Morgunblaðið - 19.10.2022, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022SJÓNARHÓLL
EGGERT
D
eilur um landamerki hafa verið mjög tíðar
hjer á landi, bæði að fornu og nýju. Hafa
mörg dómsmál út af þeim risið og oft jafnvel
fjandskapur einstakra manna á meðal.“
Svo segir í greinargerð með frumvarpi því sem
varð að núgildandi landamerkjalögum sem eru frá
árinu 1919. Núna, 103 árum síðar, er enn mikið um
landamerkjadeilur, dómsmál og jafnvel fjandskap því
tengdan.
Um merki jarða og annarra fasteigna hefur verið
fjallað með ýmsum hætti í gegnum tíðina í íslenskri
löggjöf. Í fornöld voru takmörkuð ákvæði um landa-
merki í Grágás, fyrstu lög-
bók Íslendinga, m.a. um
löggarða og einnig voru
takmörkuð ákvæði um
landamerki í Jónsbók sem
tók gildi síðar. Árið 1882
voru sett landamerkjalög
og fyrst mælt fyrir um það
að landeigendur skyldu
gera landamerkjaskrár og í
kjölfarið voru gerðar slíkar
skrár fyrir margar jarðir
en þó alls ekki allar. Einnig
var misjafnt hversu vel var
vandað til landamerkja-
lýsinganna og hvort nauð-
synlegra undirskrifta var
aflað. Vegna slíkra ann-
marka voru núgildandi lög
sett.
Nú hafa enn á ný verið samþykktar á Alþingi nýjar
lagareglur um landamerki. Lögin frá 1919 verða felld
úr gildi og í stað þeirra kemur nýr kafli í lög um
skráningu og mat fasteigna sem mun heita „I. kafli
A, Merki fasteigna“. Þessar breytingar öðlast gildi 1.
janúar 2024. Enn á að reyna að koma þessum málum
í betra horf. Þegar lögin hafa öðlast gildi verður eig-
endum fasteigna gert skylt að gera merkjalýsingu
um fasteignir sínar og láta draga merkin upp með
hnitum enda liggi ekki fyrir þinglýst og glögg af-
mörkun. Þá er mælt fyrir um að gefin verði út sér-
stök leyfi til þeirra sem einir mega gera merkja-
lýsingar og nokkuð ítarleg ákvæði um skilyrði sem
þessir menn þurfa að uppfylla og hvernig merkja-
lýsingar skuli úr garði gerðar.
Eins og í núgildandi landamerkjalögum verður
áfram mælt fyrir um að ef upp kemur ágreiningur
milli eigenda um merki milli fasteigna geti þeir leitað
sátta fyrir milligöngu sýslumanns. Það sem breytist
er að framvegis verður slík sáttameðferð nauðsyn-
legur undanfari þess að höfðað verði mál fyrir dómi
um merki fasteigna. Þess vegna má velta fyrir sér
hvort landeigendur sem eiga í deilum vegna landa-
merkja og einkum ef milli þeirra ríkir fjandskapur og
þeir sjá ekki fram á að nokkur leið sé að sætta þær
deilur eigi að drífa sig og höfða
mál fyrir dómi fyrir 1. janúar
2024 áður en lögin öðlast gildi.
Þannig væri hægt að losna við
kostnað og tíma sem færi í sátta-
meðferð hjá sýslumanni en mælt
er fyrir um það að um þau mál
sem hafin eru hjá dómstólum fyr-
ir gildistöku nýju laganna skuli
fara samkvæmt fyrirmælum laga
fyrir gildistökuna.
Þó það sé alltaf eftirsjá að
lögum sem eru orðin meira en
hundrað ára gömul þá er þessi
lagasetning líklega til bóta. Í dag
er farið að bera á dæmum um að
nákvæm landamerki geti skipt
máli vegna mikils ferðamanna-
straums og framkvæmda á ferða-
mannastöðum. Hnitasetning ná-
kvæmari og tryggari leið til að setja niður merki en
hinar fornu aðferðir.
Skylda til hnitasetningar og skráningar landa-
merkja kann að koma mörgum að gagni. Sérstaklega
þeim sem eiga löndin og það má spyrja sig hvort
nauðsynlegt sé að skylda nágranna til að láta hnita-
setja landamerki sín á milli. Það eru þeir sjálfir sem
bera hallann af mögulegri ónákvæmni eða skorti á
skráningu. Svarið er þó líklega að skráningin þjónar
einnig þeim tilgangi að auðvelda skráningu á stærð
og þar með skattheimtu, eftirlit, framkvæmd reglna
um meðferð lands og ýmis önnur afskipti hins opin-
bera.
LÖGFRÆÐI
Magnús Óskarsson
Lögmaður með málflutningsréttindi í
New York-ríki og hæstaréttarlögmaður
hjá Lögmáli ehf.
Nýjar reglur um landamerki
”
Þess vegna má velta
fyrir sér hvort landeig-
endur sem eiga í deilum
vegna landamerkja og
einkum ef milli þeirra
ríkir fjandskapur og þeir
sjá ekki fram á að nokk-
ur leið sé að sætta þær
deilur eigi að drífa sig og
höfða mál fyrir dómi fyrir
1. janúar 2024
Það má ekki segja það upphátt, en
allir vita að karlmenn nota fín úr til
að sýna hvar þeir standa í goggunar-
röðinni. Dýrt og vandað úr segir
heilmikið um smekk eigandans og
hvar hann er staddur í lífinu og ekki
skrítið að margir ungir menn láta sig
dreyma um að eignast góðan Rólex
einmitt til að geta sýnt heiminum að
þeir hafi náð að klofa yfir tiltekinn
fjárhagslegan þröskuld og séu á leið
upp metorðastigann. Þeir myndu
seint fást til að játa það en þegar
jakkafataklæddir áhrifamenn
setjast niður við fundarborð gjóta
þeir augum á úlnliði sessunautanna
og mæla hver annan út byggt á því
hver skartar veglegum Hublot,
rándýrum Audemars Piguet eða
fágætum Patek Philippe.
Því miður áttu konur – lengst af –
erfitt með að taka þátt í þessum leik
og voru kvenúrin frá þekktustu
framleiðendunum lítið annað en
minni útgáfur af karlúrunum og
þess vegna ekkert sérstaklega kven-
leg. Franska tískuhúsið Chanel
hristi því rækilega upp í mark-
aðinum, og úrasamfélaginu, árið
1987 þegar hulunni var svipt af
Première-úrinu.
Première sló heldur betur í gegn
og varð strax ómissandi aukahlutur,
enda einkar fágað, fjölhæft og fal-
legt úr sem konur gátu borið við öll
tækifæri. Chanel hefur núna endur-
vakið þetta merkilega úr, með upp-
runalega útlitinu, og bendir allt til að
viðtökurnar verði engu lakari nú en
fyrir 35 árum.
Úr fyrir öll tilefni
Première er mun líkara armbandi
en úri. Skífan sjálf er smá, stílhrein
og laus við allar tölur en ólin er
vegleg, gerð úr gullhúðaðri stál-
keðju sem búið er að þræða með
svartri leðuról. Allar konur sem
fylgjast vel með tískunni vita hvaðan
útlit ólarinnar er fengið, því margar
handtöskur frá Chanel skarta sams
konar keðju.
Skífan er áttstrendingur í sömu
hlutföllum og tappinn á sígildum
ilmvatnsflöskum Chanel, en sagan
segir að Coco Chanel hafi fengið
hugmyndinna að lögun tappanna að
láni frá útlínum torgsins Place
Kvenleg klassík
mætir aftur á svæðið
HIÐ LJÚFA LÍF
Sími 587 1717
www.sulatravel.is
Stangarhyl 1 , 110 Reykjavík
MIÐJARÐARHAF 12.-26. maí 2023
ALLT INNIFALIÐ
Í ÖLLUM SIGLINGUM
EKKI BORGA MEIRA EN ÞÚ ÞARFT
Free at Sea
YFIR ATLANDSHAF
FRÁ NEW YORK
19. apríl til 9. maí 2023
MIÐJARÐARHAFIÐ
17.-29. nóvember 2022
RÓM OG GRÍSKA EYJAHAFIÐ
11.-23. ágúst 2023
JÓLASIGLING Í KARÍBAHAF
14.-26. desember 2023
MIÐJARÐARHAF
14.-26. maí 2023
GRÍSKA EYJAHAFIÐ
FRÁ FENEYJUM
1.-14. ágúst 2023
LONDON
REYKJAVÍK
3.-15. júní 2023
Gerum tilboð fyrir hópa og einstaklinga
Nánar á www.sulatravel.is