Morgunblaðið - 16.08.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.08.2022, Blaðsíða 32
ELDRI BORGARAR: Aðventurferðir til Kaupmannahafnar 2022 Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting, m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir, kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá. Fagþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina, einnig er hægt að greiða hluta ferðar með punktum ! ! ! ! ! 1. ferð: 20.-23. nóvember 2. ferð: 27.-30. nóvember 3. ferð: 4.-7. desember – fá sæti laus Verð: 179.000 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald v/gistingar í einbýli er 34.900 kr. Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750 Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Gist er á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri 5* sem er staðsett í miðborg Kaupmannahafnar. Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu. Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefáns- dóttur leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega um sögu Kaupmannahafnar. Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften. Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið breytt í „Juleland“ á Aðventunni. Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan hljómsveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vana- lega ríkir mikil stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll síðdegis og flug til Íslands um kvöldið. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson Hollenski rithöfundurinn og listamaðurinn Simon(e) van Saarloos veltir fyrir sér spurn- ingunum um hver ákveði hvers sé minnst og hvers vegna í tengslum við bók sína Take ’Em Down í Borgarbókasafninu Grófinni í dag kl. 17. Í bókinni sækir hán innblástur í líf hin- segin fólks sem sagan hefur þurrkað út, að því er fram kemur í tilkynningu og hug- leiðir hvort og hvernig hægt sé að lifa án fortíðar. Að spjalli van Saarloos loknu flytur Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur erindi með yfir- skriftinni Minnisvarðar: Tákn saklauss stolts eða valds og yfirráða? og einnig verður sýnt brot úr myndband- inu Sögulegur andlegur titringur – geimferðaáætlun sem kemur úr smiðju samvinnuhópsins Herring, Iron, Gunpowder, Humans & Sugar (HIGHS). Hver ákveður hvers er minnst og hvers vegna, spyr van Saarloos ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 228. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Anton Sveinn McKee náði frábærum árangri á EM í 50 metra laug í Róm á Ítalíu um nýliðna helgi þar sem hann hafnaði í 6. sæti í 200 metra bringusundi. Hann íhugaði að leggja sundhettuna á hilluna í desember á síðasta ári eftir erfitt tímabil. »27 Á meðal fremstu sundmanna heims ÍÞRÓTTIR MENNING Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég var með það markmið að safna 200 þúsund krónum fyrir Ljósið, end- urhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyr- ir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, en ég hef nú þegar safnað 217 þúsundum og enn er að bætast við, sem er frábært. Ég vil auðvitað safna sem mestu fyrir Ljósið. Mamma fór oft þangað þegar hún var veik og var mjög ánægð með starfið þar,“ segir Ásgeir Skarphéð- inn Andrason, 14 ára piltur sem ætlar næstkomandi laugardag að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til minningar um mömmu sína, Ingveldi Geirs- dóttur, en hún lést úr krabbameini fyrir þremur árum, vorið 2019. „Við Kiddi ætlum að hlaupa tíu kílómetra saman og þetta verður ekki mikið mál fyrir mig. Ég er í ágætu formi enda æfi ég fótbolta hjá Fylki og hef ekkert verið að æfa mig neitt sérstaklega fyrir þetta hlaup. Ég veit aftur á móti ekki með Kidda, hann er orðinn gamall og lúinn, svo ég veit ekki hvort hann getur hlaupið tíu kílómetra. Það kemur í ljós á laugar- daginn hvernig þetta fer,“ segir Ás- geir og hlær og á þar við pabba sinn, Kristin Þór Sigurjónsson. „Kiddi átti þessa hugmynd, að ég myndi líka hlaupa og safna peningum fyrir Ljósið, eins og hann ætlar að gera, og ég sló til,“ segir Ásgeir, sem er mjög þakklátur öllum þeim sem hafa heitið á hann með því að leggja inn hlaupastyrk í hans nafni hjá Ljós- inu. Ásgeir segist hugsa til Ingveldar mömmu sinnar á hverjum degi, en hann var aðeins tíu ára þegar hún lést. „Hún var sterkasta manneskja sem ég þekki. Hún var geggjað góð mamma, skemmtileg og góð fyrir- mynd, mjög þrautseig og svo var hún mikil íþróttamanneskja, fyrrverandi glímudrottning.“ Þeir sem vilja heita á Ásgeir og styðja Ljósið í leiðinni geta farið inn á slóðina hlaupastyrkur.is og flett upp nafninu Ásgeir Skarphéðinn Andrason, undir flipanum hlauparar. Hleypur í minningu mömmu sinnar - „Hún var sterkasta manneskja sem ég þekki“ Mæðgin Ásgeir og Ingveldur móðir hans á góðum degi árið 2012. xxx Fylkismaður Ásgeir fagnar hér marki sem hann skoraði á Rey Cup núna í sumar þegar hann keppti þar fyrir sitt lið, Fylki, í fótboltaleik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.