Morgunblaðið - 17.08.2022, Page 11

Morgunblaðið - 17.08.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 Litirnir eru fjölmargir og hægt að fá sérblandaða hjá okkur. HÁGÆÐA VIÐARVÖRN FRÁ SLIPPFÉLAGINU Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is Evrópusambandið lýsti því yfir í gær að það væri að rannsaka svar Írana um „lokauppkast“ samkomulags, sem ætlað er að vekja aftur til lífsins kjarnorkusamninginn milli Írana og alþjóðasamfélagsins frá árinu 2015. Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, hefur síðustu vikur reynt að finna málamiðlun á milli Bandaríkjanna og Írans, sem myndi gera báðum þjóðum kleift að snúa aftur að samningaborðinu. Hef- ur Bandaríkjastjórn þegar sent Bor- rell sínar athugasemdir við upp- kastið. Talsmaður Borrells sagði í gær að vangaveltur um hvort og þá hvenær slík niðurstaða gæti fengist væru ekki tímabærar. Ríkisfréttastofa Írans, IRNA, sagði í gær að hægt yrði að ná sam- komulagi ef Bandaríkjastjórn sýndi „raunsæi og sveigjanleika“ gagnvart svörum Írana. Sögðu heimildarmenn IRNA að Íransstjórn byggist við svari á næstu sólarhringum. Fréttastofan hafði áður getið þess, og vísað í heimildir innan stjórnkerfis Írans, að tillögur ESB væru aðgengi- legar, svo fremi sem Íranar gætu fengið tryggingar um nokkur álita- mál sem út af stæðu. Voru þau sögð þrjú talsins í frétt IRNA, og sagði heimildarmaðurinn að Bandaríkja- stjórn hefði sýnt sveigjanleika gagn- vart tveimur af þremur atriðum en að finna þyrfti leið til að skrifa þau inn í samkomulagið. Þriðja atriðið snerist svo um trygg- ingar fyrir því að samkomulagið yrði virt af hálfu Bandaríkjanna og að refsiaðgerðum þeirra gagnvart Íran yrði virkilega aflétt í kjölfar sam- komulagsins. AFP/Alex Halada Samkomulag Ali Bagheri Kani, að- alsamningamaður Írana eftir lok viðræðna í Vín fyrr í mánuðinum. ESB kynnir sér tillögur Írana - Þrennt sagt standa út af borðinu Raila Odinga, forsetaframbjóð- andi í Keníu, hét því í gær að hann myndi leita allra löglegra leiða til þess að hnekkja niðurstöðum for- setakosninganna þar í landi, en samkvæmt þeim bar mótframbjóðandi hans, William Ruto, nauman sigur úr býtum. Sagði Odinga að niðurstaðan væri „skrípaleikur“ og andstæð stjórnlögum landsins, en ákvað að segja ekki fullum fetum að hann myndi leita til hæstaréttar landsins. Samkvæmt niðurstöðum kosn- inganna munaði um 230.000 at- kvæðum á Ruto og Odinga, þrátt fyrir að Odinga hefði tryggt sér stuðning fráfarandi forseta og fyrr- um erkifjanda, Uhuru Kenyatta. Allar forsetakosningar í Keníu frá árinu 2002 hafa leitt til deilna um niðurstöðuna og jafnvel blóðs- úthellinga. Odinga þurfti áður að bíða lægri hlut árin 2007, 2013 og 2017 og sagði hann í öll skiptin að brögð hefðu verið í tafli. KENÍA Odinga segir kosn- inguna skrípaleik Raila Odinga Ellefu manns féllu í gær í loftárásum Tyrkja á landamærastöð, sem var á valdi sýrlenska stjórnarhersins. Loftárásirnar komu í kjölfar skæra á milli Tyrkjahers og kúrdískra vígamanna sem ráða yfir nærliggj- andi svæðum. Sögðu talsmenn sýrlenskra Kúrda að Tyrkir hefðu gert tólf loftárásir á stöður stjórnarhersins við Kobane, sem er bær á valdi Kúrda. Sýrlensk stjórnvöld tóku yfir vörslu landa- mæranna á sínum tíma til þess að koma í veg fyrir áhlaup Tyrkja á Kúrda innan landamæra Sýrlands. Ekki var búið að staðfesta í gær að þeir sem féllu hefðu verið stjórn- arhermenn. Ef svo er, er um að ræða mesta árekstur milli Tyrklands og Sýrlands frá því að 33 tyrkneskir hermenn féllu í árásum stjórnar- hersins í febrúar 2020. SÝRLAND Loftárásir á landa- mærastöð fella 11 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Varnarmálaráðuneyti Rússlands sakaði í gær Úkraínumenn um að hafa unnið skemmdarverk á Krím- skaga, en stór skotfærageymsla ná- lægt þorpinu Dsjankoí var þá sprengd í loft upp. Af myndum sem birtust á rúss- neskum samfélagsmiðlum að dæma leiddi eldur við geymsluna til þess að skotfæri og sprengiefni fuðruðu upp með tilheyrandi sprengingum. Sagði varnarmálaráðuneytið að sprengingarnar hefðu valdið skaða á rafmagnslínum, orkuveri og lestar- teinum í nágrenninu, auk íbúðar- bygginga. Þetta er önnur sprengingin á inn- an við viku á Krímskaga, en einn lést og nokkrir særðust í árás á herflug- völlinn í Sakí á miðvikudaginn í síð- ustu viku, auk þess sem fjöldi her- þotna eyðilagðist. Úkraínumenn hafa lýst yfir að þeir beri á hvorugu atvikinu ábyrgð, en háttsettir embættismenn innan Úkraínuhers hafa gefið til kynna að þeir beri ábyrgðina. Þeir hafa hins vegar ekkert vilja gefa upp um hvernig staðið var að árásunum, en óstaðfestar getgátur voru uppi í gær um að sérsveitarteymi hefði staðið að árásinni á skotfærageymsluna í gær. Þá hefur einnig verið nefndur sá möguleiki að um andspyrnuhreyf- ingu á Krímskaga sé að ræða. Þriðji möguleikinn er sá að Úkra- ínumenn hafi beitt langdrægari eld- flaugum en þeir hafa hingað til ráðið yfir, til dæmis úr HIMARS-eld- flaugakerfinu, en Bandaríkjastjórn hefur neitað því að hún hafi gefið þeim langdræg skotfæri í HIMARS- kerfið. Bandaríkin ýti undir átökin Vladimír Pútín Rússlandsforseti sakaði í gær Bandaríkjastjórn um að vilja draga stríðið í Úkraínu á lang- inn, sem og að Bandaríkin væru að ýta undir átök annars staðar í heim- inum, þar á meðal á Taívan-sundi. „Ástandið í Úkraínu sýnir að Bandaríkin eru að reyna að draga þetta stríð á langinn. Og þeir hegða sér nákvæmlega eins, og ýta undir átök í Asíu, Afríku og rómönsku Am- eríku,“ sagði Pútín í sjónvörpuðu ávarpi, sem flutt var í tilefni af opn- unarhátíð öryggisráðstefnu í Moskvu. Pútín var sérstaklega harðorður í garð heimsóknar Nancy Pelosi, for- seta fulltrúadeildar Bandaríkja- þings, til Taívans í síðustu viku, sem hann sagði hluta af meðvitaðri áætl- un Bandaríkjanna um að ýta undir óstöðugleika í Asíu og heiminum. Rússar og Kínverjar hafa tengst sífellt nánari böndum á undanförn- um árum, ekki síst á hernaðarsvið- inu. Pútín fundaði með Xi við upphaf vetrarólympíuleikanna í febrúar, skömmu áður en innrásin í Úkraínu hófst, þar sem forsetarnir undirrit- uðu samstarfsyfirlýsingu sín á milli. Minnismerkin fari niður Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands, tilkynnti í fyrradag á twit- tersíðu sinni að Eistar hygðust taka niður öll minnismerki frá tímum Sovétríkjanna. „Sem tákn kúgunar og hersetu Sovétmanna eru þau orð- in að uppsprettu vaxandi spennu í samfélaginu,“ sagði Kallas og bætti við að minnismerkjum sem hefðu sögulegt gildi yrði komið fyrir á safni. Finnar tilkynntu í gær að þeir ætl- uðu sér að takmarka fjölda vega- bréfsáritana til rússneskra ferða- manna við 10% af því sem nú er veitt, en nokkrar deilur hafa verið innan Evrópusambandsins síðustu daga um hvort rétt sé að veita Rússum slíkar áritanir meðan stríðið geisar eða hvort rétt sé að banna þær. Ákvörðun Finna kom í kjölfar þess að Olaf Scholz Þýskalands- kanslari lýsti því yfir að Þjóðverjar legðust gegn slíku banni, þar sem það gæti komið niður á venjulegum Rússum sem vildu flýja undan rúss- neskum stjórnvöldum. Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, sagði hins vegar að það væri ekki réttlátt að rússneskir rík- isborgarar gætu farið til Evrópu og Schengen-svæðisins sem ferðamenn meðan Rússland myrti almenna borgara í Úkraínu. Ætla Finnar sér nú að setja í for- gang vegabréfsáritanir frá Rúss- landi sem snerti vinnu, fjölskyldu eða nám frekar en ferðalög. Önnur árás á Krímskaga - Rússar saka Úkraínumenn um skemmdarverk - Pútín sakar Bandaríkjamenn um að ýta undir óstöðugleika - Finnar ætla að takmarka ferðamannaáritanir AFP/Anatolii Stepanov Við víglínuna Úkraínskur skriðdreki í Donetsk-héraði á leiðinni að víglínunni í austurhluta landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.