Morgunblaðið - 17.08.2022, Síða 13

Morgunblaðið - 17.08.2022, Síða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 Sögukennsla Þessi erlendi ferðamannahópur hefur án efa orðið margs fróðari eftir sögustund á Arnarhóli í Reykjavík. Landnámsmaðurinn Ingólfur Arnarson fylgist sposkur með. Hákon Pálsson Samtök atvinnurek- enda og launafólks hafa undirgengist þá skyldu að ná samn- ingum um kaup og kjör sem byggjast á efnahagslegum veru- leika. Með því eru bætt lífskjör best tryggð, ekki síst þeirra sem lakast standa. Það er því engum til hagsbóta – hvorki at- vinnurekendum né launafólki – að verkalýðshreyfingin logi stafna á milli – sé sundruð vegna illdeilna og persónulegra hjaðningavíga. Í aðdraganda kjarasamninga brýnir forysta stéttarfélaganna kutana. Slíkt er eðlilegt og oft kann að vera nauðsynlegt að ganga sæmilega herskár til leiks. Auðvitað hafa áður verið átök inn- an stéttarfélaga, líkt og í mörgum öðrum félögum og samtökum. En það eru áratugir síðan hnífarnir voru fremur notaðir í innbyrðis persónulegum átökum en gagnvart atvinnurekendum og eftir atvikum ríkisvaldinu. Þau átök voru lituð af harkalegum þjóðfélagslegum átök- um þegar tekist var á um þjóð- skipulagið. Áhrifalitlir félagsmenn Almennir félagsmenn verkalýðs- félaga sitja áhrifalitlir hjá þegar formenn eru í illdeilum hver við annan. Að einhverju leyti verður launafólk að horfa í eigin barm. Herskáir verkalýðsleiðtogar hafa ekki síst komist til valda í skjóli þess að yfirgnæfandi meirihluti fé- lagsmanna nýtir sér ekki rétt til að kjósa forystu. Stór hluti launafólks er óvirkur í starfi eigin stéttarfélags og fyrir því kunna að vera margar ástæður. Ein er örugglega sú að í raun ríkir ekki félaga- frelsi á vinnumarkaði, þrátt fyrir skýr ákvæði í 74. grein stjórnarskrárinnar og ýmsa alþjóðasáttmála sem Ísland hefur undirgengist. Félagafrelsið nýtur ríkari vernd- ar stjórnarskrár á Íslandi en í ná- grannalöndum. En almenn löggjöf hefur sett meiri skorður við rétt einstaklinga hér á landi en í öðrum löndum, til þess að velja sér félag eða standa utan félaga. Vinnu- markaðslöggjöfin þrengir svo að félagafrelsi að illa er hægt að halda því fram að launafólk hafi raunverulegt frelsi til að ákveða félagsaðild sína sjálft. Þrátt fyrir að launamanni sé heimilt að standa utan stéttarfélags hefur lagaum- gjörðin verið með þeim hætti að það valfrelsi er í raun eingöngu að nafni til en ekki í raun. Þegar einhver er neyddur eða telur sig neyddan til þess að eiga aðild að félagi eru meiri líkur en minni á því að viðkomandi hafi lít- inn áhuga á starfi félagsins. En með sinnuleysi sínu greiðir hann leið róttæklinga í valdastöður og veitir þeim aðgang að miklum fjár- munum sem félagsmönnum er gert að greiða. Afleiðingin er djúp- stæður klofningur og illdeilur í for- ystusveit verkalýðshreyfingar- innar. Launafólk greiðir kostnaðinn enda hagsmunir þess ekki varðir á meðan eldar loga. Og þá má spyrja hvaða hagsmunum sé verið að þjóna! Erfiðir samningar Óháð sundrungu innan Alþýðu- sambands Íslands er ljóst að kom- andi kjarasamningar verða flóknir og erfiðir. Og eins og svo oft áður verður þess krafist að ríkisvaldið grípi til aðgerða til að samningar náist. Kröfurnar verða miklar. Auka skal útgjöld á flestum svið- um, tryggja byggingu þúsunda félagslegra leiguíbúða, og svo framvegis. Listinn verður langur. Það mun því reyna á ríkisstjórn- ina og stjórnarflokkana á komandi vetri. Svigrúm til aukinna útgjalda er lítið sem ekkert – ekki frekar en launahækkana. En það breytir því ekki að með ýmsum hætti get- ur ríkisvaldið – rétt eins og sveit- arfélögin – búið til jarðveg fyrir kjarasamninga sem byggjast á efnahagslegum veruleika. Allir vita (þótt einhverjir eigi erfitt með að viðurkenna það) að krónutöluhækkun skiptir launa- manninn engu ef hækkunin er étin upp í verðbólgu og hækkun opin- berra skatta og gjalda. Líklegt er að hann standi verr að vígi þar sem kaupmáttur minnkar og ráð- stöfunartekjur lækka enn meira. Ég hef ítrekað haldið því fram að lífskjör launafólks ráðist ekki aðeins af því hversu margar krón- ur eru í launaumslaginu eftir að skattar og gjöld hafa verið greidd. Lífskjörin ráðast ekki síður af því hvernig til tekst við alla stjórn- sýslu hins opinbera – hversu hag- kvæm og góð þjónustan er. Á þetta hafa hundruð foreldra í Reykjavík verið minnt með harka- legum hætti. Í kaldakoli Í Reykjavík eru leikskólamálin í kaldakoli eftir forystu Samfylking- arinnar í þeim málaflokki frá árinu 2010. Ég óttast að Kristín Tómas- dóttir, fjögurra barna móðir í Reykjavík, hafi rétt fyrir sér þegar hún segir: „Konur eru bara á leið- inni aftur inn á heimilin í landinu, að hugsa um börnin okkar, af því að við erum ekki með dagvistun.“ Kristín ásamt fleiri foreldrum sem eru upp við vegg vegna svikinna loforða um dagvistun hefur skipu- lagt mótmæli í Ráðhúsi Reykjavík- ur. En fátt er um svör og stóru loforðin sem gefin hafa verið af fulltrúum meirihlutans hafa reynst innistæðulaus rétt eina ferðina. Tryggt og öruggt aðgengi barna að dagvistun er ekki einkamál þeirra og foreldranna, heldur grunnatriði í viðleiti okkar til að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði. Staðan ógnar atvinnuþátttöku kvenna og getur dregið verulega úr henni ef ekki rætist úr. Í komandi kjarasamningum hljóta augu forystu samtaka launa- fólks að beinast að stöðunni í leik- skólamálum í öllum sveitarfé- lögum. Ég er hugsi yfir því hve lítið heyrist í forystu stéttarfélaga vegna þess ófremdarástands sem hefur skapast og þó hafa margir forystumenn stigið fram með stór- yrðum af minna tilefni. Í stað þess að leggjast á árarnar með for- eldrum í vanda er áherslan lögð á innbyrðis hjaðningavíg, samhliða „keppni í því að vera sem kjaftfor- astur til að vera misskilinn sem róttækastur“. Slakað á klónni Ég hef aldrei skilið af hverju forystufólk verkalýðshreyfing- arinnar veitir sveitarfélögunum ekki meira aðhald en raun ber vitni, er varðar þjónustu, álögur og gjöld. Fyrir fólk með meðallaun og lægri skiptir útsvarsprósentan meira máli en skatthlutfall tekju- skatts. Í heild greiðir íslenskt launafólk meira í útsvar en tekju- skatt. En alveg sama hversu erfitt og flókið það verður að ná kjarasamn- ingum mun það takast með einum eða öðrum hætti – að lokum. Kröf- urnar sem gerðar verða á hið opin- bera og þá sérstaklega ríkissjóð verða margvíslegar. Skynsamleg- asta krafan sem samtök launafólks geta lagt fram gagnvart ríkisvald- inu er að mörkuð verði langtíma- stefna í ríkisfjármálum, sem taki mið af því að aukinn hluti hag- vaxtar verði eftir í vösum launa- fólks. Auðvitað fer kaldur hrollur um sannfærða sósíalista þegar rætt er um það að hlutfallsleg stærð ríkissamneyslunnar af þjóð- arkökunni minnki þegar kakan stækkar. Engu skiptir þótt köku- sneið ríkisins verði þrátt fyrir það stærri. Þetta heitir að slaka aðeins á klónni. Eftir Óla Björn Kárason » Í stað þess að leggj- ast á árarnar með foreldrum í vanda er áherslan lögð á inn- byrðis hjaðningavíg, samhliða „keppni í því að vera sem kjaftfor- astur“. Óli Björn Kárason Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hverjum er verið að þjóna?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.