Morgunblaðið - 17.08.2022, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.08.2022, Blaðsíða 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 ✝ Óli Theódór Hermannsson matreiðslumeistari fæddist á Látrum í Aðalvík 24. júní 1943. Hann lést 8. ágúst 2022 á Land- spítalanum, Foss- vogi. Foreldrar hans voru Sigurlaug Herdís Friðriks- dóttir frá Látrum í Aðalvík, f. 14. ágúst 1909, d. 20. ágúst 1989, og Hermann Árna- son frá Leiru í Grunnavík- urhreppi, f. 21. nóvember 1905, d. 10. júlí 1989. Systkini Óla eru: Árni Stefán Helgi, f. 1929, d. 2013, Friðrik Svavar, f. 1931, Þórunn Herborg, f. 1932, Þorgerður Kristín, f. 1934, d. 2015, Gunnar Jóhann, f. 1935, Jónína Margrét, f. 1937, Guðný Eygló, f. 1941, Ingi Karl, f. 1944, Bárður Gísli, f. 1946, Ingibjörg Steinunn, f. 1948, og Heiðar, f. 1951. Óli kvæntist 28. febrúar 1971 Guðríði Hannibalsdóttur frá Hanhóli Bolungarvík, f. 3. mars 1938, d. 9. október 2009. For- eldrar hennar voru Þorsteina Kristjana Jónsdóttir frá Birnu- dóttur, f. 27. febrúar 1973. Þeirra börn eru: a) Þórdís Arna, f. 23. febrúar 1996, b) Olgeir Þór, f. 23. júlí 2002, í sambúð með Sig- ríði Viktoríu Líndal. Þau eiga einn son. c) Eyþór Ingi, f. 26. september 2007. 3) Hrund Ýr, f. 12. ágúst 1976, gift Sigurði Árna Magnússyni, f. 9. febrúar 1977. Þeirra börn eru a) Unnur Ýr, f. 26. júlí 2008, b) Árni Theódór, f. 23. desember 2010. Óli bjó á Látrum í Aðalvík til fimm ára aldurs. Þá flutti hann með fjölskyldu sinni í Hnífsdal, þar sem hann bjó til 14 ára ald- urs. Hann flutti þá til Keflavíkur til móðursystur sinnar og lauk þar gagnfræðaskóla og vann sem hjólasendill sér til framfærslu. Hann vann ýmis störf til sjós og lands, m.a. sem messagutti á Gullfossi, á síld á Siglufirði og í Kassagerðinni. Óli lauk sveins- prófi í matreiðslu 21. apríl 1970 frá Hressingarskálanum og meistaraprófi frá Hótel Borg 3. febrúar 1974. Óli og Guðríður bjuggu mest- an sinn búskap í Mosfellsbæ. Óli rak félagsheimilið Hlégarð og veitingastaðinn Áningu þar í bæ. Hann starfaði við sína iðngrein til starfsloka, síðast í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Óli var lengi virkur í Kiwanisklúbbnum Geysi og Skógræktarfélagi Mos- fellsbæjar. Útför Óla fer fram frá Lang- holtskirkju í dag, 17. ágúst 2022, klukkan 13. stöðum Laugardal, f. 16. nóvember 1914, d. 27. nóv- ember 2004, og Hannibal Jóhannes Guðmundsson frá Bolungarvík, f. 24. apríl 1907, d. 9. des- ember 1984. Guð- ríður átti áður son- inn Gunnar Þór Hilmarsson, f. 9. september 1963. Sonur hans og Jóhönnu Jóhanns- dóttur, f. 7. júlí 1961, er a) Frosti Örn, f. 29. desember 1986, kvænt- ur Erlu Hlín Hilmarsdóttur, þau eiga tvo syni. Gunnar er kvæntur Brendu Sjoberg, f. 13. ágúst 1959. Þeirra synir eru: b) Uggi, f. 30. desember 1991, í sambúð með Lykke Buus Kastrup, c) Loki, f. 23. ágúst 1994, í sambúð með Emilie Skoffer. Börn Óla og Guð- ríðar: 1) Ágústa, f. 4. janúar 1971, í sambúð með Páli Bryngeirssyni, f. 11. september 1978. Þeirra syn- ir eru: a) Huginn Óli, f. 8. febrúar 1999, hann á tvo syni með Kam- illu Knudsen Pedersen, b) Goði Páll, f. 18. febrúar 2003, c) Ágúst Freyr, f. 18. september 2006. 2) Bjarkar Þór, f. 29. febrúar 1972, kvæntur Olgu Hrönn Olgeirs- Með þakklæti og sorg í hjarta kveð ég tengdapabba. Þvílíkur karakter sem hann var. Þegar ég loka augunum sé ég hann fyrir mér brosandi og ég heyri hann skella upp úr segjandi einhver vel valin orð. Sá kunni að komast að orði. Óli ritskoðaði sjaldnast hugsanir sínar áður en hann færði þær í orð heldur fengu þær byr undir báða vængi og sumar hverjar næstum eilíft líf. Fyrir vikið kom hann okkur svo oft til að hlæja. Eftir sitja einmitt minningar sem vekja bæði gleði og hlátur en þannig mildast sorg- in og þakklæti fyrir það liðna vex. Að minnast Óla er erfitt án þess að geta Gurrýjar um leið. Mikið sem ég var heppin að eignast þau fyrir tengdaforeldra og börnin mín að eiga þau fyrir ömmu og afa. Ég hef oft í gegnum tíðina þakkað fyrir að hafa fengið akk- úrat þau í líf mitt. Óli og Gurrý sem komu til dyranna eins og þau voru klædd, harðdugleg með risa- stórt hjarta. Óla og Gurrý er hægt að taka sér til fyrirmyndar fyrir svo margt en ekki síst fyrir að þau voru manneskjur sem gátu alltaf gefið af sér, voru fjölskyldu- og vinarækin og kunnu að gleðjast. Gvendargeislinn verður af- skaplega tómlegur án Óla sem hefur verið svo stór hluti af dag- legu lífi okkar Bjarkars og barnanna til margra ára. Það hef- ur alltaf verið auðvelt að gera tengdapabba til geðs, ekki síst þegar kom að því að kalla á hann í kvöldmat. Ég er viss um að hann hefur oft hrist höfuðið yfir metn- aðarleysi og ófrumleika í matar- gerðinni á efri hæðinni en aldrei lét hann á því bera heldur fengum við ekki að finna neitt annað frá honum en þakklæti. Guð blessi minningu bæði Óla og Gurrýjar. Ég er viss um að þau eru þegar búin að taka dansinn saman í Sumarlandinu og munu líta eftir okkur hinum þangað til við hittumst aftur. Hjartans þakkir fyrir dýrmæta samveru. Þín tengdadóttir, Olga. Nú er því miður komið að því að kveðja einstakan mann. Elsku Óli frændi, við erum svo lánsöm að hafa átt þig að, það er óendanlega sárt að kveðja þig. Það er erfitt að finna réttu orð- in til að lýsa því hve mikilvægur hluti af lífi okkar þú varst alla tíð, en þó einkum í uppvextinum, í raun varstu verndarengill okkar. Þú varst svo ekta, aldrei neitt að draga dul á skoðanir þínar, oft svolítið hávær og á stundum dálít- ið orðljótur, en alltaf einstakt góð- menni, með hús og hjartarými til að deila. Þegar þú hlóst þá hlóstu hátt og innilega og það fór ekki á milli mála að þér var skemmt, það átti líka við um þegar þér þótti eitt- hvað óviðunandi, þá heyrðust mótmælin vel. Þú stóðst með þín- um og reyndist fólkinu þínu afar vel, dyrnar stóðu ávallt opnar, gestir velkomnir í styttri eða svo- lítið lengri stopp, þú áttir alltaf kaffi á könnunni og gjarnan eitt- hvað að bíta í með, enginn fór svangur úr heimsókn til þín. Lífsgleði þín, þrautseigja og húmor munu alltaf fylgja okkur. Við vitum fyrir víst að við missum aldrei alveg fólkið sem við elskum, jafnvel ekki í dauðanum. Ást þeirra skilur eftir sig óafmáanleg spor í hjörtum okkar og minning þeirra lifir eins lengi og við lifum. Í minningum okkar býrð þú núna, elsku besti Óli frændi, og verður þar alla tíð. Takk fyrir samfylgdina. Birna, Grímur, Eva Rós, Silfá, Herdís og Elísabet. Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur, var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég hvarf á vit minninga er mér barst andláts- fregn um að hann Óli, svili minn, væri farinn á fund feðra vorra. Það er nefnilega fátt betra en að eiga fund með góðum vinum og það var hann Óli svo sannarlega. Alltaf var glatt á hjalla þar sem Óli var. Hann var selskapsmaður af Guðs náð og naut þess að vera í félagskap með öðrum. Við hin sóttumst eftir að vera í návist hans, umvafin glettni og gleði og góðum veitingum, enda lét kokk- urinn ekki sitt eftir liggja þegar matur var annars vegar. Óli var Vestfirðingur í húð og hár og bar sterkar taugar til Vestfjarða og æskuslóðanna að Látrum í Aðal- vík. Þegar hann féll frá var hann einmitt að undirbúa vesturför. Hann ætlaði að dvelja með systk- inum sínum í fáeina daga í Djúp- inu og kannski kíkja á ber og aðr- ar nytjajurtir en varð fyrir því óhappi að lærbrotna. Fáeinum dögum síðar kom kallið. Óli hafði þó komið með okkur vestur fyrr í sumar og við átt góðar stundir með honum, m.a. á afmælinu hans þar sem við forum út að borða í Neðstakaupsstað og í eftirpartý hjá Inga Karli bróður hans. Það voru miklir kærleikar á milli heimlisfólksins á Hanhóli og Óla, sem hafði kvænst elstu systurinni á Hanhóli, Guðríði. Ekki leið vika án þess að Óli hringdi til að spjalla og öll sumur sótti hann okkur heim. Segja má að hann hafi verið límið í fjölskyldunni, alltaf að stefna fólki saman og efna til mannfagnaða. Hann var höfðingi heim að sækja og heimili hans og þeirra hjóna stóð ávallt opið fyrir gestum og gangandi, enda hjónin vinmörg. Þau voru samhent, greiðvikin, fjölskyldurækin og nutu lífsins ævintýra, stórra og smárra. Ferðuðust víða um landið sitt og heiminn og bjuggu tvisar erlendis um skeið, m.a. í Noregi þar sem ég heimsótti þau er Gurrí greindist með sjúkdóm sinn. Það var mikil sorg er Óli missti Gurrí sína frá sér eftir margra ára bar- áttu við krabbamein, sem hún hafði tekist á við af æðruleysi og þrautseigju, en aldrei rofnuðu tengslin við tengdafjölskylduna. Við minnumst hugulseminnar og hlýjunnar sem fylgdi jólagjafa- sendingum til okkar. Þá kom hann gjarnan með bakkelsi og smákök- ur sem Óli hafði bakað og send- ingin yljaði heimilisfólkinu um hjartarætur. Í henni fólst hinn sanni jólaandi, kærleikurinn. Í sumar kom hann einnig á Hanhól og sólskinið ljómaði um bæinn, eins og eitt uppáhaldssönglagið okkar sagði, klyfjaður af bakkelsi og nutum við þess í marga daga. Við vorum engan veginn búin undir það að hann Óli væri á för- um. Að kokkurinn hætti að sækja okkur heim, hringja, spjalla, segja fréttir og reka upp fáein hlátra- sköll. Söknuðurinn er mikill en einnig þakklætið fyrir að hafa ver- ið samferðamaður hans um stund. Elsku Gunnar, Ágústa, Bjarkar og Hrund, makar, börn, barna- börn og aðrir ástvinir, mínar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar. Guðrún Stella Giss- urardóttir, Hanhóli. Okkur langar í fáeinum orðum að minnast Óla, tengdaföður Olgu systur okkar. Kynni okkar af hon- um spanna hátt í þrjá áratugi. Frá fyrstu stundu var okkur mætt af hlýju, gleði, kærleika og vináttu. Hann var mjög fjölskyldurækinn, sýndi öllu samferðafólki sínu ein- lægan áhuga og fylgdist vel með því sem fólk tók sér fyrir hendur. Heimili þeirra hjóna stóð okkur ávallt opið og þar fengum við kennslu í að taka slátur, sulta, prjóna o.fl. Óli lá ekki á skoðunum sínum og lá hátt rómur og hlát- urinn hár og smitandi. Hann sagði oft frá æsku sinni fyrir vestan og greinilegt var að sú æska var ekki alltaf auðveld en lánsamur var hann með hana Gurrý sína og stóran og samheldinn systkina- hóp. Við vorum lánsöm að fá að ferðast með honum vestur í Að- alvík á æskuslóðirnar og dvelja þar í viku. Þar naut hann sín og stússaði í kringum okkur eins og honum einum var lagið, enda mik- ill matgæðingur. Fjársjóður Óla lá í börnum hans, tengdabörnum, barnabörn- um og barnabarnabörnum sem hann var óendanlega stoltur af. Við þökkum Óla fyrir sam- fylgdina og vináttuna í gegnum árin og vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning um góðan mann. Guðmundur Jóhann, Bína, Þórhildur, Gyða og fjölskyldur. Lífshlaup móðurbróður míns Óla Hermanns er á enda, lífs- klukkan hans hefur stöðvast og nú skilur leiðir um sinn. Við Óli frændi vorum vinir, nokkur ár skildu okkur að, og ég á margar fallegar og skemmtilegar minningar og minningabrot frá samverustundum með honum í gegnum árin. Af mörgu er að taka en hér skal fátt eitt nefnt. Ég minnist með mikilli ánægju dúkkulísuleiks sem við Óli fórum í í eldhúsinu heima í Álfheimum fyrir margt löngu þegar mamma þurfti að bregða sér eitthvað frá. Þá voru dúkkulísurnar teknar fram og með þeim spunnum við upp og lékum heilu leikritin og þættina þar sem þær voru að sjálfsögðu í aðalhlutverkunum. Ég minnist einnig ógleyman- legrar réttarferðar og smala- mennsku sem ég fór með þeim bræðrum Óla og Heiðari í Heydal. Þar var nú aldeilis líf og fjör þar sem Óli var í aðalhlutverki, lék við hvern sinn fingur og var í essinu sínu eins og alltaf. Á árum áður hjálpaði ég Óla og Gurrý stundum um helgar í Án- ingu í Mosfellsbæ. Þar kenndi Óli mér eitt og annað í matseld, meðal annars réttu handtökin í ham- borgarasteikingu. Sú reynsla kom að sjálfsögðu að góðum notum síð- ar á lífsleiðinni eins og margt ann- að sem Óli kenndi mér þótt svo ég sé nú ekki þekkt fyrir slíka mat- reiðslu nú seinni árin – en það er önnur saga. Ég minnist enn gleð- innar sem ríkti á þeim vinnustað, alltaf kátína og fjör. Seinni árin höfum við Óli svo margoft hist á Gran Canaria en þar dvaldi hann oftar en ekki með systrum sínum, mömmu Dódó og Guðnýju. Allar hafa þær stundir verið gleðilegar og ánægjulegar líkt og sumarbústaðaferðirnar þeirra. Þar hittumst við oftar en ekki, þar var alltaf glatt á hjalla og allir nutu góðra samverustunda við spil, spjall og prjónaskap. Óli frændi gekk ekki alltaf heill til skógar, oftar en ekki glímdi hann við heilsuleysi en nú er því stríði lokið. Upp úr stendur hins vegar hversu mikinn styrk Óli sýndi alltaf í sínum veikindum. Aldrei barmaði hann sér, tók öll- um áföllum með mikilli þraut- seigju, bjartsýni, jákvæðni og fá- dæma lífsgleði og lífsvilja sem er til mikillar eftirbreytni. Að leiðarlokum vil ég þakka Óla mínum samfylgdina sem og fyrir allar samveru- og fjölskyldu- stundir sem við höfum átt og ég veit að Gurrý tekur á móti honum með útbreiddan faðminn í sumar- landinu. Við Kalli sendum Ágústu, Bjarkari, Hrund, Gunnari og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur með þakklæti fyrir allt og allt. Minningin um góðan mann, Óla frænda, lifir í hjörtum okkar allra. Svanhildur Davíðsdóttir – Hildur frænka. Óli Theódór Hermannsson ✝ Einar Pálsson fæddist á Ekkjufelli í Fell- um 26. desember 1943. Hann lést á heimili sínu 19. mars 2022. Hann ólst upp á Aðalbóli í Hrafnkelsdal. Foreldrar hans voru Ingunn Ein- arsdóttir frá Fjallsseli og Páll Gíslason frá Skógargerði. Einar giftist 5. maí 1977 Ragnhildi I. Benediktsdóttur. Börn þeirra eru: Ingunn Bylgja, f. 13.10. 1979, Hrafnd- ís Bára, f. 18.7. 1983, Hafrún Brynja, f. 29.8. 1984, og Húni Hlér, f. 21.6. 1991. Einar var sjó- maður framan af ævi, gerist svo bóndi og bjó fyrst á Aðalbóli en lengst af á Arn- órsstöðum á Jök- uldal. Síðustu starfsár sín vann hann sem bílstjóri auk almennrar verkamanna- vinnu. Þá voru þau hjón flutt til Egilsstaða. Seinna fluttu þau til Akureyrar þar sem Einar lést á heimili sínu 19. mars 2022. Minningarljóð Eftir strangan erilsaman dag innir hugur svars við margri spurn, nóttin bíður, þreytt er hönd og þvöl, aftanbjarmi roðar skýjarönd rósum slær um blámans hvel; brátt er allt sem okkur fyrr var kært efa slegið, horfið, týnt og gleymt, senn að baki langt og skrautlegt líf, tíminn vorum dáðum eyðir út, iðjar hljótt hans mulningsvél; við sem gátum önn og andbyr deilt inn við dalsins móa, holt og lind, nutum lífsins, supum sæta veig, ungir menn með ráð í hverri raun, rammt var þó vort hanastél; mér svo stefnir allt í sömu átt, inn á skuggans duldu vonarslóð, nær við sjáumst nótt af himni fer, nóg er kveðið – farðu vel. Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku. Einar Pálsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR SIGURJÓN HELGASON, Hraunbraut 2, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 29. júlí. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 19. ágúst klukkan 15. Helga Ingvarsdóttir Bjarni Þór Þorvaldsson Ingvar S. Þorvaldsson Anna María Bjarnadóttir Helgi B. Þorvaldsson Elín H. Ragnarsdóttir Rúnar Sólberg Þorvaldsson Helga J. Karlsdóttir Valdimar T. Þorvaldsson Adrian Estorgio Sólveig Þ. Þorvaldsdóttir Reynir Þór Valgarðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, HALLA BJARNADÓTTIR, Víkurbraut 30, Höfn, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði sunnudaginn 14. ágúst. Útförin verður frá Hafnarkirkju laugardaginn 20. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Skjólgarðs. Lucia Óskarsdóttir Sigurður Þ. Karlsson Birna Óskarsdóttir Kristján Snæbjörnsson barnabörn, barnabarnabarn, systkini og fjölskyldur hinnar látnu Sonur minn, JÓN KJARTANSSON, lést á sjúkrastofnun í Sviss mánudaginn 15. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Þorbjörg Pétursdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.