Morgunblaðið - 16.08.2022, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
WEXIÖDISK, COMENDA OG HOBART UPPÞVOTTAVÉLAR
ÖFLUGUR LIÐSAUKI Í ELDHÚSIÐ
WEXIÖDISK
Vandaðar og öflugar vélar
fyrir þá sem vilja það besta
COMENDA
Ódýrari kostur - öflug og
góð vél fyrir stærri eldhús
HOBART
Frábær fyrir minni eldhús,
kaffistofur o.fl.
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
„Það er einstaklega ánægjulegt að
Gitta-Maria Sjöberg hafi ákveðið að
Ísland yrði í brennipunkti í ár,“ segir
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari
um tónlistarhátíðina Nordic Song
Festival í Svíþjóð sem lauk með loka-
tónleikum í gær. Hátíðin fór fram 7.-
15. ágúst og var þemað að þessu sinni
íslensk tónlist. Hátíðarvikan bauð
upp á fjölbreytta tónleikadagskrá,
óperusýningar og meistaranámskeið.
Listrænn stjórnandi og stofnandi
Nordic Song Festival er hin þekkta
sópransöngkona og kennari Gitta-
Maria Sjöberg. Í ár tók hún á móti
þátttakendum frá Íslandi, Svíþjóð,
Noregi, Danmörku, Finnlandi, Ítalíu
og Bandaríkjunum, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Helgi Rafn staðartónskáld
„Ég er sjálfur svo heppinn að fá að
taka þátt í hátíðinni í ár sem leiðbein-
andi á meistaranámskeiðum, söngv-
ari og fyrirlesari,“ segir Gunnar og
heldur áfram: „Ég er búinn að þekkja
listrænan stjórnanda, Gitte-Mariu, í
mörg ár og það hefur oft komið til
tals að ég kenndi meistaranámskeið á
hátíðum hennar en aldrei orðið úr.
Síðan hitti ég hana síðasta haust og
sagði henni frá óperunni Music and
the Brain eftir Helga Rafn Ingvars-
son tónskáld, sem ég var þátttakandi
í. Hún hafði heyrt af þessu verki áður
og ákvað að finna leið til að koma því
á hátíðina. Við Þórgunnur Anna Örn-
ólfsdóttir ásamt tónskáldinu og fleir-
um fluttum svo verkið á hátíðinni en
það fjallar um hvernig heilaskaði hef-
ur áhrif á söngkonu og rannsóknir á
því. Óperuhöfundurinn, Helgi Rafn,
var staðartónskáld hátíðarinnar og
komu verk hans víð við sögu.
Við það bættist svo að ég kenndi
meistaranámskeið tengt norrænu
sönglögunum með áherslu á íslensk
sönglög. Ég skoðaði innihald texta og
textaframburð en rétt eins og í öðrum
tungumálum hefur þróast ákveðin
hefð að syngja ekki alveg eins og
maður ber orðin fram í talmáli, til
þess að tónlistarlínan fái að halda sér.
Maður þarf að geta þjónað bæði text-
anum og laginu.“
Spurður hverjir það séu sem sækja
þessi meistaranámskeið segir Gunn-
ar: „Það eru nemendur frá öllum
Norðurlöndunum, það var t.d. ein
íslensk stúlka í hópnum. Þetta eru
aðallega nemendur í tónlistarnámi á
háskólastigi sem eru að feta braut
ljóðasöngsins.“
Að sögn Gunnars héldu nemend-
urnir tónleika í kjölfar námskeiðsins
og einnig kennararnir: „Það er mjög
gleðilegt að sjá hversu mikla vinnu
þau lögðu í að flytja íslensku lögin
vel.“
Fjöldi fyrirlestra var haldinn á
hátíðinni. Mette Borg leikstjóri hélt
fyrirlestraröð, Helgi Rafn sagði frá
tónlist sinni og óperunni Music and
the Brain og Maria Hansson og Jorge
Alcaide sögðu frá „náttúruóperunni“
Mask and Man. Gunnar flutti einnig
fyrirlestur sinn; Mikilvægi tónlistar
og söngs fyrir börn og ungmenni.
„Það er alltaf að koma betur og betur í
ljós hvað söngur og tónlistarnám hef-
ur gríðarlega góð áhrif á einstaklinga.
Fólk fær ýmislegt út úr söngnum ann-
að en ánægjuna af því að syngja.
Sjálfsöryggi, náms- og samskipta-
færni eru meðal þeirra jákvæðu áhrifa
sem söngurinn og söngnámið geta
haft á fólk. Það er kannski ekki skrýt-
ið að velta þessu fyrir sér þegar mað-
ur fæst við þetta alla daga,“ segir
Gunnar.
Vakning í ljóðlistinni á Íslandi
Spurður af hverju lögð hafi verið
áhersla á Ísland í þetta sinn segir
Gunnar: „Hátíðin hefur átt sér sín
áherslulönd hvert ár og líklegast hef-
ur verið kominn tími á Ísland, sem á
sér ekki langa tónlistarsögu á þessu
sviði, en öfluga þegar hún hófst, seint
á 19. öld. Sönglagið hefur undanfarið
verið að koma mjög sterkt inn hjá
ungum tónskáldum, sem er ánægju-
legt. Maður finnur líka að það hefur
orðið ákveðin vakning í ljóðlistinni á
Íslandi og þá fylgir tónlistin oft með.“
-Einn viðburður tónlistarhátíðar-
innar nefnist Poetry about the clim-
ate. eða Ljóð um loftslagið. Hvað get-
ur þú sagt mér um þann viðburð?
„Guja Sandholt, listrænn stjórn-
andi Óperudaga, var í sambandi við
Gittu og þá kom upp þessi hugmynd.
Poetry about the climate er s.s. syst-
urverkefni við það sem hún gerði á
Óperudögum. Þar voru ung börn
fengin til að semja ljóð og norræn
tónskáld til að semja svo lög við þau.
Á tónleikum með barna- og unglinga-
kór frá N3 í Trollhättan undir forystu
Viktoríu Karlsson voru þau lög síðan
sungin.“
Allar upplýsingar um Nordic Song
Festival má nálgast á vef hátíðar-
innar, nordicsongfestival.com.
jonagreta@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónlistarhátíð Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari tók þátt í Nordic Song Festival sem lauk með lokatónleikum í
gær. Gunnar hélt meistaranámskeið, flutti fyrirlestur og söng í óperunni Music and the Brain á hátíðinni.
Íslensk tónlist í brennidepli
- Nordic Song Festival lauk í Svíþjóð í gær - Þema tónlistarhátíðarinnar var
íslensk tónlist - Gunnar Guðbjörnsson gegndi ýmsum hlutverkum á hátíðinni
Spænska kvikmyndaleikkonan Rossy
de Palma verður heiðursgestur
RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíð-
ar í Reykjavík, í haust og verður sér-
stök dagskrá helguð spænskri kvik-
myndagerð á hátíðinni. De Palma
fæddist árið 1965 í borginni Palma á
Mallorca og hefur verið ein þekktasta
leikkona Spánar síðustu áratugi og
hluti af áhrifamikilli kvikmyndagerð
sem kennd er við höfuðborg Spánar,
Madríd. Hin nýja spænska bylgja,
sem einkennir spænska kvikmynda-
gerð í dag, mun fá sérstakt rými á
dagskrá RIFF, að því er fram kemur
í tilkynningu.
„Átján ára flutti Rossy de Palma til
Madridar þar sem hún tók fullan þátt
í gagnmenningarkrossferð Madrídar-
senunnar (La Movida Madrileña), á
tímabili listræns frelsis sem ein-
kenndi árin eftir dauða fasistaleið-
togans Francos,“ segir í tilkynningu
og að de Palma hafi verið ein meðlima
popphljómsveitarinnar Verstu mögu-
legu (Peor Imposible) og fyrir tilstilli
hennar hafi leiðir þeirra Pedros
Almodóvars legið fyrst saman en
Almodóvar er þekktasti og virtasti
kvikmyndaleikstjóri Spánar. Hefur
de Palma leikið í fjölda kvikmynda
hans og einnig leikstjóranna Alex de
la Iglesia, Roberts Altmans, Mikes
Figgis, Laure Charpentier, Terrys
Gilliams og Mehdis Charefs. Hún
hefur einnig átt farsælan feril sem
tískufyrirsæta. Um Madrídarsenuna
svokölluðu segir í tilkynningu að hún
hafi lagt áherslu á fegurð og frjálsa
tjáningu en þó verið langt í frá póli-
tískt viðbragð við fráfalli fasistaleið-
togans Francos. Hin nýja spænska
bylgja í kvikmyndagerð leggi áherslu
á að eyða mörkum skáldskapar og
veruleika og endurspegli kvikmynda-
gerðarþróun fyrri tíma og endur-
spegli að mörgu leyti tíðaranda okkar
tíma.
AFP
Heiðursgestur Rossy de Palma, ein
þekktasta leikkona Spánar, á tísku-
sýningu Jean-Paul Gaultiers 6. júlí.
Rossy de Palma
heiðursgestur RIFF
Heimsfrumflutningurinn á verkinu
Archora eftir Önnu Þorvaldsdóttur
undir stjórn Evu Ollikainen á BBC
Proms undir lok síðustu viku hlýtur
fullt hús eða fimm stjörnur hjá Ivan
Hewett og John Allison, gagnrýn-
endum The Telegraph. „Archora
mun rata víða og það er ekki aðeins
af því að verkið var pantað af
nokkrum af leiðandi hljómsveitum
heims,“ skrifa rýnarnir og taka
fram að „tilkomumikill og dular-
fullur hljóðheimur verksins gæti
sennilega aðeins komið frá íslensku
tónskáldi, en virkar samt eins og
það hafi verið hugsað sérstakega
fyrir frumflutninginn á Proms enda
nýtti verkið sérkennilegan hljóm-
burð Royal Albert Hall til hins
ýtrasta“. Hrósa þeir Ollikainen í
hástert, sem þreytti frumraun sína
sem stjórnandi á Proms. „Hún var
sérstaklega áhrifamikil í verki
Önnu sem var fyrsta verk kvölds-
ins. Hún stýrði af festu með góðum
hraðabreytingum, enda augljóslega
með eyra fyrir smáatriðum.“
Andrew Clements, rýnir The
Guardian, segir rannsókn Önnu á
„miklum hljómi tilkomumikla og
aðlaðandi“ og gefur tónleikunum
fjórar af fimm stjörnum. Bendir
hann á að tónlist Önnu henti ein-
staklega vel fyrir sinfóníuhljóm-
sveitir þar sem tónsköpun hennar
snúist um „massa og þéttleika,
hvernig ólík hljóð rekast á, samein-
ast og þróast með tímanum“, skrif-
ar Clements og tekur fram að fjöldi
áhugaverðra verka Önnu á síðustu
misserum hafi gert það að verkum
að hún sé orðin ein af mest áber-
andi röddunum í evrópskri tónlist
nú um stundir.
Archora er á efnisskrá upphafs-
tónleika Sinfóníuhljómsveitar
Íslands 8. september.
Morgunblaðið/Hari
Tónskáld Anna Þorvaldsdóttir.
Stjörnudómar fyrir
flutning á Proms