Morgunblaðið - 19.10.2022, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 19.10.2022, Qupperneq 7
jafn alþjóðlegar tengingar og þið hjá Bergi Con- temporary hafið byggt upp síðustu ár? „Það eru i8, Hverfisgallerí og við. Þessi þrjú gallerí. Það er auðvitað heilbrigð samkeppni en góður vinskapur líka. Árið 2020 var listamessan Chart í Kaupmannahöfn, sem við tökum þátt í árlega, ekki haldin í þeirri mynd sem hún hefur verið haldin heldur var henni dreift um mörg sýningarrými. Þá hafði verið lokað hjá okkur um sumarið vegna faraldursins og svo þegar færi gafst komu hin tvö galleríin hingað og settu upp sína bása, þannig að við vorum öll hér saman. Þetta þótti mjög jákvætt á hinum Norður- löndunum og segir sitt um gagnkvæma velvild á milli okkar [hjá galleríunum þremur].“ Aðflutningsgjöldin eru misjafnlega há – Hvaða áhrif hefur fjölgun erlendra ferða- manna haft á íslenskan listamarkað? „Það er töluvert um erlenda ferðamenn sem koma að skoða sýningar en salan til þeirra er ekki mikil. Þegar ferðamenn flytja listaverk úr landi, eða fá send héðan, fer það eftir viðkom- andi landi hversu mikið er greitt í aðflutnings- gjöld. Munur á skattaprósentunni getur verið merkilega mikill. Ef listaverk eru til dæmis send að utan til Íslands þarf að borga hefðbundna virðisaukaskattsprósentu en ef listaverkið er sent til Danmerkur þarf ekki að greiða nema 5% skatt og í Sviss er hlutfallið 8%. Svona er hlut- fallið misjafnt eftir löndum. Ég sé því í fljótu bragði ekki hvað skatturinn gæti gert til að örva sölu til ferðamanna. Hins vegar mætti vel huga að því að fella alfarið niður virðisaukaskatt á þann hluta sem galleríið fær í sinn hlut [af sölu- andvirði listaverks] en við þurfum að borga full- an skatt af því. Svo mætti auðvitað huga að því að listaverkakaup yrðu frádráttarbær frá skatti. Þá til dæmis hjá fyrirtækjum,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir að lokum. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hluti af nýja húsnæðinu við galleríið. Þar verða meðal annars tvær gestaíbúðir. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 7VIÐTAL – Þið vandið bersýnilega til verka. Hvað hefur þetta kostað ykkur, með leyfi að spyrja? „Það er trúnaðarmál. Við höfum lagt mikið af mörkum – og ég ætla að vona að fólk líti einnig svo á – en þetta hefur líka veitt okkur mikla gleði og ánægju. Það koma stök ár hjá galleríum þegar þau eru rekin með hagnaði en yfirleitt standa sýningar engan veginn und- ir sér. Til að koma til móts við rekstur slíkra gallería mætti til dæmis endurskoða fast- eignagjöld en það er umhugsunarefni að það skuli ekki vera til fleiri flokkar af þeim. Lítill hluti fer undir sölu Með rekstri gallerís af þessu tagi er verið að auðga menningu landsins og styrkja listina í landinu. Ef maður flettir í orðabók telst at- vinnuhúsnæði vera húsnæði sem er hugsað til þess að afla tekna og ég get sagt að lítill hluti af þessu húsnæði fer undir sölu. Hinn hlutinn fer undir sýningar sem standa yfirleitt á engan hátt undir sér og aðgangur er ókeyp- is og öllum heimill. Það er vel hægt að reka lítil gallerí með hagnaði – slík gallerí má finna út um allan bæ – en þau eru þá rekin á allt öðrum forsendum. Það er ekki verið að kynna lista- mennina, eða verið að byggja upp feril þeirra á þann hátt sem er verið að gera hér. Þar eru gjarnan til sölu lítil verk á lægra verði og þau gallerí minna meira á gjafavöruverslun. Eru ekki að biðja um styrki Við erum ekki að biðja um styrki en það mætti vera meiri skilningur á því að hér sé verið að leggja rækt við listina. Við viljum styðja listamenn sem við teljum að sé grund- völlur fyrir að kynna erlendis og eru að vinna alvarlega að sínum hlutum. Við horfum nú á Sigurð [Guðjónsson] en þar liggur mikil vinna að baki. Fyrir listamennina fylgir þessu yfirleitt ákveðin fórn, af lífsgæðum og öðru, og við reynum að búa til ramma sem styður við þá. Það væri ekki verra ef það væri meiri skiln- ingur á því,“ segir Ingibjörg. Fasteignagjöldin umhugsunarefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.