Morgunblaðið - 07.12.2022, Síða 1

Morgunblaðið - 07.12.2022, Síða 1
NÝJAR TUNNUR SORPHIRÐA BREYTIST 12 ÓLJÓS SVÖR UM FJÁR- MÖGNUN VIÐSKIPTAMOGGINN HUGARÁSTAND OG FAGUR- FRÆÐI ATONEMENT PÁLS RAGNARS 24 • Stofnað 1913 • 287. tölublað • 110. árgangur • MIÐV IKUDAGUR 7. DESEMBER 2022 17 dagar til jóla Jóladagatalið er á jolamjolk.is Goncalo Ramos fékk tækifæri í byrjunarliði Portúgals og skoraði þrennu í 6:1-stórsigri á Sviss í 16-liða úrslitumHM í fótbolta karla í Katar í gærkvöldi. Ramos fékk svo heiðurs- skiptingu rúmum stundarfjórðungi fyrir leiks- lok þegar Cristiano Ronaldo kom inn á.» 22 AFP/Jewel Samad Þrenna úr óvæntri átt hjá Portúgal Geimher Bandaríkj- anna vill til Íslands „Geimher Bandaríkjanna (e. USSF) hefur kynnt fyrir utan- ríkisráðuneytinu hugmyndir um að fá aðstöðu hér á landi. Er tilgangurinn að rannsaka jónahvolfið svonefnda. Vegna þessa hafa fulltrúar geimhersins kannað hvar væri heppilegast að koma fyrir tækjabúnaði.» 4 Bíða vind- orkulaga lQairmeð 15millj- arða vindorkugarð Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnar- formaður Qair Iceland, segir að ef allt gangi að óskum muni fyrirtækið hefja uppbyggingu vindorkuvers á Sólheimum á Laxárdalsheiði árið 2026. Virkjunin verði um 200 MW og kostnaðurinn um 15 milljarðar. Tryggvi Þór segir fyrirtækið bíða nýrrar lagasetningar um vindorku á Íslandi. Með vorinu verði væntan- lega lagt fram lagafrumvarp sem skýri lagaumgjörðina um vindorku. Tafir á því geti tafið uppbyggingu. Fjallað er um áform Qair í Við- skiptaMogganum í dag en áformað er að reisa vindmyllugarða fyrir hundruð milljarða um land allt. » ViðskiptaMogginn Morgunblaðið/Árni Sæberg AflgjafiVindmyllur við Búrfell. „Núna ætlum við að vera í samfloti með iðnaðarmönnum og VR og von- andi getum við gert atlögu að þessu á morgun [í dag] og klárað þetta fljótt og vel,“ segir Eiður Stefáns- son, formaður samninganefndar LÍV og formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og ná- grenni (FVSA). Hann segir stefnt að stuttum samningstíma og að menn geri sér vonir um að takast muni að ná samkomulagi um kjarasamning í þessari viku en ekkert sé þó fast í hendi. Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir í samfloti iðn- og tæknifólks, LÍV og VR til sáttafundar með SA kl. 13.15 í dag. Vinnufundir hafa verið haldnir hjá ríkissáttasemj- ara seinustu daga og miklar annir eru hjá embættinu, sem er með 15 mál í gangi. Ekkert liggur hins vegar fyrir um hvenær SA og Efling koma saman til næsta fundar en þeirri deilu hefur ekki verið vísað til sáttameðferðar. Formaður FVSA sér ýmsa kosti við SGS-samninginn Félög verslunar- og skrifstofufólks í LÍV að VR frátöldu hafa ekki slitið kjaraviðræðum við Samtök atvinnu- lífsins. Eiður, sem er formaður félags með um 2.500 félagsmenn, segir aðspurður ýmsa kosti við nýgerð- an kjarasamning Starfsgreinasam- bandsins og SA. „Ég held að hann henti þessum hópi sem þeir semja fyrir bara vel,“ segir hann. Kostirnir séu m.a. að kjarasamningur taki við af samningi, hækkanir komi strax, breytingar á launatöxtum og fleira en verslunarmannafélögin þurfi einnig prósentuhækkanir fyrir millitekju- hópana. „Við erum með mjög breitt launabil í okkar félagi, erum til dæmis með háskólamenntað fólk sem er yfir töxtum og við reynum að ná samningi fyrir þetta fólk líka,“ segir hann. Rætt hefur verið um blöndu krónutölu- og prósentuhækkana. Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins sagði í gær að samflot iðn- og tækni- greina væri samstiga VR í kjaravið- ræðum þrátt fyrir að ásýndin virtist vera önnur. Unnið væri út frá því að gera skammtímasamning líkt og SGS gerði. „Það er á borðinu eins og stað- an er í dag að reyna það, en hins vegar er það þannig að tíminn til þess að gera slíkt er orðinn mjög knappur,“ sagði hann. » 6 lSáttafundir í gang á nýlLeita lausna fyrir millitekjuhópa Geraatlögu og vilja klára fljótt og vel Ómar Friðriksson Urður Egilsdóttir Samningalota » Innan samflots iðn- og tæknigreina, VR og LÍV eru um 59 þúsund félagsmenn. »Kynningar og undirbúningur atkvæðagreiðslu um nýjan samning SGS eru í fullum gangi og stefnt að því að henni ljúki á hádegi mánudaginn 19. desember. »Yfir 100 samningar eru lausir, á næstu sex mánuð- um rennur út gildistími 167 samninga. Óljós afstaða til hlutafjár- aukningar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri svarar því ekki hvort hann sé hlynntur hlutafjáraukningu Ljós- leiðarans. „Mér finnst eðlilegt að rýnihópurinn ljúki störfum sínum áður en ég eða aðrir tjáum okkur um erindi Ljósleiðarans,“ segir hann í svari til ViðskiptaMoggans og vísar þar til rýnihóps sem var skipaður til að meta hvort sú tillaga Ljósleiðarans að ráðast í hlutafjár- aukningu verði samþykkt. Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs segir í samtali við ViðskiptaMogg- ann að hann telji að vinna þurfi málið í pólitískri sátt og öll gögn þurfi að liggja fyrir áður en tekin sé ákvörðun um hlutafjáraukningu. » ViðskiptaMogginn Morgunblaðið/Óttar Borgarstjórn Einar Þorsteinsson og Dagur B. Eggertsson. lBorgarstjórnar að meta stöðuLjósleiðara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.