Morgunblaðið - 17.08.2022, Page 17

Morgunblaðið - 17.08.2022, Page 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 ✝ Jón Már Guð- mundsson fæddist á Hvoli, Innri-Njarðvík, 16. ágúst 1943. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 5. ágúst 2022. Foreldrar hans voru Guðmundur Alfreð Finn- bogason frá Tjarn- arkoti, Innri-Njarð- vík, f. 8.11. 1912, d. 19.4. 1987, og Guðlaug Ingveldur Berg- þórsdóttir frá Suðurgarði í Vestmannaeyjum, f. 18.11. 1908, d. 4.4. 1985. Systkini Jóns: Karvelsdótttir sjúkraliði, f. 15.11. 1942. Börn þeirra: 1) Karvel Aðalsteinn, f. 19.8. 1977. Eiginkona: Rhea-Mee Gilza Panadero, f. 21.7. 1980. Börn: Hjördís Silja, f. 23.6. 2004, Áróra Svala Panadero, f. 28.2. 2017. 2) Guðlaug Stella, f. 30.1. 1980, sambýlismaður Ólafur Odd- björnsson, f. 31.3. 1980. Börn: Sóley Lóa, f. 26.8. 2017, Álfrún Mjöll, f. 24.10. 2021. 3) Finnbogi Þorkell, f. 29.12. 1981 Barn: Heiður Ísafold, f. 10.11. 2011. Jón ólst upp á Hvoli í Innri- Njarðvík á heimili foreldra sinna. Hann var í sveit sem drengur á Bessastöðum og í Borgarfirði og fór svo ungur til sjós og vinnu. Hann stundaði nám í Flensborg en lauk fiski- mannaprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík árið 1967 og farmannaprófi frá sama skóla 1968. Árið 2006 lauk hann svo stúdentsprófi frá öldungadeild MH. Um árabil var hann stýrimað- ur á millilandaskipum/far- skipum hjá SÍS, Eimskip og fleiri skipafélögum. Hann lauk einnig námi í útgerðartækni við Tækni- skóla Íslands 1979 á milli þess sem hann var í siglingum, vinnu í landi eða á sjó. Árið 1982 gerðist hann kaup- maður í versluninni Öldunni í Reykjavík og árið 1984 tók hann við rekstri verslunarinnar Arn- arhrauns í Hafnarfirði sem hann rak fram til ársins 1998. Jón bjó mestallan sinn tíma í Hafnarfirði og Reykjavík. Síðastliðin ár hafði heilsu hans hrakað og dvaldist hann á hjúkrunarheimilinu Skjóli frá árinu 2017. Útför hans fer fram frá Njarð- víkurkirkju í dag, 17. ágúst 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. Óskírður drengur, f. 22.11. 1933, d. 27.3. 1934, Guð- björg Edda, f. 20.1. 1936, d. 24.5. 2019, Finnbogi Geir, f. 4.10. 1937, Laufey Ósk Guðmunds- dóttir, f. 10.9. 1940, d. 30.10. 2019, Jón Björgvin Guð- mundsson, f. 16.12. 1941, d. 27.4. 1942. Eiginkona Jóns er Julieta Birao Arante, f. 19.12. 1959. Sonur hennar er Juno John Ar- ante f. 5.6. 2000. Fyrrverandi sambýliskona Jóns er Hjördís Elsku pabbi. Þá er kallið komið en ég veit að þú ert með systrum þínum og afa og ömmu þar sem það er örugglega glatt á hjalla. Það rifj- ast upp ótal minningar og þá fyrst frá Háaleitisbrautinni í kringum árið 1981 en ekki síst frá ferðalögunum í gamla daga þegar við fjölskyldan ásamt Stellu og Boga fórum hringinn í kringum landið – og fleiri eft- irminnilegar ferðir. Ávallt var Vegahandbókin við hönd og oft- ar en ekki harmónikkutónlist í bílnum og auðvitað var farið í sund. Þá var svo eftirminnilegt þegar við horfðum á HM í hand- bolta og fótbolta, fylgdumst með öllum fréttum og skemmtum okkur yfir Spaugstofunni. Marg- ar minningar eru úr Arnar- hrauni, sem var eins og okkar annað heimili í fjórtán ár. Þá lagðir þú svo mikla áherslu á við okkur systkinin að sinna námi okkar af metnaði enda varstu einstaklega metnaðarfullur námsmaður sjálfur og fróðleiks- fús. Þú hlýddir okkur gjarnan yfir fyrir próf og hættir ekki fyrr en allt var á hreinu. Þú varst líka svo trúaður og kenndir okkur bænirnar. Með þessu öllu gafstu okkur veganesti sem við búum að alla tíð. Þú hafðir líka yndi af góðum söng og tónlist og gaman var að taka lagið saman. Síðustu árin fór aðeins að gefa á bátinn en þú fylgdist þó alltaf með eins og hægt var. Undanfarin misseri spjölluð- um við gjarnan um gömlu dag- ana og eitt og annað sem þú hafðir gaman af að rifja upp og hlæja að. Stutt er síðan við rifj- uðum upp og ég skrásetti þær borgir og lönd sem þú sigldir til meðan þú varst í siglingunum. Við hlustuðum líka á harmón- ikkutónlist í bílnum og það var svo gaman að sjá hvað það gladdi þig og þú raulaðir með. Þá færðist ávallt bros yfir þig þegar þú hittir afastelpurnar þínar. Elsku pabbi minn. Söknuðurinn er mikill. Ég mun aldrei gleyma þér og ég veit að þú verður ávallt með okk- ur. Minningarnar um þig eru óteljandi og þær verða sannar- lega vel varðveittar. Ljósin á ströndu skína skær skipið það færist nær og nær og þessi sjóferð endi fær. Ég búinn er að puða og púla pokann að hífa og dekkin spúla. Reifur ég stend í stafni hér strax og að landi komið er bý ég mig upp og burt ég fer. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. (Iðunn Steinsdóttir) Hvíldu í friði elsku pabbi. Karvel Aðalsteinn Jónsson. Elsku pabbi minn, nú ertu bú- inn að kveðja okkur. Það rifjast upp fyrir mér orðalag sem þú notaðir svo oft þegar einhver kvaddi sem var búinn að glíma við þrautir þessa heims: „Hann var sæll að fá að fara.“ Ég velti þessi orðalagi oft fyr- ir mér, það er svo mikil fegurð í því. Það endurspeglar lífssýnina sem þú kenndir mér, að það er einhver staður og einhver mátt- ur sem er æðri okkur mann- inum. Þú kenndir okkur systkinun- um bænir og hvernig þú gerðir það er mér svo minnisstætt. Það var aldrei nein predikun, bara mýkt og þetta djúpa mannlega innsæi og skilningur á lífinu sem ekki er öllum gefinn. Hvað þá að geta miðlað honum á þennan einlæga hátt. Ég man að oftar en einu sinni þegar við vorum farin í háttinn útskýrðirðu fyrir mér faðirvorið og hvað það þýddi. Ég, lítill strákurinn, vildi hlusta aftur og aftur. Ég held að ég hafi ekkert verið að pæla í útskýringunni, ég vildi bara finna fyrir einlægn- inni, ástríðunni hjá þér fyrir að vera pabbi minn, hlýjunni og ör- ygginu. Á mínum allra erfiðustu stundum er það nákvæmlega þessi lífssýn sem ég hef reynt að tileinka mér betur. Hún er stundum eins og líflína þegar illa gengur. Og hún hefur aldrei klikkað. Að venja sig betur á að treysta mætti okkur æðri eins og hver og einn skilgreinir hann virðist á einhver ótrúlegan hátt gera allt auðveldara. Og þú bentir mér líka á að þessi máttur sem við oftast köll- um Guð gleymir manni aldrei þótt maður eigi það til að gleyma honum sjálfur. Góðu stundirnar okkar rifjast nú upp sem og skemmtilegt orðalag sem þú notaðir gjarnan. „Elsku drengurinn minn, bless- aður ættarsóminn,“ sagðirðu oft. Ég man að 7-8 ára spurði ég þig loksins að því hvað ættarsómi þýddi! Þú varst í essinu þínu sem góður pabbi í útilegunum sem við fjölskyldan fórum í. Þú áttir oftast jeppa og við áttum tjald- vagn. Mér litlum stráknum fannst þetta svo flott! Svo var líka gaman þegar Stella og Bogi, systkini þín, voru með. En burtséð frá jeppa og tjald- vagni skynjaði maður ástríðu- fullan föður sem naut þess að ferðast með fjölskyldunni! Og það er það sem situr eftir í minn- ingunni. Þau voru líka mörg jólin þar sem indæll faðir barna sinna naut sín, rólegur í tíðinni en samt hnyttinn og skemmtilegur. Svo eru það auðvitað sundferð- irnar. Stundum fórstu í laugina fyrir vinnu, klukkan sjö að morgni, og svo aftur um kvöldið þegar ég var að suða í þér að fara í sund! Við Heiður dóttir mín og afa- barnið þitt fórum í göngutúr í Elliðaárdalnum daginn sem við fréttum að þú værir farinn og þegar ég var að lýsa góða indæla pabba frá því þegar ég var lítill, þá benti hún mér á að á margan hátt væri ég að lýsa sjálfum mér. Mögulega var ég að lýsa öllu því góða sem ég lærði af þér pabbi minn. Þegar ég var orðinn fullorðin auðnaðist okkur einstaka sinnum að eiga samtal um hverfulleika lífsins og þau kenndu mér ekki síður mikið. Þegar samtölunum lauk varð þér gjarnan að orði: „Guð blessi okkur báða Finnbogi minn, já og auðvitað alla hina líka.“ Elsku pabbi minn, ég veit að Guð mun svo sannarlega gera það. Takk fyrir allt elsku pabbi! Finnbogi Þorkell Jónsson. Elsku pabbi minn. Sofðu rótt, ég mun sakna þín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Guðlaug Stella. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú (Katrín Ruth Þ.) Hvíldu í friði elsku afi okkar. Hördís Silja og Áróra Svala. Góður fjölskylduvinur er fall- inn frá eftir erfið veikindi síð- ustu ára. Jóni Má kynntist ég árið 1984 er ég sóttist eftir kvöld- og helgarvinnu í Versl- uninni Arnarhrauni, Hafnar- firði sem hann rak ásamt Hjör- dísi, þáverandi konu sinni. Jón var ekki harður hús- bóndi, hann var glettinn og glaðsinna og gaman var að vinna með honum og eftir stutt kynni treysti hann okkur hjón- um fyrir bókhaldi og kassaupp- gjörum verslunarinnar. Jón og Hjördís eignuðust þrjú börn, hvert öðru yndis- legra, og eftir því sem þau stækkuðu voru þau farin að hjálpa til í búðinni. Þetta voru góðir tímar og þarna mynduð- ust sterk vináttubönd milli fjöl- skyldna okkar sem styrktust með hverju árinu sem leið. Jón var góður maður sem gott var að tala við, því hann var bæði greindur og úrræða- góður. Ég mun minnast hans sem góðs félaga sem hafði þannig áhrif á okkur samstarfs- fólkið að okkur leið vel í kring- um hann. Hann styrkti sjálfs- mynd mína með því að sýna mér traust og vináttu strax í upphafi kynna okkar. Jón var góður pabbi barnanna sinna og var stoltur af þeim öllum og veit ég að hann vakir yfir þeim og fjöl- skyldum þeirra, en Jón eign- aðist fimm barnabörn. Elsku hjartans Karvel, Guð- laug, Finnbogi, Hjördís og Júl- ía. Við minnumst Jóns með hlý- hug og blessum minningu hans. Guð styrki ykkur og blessi. Hvíl í friði elsku Jón og takk fyrir allt og allt. Soffía K. Kristjánsdóttir. Jón Már Guðmundsson Við kynntumst Hildi þegar Hauk- ur og hún fóru að stinga saman nefj- um eftir að hafa kynnst í Þórs- mörk. Okkar fyrstu kynni voru ansi minnisstæð þar sem við höfðum tekið að okkur að „trússa“ fyrir vinahóp þeirra sem ætlaði að labba Laugaveg- inn. Seinni daginn kom Hildur með okkur í bílinn og var með okkur allan daginn þar sem við keyrðum inn í Þórsmörk. Hún heillaði okkur strax með sinni jákvæðu og skemmtilegu framkomu. Einnig er minnis- stæð heimsókn þeirra Hauks til okkar í Svíþjóð þar sem við áttum skemmtilegar stundir saman. Það var sama hvað Hildur gerði, hún var alltaf eins og stormsveipur sem lét hendur standa fram úr ermum þannig að eftir var tekið. Okk- ur er minnisstætt þegar dætur Hildur Halldórsdóttir ✝ Hildur Hall- dórsdóttir fæddist 21. desem- ber 1968. Hún lést 23. júlí 2022. Útför hennar fór fram í kyrrþey. okkar fóru með kór að syngja fyrir vistmenn á Sóltúni þar sem Hildur vann. Þar hljóp hún nánast á milli vistmanna til að passa að öllum liði vel og allir væru með kaffi og teppi. Það sást langar leiðir að vistmenn voru mjög ánægðir með hana. Hún hafði svo mikla þjónustulund að hún var alltaf komin að hjálpa öllum hvar sem hún var. Ef það voru veislur þá var hún alltaf komin í eldhúsið að hjálpa og hún var á við þrjá því hún var svo rösk. Þegar amma Kristín var komin á hjúkrunarheimili var Hildur ansi oft þar að hugsa um ömmu. Það er sárara en orð fá lýst að hún skuli falla frá núna þegar þau Haukur voru nýbúin að gifta sig og innrétta nýja húsið sitt algjör- lega eftir Hildar ósk. Hún hafði einstaka hæfileika í að skreyta í kringum sig og húsið þeirra orðið ótrúlega fallegt. Hildur og Haukur voru á fullu að skipuleggja brúðkaupsferð til Bandaríkjanna í haust þeg- ar þessi hörmulegu tíðindi um veikindin bárust. Það er að- dáunarvert hvernig Hildur tókst á við veikindin með æðruleysi og húmor. Þótt hún ætti erfitt með að tjá sig und- ir lokin var alltaf stutt í húm- orinn hennar og það komu ýmis skondin skot á við- stadda. Hildar verður sárt saknað enda hrókur alls fagn- aðar hvar sem hún kom og var ekkert að liggja á skoð- unum sínum og óhrædd að skjóta létt á alla viðstadda. Við sendum Hauki og Helen Maríu innilegar samúðar- kveðjur á þessum erfiðu tím- um. Bjarni og Guðbjörg (Gugga). Hjartans vinur. Eins og eldibrandur varstu hrifin á brott. Maður var ekki fyrr búinn að heyra að þú værir alvarlega veik þar til þú varst dáin. Og þú komst á svip- uðum hraða inn í líf mitt fyrir mörgum árum. „Ertu ekki dóttir hennar Gerðar?“ Sindr- andi bláu augun hennar horfðu ákveðin á mig. Konan á bensínstöðinni. Það var Hildur og frá þeirri stundu urðum við vinir fyrir lífstíð. Skemmtileg, hávær og rösk til allra verka en fyrst og fremst stafaði af henni hlýjan og góðvildin. Traust, gjafmild og fyndin. Og við áttum ófá hlátursköstin. Góðar minning- ar. Ég gat aldrei skilið al- mennilega vinnuhraðann hennar. Hún var eldfljót. Og einu sinni sem oftar kom hún við heima í Bæjarási eftir vinnu í kaffibolla áður en hún færi heim og ég var þar að brytja rabarbara. Hún brosir og spyr hvort hún eigi ekki að hjálpa mér og áður en mér tókst að stynja upp jáinu var hún búin að ýta mér frá, ná af mér hnífnum og brytja allan rabarbarann. Ég hef oft reynt að ná þessari kung fu-sveiflu en aldrei tekist. Hún var svo dásamleg manneskja. Hún var minn klettur þegar ég þurfti á styrk að halda og bar mig uppi þeg- ar ég þurfti þess með. Hún vildi allt fyrir alla gera en þó elskaði hún börnin sín og barnabörn meira en allt ann- að. Þau voru gullin hennar. Svo var það einn fallegan dag, rétt þegar vorið var að gægjast fram, að við hittumst á förnum vegi. Þá urðu nú fagnaðarfundir. En við vissum hvorug að við værum að hitt- ast í hinsta sinn. Skrýtnast var að faðmlagið var óvenju langt og þétt og það er svo dýrmætt núna. Far vel minn elskaði vinur. Við sjáumst síð- ar. Þín vinkona, Brynja Magnúsdóttir. Það var gæfa Domino’s að fá Aðalstein til starfa snemma árs 2014. Þar komu styrkar hendur og reynsla í hóp þar sem kapp- semi bar stundum skynsemi ofurliði. Þetta var góð blanda og Aðalsteinn var vandanum vaxinn og leiddi mikla upp- byggingu og fjölgun á búðum Domino’s á skömmum tíma. Á sama tíma var vaxandi krafa um viðhald og að halda öllu í toppstandi sem var líka í hans verkahring. Hann ávann sér traust og virðingu. Það er oft áskorun að vinna með stórum hópi með alls konar þarfir og vandamál en hann leysti úr þeim með jafnaðargeði og léttur í lund. Oft til í spjall um lífið og til- veruna. Hann var sannkallaður þús- undþjalasmiður sem kallaði Aðalsteinn Árna- son Guðmundsson ✝ Aðalsteinn Árnason Guð- mundsson fæddist 12. júní 1950. Hann lést 25. júlí 2022. Útför fór fram 2. ágúst 2022. ekki allt ömmu sína, ljúfur í sam- starfi og sam- skiptum og alltaf var stutt í húm- orinn. Hann var vin- sæll og var valinn starfsmaður árs- ins 2015 og fékk í verðlaun ferð til Las Vegas árið eftir en þar er haldin annað hvert ár alheims- ráðstefna Domino’s með ná- lægt 10.000 þátttakendum. Hann fékk þann heiður að bera íslenska fánann upp á sviðið við opnun ráðstefnunn- ar sem hann gerði með sóma. Aðalsteinn starfaði hjá Domino’s þar til Covid tók frá honum heilsu og kraft. Hans verður sárt saknað en við hugsum til hans með miklu þakklæti og hlýju. Aðalsteinn var fjölskyldu- maður af bestu gerð, missir þeirra er mikill. Við sendum ykkur hugheilar samúðar- kveðjur. F.h. Domino’s, Birgir Örn Birgisson og Magnús Hafliðason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.