Morgunblaðið - 07.12.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.12.2022, Blaðsíða 6
FRÉTTIR Innlent6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022 skartgripirogur.is Bankastræti 9 | Sími 551 4007 Bankastræti 6 | 551 8588 „Verjum heimilisbókhaldið“ og „Vinnum gegn verðbólgu“ kallast tveir flokkar breytingatillagna Sam- fylkingarinnar við fjárlög næsta árs þar sem meðal annars er lagt til að vaxtabætur til millitekjufólks hækki um 50 prósent, 17 milljörðum verði varið til mótvægisaðgerða gegn verðbólgu, barnabætur hækki og eins fjármagnstekjuskattur. Kynnti Kristrún Frostadóttir, nýr formaður flokksins, tillögurnar á blaðamannafundi í höfuðstöðvum flokksins í gær, en formaðurinn segir Samfylkinguna vilja færa aðhaldið af almenningi og þangað sem þenslan sé í raun. „ehf.-gatinu“ verði lokað „Allt aðhald ríkisstjórnarinnar er lagt á almenning. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hækkar skatta með hækkun krónutölu- gjalda sem falla þyngra á fólk eftir því sem það hefur lægri tekjur. Samfylkingin vill sýna að það er hægt að fara aðra leið í þessum efnum,“ sagði Kristrún á fundinum í gær. Kvað hún Samfylkinguna vilja verja heimilisbókhald fólksins í landinu auk þess að vinna gegn verðbólgunni með mótvægis- aðgerðum. Af öðrum tillögum en þeim, sem þegar er getið, má nefna að stofnframlög til íbúða- uppbyggingar verði ekki helminguð á komandi ári heldur tvöfölduð, „ehf.-gatinu“ svokallaða verði lokað, það er að möguleikar á að telja launatekjur fram sem fjármagnstekjur verði takmarkaðir, álag verði lagt á veiðigjöld stór- útgerða, lækkun bankaskatts verði afturkölluð að hluta og húsnæðis- bætur til leigjenda hækkaðar tíma- bundið um tíu prósent. lKynnti tillögur um 17ma. aðgerðir Aðhald stjórnarinn- ar lagt á almenning Morgunblaðið/Árni Sæberg FormaðurinnKristrún Frostadóttir kynnti tillögur flokks síns í gær. myndavélaeftirlit fór fram í níu aðgerðum skv. dómsúrskurðum. Þetta eru nokkuð færri aðgerðir en á árunum á undan Gögnum í raun ekki verið eytt Heimildir lögreglu við rannsókn mála til símahlustunar og skyldra aðgerða s.s. með myndavélaeftirliti og eftirfararbúnaði eru í 80.-82. grein sakamálalaganna og á ríkis- saksóknari að hafa eftirlit með því að þessum gögnum hafi verið eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf, tilkynnt hafi verið um aðgerðirn- ar o.s.frv. Í fyrirmælum ríkissak- sóknara árið 2017 segir að lögregla skuli skrá þessar aðgerðir í LÖKE með tilteknum hætti. Í skýrslunni segir aftur á móti að eftirgrennslan ríkissaksóknara hafi leitt í ljós „að veruleg vanhöld hafa verið á að skráðar séu í LÖKE tilkynningar um aðgerðir og að gögnum hafi verið eytt“ eins og lög kveða á um. „Á þetta við um verulegan hluta allra þessara rannsóknarúrræða. Ástæða er til að ætla að skortur á skráningum um tilkynningar í LÖKE sé að einhverju leyti vegna hirðuleysis um að skrá í kerfið þrátt fyrir að slíkar tilkynningar hafi ver- ið gerðar í einhverjum tilfellum, t.d. í lögregluskýrslum af sakborning- um. Um þetta verður þó ekki fullyrt þar sem forsenda ríkissaksóknara fyrir eftirlitinu byggist á skráningu í LÖKE. Skortur á skráningum um eyðingu virðist þó, samkvæmt frek- ari eftirgrennslan ríkissaksóknara, að stórum hluta tilkomin vegna þess að gögnum hafi í raun ekki verið eytt,“ segir í skýrslunni. Hlustanir í úreltu kerfi Einnig er fjallað um skort á upp- lýsingum um hver eða hverjir hafa haft aðgang að upplýsingum sem aflað er með símahlustunum og skyldum aðgerðum. Staðið hef- ur til að tryggja með breytingum á LÖKE að hægt verði að rekja hverjir hafi haft aðgang að þess- um upplýsingum. Fram kemur að nýverið tók ríkislögreglustjóri upp nýtt kerfi tengt símahlustun- um sem kallast Pandion. Það býð- ur upp á möguleika á að koma að nokkru til móts við kröfur laga um vörslu upplýsinga sem aflað er með símahlustun. „Því miður er reyndin sú að einungis eitt símafyrirtæki, sem býður upp á farsímasamband, er með innra kerfi hjá sér sem er tæknilega tilbúið til tengingar á stöðluðum máta í samræmi við Evrópustaðla, eins og Pandion-kerf- ið krefst. Þetta er með þessum hætti þrátt fyrir að öll nútíma- kerfi til símahlustunar noti þessa staðla í samskiptum við fjarskipta- fyrirtækin enda er um vottaðar og þaulprófaðar lausnir að ræða. Bæði virðist vera um að ræða áhugaleysi Ríkissaksóknari setur fram þunga gagnrýni á lögregluembættin og yf- irstjórn lögreglunnar fyrir meðferð og vörslu upplýsinga sem aflað er með símahlustunum og skyldum aðgerðum, meint hirðuleysi um að skrá slíkar aðgerðir í LÖKE, málaskrárkerfi lögreglunnar, og að virða fyrirmæli ríkissaksóknara að vettugi. Þetta kemur fram í ítar- legri umfjöllun ríkissaksóknara í nýrri skýrslu embættisins um eft- irlit með símahlustun og skyldum úrræðum á seinasta ári. Hefur eftirlit ríkissaksóknara leitt í ljós „að verulega skortir á að lögreglustjórar og héraðssak- sóknari fylgi lögum og fyrirmælum ríkissaksóknara um tilkynningar til sakborninga, eyðingu hlustunar- gagna og að halda skrá um þá sem hafa haft aðgang að upplýsingum sem aflað hefur verið með aðgerð skv. 80.-82. gr. [laganna ummeðferð sakamála]. Að sama skapi hefur ríkislögreglustjóri ekki brugðist við í samræmi við það sem áformað var samkvæmt greinargerð með lögum nr. 103/2016, sem er forsenda fyrir því að ríkissaksóknari geti upplýst eftir á hver eða hverjir hafi haft aðgang að upplýsingunum. Þá hafa fyrirmæli ríkissaksóknara um það fyrirkomulag sem fjallað er um í 4. gr. tilmæla RS: 12/2017 verið virt að vettugi,“ segir m.a. í skýrslu ríkis- saksóknara. Segir ríkissaksóknari ennfremur að hver sem ástæðan er þá gæti tómlætis innan yfirstjórnar lög- reglunnar gagnvart því hlutverki sem ríkissaksóknara var falið um eftirlit með símahlustunum og skyldum aðgerðum með lögum árið 2016. Á yfirlitinu kemur fram að lög- regla og héraðssaksóknari gripu 304 sinnum til símahlustunar eða skyldra úrræða við rannsóknir mála með dómsúrskurðum á sein- asta ári. Símahleranir voru 61 og og skort á tæknilegri getu sem kem- ur í veg fyrir þetta hjá hinum fjar- skiptafyrirtækjunum. Hlustanir og móttaka gagna er því að miklu leyti óbreytt og í gömlu úreltu kerfi enn sem komið er,“ segir í umfjöllun rík- issaksóknara, sem segir þetta girða fyrir að hann geti með nokkurri vissu fullyrt hvort meðferð gagn- anna sé forsvaranleg, hverjir hafi aðgang að þeim, engin skráðning eða loggar séu til um hverjir hafi haft aðgang og hverjir skoðað eða hlustað á umrædd gögn. Vegna þessa hefur lögreglustjór- um og héraðssaksóknara verið gert að skrá málin á pappír. Það er ekki óskafyrirkomulag, segir í skýrsl- unni, en það eina sem nú er í boði. Sendi ríkissaksóknari öllum lög- reglustjórum og héraðssaksóknara bréf 2017 og bað um sýnishorn af pappírsskrám en við þeim tilmæl- um var ekki orðið. Fæstir hafa brugðist við. lVanhöld á skráningu tilkynninga um aðgerðir í LÖKE og eyðingu gagnalYfir 60 símahleranir Gagnrýnir yfirstjórn lögreglu SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Aðgerðir » Í flestum tilvikum eða 178 var gripið til símahlerana, eftirfararbúnaðar, útskrift á notkun farsíma o.fl. aðgerða hjá lögreglustjóranum á höfuð- borgarsvæðinu. »Yfir landið allt var eftir- fararbúnaður notaður í 48 aðgerðum lögreglu. »Símahlustun og skyldum úr- ræðum var beitt í 193 tilvikum vegna fíkniefnabrota. » Í 27 skipti fóru aðgerðirnar fram vegna auðgunarbrota eða peningaþvættis. » Í sex tilvikum vegna kynferð- isbrota. » Í ellefu skipti vegna ærumeiðingar og friðhelgi einkalífs. » Í 36 skipti vegna ofbeldis- brota og frelsissviptingar. Kynferðisbrot6 Önnur sérrefsilagabrot 7 Ærumeiðingar og friðhelgi einkalífs 11 Auðgunarbrot / peningaþvætti 27 Ofbeldisbrot/frelsissvipting 36 Fíkniefnabrot 193 Annað 24 Aðgerðir eftir tegund brots Fjöldi aðgerða Símahlustun og skyld úrræði árið 2021 *Staðsetning farsíma. **Herbergi o.þ.h. ***Staðsetn- ingarbúnaður. Embætti Upplýsingar um rétthafa Mynda- vélaeftirlit IMEI- leit* Hlustunar- búnaður** Eftirfarar- búnaður*** Útskrift á gagna- notkun farsíma Hlustun síma Útskrift á farsímanotkun Alls Héraðssaksóknari 1 1 8 5 9 14 38 Höfuðborgarsvæði 2 6 6 16 38 30 27 53 178 Suðurnes 2 1 1 2 9 18 25 58 Önnur embætti 2 1 5 7 15 30 Samtals 4 9 9 17 48 49 61 107 304 4 9 9 17 48 49 61 107 Heimild: Ríkissaksóknari Samtals 304

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.