Morgunblaðið - 07.12.2022, Page 15

Morgunblaðið - 07.12.2022, Page 15
UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022 Ljósaspeglar BEYONDAIR H. Jacobsen ehf. | Reykjavíkurvegi 66, 220 Hfj. Kíktu á beyondair.is Ný tækni í loftgæðum • Tækið líkir eftir loftinu utandyra • Notar súrefni og raka úr loftinu • Breytir þeim í öflug oxuð vatnsmólíkúl • Hlutleysir örverur í loftinu og á yfirborði • Eyðir vírusum, bakteríum, myglu og fl. Í gegnum tíðina hefur mannskepnunni farið fram hægt og sígandi og allar mögu- legar uppgötvanir til að létta henni lífið litið dagsins ljós. Vissulega hafa alls kyns hamfar- ir og stríð sett strik í reikninginn, en þegar á allt er litið hefur lífið farið batnandi fyrir meirihluta fólks um heim allan. Ekki ætla ég mér að rifja upp alla mannkynssöguna, en ég ætla að fjalla um þær stærstu framfarir sem bætt hafa líf hins al- menna borgara á minni tíð. Útvarpið var reyndar komið í gagnið rétt áður en ég fæddist. Ís- landsmenn hlustuðu með ákefð á fréttir, dánartilkynningar og alls kyns annað ánægjulegt efni. Jón bóndi á Hóli, sem var að eðlisfari tortrygginn, var ekki alveg sáttur við þessa nýju tækni og á hann að hafa sagt: „Það er nú meira hvað mikið deyr af mannfólkinu síðan út- varpið kom.“ Heima hjá okkur var útvarpstækið alltaf í gangi og pabbi sagði að það yrði að nýta hverja út- varpsstund því nógu hátt væri nú ið- gjaldið. Útvarpið stytti fólki stund- irnar í skammdeginu, fræddi það og skemmti því. Ég man vel þegar við fengum símann. Það var mikill spenningur á heimilinu og allir vildu fá að svara þegar hann hringdi. Fyrstu dagana stóðum við krakkarnir öll sjö í röð og biðum eftir hringingu. Síminn var mikil samgöngubót í okkar strjálbýla landi. Fyrstu árin bar mikið á því að sér í lagi eldra fólk talaði mjög háum rómi, næstum hrópaði, þegar það notaði símann. Í því tilefni heyrði ég um spaugi- legt atvik. Hjón nokkur í Kópavog- inum voru dag einn fyrir framan húsið sitt að setja niður kartöflur í garðholuna. Gluggi í kjallaranum var opinn, en þar leigði eldri maður. Þessa stundina var hann að tala mjög háum rómi, sem heyrðist alla leið út á götu. Maðurinn sagði þá við konuna: „Hvað er hann Gvendur að hrópa?“ „Ætli hann sé ekki bara að tala við bróður sinn hérna í götunni fyrir ofan,“ svaraði konan. „Af hverju í ósköpunum nota þeir ekki símann?“ sagði maðurinn. Ég tel að flestir geti verið sam- mála um það að útvarpið og síminn hafi verið samfélagsbyltingar sem betrumbættu tilveru flestra jarð- arbúa. Það voru engar „aukaverk- anir“ af útvarpi eða síma sem ég veit um. Sumir myndu þó segja að kvenkyns samborgarar hefðu oft á tíðum ofnotað símann, en það kom ekki að alvarlegri sök. En næstu stóruppfinningarnar, sjónvarpið og tölvan, þótt stórkostlegar væru, höfðu báðar sínar svörtu hliðar. Landinn var mörgum árum á eftir nágrannaþjóðunum að koma upp sjónvarpi. Það var mikið og dýrt verk að reisa endurvarpsstöðvar á okkar stóra landi svo allir gætu not- ið þessarar nýjungar. En þrátt fyrir okkar sjónvarpsleysi var varnarliðið í Keflavík komið með sjónvarp á ár- unum fyrir 1960. Stjórnendur lands- ins settu það skilyrði að kana- sjónvarpið mætti ekki sjást í Reykjavík og öðrum bæjum. Samt voru margir klókir landar sem gátu séð útsendingarnar þótt oft væri snjór á skjánum. Kunningi okkar bjó á efstu hæð í blokk við Hringbraut. Hann hafði komið sér upp loftneti svo hann gæti krækt í kanasjónvarpið. Einn dag bauð hann mér og konunni að koma í sjónvarpskvöld. Ekki sást myndin allt of vel og sendi kunn- inginn konuna sína hvað eftir annað út á svalirnar til að snúa loftnetinu. Það var kraftaverk að hún skyldi ekki fá lungnabólgu því úti var hörkufrost. Og þrátt fyrir allt var enn þá snjór á skján- um. Nokkrum árum seinna kom svo ís- lenska sjónvarpið. Miklar vonir voru bundnar við sjónvarps- tæknina. Talið var í byrjun að sjónvarpið gæti orðið mikilvægt kennslutæki fyrir þjóð- ir heimsins. En þær vonir hafa brugðist að mörgu leyti, jafnvel þótt alls kyns sjónvarpskennsla fari þar fram. Íþróttir, fréttir og alls konar afþreyingarefni einkennir sjónvarpið. Vissulega er þar að finna margt gott efni en því miður er meirihluti þess í lélegri kantin- um. Rannsóknir hafa jafnvel sýnt að gamlingjar sem horfa of mikið á sjónvarp eigi á hættu að fá heila- sjúkdóma eins og alzheimer. Og þá er komið að fjórðu bylting- unni, tölvuundrinu. Hverju myndi táningur á Íslandi í dag svara ef hann væri spurður hvernig hann héldi að lífið væri án tölvutækninn- ar? Ég er nokkuð viss um að hann ætti bágt með að ímynda sér líf án tölvu. Þessi bylting hefur meira og minna farið fram hjá mér og er skiljanlega háum aldri um að kenna. Samt hef ég notið hennar að ýmsu leyti þótt ég sé rétt í kantinum. Er ég meðal annars það forframaður, að ég og systir mín í Reykjavík get- um vikulega séð hvort annað og spjallað í sjóntali. Tölvutæknin hefir hertekið heim- inn. Hundruð milljóna manna eru tölvufíklar. Og lygin grasserar í tölvuheimi. Þar er boðið upp á tvær útgáfur af svokölluðum sannleika, og þú verður að ákveða hvorum þú vilt trúa. Tölvan torveldar mörgum börnum og ungu fólki að lifa og þroskast á eðlilegan hátt. Hún hefir gerbreytt heiminum bæði til góðs og ills. Þetta eru þá þessar fjórar samfélagsbyltingar sem ég hef upp- lifað. Ég er ekki viss um að sú fimmta komi. Við ráðum bara ekki við meira í bili. Fjórar sam- félagsbyltingar Þórir S. Gröndal Þórir S. Gröndal » Tölvutæknin hefur hertekið heiminn. Hundruð milljóna manna eru tölvufíklar. Og lygin grasserar í tölvuheimi. Höfundur er fyrrverandi fisksali og ræðismaður í Ameríku. Daglega tröllríður dægurþras um efna- hagsmál fjölmiðlum. Það er eins og þorri fólks sjái engin gildi né verðmæti í öðru en pen- ingum og fasteignum. Stöðugt er þráttað um kaup og kjör og daglega berast fréttir af banka- málum, vöxtum og verð- bréfum. Ef lífið snýst eingöngu um það að eiga meira fé í dag en í gær, sem alls ekki á við alla þjóðfélagshópa, er eng- in furða þótt fólk hreinlega gefist upp á tilverunni. Það er ósköp innihalds- laust líf og óeðlilegt mannverum að lifa eingöngu til að afla fjár til að eiga fyrir greiðslu reikninga um hver mán- aðamót. Engan þarf því að undra þótt sjálfsvígum fari fjölgandi og ásókn í fjölbreytileg deyfilyf. Fólk er einfald- lega þreytt á ónáttúru siðmenningarinnar, þar sem raunveruleg lífsgildi eru fyrir borð borin. Sið- menning okkar er því miður stílfærð upp á peningalegt auðmagn og óstjórnlega græðgisvæð- ingu. Menntun ungmenna hefur því miður ekki ver- ið beint inn á braut mannkærleika, sam- hjálpar og miskunnar, heldur miskunnarlausrar samkeppni um veraldlegar eigur og auðæfi. Lífið er stutt og enginn fer með ver- aldlegan gróða, vel eða illa fenginn, yfir landamæri lífs og dauða. Enda gerir veraldarauðurinn okkur lítið gagn í komandi heimi. Við fæðumst nakin inn í þessa jarðvist og nakin yfirgefum við hana. Mikið yrði samfélag okkar mann- anna bærilegra ef við fengjum mennt- un í því hver sönn auðæfi eru hér í heimi. Þá yrði það gleði auðkýfinga að deila ofgnótt sinni með þeim sem minna eiga og í staðinn öðlast virð- ingu þeirra, fyrirbænir og hjarta- hlýju. Í allflestum aðstæðum lífsins vegur mannlegi þátturinn svokallaði á end- anum meira en hinn ómanneskjulegi, gráðugi og sjálfselski. Sú menntun fæst ekki úr háskólum siðmenningar græðgisvæðingarinnar, heldur úr hjörtum þeirra manna og kvenna, feðra og mæðra, sem kynnst hafa hinum raunverulegu auðæfum mannlífsins í þessari jarðvist. Auður raunveruleikans Einar Ingvi Magnússon » Siðmenning okkar er því miður stílfærð upp á peningalegt auð- magn og óstjórnlega græðgisvæðingu. Einar Ingvi Magnússon Höfundur er áhugamaður um samfélagsmál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.