Morgunblaðið - 07.12.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.12.2022, Qupperneq 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022 Garðatorg 6 | Kringlan | sími 551 5021 | aprilskor.is Audley Telma 39.990 kr. Audley Lira 29.990 kr. Audley Leia 37.990 kr. Audley Leia 31.990 kr. Audley Telma 41.990 kr. Audley Sandy 28.990 kr. Audley Leia 38.990 kr. Audley Leia 31.990 kr. Vefverslun | aprilskor.is Fallegir skór frá spænska merkinu Audley er tilvalin jólagjöf Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefur birt á Evrópska efnahags- svæðinu auglýsingar um forval á arkitektahönnun byggingar fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höf- uðborgarsvæðinu (HVH). Stefnt er að því að byggja 26 þúsund fermetra hús á 30 þúsund fermetra lóð ofan Sundahafnar, milli Kleppsspítala og verslunarmiðstöðvarinnar Holta- garða. Byggingin á að verða tilbúin til notkunar í árslok 2027. Kostnaður er áætlaður um 20 milljarðar króna og er byggingin komin á fjárlög. Óskað er eftir umsóknum frá teymum arkitekta sem taka vilja þátt í lokuðu samkeppnisútboði verkefnisins. Fimm teymi verða valin til þátttöku. Að því loknu tekur við þrepaskipt ferli, sem lýst er í útboðs- auglýsingu. Að loknum fyrsta hluta samkeppninnar munu tvö teymi keppa um að hanna bygginguna. Um- sóknir um þátttöku þurfa að berast í síðasta lagi 17. janúar næstkomandi. Höfuðstöðvar löggæslu- og við- bragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, HVH, verður miðstöð þeirra sem gæta að lögum, reglu, björgun og öryggi almennings, segir í fréttabréfi, þar sem verkefnið er kynnt. Í miðstöð- inni muni þessir aðilar fá nútímalega aðstöðu sem auðveldar til muna hina mikilvægu þjónustu og vernd sem veitt er almenningi. Löggæslu- og viðbragðsaðilar sem hafa munu samastað í byggingunni verða: Landhelgisgæslan (LHG), Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH), Neyðarlínan (112), Ríkis- lögreglustjóri (RLS), Tollgæslan, Landsbjörg og Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins (SHS) – skrifstofur. Flestar þessar stofnanir eru nú að hluta til með aðsetur í björgunarmið- stöðinni í Skógarhlíð. Starfsmenn í nýja húsinu verða allt að 1.300 talsins. Þar verður vakt allan sólar- hringinn, alla daga ársins. Unnið er að deiliskipulagi lóðar- innar við Klepp að því marki sem mögulegt er áður en hönnunar- tillaga er tilbúin. Endanlegt deiliskipulag mun taka tillit til útlits, byggingarlína, fyrirkomu- lags og skuggavarps. Unnið er að forsögn með samgönguyfirvöldum til að samræma tímasetningu á framkvæmdum HVH- húsnæðisins og fyrirhugaðra samgöngumann- virkja í tengslum við Sæbraut, til að tryggja m.a. að forgangsakstur frá lóðinni gangi snurðulaust. HVH, eða húsnæði viðbragðs- aðila á höfuðborgarsvæðinu, er ekki sérlega þjált, segir í frétta- bréfinu, enda sé þetta vinnuheiti. Þegar líður að lokum framkvæmda verði haldin nafnasamkeppni um bygginguna. Húsið muni í framhaldinu fá nýtt nafn sem verði þjált og fallegt, enda verði þessa mikla bygging sameign þjóðarinnar. l Forval á arkitektahönnunbyggingar fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýstlAllt að 1.300mannsmunu vinna í 26 þúsund fermetra húsilRís viðKlepp Hver vill teikna 20milljarða hús? Morgunblaðið/Árni Sæberg StaðsetninginHin nýja björgunarmiðstöð þjóðarinnar rís á lóð sunnan við Kleppsspítala. Í forgrunni má sjá þak verslunarmiðstöðvarinnar Holtagarða. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.