Morgunblaðið - 17.08.2022, Síða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022
70 ÁRA Erla Elín er Reykvíkingur
og ólst upp á Laugavegi 56. Hún er
stúdent frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð og lauk BA-námi í dönsku
og bókmenntafræði. Hún var dönsku-
kennari í Kvennaskólanum frá 1977
til 2016. Hún kenndi einnig stærð-
fræði og var bæði áfangastjóri og
brautarstjóri á tungumálabraut.
„Á námsárunum í MH og háskól-
anum vann ég mörg ár á hóteli í Dan-
mörku og svo hef ég verið á löngum
og stuttum námskeiðum þar. Ég er
búin að keyra um stóran hluta Evr-
ópu, ekki samt á Spáni eða Ítalíu,
bæði á mínum eigin bíl með Norrænu
og líka í bílaleigubíl. Ég hef þá heim-
sótt vini og kunningja. Ég á stóran vinahóp í útlöndum og hef reglulega sam-
band við þau. Þeim hef ég kynnst m.a. í gegnum starf mitt í Hallgrímskirkju,
t.d. organistum sem hafa haldið tónleika þar, og í gegnum skátastarfið.“
Erla Elín var tónleikastjóri í Hallgrímskirkju í 30 ár og er heiðursfélagi
Listvinafélagsins. Hún söng í Mótettukórnum frá 1982 til 2008. „Síðan hef ég
ekki sungið í kór, en hef sungið mikið áfram mér til skemmtunar.“ Erla Elín
er einnig mikil hannyrðakona. „Ég er búin að framleiða ógnar býsn t.d. af
vettlingum á litlu krakkana í fjölskyldunni og börn vina minna. Ég hef prjón-
að allt millli himins og jarðar, t.d. sjöl og peysur.
Árið 2019 fékk Erla Elín heilablóðfall og hefur búið á Droplaugarstöðum
síðan þá. „Ég get því miður ekki unnið neina handavinnu lengur, en ég horfi á
sjónvarpið, mest á dönsku og þýsku sjónvarpsstöðvarnar, og fer eins oft á
tónleika og ég get. Síðast fór ég á laugardaginn í Hallgrímskirkju með
Eyþóri Inga Jónssyni. Ég er bundin við hjólastól en kollurinn er í lagi. Það
skiptir aðalmáli.“
FJÖLSKYLDA
„Ég á engin börn og ólst upp hjá móður minni, en frændsystkini mín og
börn vina minna hafa verið mín börn.“ Foreldrar Erlu Elínar voru Brynhild-
ur Kjartansdóttir, f. 1920, d. 2007, stærðfræðikennari í Vogaskóla, og Hans
Andes Þorsteinsson, f. 1918, d. 2005, bifreiðarstjóri.
Erla Elín Hansdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Hikaðu ekki við að tjá vini þínum
skoðanir þínar á því sem hann leitar til þín
með. Þú ert fínn einn á báti – og frábær í
hóp.
20. apríl - 20. maí +
Naut Ekki hika við að tjá þín innstu leynd-
armál. Það eru oft einföldustu hlutir sem
vefjast mest fyrir manni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Sjálfsagi þinn og skipulagning
vekja aðdáun annarra. Reyndu að einbeita
þér að þeim verkefnum sem þú þarft að
leysa.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er ástæðulaust að troða öðrum
um tær þegar hægt er að ná takmarkinu
öðruvísi. Forðastu að dragast inn í deilur
annarra.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú getur lært eitthvað mikilvægt af
einhverjum í dag. Mundu að þolinmæðin
skiptir miklu máli og þú færð hana endur-
goldna þegar þér hentar.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Láttu ekki aðfinnslur samstarfs-
manna þinna draga úr þér kjarkinn. Einhver
sem truflar þig stöðugt þarf virkilega að ná
til þín.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Láttu einskis ófreistað til þess að koma
skoðunum þínum á framfæri við yfirmenn
þína. Reyni einhver að ráðskast með þig í
dag muntu taka það óstinnt upp.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Vertu óhræddur við að láta
óskir þínar uppi því eitt er að biðja fallega og
annað að heimta með frekju. Einhver gæti
gefið þér gjöf eða boðið þér eitthvað að láni.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Nú ferðu að uppskera árangur
erfiðis þíns bæði í einkalífi og starfi. Vertu
miskunnarlaus í mati þínu á því hvað henti
þér best og hlutirnir munu komast á hreint.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Flutningar eða breytingar á
starfshögum eru líklegar á næstunni. Hlut-
irnir eru fljótir að breytast og það kemur sér
vel að þú hefur mikla aðlögunarhæfni.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Láttu ekki undan minnstu löng-
un til lausungar í fjármálum því allt slíkt
hefnir sín grimmilega. Verkefni á heimilinu
gætu krafist athygli þinnar.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er einhver óreiða á hugsunum
þínum. Allt er breytingum háð og því skaltu
ekki blekkja sjálfan þig með því að þú sért
búinn að skipa málum til eilífðar.
í Stokkhólmi, og þá var nýbúið að
segja upp samningi mínum í Borgar-
leikhúsinu og ég ákvað að láta slag
standa. Ef ég kæmist ekki að í
sænsku leikhúsi þá fyndi ég mér eitt-
hvað annað að gera. En ég komst að í
leikhúsi hjá þessum leikstjóra sem ég
vann með hér heima.
mann í Fjandmanni fólksins, Arkadi
Nikolajvits í Feðrum og sonum, Pilat-
us í Jesus Christ Superstar, Solyoni í
Þremur systrum, Tinkarlinn í
Galdrakarlinum i Oz ásamt fjölda
annarra hlutverka í íslenskum leik-
ritum. Á þessum árum starfaði hann
einnig með Íslenska dansflokknum
og tók þátt í fjölmörgum dansleikhús-
uppfærslum, auk þess að starfa með
spunahópnum Follow the Fun í 7 ár.
„Ég hafði aldrei lært dans en var
frekar fýsískur, örugglega út af allri
íþróttaiðkuninni, og mér fannst þetta
skemmtilegt svo að ég var í mörgum
dansleikhúsuppfærslum.“
Lék í Svíþjóð
Björn Ingi starfaði í Svíþjóð 2010-
2015 og lék í yfir 600 sýningum á
sænsku, aðallega hjá Teater Pero í
Stokkhólmi, auk þess að leika í sjón-
varpsþáttunum Äkta människor sem
framleiddir voru af sænska ríkissjón-
varpinu (SVT). „Ég hafði unnið með
sænskum leikstjóra hér heima en
kunni ekkert meira í sænsku en hver
annar Íslendingur. Konan mín fékk
starf við að kenna í Listaháskólanum
B
jörn Ingi Hilmarsson er
fæddur 17. ágúst 1962 á
Dalvík. Hann ólst þar
upp og bjó þar þangað
til hann fluttist til
Reykjavíkur árið 1986. Hann dvaldi
oft á sumrin hjá föðurafa sínum og
-ömmu í Saurbæ í Eyjafjarðarsveit.
„Ég byrjaði að vinna í frystihúsi á
Dalvík 12 ára og var kominn í bygg-
ingavinnu 14 ára. Ég var mikið í
íþróttum og æfði aðallega fótbolta og
handbolta,“ segir Björn Ingi. Hann
var aðeins 16 ára þegar hann fór að
spila í meistaraflokki með Leiftri og
síðan Dalvík og í handboltanum spil-
aði hann með KA í meistaraflokki.
Björn Ingi lauk grunnskólanámi í
Dalvíkurskóla, fór í eitt ár í fram-
haldsskóla, sem var undirbúnings-
nám fyrir Íþróttakennaraskóla Ís-
lands, í Héraðsskólanum á Laugar-
vatni en hætti eftir þann vetur. Hann
fór á samning í bakaríinu á Dalvík og
lauk sveinsprófi í bakaraiðn frá Iðn-
skólanum á Akureyri árið 1983. Hann
hóf leikaranám 1986 og útskrifaðist
sem leikari frá Leiklistarskóla Ís-
lands árið 1990. „Ég ætlaði alltaf að
verða íþróttakennari en var kominn
með námsleiða þegar ég var í undir-
búningsnáminu. Svo benti mamma
mér á að prófa bakarann og ég ákvað
bara að gera það. Þegar ég var að
klára það nám var ég byrjaður að
leika í áhugaleikfélaginu á Dalvík og
þá var ljóst hvert hugurinn stefndi.
Ég vann samt í þrjú ár sem bakari,
ætlaði fyrr í inntökuprófið í leiklist-
arskólann en hálsbrotnaði á skíðum.“
Eftir útskrift starfaði Björn Ingi
sjálfstætt sem leikari í sex ár, bæði í
Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu
og á fleiri stöðum. „Á þessum árum
lék ég m.a. Loka sögumann í heims-
uppfærslu Íslensku óperunnar á Nifl-
ungahringnum á Listahátíð 1994.“
Björn Ingi var fastráðinn við
Borgarleikhúsið 1996-2008, en var
sjálfstætt starfandi næstu tvö árin,
þ.e. til ársins 2010. Á þessu tímabili
lék hann yfir 70 hlutverk á sviði. Með-
al þeirra eru: Richard Hannay í 39
þrepum, Biff í Sölumaður deyr, Stan-
ley í A Streetcar Named Desire,
Pozzo í Beðið eftir Godot, Bill Calho-
un í Kysstu mig Kata, Pétur Stokk-
Svo vorum við konan mín stödd í
sumarbústað hjá tengdaforeldrum
mínum í Borgarfirði. Það var dæmi-
gerð falleg íslensk sumarnótt og við
vorum bæði að hugsa það sama án
þess að tala um það, hvað það væru
mikil lífsgæði að vera á Íslandi. Svo
kom í ljós nokkrum dögum seinna að
við höfðum verið að hugsa um það
sama þegar við fórum að tala um það.
Það var annað hvort að setjast að úti
og kaupa okkur íbúð eða koma heim,
og við ákváðum að koma heim.“
Fyrsta verkefni Björns Inga eftir
heimkomuna var í uppfærslu Annars
sviðs og Norræna hússins á danska
verðlaunaleikritinu Enginn hittir ein-
hvern, sem sýnt var á Akureyri, í
Reykjavík og Færeyjum, en leikið
var á færeysku. „Ég ætlaði ekkert í
leikhúsin aftur, hafði verið í lausa-
mennsku, en þetta verkefni kveikti
svo mikið í mér að ég ákvað að reyna
að komast inn í leikhúsin. Ég kom
með ákveðna hugmynd frá Svíþjóð og
langaði að búa til leiksýningar fyrir
börn til að fara með í leikferðalög og
kynnti þá hugmynd fyrir Ara Matt-
híassyni, þáverandi Þjóðleikhús-
stjóra.“
Vorið 2016 hóf Björn Ingi svo störf
við Þjóðleikhúsið að nýju. Hann starf-
aði sem forstöðumaður barna- og
fræðslustarfs Þjóðleikhússins þar til
það starf var lagt niður árið 2022, auk
þess að leika og leikstýra. Á þessu
tímabili leikstýrði hann eftirfarandi
leiksýningum: Lofthræddi örninn
hann Örvar, Oddur og Siggi, sem var
tilnefnd til Grímuverðlauna, Ég get,
sem var einnig tilnefnd til Grímu-
verðlauna, Ómar orðabelgur og
Vloggið. Þá leikstýrði hann einnig
Ronju ræningjadóttur í Þjóðleikhús-
inu í Nuuk á Grænlandi. Auk þess
vann Björn Ingi sem leikari á þessu
tímabili í eftirtöldum sýningum:
Ronju ræningjadóttur, Sjeikspír
verður ástfanginn, Meistaranum og
Margarítu og Kafbátnum, sem var
nýtt íslenskt barnaleikrit.
Að auki hefur Björn Ingi leikið í
yfir 20 sjónvarpsþáttum og kvik-
myndum, m.a. sjónvarpsþáttunum:
Katla, Ófærð 2, Stella Blómkvist,
Fangar, Mannasiðir, Sigla himinfley;
Kvikmyndir: Hvítur, hvítur dagur,
Björn Ingi Hilmarsson leikari og leikstjóri – 60 ára
Strákarnir Björn Ingi ásamt sonum sínum og barnabarni.
Fallega íslenska sumarnóttin
Morgunblaðið/Kristinn
Í Borgarleikhúsinu Eggert Þor-
leifsson og Björn Ingi sem feðgar
árið 1998 í verkinu Feður og synir.
Til hamingju með daginn