Morgunblaðið - 17.08.2022, Qupperneq 2
Morgunblaðið/Eggert
Krot Skemmdarverkið er ekki einsdæmi.
Regnbogafánar hafa einnig verið skemmdir.
Skemmdarverk voru unnin á skilt-
um Hinsegin daga, sem staðsett eru
á bílastæðum við Austurvöll, í gær.
Á sum skilti hefur verið sérstak-
lega krotað með spreybrúsa yfir
teiknaðar skreytimyndir skiltanna
sem flestar sýna manneskjur sem
tákna ást hinsegin fólks. Á önnur
skilti hafa tölustafirnir 1488 verið
krotaðir. Tölustafirnir eru gjarnan
notaðir af samtökum sem kenna sig
við þjóðernishyggju eða jafnvel ný-
nasisma.
Merki nýnasista á
skiltum Hinsegin daga
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir að
Vegagerðin veiti umsögn um um-
hverfismatsskýrslu vegna umfangs-
mikils vikurnáms á Mýrdalssandi og
flutninga efnisins til Þorlákshafnar
en þaðan verður það flutt út með
skipum. G. Pétur Matthíasson upp-
lýsingafulltrúi segir að verið sé að
skoða áhrif flutninganna á umferð og
vegi og undirbúa umsögnina.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur
fram að flutningabílar muni fara um
vegina á milli Víkur og Þorlákshafnar
á 7-8 mínútna fresti. Mikil umferð er
nú þegar um Suðurlandsveg. Hafa
forsvarsmenn Mýrdalshrepps og
ferðaþjónustunnar lýst áhyggjum af
þessum miklu flutningum og áhrifum
þeirra á ferðaþjónustu og vegina
sjálfa. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Háalda Vikurinn verður tekinn úr námu austan við Hafursey á Mýrdals-
sandi og fluttur með stórum bílum til Þorlákshafnar.
Skoða áhrif flutninga
á umferð og vegi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Meiri ágallar reyndust vera á nýrri
brú sem verið er að byggja yfir Jök-
ulsá á Sólheimasandi en upphaflega
leit út fyrir þegar steypumót voru
fjarlægð. Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni hefur verið unnið að
lagfæringum en einnig hafa farið
fram rannsóknir á umfangi vandans.
Verið er að vinna úr þeim rannsókn-
um. Vegna þessa hefur tafist að brúin
verði tekin í notkun.
Brúin nánast tilbúin
ÞG Verk byggir brúna fyrir Vega-
gerðina. Er hún 163 metra löng eft-
irspennt bitabrú í fimm höfum. Hún
var reist á sama stað og sú gamla en
umferðin hefur á meðan farið um
bráðabirgðabrú.
Byggingu Jökulsárbrúarinnar er
að mestu lokið. Vandinn sem upp kom
er í grunninn sá að steypan fór ekki
nægjanlega vel út í öll rúm mótanna í
steyptum kanti sem á að bera upp
handrið brúarinnar. G. Pétur Matt-
híasson upplýsingafulltrúi segir að
meta þurfi nákvæmlega áhrif þessa á
mannvirkið og lagfæra kantinn að
fullu áður en hægt verður að hleypa
umferð á brúna.
Í notkun á næstu vikum
Í útboðsgögnum var gert ráð fyrir
að skilatími væri miður nóvember
2021. Sá frestur var framlengdur
vegna þess að framkvæmdatíminn
þótti knappur. Framkvæmdum hefur
þegar seinkað verulega vegna steypu-
skemmdanna en Vegagerðin vonast
til að hægt verði að taka brúna í notk-
un á næstu vikum.
Gallar á brúnni rannsakaðir
- Enn tefst að nýja brúin yfir Jökulsá á Sólheimasandi komist í gagnið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framkvæmd Múrarar voru um miðjan júlí að lagfæra steyptan kant.
Nýbúið er að steypa undirgöng á Bústaðavegi í Reykjavík
og framkvæmdir ganga vel, segir Árni Geir Eyþórsson hjá
verktakafyrirtækinu Jarðvali.
Unnið er að gerð nýrrar götu og færslu á hluta Bústaða-
vegar með hringtorgi og undirgöngum, ásamt nýjum
göngu- og hjólastígum. Árni segir að á föstudaginn verði
Bústaðavegi lokað inn á Reykjanesbraut. Framkvæmdin sé
flókin vegna hæðarbreytinga á veginum.
„Þetta er svolítið mikið inngrip en er engu að síður tal-
inn langvænlegasti kosturinn í stað þess að gera hjáleiðir
að ljósunum, sem gæti tekið á annan mánuð,“ segir Árni.
„Við erum með lokunarplan sem er tíu dagar en ég vonast
til að þetta muni ganga hraðar. Svo þarf fyrirtækið að
bretta upp ermarnar og við sjáum hvað við getum verið
snöggir.“
Bústaðavegur verður lokaður við Reykjanesbraut í tíu daga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
skóla- og frístundaráði Reykjavíkur-
borgar, Marta Guðjónsdóttir og
Helgi Áss Grétarsson, leggja fram
tillögur í fimm liðum á aukafundi
ráðsins í dag.
Kallað var til aukafundarins að
beiðni Mörtu til að ræða slæmt
ástand á innritun í leikskóla borgar-
innar í haust.
Fyrsta aðgerðin sem fulltrúarnir
leggja til er að komið verði á fót bak-
varðasveit til að tryggja nægilega
mönnun leikskólanna.
„Um yrði að ræða bakvarðasveit,
leikskólakennara, leikskólakennara-
nema, tómstundafræðinga og ann-
arra uppeldismenntaðra einstaklinga
auk almennra starfsmanna sem leik-
skólar geti leitað til tímabundið með-
an verið er að tryggja mönnun leik-
skólanna til frambúðar,“ segir í
tillögunni. Marta og Helgi leggja
einnig til að leitað verði samstarfs við
menntamálaráðuneytið um að bjóða
starfsnám fyrir leikskólaliðanema.
Nýta starfskrafta í frístund
Í þriðja lagi er lagt til að starfs-
kröftum frístundar verði boðin heils-
dags- og heilsársstörf svo að kraftar
þeirra megi nýtast innan leikskól-
anna fyrri hluta dags.
Fjórða tillagan snýr að rýmkun
rekstrarheimilda. Lagt er til að
skóla- og frístundasvið leiti eftir und-
anþágu fyrir rekstrarleyfi nýrra leik-
skóla þar sem húsnæðið er fullbúið
þótt lóðin sé ekki fullfrágengin. Í
millitíðinni yrðu nærliggjandi útivist-
arsvæði notuð til útivistar barnanna.
Síðast er lagt til að komið verði fyr-
ir færanlegum kennslustofum á lóð-
um þeirra leikskóla þar sem aðstæð-
ur leyfa. karitas@mbl.is
Leggja til bakvarðasveit og
starfsnám fyrir leikskóla
- Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja til fimm aðgerðir
Morgunblaðið/Eggert
Leikskóli Dæmi eru um 20 mánaða
börn sem ekki hafa fengið vist.