Morgunblaðið - 06.12.2022, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Innlent2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
Gildi–lífeyrissjóður
Opinn sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundur verður
haldinn fimmtudaginn 15. desember kl. 17:00
á Grand Hótel Reykjavík.
Lífeyrissjóður www.gildi.is
Dagskrá
▪ Staða og starfsemi sjóðsins á árinu 2022
▪ Breytingar á samþykktum sjóðsins – staðan
▪ Breytingar á lögum um lífeyrissjóði um næstu áramót – kynning
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og kynna sér stöðu og rekstur sjóðsins.
Fundurinn fer fram á íslensku en boðið verður upp á enska túlkun á staðnum.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs
Leit að sjómanni sem féll útbyrðis
af línuskipinu Sighvati GK-57 um
helgina var frestað í gærkvöldi þar
til í birtingu í dag. Þetta kom fram í
samtali mbl.is við Ásgeir Erlendsson,
upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslu
Íslands, í gærkvöldi.
Varðskipið Þór var við leit í gær
ásamt björgunarskipinu Oddi V.
Gíslasyni og þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar og var leitarsvæðið þá stækkað
í 18 sjómílna radíus frá þeim stað þar
sem maðurinn er talinn hafa fallið
útbyrðis.
„Við gerum ráð fyrir að halda leit
áfram á morgun [í dag], Þór heldur
inn á Stakksfjörð í kvöld en hefur svo
leit á ný í fyrramálið og við tökum
svo bara stöðuna á því hvaða einingar
verða nýttar við leitina á morgun [í
dag] en ljóst er að það verður að
minnsta kosti áhöfnin á Þór,“ sagði
Ásgeir í gærkvöldi.
Fram kom í tilkynningu frá Vísi í
gærkvöldi að maðurinn sem leitað
er heitir Ekasit Thasaphong. Hann
fæddist 1980. Fram kom að tilkynn-
ingin væri send í samráði við fjöl-
skyldu hans sem þakkar af alhug
fyrir samúð og vinarþel samfélagsins.
lLeitarsvæðið stækkað í 18 sml í gær
Leitað áfram frá
birtingu í dag
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands
LeitÁhöfn Þórs skimar yfir haf-
flötinn við leitina að skipverjanum.
Litríkur glampi á nýbyggingum í Reykjavíkurborg í desembersólinni
Nýi tím-
innmætir
gamla
Hann var fallega marglitur,
glampinn yfir Borgartúninu
í ljósaskiptunum í gær þegar
himinninn var bleikur og blár.
Veður hefur verið stillt með
eindæmum það sem af er vetri
á suðvesturhorni landsins en
nýlega tekið að frysta svo að
borgarbúar mega nú skafa af
bílum sínum áður en haldið er út í
morgunumferðina.
Þá er vissara að vera á vel útbún-
um bílum og að dekk séu í það
minnsta ekki rennislétt.
Á myndinni mætast eldri
byggingar í forgrunni og nýjar í
Borgartúninu sem hýsir fjöl-
marga vinnustaði, gistirými sem
og heimili. Byggingarkraninn
bindur svo gamla og nýja tímann
saman. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.ismbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins leggja í dag til breytingar á fjár-
hagsáætlun Reykjavíkur fyrir 2023,
sem spari a.m.k.
7.235 milljónir
króna. Einnig er
lögð til lóðasala
og sala á eign-
um borgarinnar,
sem ekki tengj-
ast lögboðnum
skyldum, og
ágóðanum varið
til að grynnka á
skuldum Reyk-
víkinga og minnka fjármagnskostn-
að, sem hefur hækkað mikið að
undanförnu.
Hildur Björnsdóttir oddviti sjálf-
stæðismanna segir að í tillögunum
felist raunhæfar en nauðsynlegar
aðgerðir til að koma böndum á
rekstur borgarinnar, sem við blasi
að sé stjórnlaus í höndum núverandi
meirihluta. „Hagræðingartillögur
meirihlutans skila samanlagt aðeins
einummilljarði króna, sem er hvergi
nærri nóg, eins og staðan er orðin.“
Yfirbyggingin minnkuð
Í tillögunum er lagt til að yfir-
bygging stjórnkerfis borgarinnar
verði minnkuð og þannig dregið úr
rekstrargjöldum um 5,2 milljarða
króna. Þar vegur þyngst tillaga um
að skera niður launakostnað um
5%. Hvernig á að gera það? „Hér
í ráðhúsinu hefur báknið þanist
út fyrir augunum á okkur. Borgar-
starfsmönnum hefur fjölgað um 25%
á síðustu fimm árum, langt umfram
íbúaþróun, og borgin hefur leitt
launahækkanir. Við viljum verja
störf í framlínunni, en það þarf að
fækka fólki í yfirbyggingunni, þar
á meðal borgarfulltrúum,“ segir
Hildur.
Þá er lagt til að dregið verði úr
eða frestað fjárfestingum sem nemi
1.850 m.kr. árið 2023 og 4.850 m.kr.
á næstu fimm árum. Þær tillögur fel-
ast m.a. í því að lækka fjárfestingar
þjónustu- og nýsköpunarsviðs um
helming eða um 1.500 m.kr. og staf-
ræn umbreyting í velferðarþjón-
ustu, skólastarfi og á umhverfis- og
skipulagssviði látin ganga fyrir. Auk
þessa verði fjárfestingu í Grófarhúsi
og á Hlemmsvæði frestað.
Loks er lagt til að selja lóðir og
eignir í eigu borgarinnar. Með sölu
lóða undir íbúðar- og atvinnuhús-
næði í borginni er markmiðið að afla
tekna bæði með sjálfri lóðasölunni
og þeim umsvifum sem því fylgja
með fjölgun íbúa og fyrirtækja sem
sigli í kjölfarið.
Hins vegar leggja sjálfstæðismenn
til – líkt og oft áður – að Ljósleiðar-
inn og aðrar eignir, sem ekki snúa að
lögbundinni grunnþjónustu Reykja-
víkurborgar, verði seld. Ágóðinn af
því gæti numið tugum milljarða
króna, sem Hildur segir að þá
megi verja til þess að lækka skuld-
ir og fjármagnskostnað og fjárfesta
frekar í innviðum, sem snúi beint að
hlutverki borgarinnar.
lSjálfstæðismenn leggja til breytingar á fjárhagsáætlun borgarinnarlBoða 5% lækkun launakostnaðar
lVilja verja framlínustörf og minni yfirbyggingulLeggja til lóðasölu og að Ljósleiðarinn verði seldur
Vilja spara sjömilljarða í borginni
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Ljósmynd/Ómar Óskarsson
Ráðhúsið Sjálfstæðismenn vilja minnka óhóflega yfirbyggingu borgarkerf-
isins. Það eigi bæði við um skrifstofuhald ráðhússins og borgarfulltrúa.
Hildur
Björnsdóttir