Morgunblaðið - 07.12.2022, Side 28

Morgunblaðið - 07.12.2022, Side 28
Í lausasölu 822 kr. Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr. PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr. Sími 569 1100 Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2022 MENNING Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur jólatónleika í kvöld Hinir árlegu jólatónleikar Kammerkórs Seltjarnarnes- kirkju verða haldnir í kirkjunni í kvöld kl. 20. Á efnisskrá verða jólalög úr ýmsum áttum, íslensk jafnt sem erlend. Einsöngvarar og hljóðfæraleikarar eru úr röðum kórfélaga og munu kórfélagar einnig koma fram sem dúettar, tríó og kvartettar. Stjórnandi kórsins er Friðrik Vignir Stefánsson og leikur hann einnig undir á píanó. ÍÞRÓTTIR Valsmenn misstu niður forskotið Annan leikinn í röð fóru Valsmenn illa að ráði sínu á lokakaflanum í útileik í B-riðli Evrópudeildar karla í handbolta er Íslands- og bikarmeistararnir heimsóttu Ferencváros til Búdapest, höfuðborgar Ungverjalands, í gærkvöldi.» 23 Casa Skeifan 8 | casa.is Láttu ekki veturinn stoppa þig Trausti Hafsteinsson gaf út spurn- ingaspilið „Gettu betur“ árið 2002 og nú hefur hann sent frá sér 20 ára afmælisútgáfu með 2.100 nýjum spurningum eftir Illuga Jökulsson. Nýja skemmtispilið „Hrærigrautur“ er jafnframt á hans vegum og spurningar og þrautir eftir Illuga, en Trausti var honum innan handar og hannaði bæði spilin. „Hrærigrautur“ er hugsað fyrir þá sem hafa gaman af íslenskri tungu og fjörugri keppni. „Spil- ið er skemmtilegur hræringur úr vinsælum þáttum, spilum og orðaleikjum, þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum þrautum,“ segir Trausti. Úr stafaruglinu NÁAAMETDSÐ BEÁPTLUIRN HSLÁUNTSRI eigi til dæmis að reyna að búa til sem lengst orð. Árið 1986 hófst Gettu betur, spurningakeppni íslenskra fram- haldsskóla, í Ríkisútvarpinu og er samnefnda spilið byggt á dagskrár- liðnum. „Ég gef spilið út með leyfi og í samstarfi við RÚV,“ leggur Trausti áherslu á, en spurningarn- ar eru í fimm flokkum; hraða-, staðreyndavillu-, bjöllu- og vís- bendingaspurningar auk þríþrautar. „Spilið er ekki aðeins hugsað fyrir snillingana heldur eru spurningarn- ar þess eðlis að allir geta verið með og því geta landsmenn allir látið ljós sitt skína.“ Ferðir og fararstjórn Ferðir og fararstjórn hafa lengi átt hug Trausta og skömmu eftir að „Gettu betur“ kom fyrst út flutti hann til útlanda, þar sem hann starfaði við áhugamálið. Á þeim tíma gaf hann út tónlistargetrauna- spilið „Popppunktinn“, sem hann byggði á samnefndum sjónvarps- þætti dr. Gunna. „Það var erfitt að fjarstýra útgáfunni og því setti ég frekari spilaútgáfuhugmyndir í bið, þar til við fluttum aftur heim vegna Covid,“ segir Trausti, sem er reynd- ar nýkominn frá því að leiðsegja fólki í Marokkó. Hann segir senni- legt að vinna í ferðaþjónustunni aukist á ný á komandi ári og hann hlakki til nýrra ævintýra. Spil af ýmsu tagi hafa hins vegar fylgt Trausta frá barnæsku. „Í grunninn er ég mikill spilakarl og hef haft gaman af því að spila frá því ég man eftir mér,“ upplýsir hann. Hann hafi notað hvert tæki- færi til þess að spila, hvort sem er með fjölskyldunni eða vinum. „Ég verð aldrei leiður á því.“ Trausti segir að útgáfan á fyrsta spilinu hafi í raun verið eðlilegt framhald af þessu áhugamáli. „Það má segja að „Gettu betur“ hafi verið eins og fyrsta barnið, fæðing sem beðið var eftir og gekk vel.“ Hann segir alla vinnuna frá hugmynd til útgáfu mjög skemmtilega og upplifunin sé líklega svipuð og hjá rithöfundum. „Það er gaman að vita til þess að fólk kaupi hugverk manns og að þau séu til á heimilum, þar sem þau gleðji fólk í mörg ár.“ lTraustiHafsteinssonmeð spurninga- og skemmtispil Spurt og svarað í fjörugri keppni Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Spilakóngur Trausti Hafsteinsson hefur gefið út tvö ný spil, Hrærigraut og Gettu betur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.