Morgunblaðið - 17.08.2022, Page 6

Morgunblaðið - 17.08.2022, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Viðskiptavinur bílaleigu var ósáttur við vinnubrögð og gjaldtöku bílaleig- unnar þegar hann lenti í hremming- um á bílnum á ferðalagi sínu um Ís- land í fyrrasumar. Viðskiptavinurinn kvartaði undan viðskiptaháttum bíla- leigunnar eftir að hann fékk sjö ára gamlan bíl sem keyrður var um 200 þúsund kílómetra. Bíllinn bilaði þeg- ar maðurinn hafði ekið honum 100 kílómetra og bílaleigan rukkaði hann fyrir kostnaðinn sem hlaust af því að láta draga bílinn. Viðskiptavinur bílaleigunnar sendi kvörtun til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa sem kvað nýverið upp úrskurð í málinu. Málavextir voru í stuttu máli þeir að viðkomandi leigði bíl hjá Discover Car dagana 12.-18. júní 2021. Bíllinn sem hann fékk var Hyundai i10, árgerð 2014, sem keyrður var yfir 200 þúsund kílómetra og bilaði eftir um 100 kíló- metra akstur sem fyrr segir. Hann fékk annan bíl frá bílaleigunni en var rukkaður um 215.095 krónur fyrir dráttinn á bilaða bílnum. Þá lenti ferðamaðurinn í því að vindhviða feykti upp hurð á síðari bílaleigubíln- um. Bílaleigan mat tjónið vegna þess á 444.278 krónur og gjaldfærði þá upphæð á kreditkort viðskiptavinar- ins. Sá taldi sig ekki eiga að þurfa að borga fyrir dráttinn á bílnum og að tjónamatið hefði verið allt of hátt. Lýsti hann því yfir að sér hefði blöskrað þegar hann sá hversu mikið viðgerðin átti að kosta. Sú upphæð væri sennilega hærri en virði bílsins. Þá lét hann þess getið að hann og ferðafélagar sínir væru reyndir ferðamenn sem farið hefðu um allan heim og aldrei fyrr hefðuþeir leigt bíl sem keyrður hefði verið meira en 200 þúsund kílómetra. Kærunefndin taldi sig ekki hafa forsendur til að endurmeta fjárhæð- ina sem ferðamaðurinn var krafinn um vegna tjónsins og tók því ekki af- stöðu til þeirrar beiðni. Ferðamað- urinn fékk 3.100 evrur, jafnvirði um 435 þúsund króna, endurgreiddar út á tryggingu sem hann keypti hjá bílaleigunni. Nefndin taldi hins veg- ar að bílaleigan hefði ekki lagt full- nægjandi grundvöll að kröfu sinni um að viðskiptavinurinn greiddi fyrir dráttinn á bilaða bílnum og úrskurð- aði að sú upphæð skyldi endur- greidd. Þetta er alls ekki eina dæmið um ósátta viðskiptavini íslenskra bíla- leiga. Kærunefnd vöru- og þjónustu- kaupa felldi nýlega úrskurð í máli þar sem erlendur ferðamaður leigði bíl. Hann bókaði Toyota Yaris ár- gerð 2016 en fékk afhentan Fiat Panda sem ekinn var um 200 þúsund kílómetra og var í „lélegu ástandi“. Rétt eins og í fyrra tilvikinu fauk framhurð bílsins upp og reyndist ferðamanninum ómögulegt að loka henni. Bílaleigan brást við með því að skipta um hurð á bílnum og setja not- aða hurð í stað þeirrar skemmdu. Ferðamaðurinn fékk rukkun upp á ríflega 700 þúsund krónur vegna tjónsins. Sjálfstætt álit tveggja bif- vélavirkja sem hann aflaði sér gaf til kynna að bíllinn hefði þegar verið skemmdur við afhendingu og að bíla- leigan hafi „sennilega áður gert þetta við fyrri viðskiptavini“. Ferða- maðurinn lagði fram myndir af ástandi bílsins þegar hann fékk hann afhentan. Í úrskurði kærunefndar- innar segir að ekki verði séð á hvaða grundvelli bílaleigan krafði ferða- manninn um 4.804 evrur og var henni gert að endurgreiða þá upphæð. Blöskraði viðgerðarkostnaðurinn - Ferðamenn kvarta yfir viðskiptahátt- um bílaleiga - Bílar keyrðir 200.000 km Morgunblaðið/Eggert Bílaleiga Mikill fjöldi ferðamanna sækir Ísland nú heim og þeir lenda sumir hverjir í hremmingum á bílaleigubílum á ferðum sínum um landið. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Flúðasveppir eru að undirbúa aukna framleiðslu sveppa í stöðinni á Flúð- um. Jafnframt verður tekin í notkun ný tækni við að tína sveppi og pakka afurðunum sem draga á úr kostnaði. Georg Ottósson garðyrkjubóndi segir að verið sé að skoða lausnir þessa dagana og meta hvenær heppilegt sé að ráðast í framkvæmd- ina. Hugsanlegt sé að hefjast handa eftir um það bil ár. Flúðasveppir eru eini framleið- andi sveppa sem eitthvað kveður að hér á landi. „Markaðurinn fyrir sveppi er alltaf að stækka, í takti við það sem gerist í Evrópu. Alltaf eru að koma fram ný afbrigði og sveppir eru tískuvara í matargerð í Evrópu. Það skilar sér hingað, eins og ann- að,“ segir Georg. Allt að 70% markaðshlutdeild Þrjár tegundir matarsveppa eru ræktaðar á Flúðum, hvítir matar- sveppir, kastaníusveppir og porto- bello-sveppir. Framleidd eru um 11 tonn af sveppum á viku. Fyrirtækið er með meira en helmingshlutdeild á íslenskum sveppamarkaði, jafnvel um 70%. Þar keppir fyrirtækið við innflutta sveppi, meðal annars frá Írlandi, Póllandi og Hollandi. Neysl- an er aðeins breytileg á milli árstíða, er mest á sumrin þegar ferðamenn sækja veitingahúsin sem mest heim. Segir Georg að sífellt sé að aukast eftirspurn eftir niðursneiddum sveppum fyrir veitingahús og pizza- staði. Segir hann það koma sér vel. Hægt sé að fullnýta hráefnið með því móti og nota jafnframt sveppi sem ekki þykja henta á almennan markað vegna lögunar þeirra. Þetta falli vel að stefnu fyrirtækisins um að draga sem mest úr matarsóun. Tínslan verði tæknivædd Tilgangurinn með fyrirhugaðri stækkun stöðvarinnar er ekki ein- ungis sá að nýta stærri hluta inn- lenda markaðarins, heldur einnig að endurnýja rækunaraðstöðuna og tæknivæða tínsluna. Reiknar Georg með því að byggðir verði nýir rækt- unarklefar og þeir gömlu notaðir til ræktunar á veislusveppum sem meira þurfi að nostra við. Áfram verði unnið að þróun framleiðsl- unnar og aukinni fjölbreytni. Um 30 starfsmenn eru í sveppa- verksmiðjunni og vinnur um helm- ingur þeirra við að tína sveppi úr rækt- unarhillum. Nú er komin fram ný tækni við að tína sveppi í Hollandi sem dregur úr kostnaði við þann þátt fram- leiðslunnar. Ætlunin er að taka þessa tækni í notkun í nýju aðstöðunni og jafnvel einnig vélmenni við pökkun. Þannig á að vera hægt að draga úr kostnaði við starfsmannahald sem er meiri hér en í samkeppnislöndunum. Ekki þurfi að bæta við starfsfólki þótt framleiðslan aukist. Georg segir að endurnýjun og tæknivæðing framleiðslunnar kosti hundruð milljóna. Mikilvægt sé að undirbúa hana vel og velja rétta tím- ann til framkvæmda. Segir hann hugs- anlegt að hefja framkvæmdir eftir um það bil ár og taka nýja aðstöðu í gagn- ið innan þriggja ára. Sveppaframleiðsla aukin og tæknivædd - Neysla á sveppum eykst - Tískuafurð í matargerð Svepparækt Tínsla sveppanna er mannaflsfrek. Því felst mikill vinnusparn- aður og hagræðing í því að taka upp nýja tínslutækni. Flúða-Jörfi þurfti að draga veru- lega úr framleiðslu á papriku fyrr í sumar vegna nýs lúsarafbrigðis sem herjaði á plöntur í gróðurhúsi fyrirtækisins. Náttúrulegar varnir sem halda niðri meindýrum í gróð- urhúsunum réðu ekki við þessa pöddu. Georg Ottósson garðyrkjubóndi segir að ekki séu notuð eiturefni í gróðurhúsunum og því hafi orðið að rífa niður plönturnar og þrífa húsið. Við það hafi framleiðslan minnkað um 40-50%. Flúða-Jörfi er stór framleiðandi á papriku á íslenskan mælikvarða og þess vegna hafði vandamálið á Flúðum áhrif á innlenda markað- num. Erfiðara var fyrir neytendur að finna íslenska papriku. Inn- lenda framleiðslan er þó aðeins um 10-15% af markaðnum og hef- ur verið fyllt í skörðin með aukn- um innflutningi. Georg segir að framleiðsla á papriku verði aukin á ný eftir áramót. Varnir réðu ekki við lúsina DREGIÐ HEFUR ÚR FRAMLEIÐSLU Á PAPRIKU Afurðir Georg Ottóson í paprikuhúsinu. Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is „Menningarnótt hefur fallið niður núna tvö ár í röð vegna Covid og ég held að það sé mjög mikil uppsöfnuð þörf fyrir að koma saman í borg- inni,“ segir Einar Þorsteinsson, starfandi borg- arstjóri, en hann kynnti dagskrá Menningarnætur á blaðamanna- fundi í gær. Menningarnótt verður haldin laugardaginn 20. ágúst. Einar telur að hátíðin verði enn fjölmennari en áður þar sem hún hefur ekki farið fram síðustu tvö ár. „Þetta er viðburður þar sem vina- hópar og fjölskyldur gera sér ferð saman í borgina. Það er svo margt í boði, öll söfnin, allir tónleikastaðir og margir útiviðburðir þannig að það verður mjög skemmtilegt að gera sér ferð.“ Einar telur að þátt- takan í ár verði mjög góð og bendir á að gríðarlega mikil aðsókn hafi verið í Gleðigönguna, sem var geng- in fyrr í mánuðinum. „Vonandi verður veðrið gott. Það er dásamlegt veður í dag og vonandi er það bara góðs viti. Það má ekki heldur gleyma því að Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og verður núna haldin í 27. sinn. Hún er orðin einn af lykilþáttunum í menningarstarfi borgarinnar. Við erum að fagna afmæli borgarinnar og þegar maður hefur misst af af- mælinu sínu tvö ár í röð þá er um að gera að halda það með pompi og prakt,“ segir Einar að lokum. Verði jafnvel stærri en áður „Við erum rosalega spennt og höf- um fundið fyrir mikilli ánægju og eftirvæntingu hjá fólki sem kemur að hátíðinni,“ segir Guðmundur Birgir Halldórsson, viðburðastjóri Menningarnætur. „Ég myndi halda að hún verði jafnvel stærri en áður af því að dagskráin er mjög viða- mikil, skemmtileg og fjölbreytt. Allir sem hafa verið með í gegnum árin virðast ætla að taka þátt núna. Eftir þessa pásu virðist fólk vera til í smá stuð.“ Nokkur hundruð atriði Hann segir að mjög margar um- sóknir um að vera með viðburð á Menningarnótt hafi borist. „Mjög margir taka þátt, þetta eru nokkur hundruð atriði.“ Þá bendir hann á að engin ástæða sé til að koma á bíl, enda lokað fyrir akandi umferð auk þess sem frítt verður í strætó. „Við erum síðan búin að vinna með raf- skútufyrirtækjunum og það verður ekki hægt að keyra á rafskútum al- veg miðsvæðis, en það verða sérstök stæði hérna í útjaðrinum þar sem fólk getur lagt rafskútunum. Þannig að þú kemst ansi langt á rafskút- unni.“ Morgunblaðið/Hákon Skylmingar Víkingar í víkingahópnum Rimmugýgi munduðu skildi og sverð þegar dagskrá Menningarnætur var kynnt í miðborginni í gær. Uppsöfnuð þörf fyr- ir að koma saman - Hundruð atriða á Menningarnótt Einar Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.