Morgunblaðið - 07.12.2022, Page 22

Morgunblaðið - 07.12.2022, Page 22
ÍÞRÓTTIR22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022 Viktor ekki alvar- legameiddur Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður Nantes í Frakklandi og íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, er ekki alvarlega meiddur. Þetta staðfesti hann í samtali við Morgunblaðið í gær en Viktor Gísli þurfti að fara af velli í leik Nantes og Sélestat í frönsku 1. deildinni á sunnu- daginn vegna meiðsla á olnboga. „Ég þarf að hvíla þangað til verk- urinn fer en þetta ætti ekki að vera neitt alvarlegt,“ sagði Viktor meðal annars. Morgunblaðið/Eggert NantesViktor Gísli Hallgrímsson hefur leikið afar vel í Frakklandi. Bestur hjá Oakland Knattspyrnumaðurinn Óttar Magnús Karlsson er leikmaður ársins hjá bandaríska félaginu Oakland Roots. Óttar lék með Oakland-liðinu í B-deild Bandaríkjanna á síðustu leiktíð og skoraði 19 mörk í 30 leikjum. Var hann á meðal marka- hæstu manna deildarinnar. Sóknarmaðurinn er samnings- bundinn Venezia á Ítalíu en hefur lítið fengið að spreyta sig hjá félaginu. Verður hann samnings- laus eftir yfirstandandi tímabil. Ljósmynd/@oaklandrootssc FramherjiÓttar Magnús Karlsson hefur spilað vel í Bandaríkjunum. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Origo-höll: Valur – Grindavík................. 18.15 Smárinn: Breiðablik – Njarðvík ............ 19.15 Skógarsel: ÍR – Keflavík.......................... 19.15 Ásvellir: Haukar – Fjölnir...................... 20.15 1. deild kvenna: Kennarahásk.: Ármann – Snæfell ......... 19.15 Höllin: Þór Ak. – Aþena .......................... 19.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Úlfarsárdalur: Fram – Valur ...................... 20 1. deild kvenna KR – Stjarnan ......................................... 83:86 Staðan: Stjarnan 11 11 0 953:726 22 Snæfell 12 10 2 858:627 20 Þór Ak. 12 9 3 902:768 18 KR 12 6 6 930:850 12 Hamar-Þór 12 6 6 918:858 12 Ármann 11 5 6 774:741 10 Aþena/LU 11 4 7 825:771 8 Tindastóll 12 2 10 852:932 4 Breiðablik B 13 0 13 497:1236 0 Spánn B-deild: Oviedo – Real Valladolid .................... 64:81 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skoraði 2 stig, tók tvö fráköst og stal einum bolta á 17 mínútum hjá Oviedo. Belgía/Holland Yoast Utd – Aris Leeuwarden........... 74:93 Kristinn Pálsson skoraði 11 stig, tók 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á 32mínútumhjá Aris. NBA-deildin Charlotte – LA Clippers....................... 117:119 Orlando – Milwaukee.......................... 102:109 Atlanta – Oklahoma City ..................... 114:121 Toronto – Boston.................................. 110:116 Houston – Philadelphia ....................... 132:123 Memphis – Miami.................................. 101:93 Dallas – Phoenix .................................... 130:111 Golden State – Indiana........................ 104:112 Evrópudeild karla B-RIÐILL: Ferencváros – Valur ............................ 33:33 Aix – Ystad IF ........................................ 34:36 Kristján Örn Kristjánsson skoraði ekki fyrir Aix. Benidorm – Flensburg ........................ 32:38 Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark fyrir Flensburg. Flensburg 8 stig, Aix 6, Ystad IF 6, Valur 5, Ferencváros 3, Benidorm 2. A-RIÐILL: Göppingen – Kadetten......................... 24:25 Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði þrjú mörk fyrir Kadetten. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið. Benfica – Montpellier ............................. 24:26 Veszprémi KKFT – Tatran Presov ..... 30:28 Montpellier 10 stig, Kadetten 8, Göppingen 6, Benfica 4, Veszprémi KKFT 2, Tatran Presov 0. C-RIÐILL: Alpla Hard – Balatonfüredi ............. 30:30 Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard. Skjern – Sporting Lissabon ............... 28:30 Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir Skjern. Nexe – Granollers.................................... 39:36 Nexe 10 stig, Granollers 6, Skjern 6, Sporting Lissabon 6, Balatonfüredi 1, Alpla Hard 1. D-RIÐILL: Bidasoa – Pelister.................................... 32:20 Aguas Santas – Motor Zaporozhye ..... 26:26 Füchse Berlin – Skandeburg................ 30:24 Füchse Berlín 10 stig, Skandeborg 8, Bida- soa 6, Pelister 4, Motor Zaporozhye 1, Aguas Santas 1. HM í Katar 16-LIÐAÚRSLIT: Marokkó – Spánn ........................ (0:0) 3:0 Marokkó sigraði 3:0 í vítaspyrnukeppni. Portúgal – Sviss..................................... 6:1 Goncalo Ramos 17., 51., 67., Pepe 33., Raph- ael Guerreiro 55., Rafael Leao 90. – Manuel Akanji 58. 8-LIÐAÚRSLIT: 9.12. Króatía – Brasilía.................................. 15 9.12. Holland – Argentína ............................. 19 10.12. Marokkó – Portúgal.............................15 10.12. England – Frakkland.......................... 19 MARKAHÆSTIRÁHM: Kylian Mbappé, Frakklandi.......................... 5 Goncalo Ramos, Portúgal ............................. 3 Álvaro Morata, Spáni .................................... 3 Lionel Messi, Argentínu................................ 3 Marcus Rashford, Englandi ......................... 3 Bukayo Saka, Englandi ................................. 3 Olivier Giroud, Frakklandi ........................... 3 Richarlison, Brasilíu ...................................... 3 Enner Valencia, Ekvador .............................. 3 Cody Gakpo, Hollandi.................................... 3 Liðstyrkur í Laugardal Knattspyrnudeild Þróttar úr Reykjavík hefur gengið frá samningi við bandaríska leik- manninn Katie Cousins. Kemur hún til Þróttar frá Angel City í heimalandinu en þar lék hún í at- vinnudeildinni, NWSL, á síðasta tímabili. Cousins lék afar vel með Þrótti sumarið 2021 og skoraði sjö mörk í 17 leikjum í efstu deild en liðið endaði þá í þriðja sæti deildarinn- ar á eftir Val og Breiðabliki. Þá átti Cousins sinn þátt í að Þróttur fór alla leið í bikarúrslit þar sem liðið tapaði fyrir Breiðabliki. Þróttur hefur einnig gengið frá samningi við Ingunni Haralds- dóttur til tveggja ára. Hún lék síðast með PAOK í Grikklandi, en hefur leikið með Val, HK/Víkingi og KR hér á landi, alls 69 leiki í efstu deild. Þá hafa þær Sæunn Björns- dóttir, Jelena Tinna Kujundzic og markvörðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir framlengt samn- ing sinn við félagið en þær hafa allar verið lykilmenn í liði Þrótt- ar undanfarin keppnistímabil. Morgunblaðið/Eggert SóknKatie Cousins leikur með Þrótturum á nýjan leik í sumar. Magnaðir Marokkóbúar AFP/Fabrice Coffrini Þrenna Sóknarmaðurinn Goncalo Ramos stal senunni í 6:1-stórsigri Portú- gals á Sviss er hann skoraði þrennu og lagði upp mark til viðbótar. l Í 8-liða úrslit HM í fyrsta sinnlBono hetjan í vítaspyrnukeppnilSpánn klúðraði þremur vítaspyrnumlRamos kom inn fyrir Ronaldo og skoraði þrennu Marokkó skráði sig á spjöld sögunnar þegar liðið hafði betur gegn Spáni, 3:0, eftir vítaspyrn- ukeppni í 16-liða úrslitum HM í fótbolta karla í Katar í gær. Bono í marki Marokkós varði tvær vítaspyrnur Spánverja og tryggði liðinu þannig sæti í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts í fyrsta sinn í sögunni. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og sömuleiðis að lokinni framlengingu. Marokkó var síst lak- ari aðilinn í leiknum, fékk nokkur prýðisfæri og varðist stórkostlega. Varamaðurinn Pablo Sarabia komst nálægt því að tryggja Spáni sigur á þriðju mínútu uppbótartíma í fram- lengingunni en skot hans á lofti úr þröngu færi hafnaði í stönginni. Því þurfti vítaspyrnukeppni til þess að knýja fram úrslit. Í víta- spyrnukeppninni sýndu Marokkó- búar sannkallaðar stáltaugar og skoruðu úr þremur af fjórum spyrnum sínum; það gerðu þeir Abdelhamid Sabiri, Hakim Ziyech og Achraf Hakimi, sem er fæddur og uppalinn á Spáni. Spánverjar klúðruðu hins vegar öllum þremur spyrnum sínum; Sarabia skaut í stöng og Bono varði spyrnur Carlos Solers og Sergios Busquets. Eina Afríkuþjóðin Marokkó er því eina Afríkuþjóðin í 8-liða úrslitum HM í ár, þar sem liðið mun mæta Portúgal og freista þess að verða fyrsta Afríkuþjóðin til þess að tryggja sér sæti í undan- úrslitum heimsmeistaramóts í sögunni. Marokkó kom flestum á óvart með því að vinna F-riðil, þar sem Króatía hafnaði í öðru sæti og Belgía komst ekki upp úr riðlinum. Skipulag frábærrar liðsheildar undir stjórn landsliðsþjálfarans Walids Regraguis, sem tók aðeins við Marokkó fyrir þremur mánuð- um, hefur reynst gulls ígildi enda velti hann því fyrir sér á blaða- mannafundi á dögunum af hverju Marokkóbúar ættu ekki að láta sig dreyma um heimsmeistaratitilinn. Spánverjar fara hins vegar heim með skottið á milli lappanna þar sem uppskeran var að lokum aðeins einn sigur í fjórum leikjum, 7:0 gegn Kosta Ríku í 1. umferð E-riðils. Eftir þann sigur virtust Spáni allir vegir færir á mótinu en annað kom svo sannarlega á daginn. Óvæntur senuþjófur Portúgal lenti ekki í nokkrum vandræðum með Sviss í síðasta leik 16-liða úrslitanna í gærkvöldi og vann öruggan 6:1-sigur. Goncalo Ramos sóknarmaður Benfica fékk tækifærið í fremstu víglínu Portúgals á kostnað Cristianos Ronaldos, sem byrjaði á varamannabekknum og lék síðasta stundarfjórðunginn. Ramos þakk- aði kærlega fyrir sig með því að skora þrennu og leggja upp annað mark. Pepe, Raphael Guerreiro og Rafael Leao komust einnig á blað hjá Portúgal. Manuel Akanji skoraði mark Sviss. Hinn 39 ára gamli Pepe er elsti leikmaðurinn til að skora í út- sláttarkeppni heimsmeistaramóts og næstelsti markaskorari HM í sögunni á eftir Kamerúnanum Roger Milla, sem var 42 ára þegar hann skoraði í riðlakeppni HM 1994. Marokkó og Portúgal eigast við í fjórðungsúrslitunum klukkan 15 næstkomandi laugardag. HM Í KATAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is AFP/Glyn Kirk Gleði LeikmennMarokkós fagna eftir að Achraf Hakimi tryggði 3:0-sigur á Spáni í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitumHM í fótbolta í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.