Morgunblaðið - 16.08.2022, Side 27

Morgunblaðið - 16.08.2022, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Í Bestu deild kvenna í knatt- spyrnu mættust Þróttur og Sel- foss um daginn í leik sem fór gjörsamlega úr böndunum undir lokin. Dómgæsla í deildinni hefur verið vægast sagt slök. Í ensku deildinni var talað um það fyrir tímabilið að dómarar ættu að láta leikina ganga meira. Ef lið héldi boltanum eftir brot ætti að láta leikinn flæða, í deild þar sem sumir af bestu dóm- urum í heimi eru. Mögulega fannst dómara leiksins í Laugar- dalnum það sniðugt að taka inn í leik þar sem tvö hörðustu lið Bestu deildarinnar mættust en það endaði allavega með ósköp- um. Dómarinn byrjaði á því að leyfa nokkrum brotum að sleppa í upphafi leiks en svo þegar 10 mínútur voru til leiksloka var allt komið í háaloft. Einn leikmaður sýndi til dæmis mögnuð glímu- tök á vellinum og kastaði leik- manni Þróttar niður en uppskar ekki gult spjald. Bæði liðin voru farin að tak- ast á og endaði svo að fyrirliði Þróttar, Álfhildur Rósa Kjart- ansdóttir, fór af vellinum í sjúkrabíl. Það er ekkert gaman að horfa á fótboltaleik þegar helming- urinn af honum fer í tafir og aukaspyrnur en það er fáránlegt að horfa upp á það að endalaust sé sparkað í nokkra af bestu leik- mönnum sem Ísland á í deildinni. Þessi leikur var bara eitt dæmi af mörgum í Bestu deild á Íslandi þar sem dómgæslan er skammarleg. Þetta er ekki mjög eftirsótt starf og launin eru lík- legast partur af því en eitthvað róttækt þarf að gera til þess að bæta dómgæslu í landinu. Hvort sem það er með launum, prófum eða sjónmælingu. BAKVÖRÐUR Ásta Hind Ómarsdóttir astahind@mbl.isHildur Maja Guðmundsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir keppa á heimsmeistaramótinu í áhaldafim- leikum sem fram fer í Liverpool á Englandi í lok nóvember á þessu ári. Þær Hildur Maja og Thelma unnu sér inn keppnisrétt á HM með góðum árangri í fjölþraut á EM í München í Þýskalandi. Thelma end- aði í 42. sæti á EM í greininni og var áttundi fjölþrautarkeppandinn til þess að tryggja sér sæti á HM á meðan Hildur Maja hafnaði í 63. sæti og var 23. keppandinn inn á HM. Tryggðu sér sæti á HM Ljósmynd/Fimleikasamband ÍSlan HM Hildur Maja Guðmundsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir í München. Birkir Valur Jónsson, varnarmaður HK í knattspyrnu, missir af öllum líkindum af lokaleikjum liðsins í 1. deildinni eftir að hafa viðbeins- brotnað í 0:2-tapi liðsins gegn Þór frá Akureyri í 17. umferð deild- arinnar á SaltPay-vellinum á Ak- ureyri á sunnudaginn. Birkir fór meiddur af velli strax á 13. mínútu en hann hefur leikið alla 17 leiki liðsins í deildinni í sumar og skorað í þeim eitt mark. HK er með 37 stig í efsta sæti deildarinnar og hefur eins stigs forskot á Fylki þegar fimm umferðum er ólokið. Morgunblaðið/Eggert Meiddur Birkir Valur Jónsson leik- ur líklegast ekki meira á tímabilinu. Áfall fyrir HK-inga Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðs- markvörður Íslands í knattspyrnu og leikmaður Arsenal á Englandi, mun leika með tyrkneska úr- valsdeildarfélag- inu Alanyaspor á komandi keppn- istímabili. Það er ítalski félagaskiptasér- fræðingurinn, Fabrizio Romano, sem greinir frá þessu á Twitter- síðu sinni en í færslu hans kemur fram að Rúnar Alex sé búinn að skrifa undir eins árs lánssamning í Tyrklandi. Rúnar Alex, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við Arsenal frá franska 1. deildarfélaginu Dijon sumarið 2020 en hann hefur einungis komið við sögu í sex leikjum með enska fé- laginu. Hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá OH Leuven í belgísku A- deildinni en Alanyaspor hafnaði í fimmta sæti tyrknesku deildarinnar á síðustu leiktíð. Liðið er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar, með 4 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar, en samkvæmt fréttamiðlum í Tyrklandi verður til- kynnt um félagaskiptin á næsta sól- arhringnum. Rúnar Alex er uppalinn hjá KR í Vesturbænum en alls á hann að baki 17 A-landsleiki fyrir Ísland. Rúnar á leið til Tyrklands Rúnar Alex Rúnarsson EM Í SUNDI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Maður vill alltaf meira en eftir að hafa rýnt betur í úrslitasundið er ég ótrúlega sáttur við árangurinn,“ sagði sundmaðurinn Anton Sveinn Mckee í samtali við Morgunblaðið. Anton, sem er 28 ára gamall, hafnaði í sjötta sæti í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í 50 metra laug í Róm á Ítalíu um helgina. Hann kom í mark á tímanum 2:10,96 mínútum en hans besti tími í greininni er 2:08,74 mínútur. Þeim tíma náði Anton á heimsmeistara- mótinu í Búdapest í Ungverjalandi í júní á þessu ári þar sem hann hafn- aði einnig í 6. sæti í 200 metra bringusundi. Fór þetta á hörkunni „Ég hefði mjög auðveldlega get- að dregið mig úr keppni eftir að hafa fallið í yfirlið vegna matareitr- unar sem ég nældi mér í á Spáni í aðdraganda Evrópumótsins. Ég ákvað hins vegar að taka slaginn og ég er mjög stoltur af sjálfum mér. Ég fór þetta fyrst og fremst á hörkunni, meðal annars vegna þess að ég vildi klára tímabilið með stæl. Ég gaf allt í þetta en á sama tíma synti ég á mínum eigin forsendum. Í gegnum tíðina hef ég kannski verið að reyna of mikið eða þá í ákveðinni tilraunastarfsemi á þess- um stærstu mótum. Til dæmis í úrslitasundinu á HM í Ungverja- landi í sumar þar sem eina mark- miðið mitt fyrir sundið var að synda eins hratt og ég gæti, allan tímann. Um helgina ákvað ég að synda fyrst og fremst á mínum styrk- leikum. Því miður dugði það ekki til þess að ná í verðlaun í þetta skiptið og kannski er hægt að skrifa það að einhverju leyti á matareitrunina sem ég fékk,“ sagði Anton Sveinn. Síðasta ár reyndist Antoni Sveini erfitt en hann missti föður sinn í að- draganda Ólympíuleikanna í Tókýó 2021 og þá hafði kórónuveiran einn- ig mikil áhrif á allan hans undirbún- ing fyrir stærstu mótin. „Taktíkin mín í Róm snerist fyrst og fremst um það að vera rólegur og synda á mínum hraða. Það er al- veg ljóst að ef ég ætla mér að vinna til verðlauna á stórmóti í framtíð- inni þarf ég að synda eins og ég gerði í úrslitasundinu um nýliðna helgi. Það má því segja að þetta sé allt á réttri leið hjá mér eins og staðan er í dag. Það er fyndið að hugsa til þess að í desember á síðasta ári settist ég niður með forsvars- mönnum sundsambandsins þar sem við ræddum meðal annars áfram- haldið hjá mér í sundinu. Ég velti því alvarlega fyrir mér á þessum tímapunkti að leggja sund- hettuna á hilluna eftir erfiða tíma en ég get með sanni sagt að ég er virkilega ánægður með þá ákvörðun að halda áfram í íþróttinni. Ég hef bætt mig mikið á þessu ári og tel mig eiga mikið inni þannig að fram- tíðin er svo sannarlega björt.“ Mikill fórnarkostnaður Eins og áður hefur komið fram hefur Anton Sveinn náð frábærum árangri á keppnistímabilinu og stimplað sig rækilega inn á meðal þeirra bestu í sinni grein. „Fórnarkostnaðurinn sem fylgir því að standa í þessu og stunda sundið er gífurlegur svo ég segi það nú bara eins og það er. Á sama tíma er sundið það skemmtilegasta sem ég geri og ekkert sem toppar það að standa á ráslínunni og keppa við sjálfan sig og aðra. Ég er alltaf að reyna vera besta útgáfan af sjálfum mér og ég er á ákveðinni vegferð. Næstu skref hjá mér snúa að því að reyna að eyða minni orku í undanrásum þannig að ég sé með meiri orku í sjálfu úr- slitasundinu. Þetta snýst um að taka eitt skref í einu en á sama tíma er ég ótrú- lega ánægður með þann stað sem ég er kominn á. Ég er á topp 8 í heiminum í 200 metra baksundi og topp 8 líka í Evrópu, sem er magn- að. Mig dreymdi um það þegar ég var ungur strákur að synda til úr- slita á bæði HM og EM og mér hef- ur svo sannarlega tekist það og af því er ég ótrúlega stoltur.“ Anton fékk matareitrun eftir að hafa borðað sushi í Barcelona í að- draganda Evrópumótsins en hann ætlar að einbeita sér að öðru fæði í framtíðinni. „Ég mun ekki leyfa mér neitt hráfæði rétt fyrir mót í framtíðinni. Það verða bara hrísgrjón og þurr kjúklingur þegar þar að kemur!“ bætti Anton við á léttu nótunum. Íhugaði alvarlega að leggja sundhettunni - Anton Sveinn Mckee hefur stimplað sig inn sem einn af þeim allra bestu í ár Ljósmynd/Szilvia Micheller Sjötti Anton Sveinn McKee hafnaði í 6. sæti í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í Róm um nýliðna helgi. Luis Díaz bjargaði stigi fyrir Liver- pool með frábæru einstaklingsfram- taki þegar liðið tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Anfield í Liverpool í 2. umferð deildarinnar í gær. Díaz jafnaði metin fyrir Liverpool í 1:1 á 61. mínútu eftir að Wilfried Zaha hafði komið Crystal Palace yfir á 32. mínútu. Darwin Núnez, fram- herji Liverpool, fékk að líta beint rautt spjald á 57. mínútu fyrir að skalla Joachim Andersen, varnar- mann Crystal Palace. Núnez er ein- ungis annar leikmaðurinn í sögu Liverpool sem fær að líta rauða spjaldið í fraumraun sinni í ensku úrvalsdeildinni á Anfield en Joe Cole gerði slíkt hið sama gegn Arsenal hinn 15. ágúst árið 2010. Liverpool hefur ekki farið vel af stað í deildinni. Liðið er án sigurs í fyrstu tveimur leikjum sínum með 2 stig í 12. sætinu. Liverpool án sigurs í ensku úrvalsdeildinni AFP/Paul Ellis Rautt Darwin Núnez lék reka sig af velli í frumrauninni á Anfield í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.