Morgunblaðið - 07.12.2022, Side 2
FRÉTTIR
Innlent2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022
Endurmenntun atvinnu-
bílstjóra á íslensku
Nánari upplýsingar: www.okuland.is
Alltaf
í boði
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.ismbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Örn Jóhannsson, fyrrverandi skrif-
stofustjóri Árvakurs, lést að kvöldi sl.
mánudags, 83 ára að aldri.
Örn fæddist 7. apríl 1939. Foreldrar
hans voru hjónin Sigurbjörg Siggeirsdótt-
ir húsmóðir og Jóhann Á. Jóhannesson
bankafulltrúi.
Örn lauk verslunarprófi frá Verzlunar-
skóla Íslands 1957 og stundaði síðan nám
við verslunarskóla á Englandi.
Hann hóf störf hjá Morgunblaðinu
árið 1951 með námi og var fastráðinn
þar 1958. Hann var ráðinn aðalgjaldkeri
blaðsins árið 1959, þá tvítugur að aldri.
Örn sagði í samtali við Morgunblaðið árið
2006, þegar hann rifjaði upp starfsferil
sinn á blaðinu, að hann hefði gefið út og
framselt allar ávísanir fyrir fyrirtækið en
hafði ekki ávísanahefti sjálfur, því á þeim tíma urðu menn
ekki fjárráða fyrr en 21 árs. Árið 1966 var Örn ráðinn
skrifstofustjóri Árvakurs hf. og gegndi því starfi til ársins
2006.
Örn sat í stjórn Félags íslenska prentiðnaðarins um
árabil og var formaður 1987 til 1993.
Hann sat í stjórn Samtaka iðnaðarins
frá stofnun 1994 til 2001, þar af vara-
formaður fjögur síðustu árin. Hann sat
í framkvæmdastjórn VSÍ frá 1987 til
1997, í stjórn Lífeyrissjóðs bókagerðar-
manna 1988 til 1996. Þá sat hann í stjórn
Nordisk Grafisk Råd 1985 til 2001 og var
formaður þess 1988. Hann var í stjórn
Norrænna blaðaútgefenda frá 1984, þar
af þrisvar formaður; í stjórn IFRA Nord-
ic frá 1996 til 2006, þar af formaður um
tíma. Þá sat hann í stjórn Iðnlánasjóðs
1995 til 1997, var varaformaður Nýsköp-
unarsjóðs atvinnulífsins 1998 til 2004 og
sat í stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins.
Þá var hann lengi formaður stjórnar
Minningarsjóðs Jean-Pierres Jacquillats.
Eftirlifandi eiginkona Arnar er Edda Jónsdóttir, mynd-
listarmaður og stofnandi i8 gallerís. Synir þeirra eru Örn
Þór og Börkur.
Við leiðarlok þakkar Morgunblaðið Erni langa samfylgd
og sendir ástvinum hans innilegar samúðarkveðjur.
Örn Jóhannsson, fv. skrifstofustjóri
Andlát
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
fyrir næsta ár var tekin fyrir á borg-
arstjórnarfundi í gær. Fundahöld
stóðu yfir þegar Morgunblaðið fór
í prentun og því ekki ljóst hvernig
afgreiðslu mála lyktaði. Borgarstjórn
ræddi hallarekstur Reykjavíkur og
hvar skera ætti niður, en rekstrar-
niðurstaða A-hluta borgarinnar var
mun verri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Ríkið beri ábyrgð
„Þetta eru verðbólguáhrifin inn í
ársreikninga allra sveitarfélaga sem
leiða til þessara breytinga á þessu
ári,“ segir Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri í samtali við Morgunblaðið,
spurður hvort ekki megi gefa borginni
falleinkunn í rekstri.
„Við bregðumst við þeim aðstæð-
um. Við erum að rifa seglin, alveg
eins og við brugðumst við aðstæð-
um í faraldrinum og héldum þá bæði
kúrs og bættum í til þess að tryggja
atvinnustigið. Núna hins vegar hef-
ur atvinnuleysið farið niður og þá
bregðumst við við með eðlilegri hag-
ræðingu,“ segir hann. Dagur segir að
ríkið hafi með auknum lagaskyldum
á sveitarfélög skilið eftir gat í efna-
hagsreikningi sveitarfélaganna þar
sem ekki hafi fylgt fjármagn til þess
að sinna þeim skyldum, og nefnir þar
sérstaklega málaflokk fatlaðs fólks.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lögðu til í gær á borgarstjórnarfundi
breytingar á fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir næsta ár, sem
spari að minnsta kosti rúmlega sjö
milljarða króna, í stað milljarðs hag-
ræðingar semmeirihlutinn leggur til.
„Algjört óraunsæi“
„Tillögur Sjálfstæðisflokksins eru
sýndarmennska. Þar er látið að því
liggja að það sé hægt að fækka starfs-
fólki borgarinnar um 5%, án þess að
það bitni á þjónustu við fatlað fólk,
leikskólabörn og grunnskólabörn.
Það er bara algjört óraunsæi, algjört
óraunsæi,“ segir Dagur en í tillög-
um Sjálfstæðisflokksins er lagt til að
skera niður launakostnað með því að
fækka fólki í yfirbyggingunni. Þar á
meðal borgarfulltrúum.
„Við höfum þvert á móti sagt að
við séum að fara í þessar aðgerðir
án þess að hækka gjaldskrár á fólk
og fjölskyldur, án þess að skera nið-
ur í grunnþjónustunni og án þess að
hætta að þróa þjónustunameð fjölgun
leikskólaplássa og þjónustu við fatlað
fólk.“ Hildur Björnsdóttir tók illa í
ummæli borgarstjóra og kallaði þau
dæmigert lýðskrum. Hildur segir að
aðalatriðið sé að skera niður í yfir-
byggingunni. „Þar eru rúm tækifæri
og 5% er ekki einu sinni ríflegt í því
tilliti. Staðreyndin er sú að síðastliðin
fimm ár hefur borgarstarfsmönnum
fjölgað um 25% meðan íbúum hefur
aðeins fjölgað um 10%. Samhliða hefur
Reykjavíkurborg leitt launahækkanir
í landinu síðustu ár. Þetta er óæskileg
og ósjálfbær þróun. Tillögur okkar
miða að því að verja framlínustörf
og grunnþjónustu borgarinnar, það
er algjörlega skýrt. Tækifærin liggja
í yfirbyggingunni.“
Einar Þorsteinsson, oddviti Fram-
sóknarflokksins og formaður borg-
arráðs, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
oddviti Viðreisnar og forseti borg-
arstjórnar, og Heiða Björg Hilmis-
dóttir, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga og formaður velferð-
arráðs Reykjavíkurborgar, sátu ekki
fund borgarstjórnar í gær.
Fyrir fundinn stóðu fyrrver-
andi starfsmenn siglingaklúbbsins
Sigluness í Nauthólsvík fyrir tákn-
rænum mótmælum en þau voru
komin til vegna hagræðingaraðgerða
meirihlutans, en það til stóð að loka
starfseminni. Dagur sagði fyrir fund-
inn að lokunin yrði endurskoðuð og
send til íþrótta- og tómstundaráðs.
lÆtla ekki að skerða grunnþjónustulBorgarstjóri neikvæður í garð tillagna Sjálfstæðisflokksins
l„Tillögur Sjálfstæðisflokksins eru sýndarmennska“lEndurskoða lokun siglingaklúbbsins Sigluness
Tekist áum fjárhagborgarinnar
Urður Egilsdóttir
Logi Sigurðarson
Morgunblaðið/Eggert
Mótmæli Fyrrverandi starfsmenn siglingaklúbbsins Sigluness stóðu fyrir
táknrænummótmælum fyrir fund borgarstjórnar í Ráðhúsinu.
Fyrsta glæpakvöldið eftir faraldurinn
Höfund-
ar ræddu
krimma
Glæpakvöld Hins íslenska glæpa-
félags var haldið í gærkvöldi í
fyrsta skipti í tvö ár en þeim var
aflýst í faraldrinum. Tólf höfund-
ar brakandi ferskra gæðakrimma
mættu á staðinn og ræddu bækur
sínar og glæpasögur almennt
út frá ýmsum sjónarhornum.
Viðburðinum var skipt í þrjú pall-
borð. Á myndinni má sjá Guðrúnu
Guðlaugsdóttur (Mannsyndin) og
Óskar Magnússon (Leyniviðauki
4). Einnig var rætt við rithöf-
undana Ragnheiði Gestsdóttur
(Blinda), Skúla Sigurðsson (Stóri
bróðir), Yrsu Sigurðardóttur
(Gættu þinna handa), Evu Björgu
Ægisdóttur (Strákar semmeiða),
Snæbjörn Arngrímsson (Eitt satt
orð), Ármann Jakobsson (Reim-
leikar), Emil Hjörvar Petersen
(Dauðaleit), Önnu Ólafsdóttur
Björnsson (Óvissa), Kára Val-
týsson (Kverkatak) og Jón Atla
Jónasson (Brotin). Morgunblaðið/Kristinn Magnússon