Morgunblaðið - 17.08.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 17.08.2022, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Málarar MÁLARAR Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu. Unnið af fagmönnum með áratuga reynslu, sanngjarnir í verði. Upplýsingar í síma 782 4540 og loggildurmalari@gmail.com Vantar þig fagmann? FINNA.is alltaf - alstaðar mbl.is Hótel Flúðir ehf. Auglýsing fyrir hluthafafund 31. ágúst 2022 Stjórn Hótel Flúða ehf. kt. 631194-2449, boðar hér með til aðalfundar félagsins 2022. Fundurinn veður haldinn miðvikudaginn 31. ágúst 2022 á Hótel Flúðum á Flúðum. Auk venjulegra aðalfundarstarfa skal taka fyrir sölu á öllum hlutum í félaginu undir liðnum önnur mál. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Útileikfimi kl. 10. Pílukast kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Síð- degiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 10 gönguhópur frá Jóns- húsi, kl. 13 Gönguhópur frá Smiðju. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn- unni. Félagsvist frá kl. 13. Döff frá kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Fram- haldssaga kl. 10.30. Handavinna, opin vinnustofa kl. 13-16. Brids kl. 13. Styttri ganga kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll kl. 10, tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi. Brids kl. 12.30. Borðspil spiluð, hægt að koma með sín eigin eða fá lánuð. Leiðbeinandi verður á staðnum kl. 13. Hittumst í sumarskapi, gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni, opin handverksstofa kl. 9-12. Opin handverksstofa kl. 13-16. Dansleikurinn með Vitatorgs- bandinu hefst svo aftur í dag með pomp og prakt kl. 14-15 og síð-de- giskaffið er svo á sínum stað frá kl. 14.30-15.30. Allar nánari upplýs- ingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Handavinna, samvera og kaffi í salnum milli kl. 13 og 16. Skráning er hafin á námskeið vetrarins. Hægt er að setja sig beint í samband við leiðbeinendur eða skrá sig í aðstöðu félagsstarfsins að Skólabraut 3-5. Fundir/Mannfagnaðir Elsku tengda- mamma, eða amma Anna eins og hún var ætíð nefnd í fjölskyldu okkar, var borin til hinstu hvíldar hinn 5. ágúst síðastliðinn frá Norð- fjarðarkirkju á fögrum sólskins- degi. Minningarnar hrannast upp. Það eru komin rétt um fjörutíu ár síðan ég kynntist þér þegar leiðir okkar elsta sonar þíns lágu saman. Ég minnist þess hve vel þú tókst ævinlega á móti okkur er við komum til þín á Gilsbakkann, sem oftast var á sumrin því þá var best að ferðast um langan veg yfir öræfi Anna Guðlaug Sigurjónsdóttir ✝ Anna Guðlaug Sigurjónsdóttir fæddist 25. febrúar 1927. Hún andaðist 28. júlí 2022. Útför hennar fór fram 5. ágúst 2022. og stundum erfiðan veg þar sem veðra- brigði voru algeng. Ég fann fljótt hve sterkan per- sónuleika þú hafðir að geyma og fann fyrir kraftinum og dugnaðinum sem einkenndi þig. Það var alltaf litið upp til ömmu Önnu og oft í hana vitnað. Eitt sinn er við vorum að ræða einhvern hlut hjá þér og mér varð á orði „að það tæki enga stund“ að gera man ég að þú sagðir að engin stund væri ekki til. Ég hef sjálf staðið mig að því að segja þetta þegar þannig ber undir og verður alltaf hugsað til þín. Engin stund er nefnilega ekki til. Allt tekur tíma og allar stundir eru mikilvægar. Við höfum oft minnst þess þegar þið Sissa voruð hjá okkur í Brúnagerðinu er við hjónin fórum í nokkurra daga ferðalag og þið gættuð sona okkar með miklum sóma og kennduð þeim meðal annars leiki sem enn er minnst og ég lærði í minni æsku. „Í grænni lautu þar geymi ég hringinn“ þótti þeim sá skemmtilegasti og eftirminni- legasti. Slíkar minningar eru dýrmætar. Elsku Anna, hjartans þakkir fyrir allt sem þú gafst okkur í formi ástar og kærleika, allar gönguferðirnar og ferðalögin, allt fallega handverkið þitt, allar heimsóknirnar og hlýju móttök- urnar þínar. Þú tókst okkur öll í þinn mjúka faðm er við hitt- umst. Þá eru einnig minnisstæð- ar heimsóknirnar til þín í Breiðablik og einnig á hjúkr- unardeildina og allt góða spjallið yfir kaffi og konfekti. Við minnumst þín með trega og söknuði en vitum að nú ert þú komin á betri stað hjá ástvin- um þínum í Sumarlandinu. Þú ert sannarlega góð fyrirmynd okkar allra. Megi þér líða vel og þú njóta alls hins besta. Guð geymi þig. Elín Björk Hartmannsdóttir og fjölskylda. ✝ Bryndís Arnar- dóttir (Billa) fæddist á Akureyri 25. júní 1960 og ólst þar upp. Hún var dóttir Arnheiðar Kristinsdóttur tann- smiðs, f. 21. maí 1940, og Arnars Ragn- arssonar, brautryðj- anda, f. 17. febrúar 1932, d. 20. janúar 2001. Billa var elst þriggja systkina. Hin eru Birgir Örn Arnarson, f. 1961, og Ragnar Arnarson, f. 1964. Billa giftist Cees van de Ven og eiga þau þrjú börn, þau Össu Cornelisdóttur van de Ven, f. 1981, Henrik Cor- nelisson van de Ven, f. 1986 og og M.Ed. 2009 frá sama skóla. Billa helgaði sig myndlist og myndlistarkennslu. Hún kenndi við Hrafnagilsskóla 1982 til 1986, við Brekkuskóla 1987 til 1989 og færði sig svo um set til Verk- menntaskólans á Akureyri það sama ár. VMA varð hennar helsti starfsvettvangur þar sem hún starfaði sem listgreina- og lista- sögukennari til 2013 og kennslu- stjóri listnámsbrautar 2007 til 2010. Billa starfaði svo sem að- júnkt við University of Central Florida 2010 til 2018 þar sem hún kenndi kennslufræði listgreina. Hún starfaði einnig við gerð raun- færnimats hjá Símennt- unarmiðstöð Eyjafjarðar frá 2006 til 2020, sem forfallakennari við Naustaskóla 2018 til 2022 og sem framkvæmdastýra og kennari við Listfræðsluna frá 2013 til 2022. Sem listakona hélt Billa yfir 20 einka- og samsýningar. Útför hennar fór fram í kyrr- þey. Kristian Cornelis- son van de Ven, f. 1987. Billa átti tvö barnabörn, þau Ronju Axelsdóttur van de Ven, f. 2004, og Odin Lucas Cor- nelisson van de Ven, f. 2021. Billa lærði við Koninklijke Aka- demi voor Beel- ende Kunsten í Mechelen í Belgíu frá 1978 til 1979 og lauk eftir það B.Fa. frá málaradeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 1986. Síðan lauk Billa B.Ed. í uppeldis og kennslu- fræði við KHÍ 1992, diplómanámi í kennslufræði frá HA 2007 sem Billa systir kvaddi okkur eftir baráttu við illvígan sjúkdóm, sem staðið hafði yfir lengur en nokk- urn óraði fyrir. Henni var margt til lista lagt, þó áttu myndlistin og listasagan hug hennar allan fram- an af. Var hún óþreytandi að miðla af reynslu sinni og þekk- ingu við kennslustörf, bæði hér heima og erlendis. Betri frænku er vart hægt að hugsa sér fyrir börnin okkar. Er mér ofarlega í huga þegar hún bauð öllum frændsystkinum norður til að halda öskudaginn hátíðlegan. Veglegar voru mót- tökurnar að vanda, en einnig hafði hún saumað öskudagsbún- inga á allt liðið eins og henni einni var lagið. Það verður erfitt um næstu jól að geta ekki tekið upp símann og hringt í Billu til að leita ráða í glímunni við myndagáturnar, eins og undanfarin ár. Elsku Billa mín, þín verður sárt saknað. Birgir Örn Arnarson. Hvern hefði grunað að Billa systir myndi kveðja okkur minna en tveimur vikum frá því að við sátum saman í fallegu veðri í Sel- landi í afmæli Ragnars hennar. Við sátum úti og drukkum kaffi og borðuðum kökur, spjölluðum saman. Aðeins tveimur dögum eftir þennan yndislega dag var allt breytt. Billa var lögð inn á sjúkrahús og greind með krabba- mein stuttu síðar, baráttan tók enda á örfáum dögum sem er svo sorglegt. Eftir sitjum við sem elskuðum Billu systur og reynum að ná utan um að hún sé farin. Það var alltaf gott að leita til þín, þú varst alltaf tilbúin að hjálpa stelpunum mínum og eng- inn betri að fást við unglinga- gelgju en þú og leiðbeina þeim í öllum þessu erfiðu stelpumálum. Það sem þú skilur eftir þig fyr- ir utan góðmennsku eru öll fallegu listaverkin sem þú skap- aðir og við öll fengum að njóta, hæfileikar þínir voru ómetanleg- ir, allar þessar fallegu myndir sem þú málaðir, litavalið og sam- setningin einstök. Nú hafa allir þessi fallegu litir runnið saman og myndað einn dökkan jarðlit sem minnir okkur á hvaðan við komum og hvert við förum aftur þegar lífinu lýkur. Hvíldu í friði elsku Billa mín. Þinn litli bróðir, Ragnar Arnarson. Elsku Billa, uppáhaldsfrænka okkar, féll frá eftir stutt veikindi hinn 1. ágúst síðastliðinn. Billa var föðursystir okkar sem var alltaf til staðar fyrir okkur. Þegar við vorum yngri fórum við stund- um í heimsókn til hennar til Ak- ureyrar. Þar voru haldin stelpna- kvöld þar sem hún dekraði við okkur stelpurnar. Hún var með einstaka nærveru, jákvæð og allt- af ráðagóð, það var gott að leita til hennar þegar við lentum í stelpu- drama. Billa var húmoristi og gaf hún til dæmis Hugrúnu og Bryn- dísi Stellu naflahringi til að hefna sín á bræðrum sínum því að þeir höfðu gefið Rik og Kris box- hanska þegar þeir voru yngri. Billa var mikill fagurkeri og lista- kona, hún hjálpaði okkur öllum þegar mikið stóð til, til dæmis saumaði hún á okkur öskudags- búninga og hannaði fermingar- kort og servíettur fyrir ferming- arnar okkar. Þegar við vorum yngri var alveg sama hvað við teiknuðum; Billa hrósaði okkur alltaf og hvatti. Við vorum öll stórkostlegir listamenn í hennar augum. Billa fylgdist vel með því sem við tókum okkur fyrir hend- ur þegar við fórum að mennta okkur. Hún studdi okkur til dæm- is með því að aðstoða við að lesa yfir verkefni. Heimsóknirnar til Billu á Flórída voru dýrmætar. Þar var verslað, borðað, hlegið og notið í sólinni. Við munum geyma minning- arnar áfram í hjarta okkar, bless- uð sé minning Billu frænku okk- ar. Jónatan Birgisson, Kristrún Heiða Ragnarsdóttir, Bryndís Stella Birgisdóttir, Hugrún Lilja Ragn- arsdóttir, Guðrún Rebekka Ragnarsdóttir. Ljúf þú varst og listfeng sál leist á jákvæð gildi. Af þér gafstu, göfga sál gleði, kærleik, mildi. (EH) Elsku Billa mín. Þessi fáu orð lýsa þeirri einstöku manneskju sem þú varst. Þetta er sárt og sorglegt og veit ég ekki hvar ég á að byrja úr minningabankanum. Við höfum þekkst síðan við vorum sex ára, gengum saman í skóla og vorum í svokölluðum „gáfnabekk“ af því við vorum læsar. Leiðir okkar skildi í nokk- ur ár, en svo árið 2016 var ég svo lánsöm að fá þig til sumarstarfa sem leiðsögumaður í fyrirtækinu okkar. Þar varst þú miðjan í starfi okkar, alltaf samkvæm sjálfri þér, jákvæð, gerðir gott úr öllu og tilbúin í hvaða verkefni sem fyrir þig var lagt. Ferðirnar okkar voru alls konar; stundum stuttar en líka langar landshorna á milli, en alltaf varst þú í sama jákvæða jafnvæginu og tilbúin í allt. Á ferðum okkar ræddum við allt milli himins og jarðar og þá helst rifjuðum við upp gamla tíma, sem var ekki leiðinlegt, þeg- ar enginn annar heyrði til. Eftir samveru okkar síðustu ár á ég eftir að sakna þín elsku vinkona og allra myndanna sem við tókum af okkur saman. Billa mín, góða ferð í sumar- landið. Minnumst Billu sem sterkrar og yndislegrar konu sem aldrei mátti aumt sjá og talaði fallega um allt og alla. Ég votta öllum aðstandendum og vinum samúð mína og bið Guð að styrkja alla í sinni miklu sorg og söknuði. Þín vinkona, Anna Halla. Elsku Billa vinkona mín. Ég kveð þig og þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og kennd- ir mér. Þú varst mér dýrmætur vinur. Allt frá því að við eignuðumst okkar fyrstu börn árið 1981 tókst strax á milli okkar mikil og góð vinátta. Í gegnum árin og áratugina brölluðum við margt saman og áttum ansi margar stundir þar sem við skröfluðum fram á nótt og drukkum kaffi og reyktum. Við héldum áfram þessari spila- áráttu sem okkur fannst báðum skemmtileg enda vorum við komnar í fyrsta bridshópinn sam- an aðeins rúmlega tvítugar og vorum enn að í dag. Kannski aldr- ei bestar en skemmtum okkur konunglega. Vinnuferðirnar okkar saman erlendis í innkaup fyrir mig voru óborganlegar og ég mun ávallt geta yljað mér við þær góðu minningar. Að sama skapi var samvera okkar í Hollandi ásamt ungum dætrum okkar mér mikils virði og góð minning til að eiga. Billa, þú varst mér traustur vinur og ég reyndi ávallt að vera þér góð og traust vinkona. Þú stóðst alltaf við bakið á mér, sama á hverju gekk í mínu lífi, og hvatt- ir mig áfram með hjartahlýju og jákvæðum orðum. Hvatning þín leiddi mig áfram í myndlistina og án hennar hefði ég tæpast verið stödd þar sem ég er í dag. Fyrir það verð ég þér ætíð þakklát elsku Billa mín. Þú fékkst mig til að mála mitt fyrsta málverk fyrir einum 30 ár- um. Mynd sem enn hangir uppi hjá mér og verður um ókomna tíð, minning um þig. Myndlistarnám- skeiðið sem ég sótti hjá þér var mér mikill innblástur og sá ég þá hvað þú varst góður og skemmti- legur kennari. Sú samvera okkar gaf mér mikið, takk fyrir það Billa mín. Þín verður sárt saknað úr golf- hópnum okkar og þó svo við höf- um aldrei verið bestar, þá komum við alltaf glaðar í hús eftir erfiðan hring. Ég hafði stundum orð á því við vini okkar hvað mér fyndist þú vera gáfuð og dáðist að því í hvert skipti hvernig þú barst þig í hópi. Þú gast talað um alla hluti og hafðir kunnáttu um alla hluti. Þegar ég nefndi þetta við þig fórstu að hlæja og sagðir við mig: „Guja mín, ég veit smá um allt.“ Og þetta var svo líkt þér, þú gerðir aldrei of mikið úr sjálfri þér, alltaf hæversk. Ég mun sakna þín mikið elsku vinkona en við munum sjást síðar. Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Þín vinkona, Guðrún Jóhanns- dóttir (Guja Nóa). Bryndís Arnardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.