Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 8

Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 ÞÓR útiljós Íslensk fram leiðsla Þorsteinn Sæmundson stjörnu- fræðingur stiklar á þremur ólíkum en athyglisverðum atriðum í grein í blaðinu í gær. - - - Hið þriðja vék að loftslags- málum og ofarlega í umræðu „eru þær ráðstafanir sem Ís- lendingar eru að gera til að draga úr notkun jarðefna- eldsneytis. - - - Þessar ráðstafanir eiga að vera til mótvægis við hlýnun jarðar. Ég hef áður bent á það í blaðagrein (Mbl. 2. apríl) hversu fáránlegt það er að við séum að leggja í þessar kostnaðarsömu aðgerðir þegar orkuframleiðsla hérlendis er að mestu leyti (90%) vistvæn. - - - Á sama tíma eru Kínverjar að auka við árlega kolanotkun sína, og nemur aukningin allt að hundraðfaldri árlegri orkufram- leiðslu Íslendinga úr olíu og bens- íni. - - - Litlar sem engar horfur eru á því að hækkun hitastigs á jörðu verði stöðvuð með mannlegu fram- taki. - - - Skynsamlegast er því að búa sig undir þá hlýnun sem fram und- an er og hætta að sóa fjármunum í ómarktækar aðgerðir.“ - - - Þetta er satt og má bæta við Ind- landi, Indónesíu, Afríku og Suður-Ameríku sem ekki eru með og Þýskaland aðeins í plati. Biden skipaði John Kerry „loftslagskeis- ara“. Sá er með 45 á skrifstofu og hefur á 18 mánuðum blásið „300 tonnum af koltvísýringi“ úr einka- þotu sinni í þágu réttlætisins. Þorsteinn Sæmundsson Staðreyndir falla illa í kramið STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Danska varðskipið Lauge Koch er nú í Slippnum á Akureyri. Verið er að gera við neðansjávarsiglingartæki sem skemmdust þegar skipið var á siglingu við Grænland. Varðskipið, sem er tæpir 72 metrar á lengd, heitir eftir þekktum dönskum pólfara en það er sérstaklega búið til siglinga á norðurslóðum þótt það sé einnig nýtt til annarra verkefna. Að sögn Davíðs Arnar Benediktssonar, verkefnastjóra hjá Slippnum, er ekki algengt að dönsk varðskip komi þang- að til viðgerðar en það muni þó hafa komið fyrir áður. Davíð sagði, að verkefnastaðan hjá Slippnum væri ágæt og nóg verkefni væru þar fram undan næstu mánuði. Danskt varðskip í slipp á Akureyri - Góð verkefnastaða hjá Slippnum Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Varðskip Lauge Koch var tekið í slipp á Akureyri á mánudag. Sjúkratryggingar Íslands auglýstu ný- lega eftir nýjum aðilum til að gera augasteinsaðgerðir og bíða nú tilboða. Á síðustu árum hafa Sjúkratryggingar nokkrum sinnum leitað verðtilboða og þannig hefur verið hægt að kaupa fleiri aðgerðir fyrir sama fjármagn. Þetta segir María Heimis- dóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, vegna umfjöllunar Morg- unblaðsins í gær um alvarlega stöðu augnlækninga á Íslandi. Þar ræðir Morgunblaðið við Jó- hannes Kára Kristinsson augnlækni. Fram kemur að samningar SÍ við augnlækna hafi verið lausir í fjögur ár. 59% augnlækna á Íslandi eru komin yfir sextugt og helmingur þeirra er kominn yfir sjötugt. Biðlistar í auga- steinsaðgerðir hafa lengst og eru nú nærri tvö ár. María segir Sjúkratryggingar taka undir með Jóhannesi Kára Kristins- syni augnlækni að æskilegt sé að lág- marka bið eftir augasteinsaðgerðum. Í gildi séu samningar um augasteins- aðgerðir við augnskurðstofuna Lentis og Sjúkrahúsið á Akureyri. Þar að auki eru þessar aðgerðir gerðar á grundvelli svokallaðra DRG- samninga, (diagnostic related groups) bæði á Landspítalanum og Sjúkrahús- inu á Akureyri, þar sem fjármögnun er framleiðslutengd. „Sjúkratryggingar taka undir með Jóhannesi Kára að nýliðun í hópi augn- lækna sé mikilvæg og benda á að samningar standa læknum sem vilja snúa heim úr framhaldsnámi til boða,“ segir María. Hún segir að Sjúkratryggingar taki undir að það sé ekki æskilegt að með- alaldur augnlækna sem starfa hér á landi fari hækkandi en „sérgreina- læknar mega þó starfa svo lengi sem þeir uppfylla skilyrði þeirra leyfa sem þeir starfa eftir“. Samningar ríkisins við sér- greinalækna hafa verið lausir frá árs- byrjun 2019 og hafa viðræður átt sér stað með hléum síðan. María segir heilbrigðisráðuneytið hafa endurskoðað samningsmarkmið sín í vor. Í þeim felist í raun fyrirmæli til SÍ um það hvernig skuli samið um þjónustuna. Hafa boðið út fleiri augasteinsaðgerðir María Heimisdóttir - Forstjóri SÍ tekur undir áhyggjur af stöðu augnlækna hér á landi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.