Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 27
VÍS-bikar karla
16-liða úrslit:
Njarðvík – Haukar.................................. 88:84
Njarðvík mætir Keflavík í 8-liða úrslitum.
1. deild karla
Hamar – Hrunamenn ........................... 108:76
Staðan:
Álftanes 11 10 1 1018:935 20
Sindri 11 8 3 1016:901 16
Hamar 10 7 3 946:861 14
Selfoss 11 7 4 1021:900 14
Hrunamenn 11 5 6 1042:1089 10
Ármann 10 5 5 901:886 10
ÍA 11 5 6 921:991 10
Skallagrímur 11 4 7 970:956 8
Fjölnir 11 3 8 941:993 6
Þór Ak. 11 0 11 814:1078 0
NBA-deildin
New Orleans – Denver......................... 121:106
San Antonio – Phoenix......................... 95:133
Brooklyn – Boston................................. 92:103
Detroit – Memphis ............................... 112:122
New York – Cleveland............................. 92:81
Washington – LA Lakers..................... 119:130
Sacramento – Chicago......................... 110:101
Portland – Indiana................................ 116:100
Olísdeild karla
Selfoss – FH.............................................. 32:37
ÍR – Fram................................................... 27:31
Staðan:
Valur 12 11 0 1 415:342 22
FH 12 8 2 2 366:350 18
Afturelding 12 7 2 3 363:339 16
Fram 13 6 3 4 388:381 15
ÍBV 12 6 2 4 401:372 14
Stjarnan 12 5 3 4 353:343 13
Haukar 12 5 1 6 363:347 11
Selfoss 12 5 1 6 353:366 11
Grótta 11 3 3 5 302:302 9
KA 12 3 3 6 346:364 9
ÍR 12 2 1 9 334:403 5
Hörður 12 0 1 11 354:429 1
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
Rúnar er
akkúrat rétti
maðurinn
Ljósmynd/Leipzig/Karsten Mann
SigurbrautViggó Kristjánsson hefur leikið afar vel með Leipzig í Þýska-
landi eftir að Rúnar Sigtryggsson tók við og liðið fór á sigurbraut.
lViggó og félagar á sigurbraut eftir
ráðningu RúnarslSpenntur fyrir HM
ÞÝSKALAND
Jóhann Ingi Hafþórsso
johanningi@mbl.is
n
Viggó Kristjánsson, landsliðs-
maður í handbolta, og samherjar
hans í þýska liðinu Leipzig unnu
sinn fimmta sigur í röð í þýsku
1. deildinni er liðið vann stórlið
Flensburg á heimavelli, 31:30, á
sunnudag. Liðið vann aðeins einn af
fyrstu tíu leikjum sínum í deildinni
og var André Haber því vikið frá
störfum. Rúnar Sigtryggsson var
ráðinn í hans stað og hefur Leipzig
unnið alla fimm leiki sína undir
stjórn Rúnars.
„Þetta var orðið helvíti þungt.
Með hverjum sigri verður léttara
á mönnum og þeir hafa meiri trú á
sér og liðinu. Klefinn er allt annar
og þetta er miklu skemmtilegra,“
sagði Viggó í samtali við Morgun-
blaðið. Hann skoraði sigurmark
Leipzig gegn Flensburg á síðustu
sekúndunum.
Skoraði sigurmarkið
„Ég er mjög ánægður með þetta.
Við vorum yfir eiginlega allan tím-
ann og vorum nánast með unninn
leik. Svo breyta þeir í sjö á sex,
skora í nánast hverri einustu sókn
og úr varð spenna. Ég ætlaði að
fara á Simon Hald og skjóta nokkuð
óvænt, á meðan hann bjóst við að
ég myndi senda boltann áfram. Svo
var auðvitað einhver heppni í þessu
líka. Ég náði ekki mínu besta skoti,
en boltinn lak inn,“ sagði Viggó um
sigurinn og sigurmarkið.
Hann segir innkomu Rúnars hafa
gert mikið fyrir Leipzig, enda liðið
búið að vinna alla sína leiki frá því
Akureyringurinn tók við.
„Auðvitað var svekkjandi þegar
gamli þjálfarinn var rekinn. Ég
kunni vel við hann, en það var samt
nauðsynlegt að breyta til. Rúnar
var akkúrat rétti maðurinn fyrir
okkur. Hann hefur ekki komið með
neina töfralausn, heldur fært ró yfir
mannskapinn. Hann hefur einfaldað
leikinn okkar.
Rúnar verið frábær
Við erum ekki lengur með 20
kerfi í hverjum leik, heldur bara
nokkur kerfi og leikurinn okkar er
einfaldari. Við hlaupum miklu hrað-
ar fram á við líka og erum á meðal
bestu liða í deildinni í því núna.
Rúnar er ekki að flækja hlutina,
heldur kemur inn með ró og sína
reynslu. Hann var leikmaður lengi
og hefur þjálfað lengi. Hann hefur
verið frábær,“ sagði Viggó, sem er
uppalinn hjá Gróttu.
Hlutverk Viggós hefur stækkað
eftir að Rúnar tók við og byrjar
íslenski landsliðsmaðurinn alla
leiki. Hann hefur skorað 40 mörk í
fyrstu fimm leikjum Rúnars og er
langmarkahæstur í liðinu í vetur.
„Rúnar hefur frá fyrsta leik haldið
sig við sína sjö á meðan þjálfarinn
á undan var með nýtt byrjunarlið
í hverjum einasta leik. Hlutverkið
mitt er orðið eins og ég óskaði mér
þegar ég skipti yfir. Hlutverkið mitt
núna er svipað því og það var þegar
ég var hjá Stuttgart.“
Viggó skipti yfir til Leipzig fyrir
þessa leiktíð eftir gott gengi með
Stuttgart í tvö ár á undan. Var það
í annað sinn sem Viggó gekk í raðir
Leipzig, en hann lék með liðinu í
nokkra mánuði fyrir þremur árum.
„Ég kem til þeirra á sínum tíma
vegna meiðsla leikmanna, það var
tímabundið. Ég fer síðan frá þeim,
en það var allt gert í góðu og við
héldum sambandi. Ég spring svo
út hjá Stuttgart og þá heyra þeir í
mér og vildu ólmir fá mig aftur. Þeir
sýndu mér mikinn áhuga og það
var gengið frá þessu snemma, en
ég samdi við þá rúmu ári áður en
ég kom til þeirra. Mér fannst þetta
spennandi og spennandi að keppa
um Evrópusæti,“ útskýrði Viggó.
Miklar væntingar á HM
Viggó og félagar leika þrjá leiki
til viðbótar á þessu ári og svo tekur
við heimsmeistaramótið í Svíþjóð.
Leikmaðurinn viðurkennir að hann
sé spenntur fyrir stórmóti með
landsliðinu.
„Maður finnur að umfjöllunin er
alltaf að aukast og það styttist í
þetta. Maður vill halda sér heilum
og vera ferskur þegar kemur að
þessu. Við tökum tvo æfingaleiki við
Þjóðverja fyrir mót og það verður
gott að máta okkur við þá. Það er
mjög mikil tilhlökkun,“ sagði Viggó
og ræddi um væntingarnar sem eru
gerðar til íslenska liðsins.
„Við erum með frábært lið, sem er
vel mannað í öllum stöðum. Það eru
væntingar að við förum alla leið, en
við sem lið verðum að halda okkur á
jörðinni. Við komum á óvart í fyrra,
þar sem við fengum smjörþefinn af
þessu.
Þar vorum við svekktir að fara
ekki í undanúrslit. Liðið er búið
að vaxa síðan þá og allir búnir að
taka eitt skref fram á við síðan.
Væntingarnar eru eftir því og við
viljum auðvitað standa undir þeim,“
sagði Viggó Kristjánsson.
Knattspyrnumaðurinn
Cristiano Ronaldo setti allt á
hliðina á dögunum þegar hann
fór í viðtal hjá fjölmiðlamannin-
um umdeilda Piers Morgan.
Þar fór hann ófögrum orðum
um þáverandi félagslið sitt
Manchester United, knattspyrn-
ustjórann Erik ten Hag og marga
af yngri leikmönnum liðsins.
Það kom því fáum á óvart þegar
United ákvað að rifta samningi
við leikmanninn fyrir tveimur
vikum. Í yfirlýsingu félagsins var
reyndar sagt að ákvörðunin hefði
verið sameiginleg en það er held
ég öllum ljóst að leikmaðurinn
var rekinn frá félaginu.
Það var eflaust útkoman sem
Ronaldo hafði vonast eftir en
hann er ansi nálægt því að ganga
til liðs við sádiarabíska félagið
Al Nassr.
Portúgalinn mun þéna ágæt-
is upphæðir í Sádi-Arabíu en
sagan segir að hann verði með
um 200 milljónir evra í árslaun
sem gerir hann að launahæsta
knattspyrnumanni heims.
Ef stærðfræðin er ekki að
bregðast mér þá mun Ronaldo
þéna í kringum 760.000 evrur
á dag, rúmlega 113 milljónir
íslenskra króna.
Það er flestum ljóst að Ronaldo
er með ansi stórt egó en það
að eyðilegga orðspor sitt hjá
Manchester United til þess eins
að komast til Sádi-Arabíu og
spila fótbolta er nokkuð sem ég
á erfitt með að skilja.
Maður hefði kannski skilið
betur þessa ákvörðun ef hann
ætlaði sér að komast í annað
stórlið en þetta sannar ennþá
frekar að ákveðinni snilligáfu
fylgja ákveðnar kvaðir, sem koma
oft niður á félagslega þættinum.
Svo gæti hann auðvitað vantað
aur líka, það má ekki gleymast.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Aðalsteinsson skoraði sjö mörk fyrir
FH en Einar Sverrisson var marka-
hæstur Selfyssinga með tíu mörk
og Guðmundur Hólmar Helgason
skoraði átta mörk.
Seiglusigur Fram
Þá vann Fram 31:27-sigur gegn
ÍR í Skógarseli í Breiðholti þar sem
Reynir Þór Stefánsson var marka-
hæstur Framara með átta mörk.
Framarar, sem eru með 15 stig í
fjórða sætinu, höfðu tapað þremur
deildarleikjum í röð þegar kom
að leik gærdagsins og þeir eru því
komnir aftur á beinu brautina í
deildinni.
Á sama tíma hefur lítið sem ekk-
ert gengið hjá ÍR í síðustu leikjum
en liðið vann síðast deildarleik 29.
september gegn Herði í Skógarseli.
Framarar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og komust í 10:1 en
þá vöknuðu ÍR-ingar og var staðan
16:15, Fram í vil, í hálfleik.
Liðin skiptust á að skora allt þang-
að til tíu mínútu voru til leiksloka
þegar Framarar náðu tveggja
marka forskoti, 25:23, og þeir létu
forystuna ekki af hendi eftir það.
Luka Vukicevic skoraði sjö mörk
fyrir Fram og þá átti Lárus Helgi
Ólafsson stórleik í markinu, varði 14
skot og var með 39% markvörslu.
Hrannar Ingi Jóhannsson var
markahæstur ÍR-inga með sjö mörk
og Dagur Sverrir Kristjánsson og
Viktor Sigurðsson skoruðu sex
mörk hvor.
FH-ingar styrktu stöðu sína
lÁsbjörn Friðriksson fór á kostum fyrir Hafnfirðinga og skoraði átta mörk
lFramarar voru sterkari á lokamínútunum gegn nýliðum ÍR í Breiðholtinu
Ásbjörn Friðriksson átti enn einn
stórleikinn fyrir FH þegar liðið vann
fimm marka sigur gegn Selfossi í
úrvalsdeild karla í handknattleik,
Olísdeildinni, í Set-höllinni á Sel-
fossi í 12. umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 37:32-sigri
Hafnfirðinga en Ásbjörn gerði sér
lítið fyrir og skoraði átta mörk í
leiknum.
Með sigrinum styrktu Hafn-
firðingar stöðu sína í öðru sæti
deildarinnar en liðið er með 18 stig,
fjórum stigum minna en topplið
Vals, og tveimur stigum meira en
Afturelding sem er í þriðja sætinu.
Selfyssingar eru hins vegar áfram
í áttunda sætinu með 11 stig, líkt og
Haukar, en Selfoss er með tveggja
stiga forskot á Gróttu og KA sem
eru í níunda og tíunda sætinu. Það
má því leiða að því líkur að þessi
fjögur lið muni heyja harða baráttu
um sæti í úrslitakeppninni í vor.
Leikurinn var afar kaflaskiptur
en Selfyssingar byrjuðu betur og
voru með yfirhöndina framan af.
FH-ingum tókst hins vegar að jafna
metin og var staðan 18:17, FH í vil,
í hálfleik. Liðin skiptust á að skora
í síðari hálfleik en þegar fimm
mínútur voru til leiksloka stungu
FH-ingar af og skoruðu fimm
síðustu mörk leiksins. Einar Bragi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Átök FramarinnMarko Coric sækir að marki ÍR en þeir Hrannar Ingi
Jóhannsson og Úlfur Gunnar Kjartansson reyna að verjast honum.
HANDBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarni@mbl.is