Morgunblaðið - 17.08.2022, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 17.08.2022, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 Smíðavinklar Verð frá 4.570 kr. Hágæða útskurðarjárn og handverkfæri frá Austurríki 6 stk sett 25 980 kr 14 stk sett 66.980 kr. Gott úrval af stökum járnum Verð frá 4.280 kr. Tangir k Vefverslun brynja.is Kju l r Ver l u ð frá 4.630 kr. Útskurðahnífar gott úrval Verð frá 2.320 kr. Sporjárn 4 - 40mm Verð frá 3.530 kr. Hallamál 0,5mm/m nákvæmni 3 lengdir Verð frá 2.850 kr. . . Opið virka daga frá 9-18 lau frá 11-17 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Húljárn Verð frá 5.590 kr. Verð frá 3.200 r. Útskurðajárnataska Verð 9.270 kr. Útskurðarhnífasett 15.980 kr. DAGMÁL Andrés Magnússon andres@mbl.is Efnahagsástandið á Íslandi er um margt ákjósanlegt og ekki ástæða til svartsýni, segir Sigurður Hannes- son, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hins vegar sé mjög undir okkur sjálfum komið hvernig úr spil- ast, auðsýna þurfi bæði gætni og skynsemi. Það eigi ekki síst við í komandi kjarasamningum í haust. Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali Dagmála, streymi Morgunblaðsins á netinu, sem ein- ungis er aðgengilegt áskrifendum blaðsins. Sigurður segir vissulega ýmsan vanda steðja að hagkerfi heimsins, þar sem bæði faraldur og stríð hafi veruleg áhrif. Hins vegar megi ekki mikla vandann hér á landi. Hann minnir á að þegar horft sé til verð- bólgu án húsnæðisliðar, eins og víð- ast tíðkist, þá sé næstlægsta verð- bólga í Evrópu hér á landi. Hér ríki ekki sama orkukreppa og víða, ís- lenskir útflutningsatvinnuvegir hafi næga eftirspurn og þar fram eftir götum. Heimatilbúinn vandi og tækifæri mörg Þetta sýni að heimatilbúin hús- næðiskreppa sé óleystur vandi hér á landi en að flest annað sé lands- mönnum tiltölulega hagfellt. Þar komi sér vel að stoðum atvinnulífsins hafi fjölgað og þær séu sterkar en til þess þurfi þá líka að taka tillit á vinnumarkaði. Þar geti enginn at- vinnuvegur gengið fyrir öðrum, líkt og þekktist í efnahagsólgu liðinnar aldar. „Eftirspurn er sterk, hagkerfið er á leið upp og verðmætasköpun er þrátt fyrir allt býsna sterk hjá okk- ur,“ segir Sigurður og telur mörg tækifæri blasa við í atvinnulífinu, bæði hjá hefðbundum burðar- greinum þess og hjá nýjum greinum. Það eigi hins vegar við hér á landi sem víða annars staðar, að það sé orðin talsverð áskorun að manna laus störf. Þar vinni smæðin með Ís- lendingum, en eins er raungengi út frá launum mjög sterkt og það ætti að laða að dugandi fólk frá öðrum löndum, gefi það sig ekki fram í næg- um mæli hér. Fleiri vandamál steðja þó að at- vinnulífinu og þar á meðal er mikil ólga í verkalýðshreyfingunni, einmitt í aðdraganda kjarasamninga, þar sem forseti ASÍ hrökklaðist frá. Sig- urður tekur undir áhyggjur af því. „Það segir sig sjálft að það er slæm staða fyrir atvinnulífið að verkalýðshreyfingin sé svona veik, nú þegar samningar eru að losna. Það er engin óskastaða.“ Hann hefur þó ekki áhyggjur af því að ekki sé talsamband yfir í laun- þegahreyfinguna þótt ASÍ vanti for- seta. Fólkið vill stöðugleika „Sem betur fer er verkalýðshreyf- ingin annað og meira en einn maður, þannig að það eru margir viðmæl- endur,“ segir Sigurður. „En það er mjög slæmt hvernig er komið fyrir forystunni og ég vona svo sannarlega að þau finni út úr sínum málum, mjög hratt. Þau hafa í rauninni að- eins örfáar vikur til þess.“ Þrátt fyrir snörp orð um svigrúm til launahækkana og óbilgirni ein- stakra verkalýðsforkólfa er Sigurður vongóður um unnt sé að semja þó mikið virðist bera á milli. „Við verðum að hafa þá trú að það sé hægt. Og ég myndi nú halda það að flestir af forystumönnum í verka- lýðshreyfingunni vilji ná samn- ingum. Vilji gera vel fyrir sitt fólk án þess að það kosti of mikið.“ Vera kunni að einhverjir verka- lýðsforingjar kjósi frekar átök, en hann telur þá einangraða. „Ég held að þeirra umbjóðendur, launafólk í landinu, sé ekkert endilega til í verk- föll eða átök. Ég held að fólk vilji stöðugleika, sérstaklega eftir það sem á undan er gengið síðustu ár." Fólkið vill stöðugleika, ekki verkföll - Sigurður Hannesson hjá SI í viðtali - Bjartsýnn á horfur í íslensku hagkerfi - Okkar að leysa heimatilbúinn vanda - Upplausn í verkalýðshreyfingu ekki gott veganesti inn í kjarasamninga Morgunblaðið/Ágúst Óliver Dagmál Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins er vongóður um aukna hagsæld á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.