Morgunblaðið - 06.12.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.12.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ RALPH FIENNES NICHOLAS HOULT ANYA TAYLOR-JOY Painstakingly Prepared. Brilliantly Executed. FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO KOMIN Í BÍÓ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI USA TODAY ENTERTAINMENT WEEKLY EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post 84% SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD REPORTER 91% 71% Tilkynnt var í gær hvaða níu bækur eru tilnefndar til Fjöruverðlaun- anna 2023 – bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi í ár. Dómnefndir tilnefndu bækur í þremur flokkum, þ.e. fræðibækur og rit almenns eðlis, barna- og unglingabókmenntir og fagurbók- menntir. Fræðibækur og rit almenns eðlis Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru tilnefndar bækurnar: Á sporbaug. Nýyrði Jónasar Hallgríms- sonar eftir Önnu Sigríði Þráins- dóttur og Elínu Elísabetu Einars- dóttur sem Sögur útgáfa gefur út; Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 eftir Kristínu Svövu Tóm- asdóttur sem Sögufélagið gefur út og Vegabréf: Íslenskt. Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sem Mál og menning gefur út. Dómnefnd skipuðu Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur, Sigrún Helga Lund tölfræðingur og Sigrún Birna Björnsdóttir fram- haldsskólakennari. Í umsögn dómnefndar um bók Önnu og Elínar segir að þær hafi unnið „sannkallað þrekvirki við kortlagningu nýyrða þjóðskáldsins og þýðandans Jónasar Hallgríms- sonar. Í bókinni Á sporbaug. Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar fá lesendur að kynnast uppruna orðanna og notkun þeirra í dag. […] Bókin er einstaklega vel unnin, eiguleg og mikill fengur fyrir öll sem unna íslenskri tungu.“ Um Farsótt segir að þar reki Kristín sögu hússins við Þingholts- stræti 25, „sem umfram allt er litrík saga fólksins sem húsið hýsti og samfélagsins sem skóp það“. Minnt er á að húsið eigi sér viðburða- ríka sögu sem „fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga, farsóttarspítali, geðsjúkrahús og gistiskýli fyrir heimilislausa“. Um Vegabréf: Íslenskt segir að Sigríður bjóði „lesandanum að slást í för með sér vítt og breitt um heim- inn“. Bókin sé „einlæg og nærgætin frásögn frá ferðalögum hennar til svæða sem bera djúp ör einræðis- stjórna og hernaðarátaka“. Barna- og unglingabókmenntir Í flokki barna- og unglingabók- mennta eru tilnefndar bækurnar: Kollhnís eftir Arndísi Þórarins- dóttur sem Mál og menning gefur út; Bronsharpan eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur sem Björt bókaút- gáfa gefur út og Héragerði. Ævintýri um súkkulaði og kátínu eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur sem Salka gefur út. Dómnefnd skipuðu Anna Þor- björg Ingólfsdóttir lektor í íslensku og íslenskufræðingarnir Brynja Helgu Baldursdóttir og Guðrún Richter. Í umsögn dómnefndar um Kollhnís kemur fram að hinn ungi Álfur fimleikastrákur sé ekki jafn áreiðanlegur sögumaður og virðist við fyrstu sýn, „enda neitar hann að horfast í augu við að litli bróðir hans sé einhverfur, að frænka hans eigi við fíknivanda að etja og að besti vinur hans sé lesblindur. […] Sagan er í senn áhrifamikil, skemmtileg og spennandi en fyrst og fremst full af hlýju og mennsku. Um Bronshörpuna, sem er önnur bókin í bókaflokknum Dulstafir, segir: „Sagan gerist í ókunnum heimi þangað sem nokkur ung- menni hafa verið kölluð til að bjarga honum frá tortímingu. […] Sagan er margræð og spennandi fantasía um baráttu góðs og ills en ekki síst um gildi vináttu og samstöðu.“ Um Héragerði, sem er sjálfstætt framhald Grísafjarðar sem kom út í fyrra, segir: „Höfundi tekst vel að draga upp mismunandi persónuleika tvíburanna sem gerir söguna dýpri og auðveldar mismunandi lesendum að sam- sama sig söguhetjunum. Sagan er bráðskemmtileg og fyndin og þar lFjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi voru fyrst veitt árið 2007lÆtlað að vekja athygli á og hampa bókum kvenna Níu bækur tilnefndar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundar Mikil ánægja ríkir meðal kvennanna sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna árið 2023. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is leika líflegar og litríkar myndir Lóu Hlínar stórt hlutverk.“ Fagurbókmenntir Í flokki fagurbókmennta eru tilnefndar bækurnar: Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur sem Bene- dikt bókaútgáfa gefur út; Urta eftir Gerði Kristnýju sem Mál og menn- ing gefur út og Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur sem JPV útgáfa gefur út. Dómnefnd skipuðu bókmennta- fræðingarnir Dagný Kristjánsdóttir og Júlía Margrét Sveinsdóttir og sagnfræðingurinn Kristín Ástgeirs- dóttir. Í umsögn dómnefndar um Eden segir að bókin fjalli „um málvísinda- konu og háskólakennara sem kaupir sér sumarhús nálægt ótilgreindu þorpi til að búa sér persónulegt athvarf. Það reynist erfitt að einangra sig, ástsjúkt ungskáld herjar á hana og þorpsbúar vilja virkja krafta hennar á marga ólíka vegu. Og nú ber hún líka ábyrgð á jarðarskika. Bókin er full af hlýrri íroníu og gagnrýni á þá sem svæfa samvisku sína og ganga burt frá því sem þeim hefur verið trúað fyrir.“ Um Urtu segir að hér sé á ferðinni „ljóðabálkur um líf konu á mörkum hins byggilega heims við norður- skaut. Ljóðin lýsa heimi þar sem eins dauði er annars brauð. Þrátt fyrir miskunnarleysið tengir þráður samkenndar og samstöðu mæður sem hunsa mörkin milli manns og dýrs, menningar og náttúru. Urta er ort af fágætri stílsnilld. Hún er fág- að, lágmælt listaverk, ljóðabálkur sem rúmar bæði dýptir og víddir.“ Um Tól segir að sögð sé saga kvikmyndagerðarkonu sem vinnur að heimildarmynd um ógæfumann sem hún eitt sinn þekkti. „Hún er krafin um afstöðu til persónanna í myndinni en vitandi að „sögur eru vopn“ neitar hún að útdeila sekt og sakleysi og nota þau tól sem tiltæk eru gegn sínum minnsta bróður. Djúphugsað og margslungið skáldverk í samtali sínu við sam- visku og samkennd.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.