Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 1
VONANDI AÐVEXTIR LÆKKIHEILBRIGÐMÖRK Chanel endurvekur klassík frá níunda áratugnum. 8 Vinnuveitendur víða um heim standa núna frammi fyrir því að starfsfólkið neitar að þræla sér út. 10 VIÐSKIPTA 11 Elvar Orri segir það boða gott að stjórnvöld hyggist stórauka framboð á húsnæði en háir stýri- vextir eru atvinnulífinu til trafala. MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Fá 35 milljónir aukalega fyrir úttekt Samkeppniseftirlitið (SKE) mun, að eigin frumkvæði og með viðbótargreiðslu frá mat- vælaráðuneytinu, ráðast í sérstaka athugun á stjórnar- og eignartengslum í sjávarútvegi. Tilkynnt var um úttektina á vef ráðuneytisins í upphafi mánaðarins og að gerður hefði verið samningur milli ráðuneytisins og SKE. Í samningnum, sem ViðskiptaMoggi fékk afhentan frá ráðuneytinu, kemur þó fram að athugunin nær út fyrir eignarhald í sjávar- útvegi. Til stendur að kanna eignarhald þeirra aðlila sem eiga hlut í sjávarúvegsfyrirtækjum í öðrum fyrirtækjum hér á landi, án tillits til þess á hvaða sviði þau starfa. Ákvörðun um að ráðast í athugunina var tekin af SKE. Það kemur fram í svari ráðu- neytisins við spurningum ViðskiptaMogga um málið. Í byrjun þessa mánaðar tilkynnti ráðu- neytið að ráðist yrði í kortlagningu stjórn- unar- og eignatengsla í sjávarútvegi og að gerður hefði verið samningur við SKE um að tryggja „fjárhagslegt svigrúm“ til að stofnunin gæti ráðist í úttektina. Fyrir þessa vinnu greiðir ráðuneytið 35 milljónir króna til SKE, sem ber að skila niðurstöðunni í sérstakri skýrslu sem verði afhent ráðu- neytinu í lok næsta árs. Í samningi ráðuneytisins og SKE kemur fram að SKE og aðrar stofnanir taki sjálf- stæða ákvörðun um það hvort og hvernig gögn sem aflað verður verði í framhaldinu nýtt til frekari rannsókna eða íhlutunar eftirlits- stofnunarinnar. Í tilkynningu ráðuneytisins, þegar tilkynnt var um úttektina, kom fram að vinna við kort- lagningu stjórnunar- og eignatengsla í sjávar- útvegi væri liður í heildarstefnumótun ráðu- neytisins og í „samræmi við stjórnarsáttmála og áherslur Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra“. ViðskiptaMoggi spurði því hvort túlka mætti það sem svo að ráðherrann væri með áherslur í málaflokknum sem ekki væri að finna í stjórnarsáttmálanum. Í svari ráðuneytisins kemur fram að svo sé ekki. Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Samkeppniseftirlitið fær greiddar 35 milljónir króna til að ráðast í úttekt sem stofnunin hafði frum- kvæði að. Morgunblaðið/Ómar Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Stofnunin tekur sjálf ákvörðun um það hvort og hvernig gögn sem aflað verður verði nýtt til frekari rannsókna eða íhlutunar. EUR/ISK 18.4.'22 18.10.'22 150 145 140 135 130 125 140,25 141,35 Úrvalsvísitalan 3.300 3.100 2.900 2.700 2.500 2.300 18.4.'22 18.10.'22 3.119,90 2.503,84 Athafnahjónin Ingibjörg Jónsdóttir og Friðrik Steinn Kristjánsson munu á laugardaginn kemur taka í notkun nýjan sýningarsal í galleríi sínu, Bergi Contemporary, við Klapparstíg í Reykjavík. Sigurður Guðjónsson, fulltrúi Ís- lands á Feneyjatvíæringnum í ár, mun þar sýna verk sitt. Þar höfðu hjónin þegar endurgert gamla glerverksmiðju og komið fyrir sýningarsal á jarðhæð og á efri hæðum skrifstofum og vinnuað- stöðu. Nýi sýningarsalurinn er í við- byggingu Smiðjustígsmegin og þar eru jafnframt gestaíbúðir fyrir lista- menn og aðstaða fyrir píanóleikara. Kostnaðurinn er trúnaðarmál Ingibjörg segir trúnaðarmál hversu mikið fé uppbyggingin hafi kostað en þau hjónin styrkja per- sónulega útflutning á íslenskri myndlist með því að taka þátt í sýningarhaldi erlendis. Ingibjörg ræðir í ítarlegu viðtali við ViðskiptaMoggann um sölu gall- erísins og hvernig verðmyndun er háttað á listmunum á Íslandi og í öðrum norrænum ríkjum. Það sé af og frá að sala listaverkanna standi undir rekstri Bergs Contemporary. „Það má segja að hér búi að baki ástríða og áhugi okkar mannsins míns. Þess vegna erum við að þessu,“ segir Ingibjörg en þau hjón hafa þegar boðið erlendum gestum til dvalar í nýju íbúðunum. Ingibjörg gagnrýnir fast- eignagjöld á galleríið sem séu úr tengslum við starfsemina og forsendur hennar. Styrkja útflutning á íslenskri myndlist Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ingibjörg Jónsdóttir, annar tveggja stofnenda Bergs Contempory. Annar stofnenda Bergs Contemporary segir list- markaðinn á Íslandi að þroskast. Margir safni list. 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.