Morgunblaðið - 07.12.2022, Qupperneq 14
14
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022
www.z.is
525 8200
Faxafeni 14, 108 Rvk
GJAFAVÖRUR FRÁ
STONEGLOW ER
TILVALIN JÓLAGJÖF
LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN
FAGLEG RÁÐGJÖF VIÐ KAUPOG SÖLU
HLÍÐASMÁRA 4 KÓPAVOGI - AUSTURVEGI 6 SELFOSSI & ESJUBRAUT 49 AKRANESI - SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS
Ekki vera gamaldags!
HR Monitor rauntíma
starfsánægjumælingar
er nútíminn
endurnýjanlegum
orkugjöfum.
Hvað gera stærstu
losendur heims?
Kína losar mest allra
ríkja heims eða tæp
25% af heildinni. Kín-
verjar fjárfesta jafn-
framt mest allra þjóða í
endurnýjanlegri orku. Í
ár bættust við 165 gíga-
vött (GW) af orku sem
framleidd er með vind-
eða sólarorku, sem er
fjórðungsaukning frá 2021. Talið er
að aukningin muni nema um 870 GW
á árabilinu 2021-2025. Til viðmiðun-
ar er afl íslenskra virkjana 3 GW.
Sala á rafmagnsbílum í Kína er talin
verða um sex milljónir nýrra bíla á
þessu ári, tvöfalt fleiri en sala hefð-
bundinna bíla í fyrra.
Losun heldur áfram að aukast í
Kína en nú er talið að hún nái há-
marki árið 2025 en ekki 2030 eins og
samkomulag varð um milli Kína og
Bandaríkjanna í aðdraganda París-
arráðstefnunnar árið 2015. Nýjustu
gögn benda til að losun í Kína
minnki um 0,9% á þessu ári.
Bandaríkin
Hlutur Bandaríkjanna í heimslos-
uninni er nú 12 prósent. Í sumar leið
voru samþykkt lög að frumkvæði Bi-
dens forseta sem fela í sér gríðar-
lega miklar fjárfestingar í hreinum
orkugjöfum, samtals 500 milljarða
dollara. Biden á þó við erfiðleika að
etja sökum andstöðu repúblikana við
loftslagsvísindi en repúblikanar
náðu meirihluta í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings í kosningunum í
nóvember.
Næst á eftir Kína er nýting sólar-
og vindorku mest í Bandaríkjunum.
Talið er að árið 2030 verði 85% orku
í Bandaríkjunum framleidd með
endurnýjanlegum orkugjöfum. Jafn-
framt er talið að rafbílar verði helm-
ingur allra nýrra bíla sem seljast
árið 2030.
Talið er að landsmarkmið Banda-
ríkjanna fari nærri því að standast
við markmið Sameinuðu þjóðanna
um takmörkun hlýnunar við 1,5°C.
Evrópusambandið
Evrópusambandið og aðildarríki
þess hafa sett sér ný markmið um
losun og nýtingu endurnýjanlegrar
orku. Losun ESB er nú 6,8% af
heimslosuninni, og hefur aukist
nokkuð, ekki síst vegna innrásar
Rússa í Úkraínu. Stefna Evrópu-
sambandsins nær til orkunýtni, end-
urnýjanlegrar orku, rafknúinna
samgangna, húshitunar og vetnis.
Lögð er áhersla á að auka metnað
Evrópusambandsins og efla þær
stoðir sem loftslagsstefna þess
byggist á. Þótt stríðið í Úkraínu hafi
tafið aðgerðir Evrópusambandsins
er niðurstaðan engu að síður sú að
hraða á aðgerðum til að komast hjá
Þorsteinn Sæmundsson stjörnu-
fræðingur hélt því fram í Morgun-
blaðinu nýverið að þær þjóðir sem
losa mest af gróðurhúsalofttegund-
um geri lítið sem ekkert til að draga
úr losun þeirra. Þar af leiðandi séu
„mannlegar aðgerðir til að hamla
gegn hitahækkuninni dæmdar til að
mistakast“.
Því sé beinlínis heimskulegt fyrir
Íslendinga að leggja mikið á sig til
þess arna enda sé raforka hér á
landi nær eingöngu framleidd með
því að sambandsríkin
verði háð Rússlandi
um olíu og gas.
Indland
Losun í Indlandi er
sjö prósent af heims-
losuninni. Indversk
stjórnvöld leggja nú
mikla áherslu á upp-
byggingu orkufram-
leiðslu með endurnýj-
anlegum orkugjöfum.
Markmið indverskra
stjórnvalda er að árið 2030 verði
helmingur orkuframleiðslu landsins
með endurnýjanlegum orkugjöfum.
Jafnframt er stefnt að kolefnishlut-
leysi árið 2070.
Á COP26-ráðstefnunni í Glasgow
var samþykkt að fasa skyldi út
bruna kola. Á COP27 í Sharm El-
Sheik lagði Indland til að útvíkka
samþykktina frá Glasgow og mæla
með útfösun jarðefnaeldsneytis,
þ.e.a.s. kola, olíu og gass. Sú tillaga
fékkst ekki samþykkt, einkum
vegna andstöðu olíuríkja á borð við
Sádi-Arabíu og Rússland.
Rússland
Eina ríkið meðal stórlosenda sem
ekki hefur uppi trúverðug áform um
minni losun er Rússland. Raunar má
halda því fram að árás Rússlands á
Úkraínu helgist af hagsmunum
Rússa af sölu á olíu og gasi.
Heildarmyndin
Að Rússlandi fráskildu eru þau
ríki sem losa mest öll á réttri leið. Þó
verður að setja spurningarmerki við
Bandaríkin í ljósi forsetakosninga
eftir tvö ár. Á COP26 í Glasgow og á
COP27 í Sharm El-Sheik mátti
heyra áhyggjuraddir þar sem hætta
væri á að Trump yrði forseti á ný
eða einhver annar repúblikani al-
gjörlega andvígur aðgerðum til að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Engu að síður, þau ríki sem
losa mest af gróðurhúsalofttegund-
um – samtals um 50% – hafa öll grip-
ið til aðgerða til að minnka losun
sína. Munu þær aðgerðir duga?
Tæpast, en fullyrðing Þorsteins
Sæmundssonar um að þessi ríki taki
ekki virkan þátt í aðgerðum gegn
loftslagsbreytingum lýsir kunn-
áttuleysi hans og vanþekkingu.
COP27 og þróun loftslagsmála
Árni Finnsson
Árni Finnsson
» Sú fullyrðing Þor-
steins að þessi ríki
taki ekki virkan þátt í
aðgerðum gegn lofts-
lagsbreytingum lýsir
kunnáttuleysi hans og
vanþekkingu.
Höfundur er formaður
Náttúruverndarsamtaka Íslands.
arni@natturuvernd.is
Hrafn heitinn Jökulsson
bróðir minn lét sig lítil-
magnann varða, hann kom
reglulega við á Barnaspítala
Hringsins og Aflagranda, allt
í sjálfboðavinnu árum saman,
hann barðist líka fyrir Vin
batasetri og lagði á sig á sín-
um tíma að stofna þar góða
stjórn með valinkunnu liði. Í
Vin batasetri koma saman viðkvæm-
ustu blómin, en þau koma þangað,
tefla, tálga og ýmislegt. Hrafn og
Róbert Lagerman ráku þar venju-
lega skákmót alveg einsog
inni á Kleppi. Þegar sverfur
að kemur gildismatið í ljós,
það viðkvæmasta verður fyr-
ir hnífnum, einsog á að
fækka sýningum á listasöfn-
um. Listin er það sem lyftir
okkar andans sál.
Ég skora á borgaryfirvöld
að endurskoða afstöðu sína
til Vinjar bataseturs. Eins
má hugsa sér að þannig sé
óþrjótandi sjálfboðavinna og góðvild
Hrafns höfð í hávegum.
Verndum Vin
Elísabet Jökulsdóttir
Höfundur er skáld.
Elísabet
Jökulsdóttir