Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
chicaco sun times
New york times
Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum
Jo Koy í aðalhlutverki
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Í gömlu kartöflugeymslunum í Ár-
túnsbrekku lifir sumarið góðu lífi en
einnig veturinn, vorið og haustið.
Þar hefur myndlistarmaðurinn Pét-
ur Geir Magnússon opnað sína aðra
sýningu með lágmyndum, Annars
konar Annaspann sem saman-
stendur af 40 verkum. Eru lágmynd-
irnar nokkurs konar upplifun Péturs
á árstíðunum eftir að hann fékk
óvæntan áhuga á trjám, blómum og
öðrum gróðri þegar hann flutti til
Stokkhólms síðasta haust.
Pétur kveðst hafa nýtt sér sænska
skóglendið mikið og það komið hon-
um skemmtilega á óvart hversu
langt haustið er í Svíþjóð. „Það eru
ekki bara gul lauf fyrir hádegi og síð-
an stormur eftir hádegi eins og hér
heima,“ gantast Pétur. Gul, brún og
rauð lauf hafi umvafið hann vikum
saman, enda Stokkhólmur nokkurs
konar „borg í skógi“ og haustlitirnir
áberandi fram í seinni hluta október.
Áhugaverð lágmynd Sigurjóns
Pétur sýnir blaðamanni tvö verk
sem svipuð eru ásýndum, hið fyrra í
haustlitum með sporöskjulaga lauf-
blöðum á víð og dreif en í hinu eru
litirnir breyttir: Fyrsti snjórinn.
„Hérna er veturinn kominn.“
Spurður hvers vegna unnið sé með
lágmyndir segir Pétur söguna langa
bak við þann áhuga.
„Föðurbróðir minn bjó í Engi-
hjalla 11 og á blokkinni var stór lág-
mynd eftir Sigurjón Ólafsson. Þegar
ég sá hana sem krakki þá fannst mér
hún svo áhugaverð og skildi ekki af
hverju þetta væri ekki á fleiri hús-
um. Svo fór ég að taka eftir lág-
myndum á fleiri húsum og þetta æxl-
aðist hálfpartinn þannig að ég fór í
feluleik við sjálfan mig. Fór að koma
auga á þær hér og þar.“
Þegar Pétur fékk myndavélasíma
byrjaði hann að taka myndir af þeim
og mörgum árum síðar, í grafískri
hönnun í LHÍ, fór hann að kafa í
sögu steinsteypulágmynda á Íslandi
og gerði sína eigin lágmynd sem út-
skriftarverkefni. „Ég vildi fá þessa
dýpt inn í verkin. Ég færði mig úr
steypunni yfir í viðinn til að gera
þetta listform aðgengilegra,“ segir
Pétur.
Tré beint í æð
Tré voru Pétri hugleikin þegar
hann flutti og það sést. „Maður upp-
lifir ekki tré alveg á sama skala hér
heima. Þetta eru bara skógar og
skógar og skógar þarna úti. Þetta er
alveg nýtt fyrir mér.“
Pétur segir veturinn einnig frá-
brugðinn hinum stormasama ís-
lenska. „Það er bara snjókoma í
logni. Þetta fellur og sest og það get-
ur verið snjólag á trjánum í þrjá,
fjóra daga.“
Eitt vetrarverk er þó óður til
gulra viðvarana hér heima. „Hérna
ertu kominn í hvössu trjáhríslurnar
sem eru hér á fullu,“ segir Pétur og
ber hið litla hvassa íslenska tré sam-
an við hin mjúku og stóru sænsku.
Pétur bendir því næst á fyrstu vor-
verkin þar sem sjónarhornið er fært
úr skógunum og inn fyrir. „Farfugl-
inn við Frihamnen er fyrsta vorverk-
ið. Þar eru seglbátar og alls konar ys
og þys og ég horfi oft þar yfir meðan
ég vinn.“ Pétur bendir á hvítt, kunn-
uglegt form. „Hér er kría, þær eru
ekki í Svíþjóð,“ segir hann og ber
verkið því vott af heimþrá. Pétur
heldur áfram með vorið. „Maður var
byrjaður að kaupa blóm, setja nátt-
úruna á borðstofuborðið þegar mað-
ur var orðinn spenntur fyrir gróðr-
inum.“
Verkið Gluggaveður sýnir sól úti í
glugga, þótt enn sé kalt. „Maður er
enn þá á Norðurlöndunum,“ segir
hann og hlær. „Maður þarf alveg enn
þá að vera í jakka þegar maður fer
út.“
Vorið heldur áfram og myndirnar
taka að blómstra á ný. „Þessi heitir
Vorið ilmar. Maður finnur að það er
lykt í loftinu.“
-Og hér er enn þá vetur heima,
ekki satt?
„Jú, nákvæmlega. Það sem við
köllum íslenskt sumar er bara
sænskt vor. En hérna kom ég heim,“
segir hann og gengur inn í hið ís-
lenska sumar.
Illgresið sumarið
„Það mætti eiginlega segja að
þetta sé eitt stærsta pólitíska verk
sem ég hef gert sem listamaður.
Annað hvort elskar fólk þetta eða
gjörsamlega hatar þetta,“ segir Pét-
ur um lúpínuna, fyrsta íslenska sum-
arverkið. Myndin er fjólublá með
grænum fræbelgum. „Það sem gerir
íslenskt sumar fyrir mér er í raun-
inni illgresið.“
Gengið er frá fjólubláu verkinu og
að öðru illgresi, gulu og sumarlegu.
„Fífillinn er bara geggjaður. Hann
gerir Ísland gult og sumarlegt. Hann
er smá svona „icon“. Pétur segir erf-
itt að finna íslenskara blóm en fífil-
inn, enda sé hann þrjóskur og harður
af sér. „Hann er á einhverju bíla-
stæði og ætlar bara að vaxa. Alveg
sama þótt það sé ógeðslega kalt og
blautt, hann ætlar að vaxa þótt það
sé einhver búinn að keyra á hann. Al-
vöru Íslendingur. Það ætti klárlega
að upphefja hann.“ Pétur staldrar
við. „Við mættum jafnvel setja hann
á frímerki.“
Síðasta myndin er tileinkuð
skjálftahrinunni sem reið yfir
Reykjanesið í aðdraganda gossins.
„Ég er búinn að vera dauðhræddur
heima hjá mér útaf öllum þessum
skjálftum,“ segir Pétur um skjálf-
andi myndina og hlær. „Ég er bara
með ógeðslega mörg listaverk og
mæti heim til mín og þori varla inn.“
Svo hræddur hafi hann verið um
verkin.
Íslenska sumrinu lýkur og jafn-
framt hringnum í kringum sólina.
„Ég vil að fólk komi á sýninguna og
upplifi eitt ár. Og hér erum við kom-
in hringinn,“ segir hann og minnir á
fyrstu myndina: Síðla sumars.
Sýningin er opin frá kl. 14 til 20
alla daga fram á sunnudag. Pétur fer
aftur til Stokkhólms í haust þar sem
hann stefnir á að halda sýningu að
ári liðnu.
Lágmyndasmiður Pétur við nokkur verka sinna á sýningunni.
Með lágmyndir á heilanum
- Önnur sýning Péturs Geirs Magnússonar með lágmyndum - Með gróður
á heilanum - Árstíðir í kartöflugeymslum - Verkin unnin í tveimur löndum
Kvartett Barkar
Hrafns Birgis-
sonar heldur tón-
leika á Jazzhátíð
Reykjavíkur í
dag kl. 17 í Ráð-
húsi Reykjavík-
ur. Hljómsveitin
mun flytja frum-
samda tónlist af
væntanlegri
plötu sem nefnist Bara blús. sem er
fyrsta frumsamda djassplata Bark-
ar Hrafns og væntanleg á vínil og á
streymisveitur í haust. Uppistaðan
á plötunni er blúsformið. „Meiri-
hluti dægurtónlistar frá upphafi á
uppsprettu sína úr brunni blústón-
listar,“ segir í tilkynningu og að
tímabilið sem höfundur sé sérstak-
lega að skoða séu gítar- eða hljóð-
færaleikarar 6. og 7. áratugarins
sem að mati hans hafi verið ein-
staklega smekklegir í samruna
blúss og djass. Ásamt Berki eru í
kvartettinum Daði Birgisson, Scott
McLemore og Kjartan Hákonarson.
Börkur Hrafn
Birgisson
Bara blús á tón-
leikum Jazzhátíðar
Bandaríska
kvikmyndaaka-
demían, sem
hefur umsjón
með og veitir
Óskarsverðlaun-
in, bað í vikunni
Sacheen Little-
feather form-
lega afsökunar á
þeim árásum
sem hún varð
fyrir eftir að hafa flutt fræga
ræðu sína á verðlaunaathöfninni
árið 1973. Þá afþakkaði hún verð-
laun fyrir hönd leikarans Marlons
Brandos. Vildi Brando með því
sýna réttindabaráttu frumbyggja
Norður-Ameríku stuðning. Í ræðu
sinni sagði Littlefeather illa farið
með afkomendur frumbyggja við
gerð kvikmynda og sjónvarpsefnis
í Bandaríkjunum og vakti um leið
athygli á fjöldamorðum á slíku
fólki í sögu landsins. Varð Little-
feather fyrir miklu aðkasti í kjöl-
farið. Hefur akademían nú beðið
hana afsökunar og hrósað henni
fyrir hugrekkið sem hún sýndi
fyrir um hálfri öld.
Afsökunarbeiðni
50 árum síðar
Sacheen Little-
feather árið 2010.