Morgunblaðið - 06.12.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.12.2022, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 ✝ Margrét Jak- obsdóttir fædd- ist í Sólheimum í Vogum á Vatns- leysuströnd 30. nóvember 1940. Hún lést á Tenerife 22. nóvember 2022. Foreldrar henn- ar voru Jakob Adolf Sigurðsson, f. 29.8. 1901, d. 20.9. 1969, og Margrét Kristjánsdóttir, f. 12.2. 1899, d. 15.10. 1968. Systkini Margrétar voru Sigríður Vilborg, f. 23.10. 1923, d. 3.1. 2012, María, f. 16.4. 1927, d. 23.11. 1996, Kristín, f. 16.4. 1927, d. 15.1. 2001, Birna Vil- borg, f. 18.11. 1929, d. 8.4. 2017, og Björn Hafsteinn, f. 28.7. 1946, d. 9.1. 2019. Eftirlifandi bróðir Margrétar er Gústaf Adolf, f. 5.6. 1932. Margrét giftist 17.4. 1960 Herði Jóhannssyni og áttu þau saman synina Gísla Við- ar, f. 11.9. 1959, d. 22.9. 2015, og Jakob Má, f. 5.10. 1963. Margrét og Hörður slitu samvistir 1978. Margrét giftist 31.3. 1979 Páli Jónssyni, f. 9.1. 1935, d. 30.1. 2022. Margrét lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur 1956, starfaði síðan nær samfellt í fjórtán ár hjá Pósti og síma í Keflavík sem vaktstjóri og inn- heimtugjaldkeri. Margrét starf- aði í Sparisjóðnum í Keflavík og sem útibússtjóri í Sparisjóðnum í Njarðvík frá opnun hans 1977 til ársins 1997. Margrét tók virkan þátt í skátahreyfingunni á yngri árum og var virk í samfélaginu á Suð- urnesjum. Hún starfaði um skeið í JC-hreyfingunni og var félagi í Inner Wheel-klúbbi Keflavíkur. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju í dag, 6. desember 2022, klukkan 13. Maður er allt lífið að læra og eftir því sem líður á metur mað- ur betur og betur að njóta hvers dags. Dagurinn í dag kemur aldrei aftur. Hinn 16. nóvember sl. hélt móðir mín til sinnar uppáhalds- eyju í seinni tíð, Tenerife. Ég ók henni snemma morguns til Keflavíkurflugvallar og við spjölluðum saman á leiðinni. Hún var full eftirvæntingar að fara enda árið búið að vera henni erfitt þar sem hún missti manninn sinn og fóstra minn í janúar. Þegar ég kvaddi hana í Leifsstöð faðmaði ég hana eins og oft áður og sagði: „Njóttu ferðarinnar og hvers dags.“ Á þeirri stundu vissi ég ekki að þetta yrði síðasta faðmlag elsku móður minnar. Mamma var einstök kona. Hún var virk í skátastarfi sem unglingur. Hún var mikill tón- listarunnandi og lék sjálf á gít- ar. Sautján ára tók hún bílpróf og eignaðist sinn fyrsta bíl. Það þótti merkilegt á þeim tímum. Hún var alltaf mjög sjálfstæð og vann úti að hluta til þegar ég var að alast upp. Við bræður fundum þó aldrei fyrir því þar sem hún var alltaf til staðar og veitti okkur alla þá ást og um- hyggju sem ungar sálir þurfa. Mamma var listakokkur og nýj- ungagjörn í þeim efnum. Fram- andi rétti eins og pítsur og pasta var hún að reiða fram þegar hinn almenni Íslendingur vissi vart hvað það var. Þar hafði hún mikil áhrif á hvaða braut ég fet- aði í lífinu. Aldrei á ævi minni heyrði ég hana tala illa um neinn mann. Hún var orðvör en ef henni mislíkaði eitthvað duld- ist það engum. Hún var dug- mikil, jákvæð, einstaklega þol- inmóð og fann lausnir á öllu. Fyrri hluta starfsævinnar vann hún hjá Pósti og síma og seinni hlutann hjá Sparisjóði Keflavík- ur. Eftir að starfsævinni lauk til- einkaði hún sér að njóta sam- vista við fjölskylduna og barna- börnin og barnabarnabörnin sem sem hún elskaði öll og dáði. Ófáar stundirnar áttum við með þeim og fóstra í bústað þeirra í Þrastaskógi en þar dvöldu þau langtímum. Hún fylgdist með hverju fótmáli okkar allra hvar sem við vorum stödd í heimin- um. Það gerði hún með sam- félagsmiðlunum en hún var virk á þeim öllum enda einstaklega tæknivædd. Átti alltaf nýjustu símana og tölvur og bar sig eftir framþróun á öllum þeim svið- um. Hér heima keyrði hún dag- lega um á nýja rafmagnsbílnum sínum og heimsótti fjölskylduna vítt og breitt. Þegar að leiðarlokum er komið er ég þakklátur fyrir að hafa átt þessa vönduðu konu sem móður. Þakklátur fyrir lífið sem hún gaf mér, þakklátur fyrir allt sem hún kenndi mér, þakklátur fyrir öll samtölin, samverustundirnar, faðmlögin, minningarnar og þá miklu móð- urást sem hún bar til mín. Njóttu ferðarinnar. Við sjáumst síðar elsku mamma. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Þinn sonur, Jakob Már Harðarson. Elsku amma mín. Takk fyrir að hafa reynst mér alltaf svona vel og stutt mig í öllu sem ég geri. Mér finnst dýrmætt að muna barnæsku mína svona vel með þér og afa því að við systkinin eyddum svo miklum tíma með ykkur. Bústaðarferðirnar og út- landaferðirnar standa alltaf upp úr, en það sem er mér minn- isstæðast er þegar við vorum að taka upp kartöflur í bústaðnum og þú eldaðir síðan fyrir okkur og afa þitt fræga lambasnitsel með kartöflunum sem við tínd- um. Þið afi voruð alltaf tilbúin að gera allt fyrir okkur og sýndi það sig greinilega þegar ég var sautján ára unglingur á gelgju- skeiðinu með mömmu og pabba í Veiðivötnum en vildi fara á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum með vinum mínum. Þið gerðuð ykkur lítið fyrir og brunuðuð upp á hálendi til að sækja barnabarn ykkar á sunnudegi og skutla í Herjólf! Þú varst ein- staklega tæknivædd og með því gastu tekið þátt í lífi okkar systkinanna hvar sem við vor- um, hvort sem það var í veiði- ferð hér á landi eða erlendis í námi, alltaf varstu til staðar og gast hvatt okkur til dáða. Þú studdir okkur alltaf í gegnum okkar menntagöngu því að menntun var ykkur afa gífur- lega mikilvæg. Ég er svo þakk- látur fyrir að þið afi voruð við- stödd útskriftarathöfn mína í Montreux í Sviss þegar ég lauk háskólanámi árið 2018. Eitt af því sem stóð upp úr á þessu ári var að hafa fengið minn fyrsta flugulax í Þverá í Borgarfirði en þar voruð þið afi tíðir gestir hér áður fyrr. Þetta hafði því ótrúlegt tilfinningagildi fyrir mig. Ég man mjög vel eftir því að hafa fengið boð frá ykkur afa um að taka eina vakt þar með ykkur fyrir 20 árum og haf- ið þið átt stóran þátt í að kveikja í veiðidellu minni. Ég verð þér ævinlega þakk- látur fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gert fyrir mig elsku amma mín, söknuðurinn er innilegur en ég veit að sonur þinn hann Gísli Viðar og afi Palli munu taka vel á móti þér. Þinn alltaf, Marteinn Már. Elsku amma mín. Að vera barnabarn þitt var mín lífsins lukka. Mér þótti svo ótrúlega vænt um ykkur afa og allar dýr- mætu minningarnar sem við sköpuðum okkur. Við systkinin vorum svo heppin að fá að fara í pössun til ykkar í sveitina. Þið afi létuð okkur aldrei leiðast og gerðuð allt fyrir okkur. Mér eru minnisstæðir allir bíltúrarnir sem við tókum um sveitina, þú kynntir alla helstu fossa og merka staði í kring, fórum Gullna hringinn oft og mörgum sinnum og tíndum bláber saman á haustin. Þótt ég sé búin að vera í Bandaríkjunum í námi síðustu fjögur ár, þá heyrðir þú í mér næstum daglega og spurðir hvernig gengi hjá mér. Þökk sé samfélagsmiðlum þá héldum við alltaf góðu sambandi þrátt fyrir að við værum hvor í sinni heims- álfunni. Ég vissi alltaf að þú værir tæknivædd en þú komst mér sífellt á óvart og fannst mér þú alltaf mesti snillingurinn í að fikta og græja allt því þú varst svo sjálfstæð. Þú meira að segja náðir að horfa á kveðjufótbolta- leikinn minn með liðinu mínu í Miami núna í lok október í gegn- um netið sem mér þykir nú enn vænna um. Jólin verða tómleg í ár þegar hvorki þú né afi verðið hjá okk- ur eins og þið voruð alltaf en þið eruð saman komin á ný með Gísla Viðari, sem gefur mér ljós á þessum dimmu tímum. Ég verð ævinlega þakklát fyrir þig og get ekki þakkað þér nóg fyrir allt sem þú gerðir fyrir barna- börn þín sem þér þótti svo vænt um. Hvíldu vel elsku amma mín, við sjáumst síðar. María Sól Jakobsdóttir. Elsku fallega amma mín. Orð fá því ekki lýst hvað ég sakna þín mikið. Langar að þakka þér fyrir að vera alltaf svona góð og hlý. Þú varst svo áhugasöm og alltaf til staðar fyrir okkur fjöl- skylduna. Ég mun aldrei gleyma þegar ég flaug með þér núna í sumar yfir eldgosið. Það var eitt skemmtilegasta flug sem ég hef farið í. Þú varst jú minn þægi- legasti farþegi, svo róleg og yf- irveguð. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að fljúga með þér tvisvar. Þú sýnd- ir svo gríðarlegan áhuga á mínu flugnámi og fékk ég boð í þjálf- un hjá flugfélagi nýlega og vil meina að þú hafir hjálpað mér í gegnum það. Ég veit að afi Palli og Gísli Viðar eru í góðum hönd- um núna þar sem þú ert komin til þeirra. Minningarnar ylja þegar ég hugsa um góðu tímana sem við systkinin og fjölskyldan fengum að eyða með þér. Er stoltust í heimi að fá að vera nefnd í höfuðið á þér. Elska þig amma mín og við sjáumst síðar. Þín sonardóttir, Margrét Jakobsdóttir. Margrét Jakobsdóttir ✝ Einar Guðjón Sigurjónsson fæddist í Neskaup- stað 18. júní 1954. Hann lést á heimili sínu í Noregi 26. nóvember 2022. Foreldrar hans voru Sigurjón Ein- arsson verkamað- ur frá Krossi í Álftafirði, f. 28. júlí 1910, d. 23. mars 1994, og Sigrún Jóhanna Jónsdóttir húsmóðir frá Stóru- Breiðuvík á Eskifirði, f. 3. júní 1921, d. 10. febrúar 2004. Systkini Einars eru Sigur- björg, f. 11. mars 1947, Sæ- mundur, f. 5. júlí 1949, Jóna Sigurborg, f. 13. maí 1951, d. 27. september 1989, og Árni, f. 27. júlí 1957. Einar kvæntist hinn 9. des- ember 1988 Hólmfríði Garð- arsdóttur kennara, f. 27. októ- ber 1962. Börn þeirra eru: 1) eiginkona hans. Þau bjuggu á námsárum sínum í Reykjavík þar sem Einar lærði vélstjórn og Hólmfríður lærði til kenn- ara og fluttu svo á Averøy í Noregi þar sem Einar lærði fiskeldisfræði. Nokkrum árum síðar dró ævintýraþráin þau aftur til Noregs og þau sett- ust að í Haugasundi með börnin sín þrjú, Garðar Berg og tvíburasysturnar Önnu Berg og Jónu Berg. Í Noregi starfaði Einar lengi vel við fiskeldi í Hervik og við Tof- tøysund. Fyrir um 10 árum lét hann af störfum í fiskeldinu og hóf störf við íþróttamann- virkin í Haugasundi en Einar var alla tíð mikill íþrótta- maður og keppti m.a. í fót- bolta, skíðagöngu og hlaup- um. Það var því viðeigandi að hann skyldi sjá um fótbolta- völlinn Haugesund Stadion þar sem hann starfaði eins lengi og heilsa hans leyfði. Einar ferðaðist með Hóffý vítt og breitt um Evrópu, og eyddi tímanum með börnum og barnabörnum. Útför Einars fer fram í Skjoldstraumen-kirkju í Nor- egi í dag, 6. desember 2022. Garðar Berg, f. 9. apríl 1985. 2) Anna Berg, f. 7. ágúst 1989, eig- inmaður hennar er Håvard Nor- dveit f. 21. júní 1990, börn þeirra eru Odin, f. 18. júní 2015, Elva, f. 20. febrúar 2017, og Aksel, f. 28. mars 2019. 3) Jóna Berg, f. 7. ágúst 1989, sambýliskona hennar er Anna Flotve, f. 3. september 1989, dóttir þeirra er Ina Berg, f. 22. apríl 2021. Einar ólst upp í foreldra- húsum í Neskaupstað með systkinum sínum og bjó þar fram á unglingsaldur. Um verslunarmannahelgina 1980 fór Einar til Húsavíkur með vinum sínum þar sem hann kynntist stúlku, Hólmfríði Garðarsdóttur, sem síðar varð Einar Guðjón Sigurjónsson fæddist 18. júní 1954. Hann var fjórði í röðinni af börnum Sig- urjóns Einarssonar og Sigrún- ar Jónsdóttur en á undan höfðu komið Sigurbjörg, Sæmundur og Jóna Sigurborg. Árni mætti svo nokkrum árum á eftir Ein- ari svo úr urðu fimm systkinin sem bjuggu á Eyrinni í Nes- kaupstað. Jóna lést árið 1989 en eftir eru Sibba, Sæmi og Árni. Einar var uppátækjasamur sem barn og unglingur en hann og Pétur Óskars heitinn, vinur hans, tóku upp á ýmsum prakk- arastrikum. Það er sérstaklega minnisstætt þegar þeir félagar fóru inn í SÚN fyrir ein ára- mótin og tóku þaðan ófrjálsri hendi saltpétur sem þeir fluttu út í bæ á sleðum. Þeir voru stöðvaðir á leiðinni af lögregl- unni sem spurði þá hvað þeir væru með í pokunum. Á ein- hvern ótrúlegan hátt náðu þeir að ljúga sig frá afskiptasemi lögreglunnar og bjuggu til stóra sprengju úr þessum salt- pétri sem þeir sprengdu um áramótin. Mikill hvellur fylgdi sprengingunni sem skildi eftir sig gíg í jörðinni en í góðan tíma á eftir vissi enginn hver hefði útbúið sprengjuna. Einar var kátur og ljúfur maður og mikill íþróttagarpur. Hann hafði mikið dálæti á fót- bolta en hann spilaði með meistaraflokki Þróttar og fór síðar til Völsungs á Húsavík þar sem hann hitti tilvonandi eiginkonu sína, hana Hólmfríði. Einar flutti síðar búferlum ásamt fjölskyldu sinni til Nor- egs snemma á 10. áratug síð- ustu aldar og þar hefur fjöl- skylda hans fest rætur. Fjarlægðin var mikil á milli systkina þar sem Árni fluttist ungur til Ástralíu, Einar bjó í Noregi, Sibba í Mosfellsbæ og Sæmi í Neskaupstað, líkt og Jóna, sem bjó þar einnig til dauðadags. Sem betur fer hefur ævintýragirni og ferðagleði ríkt á heimili Einars og Hólmfríðar og að þeirra frumkvæði hafa orðið til góðar minningar í sam- eiginlegum ferðum þar sem fjölskyldan hefur hist og átt góðar stundir saman. Systkinin og þeirra makar og börn munu einnig alltaf búa að þessum yndislegu og ógleymanlegu ferðum; brúðkaupinu á Húsa- vík, afmælinu í Toscana og nú nýlega góðri ferð til Barcelona í sumar. Það er sárara en orð fá lýst að missa Einar úr sama sjúk- dómi og tók Jónu fyrir öllum þessum árum. En við erum þakklát fyrir tímann sem Einar fékk og þær stundir sem við áttum saman, þrátt fyrir að þær hafi ekki verið margar fjarlægðarinnar vegna. Það var alltaf jafn ánægjulegt að hitta Einar og hans fólk og verður eflaust jafn ánægjulegt að hitta fjölskyldu hans áfram því gleðin sem Einar bjó yfir ríkir líka í þeim öllum. Við vottum Hólmfríði, Garðari, Önnu og Jónu, mökum þeirra og börnum okkar inni- legustu samúð. Sigurbjörg, Sæmundur, Árni og fjölskyldur. Einar Guðjón Sigurjónsson ✝ Valdís Þor- steinsdóttir fæddist í Lamb- haga í Hrísey 7. febrúar 1932. Hún lést 23. nóvember 2022. Valdís var dóttir hjónanna Þor- steins Valdimars- sonar, f. 3. desem- ber 1903, d. 22. maí 1968, og Láru Sigurjónsdóttur, f. 17. júlí 1905, d. 24. mars 1997. Tví- burasystir Valdísar var Kristín Sigurjóna, f. 7. febrúar 1932, d. 8. nóvember 2004, drengur, f. 17. júlí 1935, d. 14. ágúst 1935, Steinar, f. 9. janúar 1943, d. 14. ágúst 2021, og Þóra, f. 23. maí 1952. Valdís giftist Alfreð Sig- urlaugi Konráðssyni (Silla), f. 14. júlí 1930, d. 4. desember 2011, 23. september 1951 og áttu þau sex börn. Þau eru: 1. Þórdís Björg, f. 11. apríl 1951, gift Steingrími Sigurðs- syni, f. 29. desember 1947, og eiga þau tvo syni, Alfreð Val og Þorstein. 2. Konráð Þorsteinn, f. 15. október 1952, var giftur Agnesi Guðnadóttur, f. 11. maí 1952, d. 22. ágúst 2017. Þau eignuðust þrjú börn, Guðna, Láru Steinu og Valdísi. Sam- býliskona Konráðs er Guðbjörg Ingileif Jónasdóttir. 3. Sig- urður Sveinn, f. 10. september 1955, giftur Sólborgu Frið- björnsdóttur, f. 23. október 1955, eiga þau tvö börn, Jón Inga og Súsönnu. 4. Sigurjón Freyr, f. 20. mars 1957, giftur Margrét Kristmannsdóttur, f. 24. febrúar 1962, og eiga þau tvö börn, Sindra Má Kaldal og Birtu Dís Kaldal, en áður átti Sigurjón eina dóttur, Sonju. 5. Blængur Elfar, f. 19. ágúst 1958, var giftur Sveinbjörgu Pálmadóttur, áttu þau tvo syni, Pálma og Elís Bergmann. Þau skildu og er seinni kona Blængs Þór- dís Margrét Þor- valdsdóttir, f. 5. júlí 1962, eiga þau tvö börn, Hörpu Dröfn og Þorvald Bjarka. 6. Kristín Anna, f. 23. september 1960, gift Ásgeiri Stefánssyni, f. 12. desember 1958, eiga þau tvo syni, Ásgeir Andra og Alfreð Loga, en áður átti Kristín einn son, Atla. Sam- tals eru afkomendur Valdísar og Silla 57. Valdís fæddist í Hrísey og átti sína barnæsku þar en fyrstu hjúskaparár þeirra Al- freðs bjuggu þau í Kópavogi og Hafnarfirði, en fluttust norður að loknu námi Alfreðs á Ár- skógsströnd þar sem þau stunduðu útgerð og búskap. Árið 1962 fluttu þau til Hrís- eyjar og þar ólust börnin sex upp. Á þessum árum vann Val- dís í Kaupfélagi KEA í Hrísey en árið 1980 varð hún sím- stöðvarstjóri í Hrísey og vann við það til til hún lét af störfum sökum aldurs. Valdís lét sig málefni kvenfélags Hríseyjar og kirkjunnar í Hrísey sig miklu skipta og var um árabil formaður sóknarnefndar. Árið 2007 keyptu Valdís og Alfreð hús á Dalvík og fluttu þangað, m.a. til að geta sótt þjónustu á dvalarheimilinu Dalbæ. Nokkr- um árum eftir lát Alfreðs flutt- ist Valdís á Dalbæ og bjó þar síðustu æviár sín. Útför Valdísar verður frá Dalvíkurkirkju í dag, 6. desem- ber 2022, klukkan 13.30. Kær systir mín hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Mér er efst í huga þakklæti, þakklæti fyrir allt sem þú kenndir mér, þakklæti fyrir allar samverustundirnar og allar stundir í gleði og sorg. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Saknaðarkveðjur frá Þóru systur. Valdís Þorsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.