Morgunblaðið - 17.08.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.08.2022, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Olaf Scholz Þýska- lands- kanslari var gest- ur forsætisráð- herra Norður- landanna á árleg- um sumarfundi þeirra í Osló í fyrradag. Scholz nýtti þar tímann meðal annars til að kynna sér orkuframleiðslu Norðmanna, en Þjóðverjar leita nú sem kunnugt er leiða til þess að losa sig undan því sjálfskaparvíti, sem þeir hafa skapað sér með því að verða háðir orku frá Rússlandi. Þó hafa þeir ekki, enn sem kom- ið er að minnsta kosti, stigið það skref sem augljóst er, sem er að hætta við að loka síðustu kjarnorkuverum sín- um og ræsa að nýju þau sem hægt er til að losa um það tak sem rússnesk stjórnvöld hafa á Þýskalandi og mun að óbreyttu fara vaxandi á næstu mánuðum. Hitt vakti þó meiri athygli utan Norðurlandanna eftir fundinn, að Scholz sagði þar á blaðamannafundi, að Þjóð- verjar myndu ekki styðja til- lögur um að lokað yrði á út- gáfu vegabréfsáritana til rússneskra ferðamanna, sem vildu ferðast til Evrópusam- bandsins. Sagði Scholz að það væri mikilvægt að gera greinarmun á almennum Rússum, sem vildu yfirgefa landið, og rússneskum stjórnvöldum. Það er svo sem rétt út af fyrir sig en þær refsiaðgerðir sem lagðar hafa verið á Rússland beinast vitaskuld ekki aðeins að stjórnvöldum. Að svo miklu leyti sem þær á annað borð virka þá er það að stórum hluta í gegnum skort sem þær eiga að valda. Þeir sem finna fyrir þeim skorti eru ekki síst almennir Rússar, þó hluti aðgerðanna eigi að draga úr getu stjórn- valda til þess meðal annars að framleiða hergögn. Það gengur þess vegna ekki vel upp fyrir Scholz að halda því fram að refsiað- gerðunum sé aðeins beint gegn stjórnvöldum í Rúss- landi og háfleygar yfirlýs- ingar af því tagi breyta ekki því, að á síðustu vikum hefur rússneskum ferðamönnum fjölgað mjög í Evrópu, en álagið lendir allt á nágranna- ríkjunum, þar sem flugbann er í gildi frá Rússlandi. Rúss- ar leita því til Finnlands, Lettlands og Eistlands og fljúga þaðan til áfangastaða sunnar í álfunni án þess að hafa miklar áhyggjur af þeim refsiað- gerðum sem eiga að bíta á Rúss- land. Flugbannið er einmitt dæmi um refsiað- gerð sem almenningur í Rússlandi finnur óhjákvæmi- lega fyrir. Þá hafa einnig verið brögð að því að sumir af „ferða- mönnunum“ sem lagt hafa leið sína til Finnlands hafi reynt að fara þaðan aftur heim til Rússlands með gamla tölvuíhluti og annað slíkt, sem nú er bannað að flytja til landsins vegna stríðsins. Það, að veita áfram ferðamannaávísanir fyrir allt Schengen-svæðið, er því bara enn ein leiðin sem Rússar geta reynt að nýta sér, á margvíslega vegu, til þess að fara í kringum áhrif refsiað- gerðanna. Með því má ætla að áþján Úkraínu lengist að óþörfu, hafi menn á annað borð trú á að refsiaðgerðir geti virkað, sem þeir sem þeim beita hljóta að gera. Sanna Marin, forsætisráð- herra Finnlands, benti á sama blaðamannafundi á að þrátt fyrir að almennir Rúss- ar hefðu ekki hafið Úkraínu- stríðið væru þeir flestallir enn þá hlynntir innrásinni í Úkraínu. Það væri því rang- látt að rússneskir ríkisborg- arar gætu ferðast um Evr- ópu líkt og hverjir aðrir ferðamenn á meðan sam- landar þeirra myrtu fólk í Úkraínu. Finnar hafa enda ákveðið einhliða að þeir muni af- greiða mun færri vegabréfs- áritanir til rússneskra ferða- manna og Eistar hafa alfarið hætt að gefa út slíkar árit- anir, en ekki er gert ráð fyrir að málið verði rætt á vett- vangi ESB fyrr en í lok þessa mánaðar. Þar má vænta harðra átaka, enda hefur áritanamálið rekið fleyg á milli ríkjanna sem vilja ganga sem styst og svo aftur hinna, sem hafa frá upphafi leitast við að stíga þau skref sem hugsanlega gætu fært Úkraínu sigur. Þær aðgerðir sem Finnar og Eistar hafa gripið til eru til þess fallnar að auka þrýst- inginn á Rússland, en hætt er við að þær muni hrökkva skammt á meðan önnur ríki ESB telja sig hafa ávinning af því að fá viðskipti rúss- neskra ferðamanna. Eiga Rússar að geta skroppið í innkaupaferðir til Evrópu?} Götóttar refsiaðgerðir B orgarstjórinn í Reykjavík, sem Framsóknarflokkurinn tryggði aftur í sinn stól að loknum síð- ustu kosningum, lofaði yngstu borgarbúunum leikskólaplássi við 12 mánaða aldur í aðdraganda kosninga. Þetta hefur hann reyndar gert áður en aldrei staðið við loforðið. Kjósendur áttuðu sig á því og kusu breytingar í borginni – nokkuð sem Framsóknarflokkurinn lofaði að gera og upp- skar mikinn kosningasigur. En gamli vinnu- staður nýs oddvita Framsóknarflokksins var varla búinn að lesa lokatölur kosninganna þegar oddvitinn snerist á hæli, gaf skít í boð- aðar breytingar og gerði Dag B. Eggertsson aftur að borgarstjóra og sjálfan sig að enn einu varadekki þess manns. En nú er svo komið að foreldrar barna í Reykjavík eru komnir með nóg. Það dugði ekki að tryggja öðrum flokkum kosningasigur, fólk sat aftur uppi með Samfylkinguna og Dag og því eru foreldrarnir mættir í Ráðhúsið að mótmæla stöðunni. Þessar mæður og feður komast ekki til vinnu því börnin þeirra fá ekki daggæsluna sem þau eiga rétt á hjá borg- inni. Þessir foreldrar komast ekki til þess að skapa verð- mæti fyrir íslenskt samfélag, leggja til samneyslunnar og haga sínum degi eins og þau helst kjósa með tilliti til þess hvað þau telja best fyrir sína fjölskyldu. Aftur er vegið að frelsi fólks hér á landi, í boði Framsóknarflokks og gamla meirihlutans. Jafnréttið á einnig undir högg að sækja vegna þessarar stöðu en í mörgum tilfellum eru mæður heima með börnin löngu eftir að fæðing- arorlofi sleppir með augljósum áhrifum á þátt- töku þeirra í atvinnulífinu. Eru þetta kannski breytingarnar sem Framsóknarflokkurinn boð- aði – afturför í jafnréttismálum? Einar Þorsteinsson virðist týndur í nýju starfi því aðspurður á mótmælum foreldranna hvort staðan væri boðleg, sagði hann svo vissulega ekki vera – en hafði engar lausnir, enga breytingatil- lögu eða til dæmis nægan dug til að setja saman annan meirihluta sem væri líklegur til verka. Borgarstjórinn hafði það að segja við örvænt- ingarfulla foreldrana að það væri „gaman að sjá fólk í Ráðhúsinu“ – er til maður í minni tengslum við raunveruleika venjulegs fólks? Svo skal ekki gleyma því að Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, hafði þetta að segja um leikskólamálin í aðdraganda kosninganna á Twitter, af sinni alkunnu hógværð: „Ok, fyndið. Var Sjálfstæðisflokk- urinn virkilega að kynna það sem kosningaáherslu sína að bjóða börnum frá 12 mánaða aldri leikskólapláss? Þegar það er nýbúið að tilkynna að með þeim plássum sem klár- ast á árinu, þá verði öllum börnum boðið pláss frá 12 mán- aða aldri nú í haust? … Vá, segi ég nú bara. Þetta er ein- hvers konar met í óheiðarleika og tækifærismennsku.“ Það blasir hins vegar við hver á metið og það er á kostn- að borgarbúa. bergthorola@althingi.is Bergþór Ólason Pistill Leikskólabörn og pólitísk óheilindi Höfundur er þingflokksformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BRENNIDEPILL Andrés Magnússon andres@mbl.is Þ ýsk stjórnvöld fyrirhuga að fresta fyrri ákvörðun um að loka öllum kjarnorkuverum í landinu í von um að halda ljósum og hita á heimilum landsins í vetur. Rússar hafa sem kunnugt er nánast skrúfað fyrir allan gasútflutn- ing sinn til Þýskalands og margir ganga út frá því að þeir muni loka al- gerlega fyrir gasið í vetur þegar verst stendur. Með því vilja þeir knýja Þjóðverja til þess að falla frá refsiað- gerðum vegna Úkraínustríðsins og rjúfa þannig samstöðu Vesturlanda, sem kann að vera veikari en hún sýn- ist. Þar er Þýskaland vafalaust veik- asti hlekkurinn, enda gerði landið sig ákaflega háð rússnesku jarðefnaelds- neyti um leiðslur að austan og á óhægt með að flytja inn sambærilega orkugjafa til notkunar inn á lands- kerfið í bráð. Orkuskorturinn er þeg- ar tekinn að sverfa verulega að, bæði á heimilum en þó ekki síður í iðnaði og öðru atvinnulífi. Það hefur mikil áhrif á efnahagslífið, sem til þessa hefur verið hið öflugasta á megin- landi Evrópu. Nýverið sögðu Norðmenn að þeir yrðu ekki frekar aflögufærir í vetur, þrátt fyrir að gasframleiðslan þar hefði verið aukin um 10% frá því Úkraínustríðið hófst. Þessar ráðagerðir um kjarn- orkuverin koma ekki upp úr engu, þrýstingur um þær hefur aukist jafnt og þétt að undanförnu en allnokkrar vikur eru síðan embættismenn og eft- irlitsstofnanir létu uppskátt um að ekkert væri því til fyrirstöðu að halda kjarnorkuverunum opnum og kynda að nýju þau, sem þegar hefur verið lokað. Þau uppfylltu áfram öll örygg- isskilyrði. Bráðræði Merkel Angela Merkel, fyrrverandi Þýskalandskanslari, hét því að loka öllum kjarnorkuverum landsins eftir slysið í Fukushima-orkuverinu í Jap- an árið 2011. Ýmsum þótti það bráðræði að taka slíka stórákvörðun nánast upp á eindæmi kanslarans og án þess að leiða hugann að mögulegum afleið- ingum. Urðu þó ýmsir til þess að vara við því að landið yrði Rússlandi háð um orku, þó aðallega kæmu ábend- ingar um það frá öðrum Vestur- löndum. Í Berlín var því öllu vísað á bug og jafnvel hent gaman að slíkum kaldastríðshugsunarhætti, sem ekki mætti undir neinum kringumstæðum trufla þýska viðskiptahagsmuni. Upp á síðkastið hafa menn þó staldrað meira við hagsmunagæslu ýmissa þýskra stjórnmálamanna, sem hafa verið á mála hjá Rússum. Þar hafa spjótin einkum staðið á sósíaldemó- kratanum Gerhard Schröder, fv. kanslara, sem sumum þykir nánast landráðamaður, en hann er langt í frá sá eini. Trú Þjóðverja á stjórn- málastéttina hefur veikst mikið eftir því sem betur hefur komið í ljós hvernig landið var ofurselt rúss- neskri orku án þess að nokkur virtist gefa þjóðaröryggi Þýskaland minnsta gaum. Þá voru kjarnorkuverin ekki óumdeild fyrir. Græningjar hafa tals- verð áhrif í Þýskalandi, þó þeir hafi raunar sumir verið að snúast í af- stöðu sinni til kjarnorku, sem er „hreinni“ orkugjafi með tillliti til loftslagsáhrifa en jarðefna- eldsneyti. Búið er að loka nokkrum kjarnorkuverum en þrjú þeirra eru enn starfrækt og stóð til að loka þeim í lok þessa árs. Þau framleiða nú um 6% rafmagns í Þýskalandi og munar um minna. En betur má ef duga skal. Þjóðverjar fara í kjarnorkugírinn Hagfræðingar telja efnahags- samdrátt í Þýskalandi óhjá- kvæmilegan, en orkukreppan hefur nú ekki aðeins dregið mátt úr atvinnulífinu, heldur einnig landsmönnum og vænt- ingum þeirra. Það kemur skýrt fram í mánaðarlegri könnun meðal forystumanna í fjár- mála- og atvinnulífi. Miklir hit- ar og þurrkar í Þýskalandi hafa ekki heldur aukið bjartsýni, en Rín er orðin svo vatnslítil að flutningar eftir henni hafa raskast. Er talið að lands- framleiðslan muni dragast saman næstu þrjá ársfjórð- unga hið minnsta. Olaf Scholz Þýskalandskanslari hefur heitið aukinni fé- lagslegri aðstoð til þess að lina kreppuna fyrir þá sem veikast standa en hann hefur fá ef nokkur ráð til þess að koma í veg fyr- ir hana. Kreppa óhjá- kvæmileg ÞÝSKALAND Olaf Scholz AFP/Christof Stache Þýskaland Kæliturninn í Isar-kjarnorkuverinu í Essenbach nærri Landshut í Bæjaralandi speglast í ánni Isar, en upp liðast vatnsgufa úr hverflunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.