Morgunblaðið - 17.08.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 17.08.2022, Síða 28
Opið: 11-18 virka daga www.alno.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is Verið velkomin í sýningarsalinn að Suðurlandsbraut 26 innlifun.is Við hönnum DRAUMAELDHÚSIÐ EFTIR ÞÍNU HÖFÐI Frelsissveit Íslands kemur ásamt finnska píanistanum Kari Ikonen fram á Jazzhátíð Reykjavíkur í kvöld í Norður- ljósum Hörpu kl. 20. Frelsis- sveitin var stofnuð 2010 af Hauki Gröndal saxófónleik- ara. Hún kom síðast fram á Jazzhátíð Reykjavíkur 2020 og flutti þá verkið „Four ele- ments“ eftir Hauk, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2021 fyrir verkið, auk þess sem sveitin var verðlaunuð fyrir flutning sinn. Á efnisskrá kvöldsins verða ný verk og útsetningar eftir Hauk. Auk Ikonen og Hauks koma fram Snorri Sigurðarson á trompet, Samúel J. Samú- elsson á básúnu, Guðmundur Pétursson á gítar, Pétur Grétarsson á slagverk, Birgir Steinn Theódórsson á bassa, Magnús Trygvason Elíassen á trommur og Sverr- ir Guðjónsson raddlistamaður sem er sérstakur vernd- ari Frelsissveitarinnar. Frelsissveit Íslands í Hörpu í kvöld MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 229. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Gunnar Ólafsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, er genginn til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Frys- huset í Stokkhólmi eftir þrjú ár í herbúðum Stjörn- unnar í Garðabæ. Gunnar, sem er 29 ára gamall, hefur verið lykilmaður í liði Garðbæinga undanfarin tímabil. Þetta er í annað sinn sem leikmaðurinn reynir fyrir sér í atvinnumennsku. Hann lék í skamman tíma með spænska B-deildar- félaginu Oviedo árið 2019 en hann gekk til liðs við spænska félagið frá Keflavík. »23 Gunnar í sænsku úrvalsdeildina ÍÞRÓTTIR MENNING Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Best er að fara út í sveppamó þrem- ur til fjórum dögum eftir góða rign- ingu, því þá má búast við að sveppir hafi sprottið upp og um að gera að næla sér þannig í nýja og ferska upp- skeru,“ segir Guðríður Gyða Eyjólfs- dóttir, sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands á Ak- ureyri. Nú er sá árstími sem gott er að tína og safna matsveppum en þeir eru bæði hollir og góðir. „Í raun dugar að þekkja eina eða tvær tegundir matsveppa til að vera vel settur með vetrarforða, hvort sem fólk þurrkar eða frystir sveppi. Þegar fólk fer í sveppamó þarf það að vita hvað það er að gera, hafa hugann við efnið og taka enga áhættu. Ef maður veit ekki hvaða svepp maður er með, þá er best að sleppa því að borða hann. Eitraðir sveppir geta farið illa með fólk, til dæmis garðlumma, Paxillus involu- tus, sem ber í sér tvenns konar eitur- efni. Ég mæli með að fólk haldi sig við það sem það þekkir og að hafa hráefnið ungt og hresst, því það er hægt að fá matareitrun af góðum matsveppum ef þeir eru of gamlir og fullir af bakteríum.“ Guðríður Gyða segir að sveppirnir hafi verið lengi að þetta sumarið. „Þeir byrjuðu snemma og komu sumir upp strax fyrripart júlímán- aðar, en það er ekkert of seint að fara í sveppamó og tína sveppi til matargerðar, svo lengi sem ekki frýs. Auðveldast er að safna lerki- sveppum og furusveppum, en þeir eru pípusveppir með svampkennt lag undir hattinum. Ég mæli með að fólk fletti upp myndum af þessum tveimur sveppum til að þekkja þá í leit sinni. Til dæmis er lerkisveppur með gult pípulag en furusveppur með fölgult. Furusveppur er með frekar súkkulaðibrúnan hatt, ef hann er ungur. Hann vex með furu, þannig að ef fólk finnur furu þá er möguleiki að finna furusvepp eins langt frá furunni og rótarkerfi henn- ar nær, sem getur verið þó nokkrir metrar. Líkami sveppsins er bund- inn við ræturnar á trjánum en það sem við köllum svepp er aldinið,“ segir Guðríður Gyða og bætir við að eðli málsins samkvæmt sé lerki- sveppur tengdur lerki. „Mikið er af honum á Norður- og Austurlandi, því þar hefur lerki verið plantað, en minna hefur verið rækt- að af lerki á Suður- og Vesturlandi. Eitthvað af lerki ætti að finnast í Heiðmörk, en auðvelt ætti að vera að finna furusveppi á höfuðborgar- svæðinu.“ Guðríður Gyða segir að í blönduðum skógum geti allt verið í hrærigraut, þar vaxi sambýlis- sveppir margra trjáa á einu bretti. „Sveppir vaxa líka í graslendi, til dæmis alls konar gorkúlur sem eru belgsveppir og þá má borða meðan þeir eru hvítir að innan. Þegar þeir skipta yfir í gorfasa þá er of seint að tína þá, því þá eru þeir óætir og bún- ir að þroska afkvæmin of mikið. Tún- kempa vex líka á gömlu graslendi, en hún er næsti bær við ræktuðu kemp- una Flúðasvepp sem allir þekkja. Einnig vex ullblekill á graslendi, en hann er hár og myndarlegur sveppur sem verður að klessu þegar hann eldist, lekur niður sem svartur vökvi. Meðan hann er ungur og hatturinn fastur við stafinn, þá er hann klassa- góður matsveppur,“ segir Guðríður Gyða og bætir við að fólk þurfi að gæta að því hvort umhverfið þar sem sveppurinn vex hafi verið mengað. „Forðast ber að tína sveppi við hrað- brautir eða miklar umferðargötur, því líkami sveppa er ofan í jörðinni og það sem sígur ofan í hana getur átt leið inn í þann líkama og birtist síðan uppi á yfirborðinu þegar sá lík- ami framleiðir afkomendur sína, sem við tínum til matar,“ segir Guðríður Gyða sem var með sveppanámskeið í Hallormsstaðaskóla þegar í hana náðist til spjalls, en þar hélt hún fyrirlestur, fór út að tína sveppi og kenndi verkun og matreiðslu. „Smjörsteiktir og rjómalagaðir sveppir ofan á brauð eru lostæti.“ Best að taka enga áhættu við sveppatínslu - Dugar að þekkja eina eða tvær tegundir matsveppa Morgunblaðið/Golli Sveppafræðingur Guðríður Gyða alsæl við sveppatínslu í skóglendi. Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Lerkisveppir Góðir og auðþekktir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.