að hafa
Sigurlaugu í liðinu. Glaðlyndi
hennar og þægilegt viðmót var
mikilvægt og hjálpsemin alltaf
hennar aðalsmerki. Hún fór í
heimsóknir til þeirra sem ekki
gátu komið í kirkjuna og einnig las
hún fyrir fólkið á Eir og veit ég að
það var mjög þakklátt starf sem
hún vann þar.
Þegar ég hvarf til annarra
starfa innan öldrunarþjónustunn-
ar tók Edda Jónsdóttir við af mér.
Þær voru fulltrúar Grafarvogs-
kirkju í Eldriborgararáði Reykja-
víkurprófastsdæma, ásamt því að
sjá um starfið í kirkjunni áfram.
Einnig kom Sigurlaug með okkur
Eddu í orlof eldri borgara á
Löngumýri í Skagafirði. Þar, sem
annars staðar, var mikill fengur í
að hafa hana með í liði.
Nú hefur þessi góða kona lokið
sínu hlutverki hér á jörð. Við
Edda og eldri hópurinn í Grafar-
vogskirkju þökkum gott samstarf
og vináttu á liðnum árum um leið
og við vottum fjölskyldu hennar
okkar dýpstu samúð.
Valgerður Gísladóttir.
Elsku Sigurlaug.
Ég man vel eftir því og mun
aldrei gleyma því þegar þú varst
hjá mér allt kvöldið á spítalanum
þegar ég fékk sykursýki og nem-
endurnir á heimavistinni biðu eftir
að þú kæmir heim en þú komst
heim mjög seint það kvöld. Þórey
passaði á meðan nemendurna á
heimavistinni. Þú varst alltaf dug-
leg að elda mat og gefa okkur
kaffitíma. Nú ert þú ert búin að
hitta Torfa eiginmann þinn i Sum-
arlandinu og mun hann sýna þér
svo margt fallegt þar.
Ég veit að þú kíkir í heimsókn
til okkar nemenda. Takk fyrir allt.
Við hittumst aftur seinna þegar
minn tími er kominn.
Sjáumst
Anna Friðriksdóttir.
Sigurlaug
Guðmundsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku amma. Takk fyrir
allt sem þú gerðir fyrir mig
og með mér. Þín verður
sárt saknað, ég elska þig.
Þín
Tinna.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SIGURÐUR GEIRSSON,
Akraseli 21, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
þriðjudaginn 9. ágúst.
Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn
23. ágúst klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir
Geir Sigurðsson
Aðalsteinn Sigurðsson
Birgir Jarl Aðalsteinsson
Amanda Brák Aðalsteinsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför okkar elskulegu
móður, tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
GUÐRÚNAR VALDIMARSDÓTTUR,
Sólvöllum, Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
dvalarheimilinu Sólvöllum fyrir góða umönnun.
Valdimar Þorsteinsson Guðrún A. Sveinsdóttir
Sjöfn Jónsdóttir
Erlingur Þorsteinsson Hlín Daníelsdóttir
Trausti Þorsteinsson Anna Bára Hjaltadóttir
Guðfinna Þorsteinsdóttir Jens Uwe Friðriksson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HAUKUR BJÖRGVINSSON
járnsmíðameistari,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
föstudaginn 5. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð.
Sigvaldi Hauksson Guðleif Jónsdóttir
Björgvin Hauksson Birna G. Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
AGNES JÓNSDÓTTIR,
Vesturhópi 1, Grindavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 10. ágúst.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 19. ágúst
klukkan 13.
Jón Ólafsson
Ingunn Jónsdóttir
Helga Jakobsdóttir
Jón Gunnar Ólafsson
Hjördís Ólafsdóttir Brynjar Freyr Níelsson
Eiríkur Ingi Ólafsson Sæunn Reynisdóttir
Aron Smári Sæmundsson
Ólafur Frosti Brynjarsson
Huldís Brynjarsdóttir
Brimdís Brynjarsdóttir
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KATRÍN HENDRIKSDÓTTIR,
sem lést föstudaginn 22. júlí, verður
jarðsungin frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu
fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 13.00.
Streymt er frá útförinni á filadelfia.is/live.
Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á ABC barnahjálp í
Búrkína Fasó (merkja Bobó).
Ásgerður M. Þorsteinsdóttir Jóhannes Óskarsson
Hinrik Þorsteinsson Guðný Ragnhildur Jónasóttir
Matthías Þorsteinsson Bryndís Brynjólfsdóttir
Jóel Þorsteinsson Silja Þórisdóttir
Anna Þorsteinsdóttir Guðmar Guðmundsson
Elísabet Þorsteinsdóttir Detlef Guderian
Katrín Katrínardóttir Theodór Francis Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn