Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 11VIÐTAL Fyrir einu og hálfu ári ákvað Elvar Orri Hreinsson að söðla um. Hann kvaddi fjármálageirann og tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá Verkfærum ehf. sem selur tæki og búnað til jarðvinnuverk- taka, framleiðslufyrirtækja, sjávar- útvegsfyrirtækja o.fl. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Félagið var hrátt þegar ég hóf störf en bjó yfir miklum tækifær- um til vaxtar. Til að gera sér mat úr þeim tækifærum þurfti að bæta við hæfu og reyndu starfsfólki hratt og örugglega. Ég var tólfti starfsmaður félagsins þegar ég hóf störf um mitt síðasta ár, en nú starfa 25 hjá félaginu. Tvöföldun, bæði í veltu og starfsmannafjölda, á rúmu ári er ansi hröð þróun og því fylgja talsverðar áskoranir. Áskorunin felst m.a. í fjármögnun, en hraður vöxtur felur í sér mikla kostnaðaraukningu og því þarf að halda vel á spilunum. Einnig felst áskorunin í því að slípa saman hópinn svo að nýir starfsmenn geti gengið greiðlega til verks og í takt við þau gildi og markmið sem við viljum standa fyrir og ná. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég leita mikið í að auka færni mína og ver miklu af frítíma mín- um í að viða að mér frekari þekk- ingu. Þar notast ég að mestu við hina stafrænu miðla. Ég ver t.d. miklum tíma í að verða betri í að sjálfvirknivæða síendurtekin verk- efni með það að markmiði að spara tíma. Dagurinn er yfirleitt of stutt- ur fyrir þau verkefni sem ég vil koma frá mér og þá skiptir máli að nýta tímann vel og verja honum með skilvirkum hætti. Þar get ég nefnt forrit á borð við Power Au- tomate og Power Query í Excel. Að búa yfir færni á þessu sviði hefur gerbreytt því hvernig ég nálgast „handavinnu“ í tölvu og einföld endurtekin verkefni. Þessi verkefni eru nú unnin í eitt skipti og svo þegar þau ber aftur að garði er einfaldlega ýtt á „play“ og verkefnin svo gott sem vinna sig sjálf. Tíminn sem ég hef eytt í að auka færni mína á þessu sviði hef- ur þegar borgað sig margfalt til baka. Þekkinguna hef ég sótt sjálfur á netinu að öllu leyti. Fróð- leikurinn þar er svo gott sem endalaus svo ég er með nóg af les- efni til að bæta þekkingu mína á þessu sviði enn frekar. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Ég sit marga fyrirlestra frá okkar helstu birgjum. Ég hef þurft að læra mikið á skömmum tíma. Sem dæmi þá tók Verkfæri nýverið við umboði fyrir sölu og þjónustu á tækjum frá þýska stór- fyrirtækinu Jungheinrich, sem er leiðandi framleiðandi lyftara og vöruhúsatækja á heimsvísu. Undirbúningur fyrir viðtöku um- boðsins hefur staðið yfir í tölu- verðan tíma þar sem ég hef þurft að sitja fundi, námskeið og fyr- irlestra þar sem farið er yfir þær gæðakröfur sem gerðar eru til okkar sem umboðsaðila bæði hvað viðkemur sölu og þjónustu. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkt ferli og alveg hreint magnað að sjá hve faglega er staðið að hlutunum hjá starfsfólki Jungheinrich. Hugsarðu vel um líkamann? Ég hef alltaf lagt ríka áherslu á hreyfingu enda hefur hreyfing iðulega leitt til þess að ég borða hollari mat, einbeiti mér betur yfir daginn og sef betur. Hreyfing er því ákveðið grundvallaratriði ef ég á að vera vel stemmdur í því sem ég tek mér fyrir hendur hverju sinni. Vinnudagurinn hefur lengst á nýjum starfsvettvangi og hreyfing minnkað því samhliða. Ég og markaðsstjóri Verkfæra erum hins vegar búnir að skora hvor á annan að rífa okkur í gang. Ég hef því litlar áhyggjur af þessu, enda stutt í keppnisskapið og ekki ætla ég að lúta í lægra haldi fyrir samstarfsfélaga mínum og tapa þannig montréttinum á vinnu- staðnum. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Sennilega eitthvað tengt for- ritun. Það er mikil eftirspurn eftir slíkri færni í dag og möguleik- arnir fyrir færan forritara enda- lausir. Ég er með nokkrar hug- myndir í höfðinu sem ég væri fljótari að gera mér mat úr ef ég hefði betri færni í forritun, og kannski aðeins fleiri klukkustund- ir í sólarhringnum. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Kostirnir eru þeir að það er mikið um að vera og nóg af verk- efnum hjá þeim fyrirtækjum sem við getum flokkað undir mögulega viðskiptavini okkar. Stjórnvöld leggja t.d. mikla áherslu á stór- aukið framboð húsnæðis sem ætti að leiða til vaxandi umsvifa m.a. hjá jarðvinnu- og byggingar- verktökum sem ætti að leiða til vaxandi eftirspurnar eftir tækjum og búnaði í tengslum við þeirra starfsemi. Þar komum við til sög- unnar með tæki, búnað og þjón- ustu sem ætti engan að svíkja. Helsti gallinn er vaxtastigið. Við erum í miklum vaxtafasa og störf- um í fjármagnsfrekum bransa. Að sjálfsögðu kæmi það sér betur fyrir okkur ef vaxtastigið væri hóflegra. Að því sögðu þá hefur maður fullan skilning á samspili vaxta og verðbólgu og ástæðum Seðlabankans fyrir hressilegri hækkun vaxta undanfarið. Von- andi dregur úr verðbólgu næsta kastið þannig að Seðlabankinn geti skipt úr hækkunar- í lækk- unarferli stýrivaxta sem fyrst. Lægri stýrivextir stuðla að væn- legra rekstrarumhverfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, líkt og okkar. SVIPMYND Elvar Orri Hreinsson, framkvæmdastjóri Verkfæra ehf. Vonandi að stýrivextir lækki sem fyrst Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Elvar segir erfiðara fyrir lítil og meðalstór félög að vaxa ef vextir eru háir. NÁM: Stúdentspróf frá Borgarholtsskóla 2007; BSc. í við- skiptafræði frá HR 2010; MSc í fjármálum fyrirtækja frá HR 2011; skiptinám við Anderson School of Business í BNA árið 2011; löggilding í verðbréfamiðlun 2016. STÖRF: Áætlunarstjóri hjá Ölgerðinni 2010 til 2011; sérfræð- ingur á fyrirtækjasviði Íslandsbanka 2012 til 2014, síðar sérfræð- ingur hjá viðskipta- og þróunarsviði 2014 til 2015, sérfræðingur hjá greiningardeild 2015 til 2019, formaður ferðaþjónusturáðs 2019 og stjórnarmaður í starfsmannafélagi 2019; sérfræðingur hjá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF) 2020 til 2021; fram- kvæmdastjóri Verkfæra ehf. frá 2021. FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Örnu Rún Guðlaugsdóttur og fyrsta barn væntanlegt í janúar. Stelpa. HIN HLIÐIN ATHAFNAMENN Hagnaður útgáfufélagsins Fulls tungls ehf. nam í fyrra um 54,9 millj- ónum króna, en félagið var stofnað í mars í fyrra. Fullt tungl er í eigu Bananalýðveldisins, sem er í eigu Björns Braga Arnarssonar. Félagið gefur út Kviss-spilin vinsælu sem og bækur á borð við skipulagsbækur Sólrúnar Diego og bókina Fjárfest- ingar sem kom út fyrir síðustu jól. Tekjur félagsins námu í fyrra um 128 milljónum króna en rekstrar- gjöld um 59 milljónum króna. Hagn- aður fyrir skatta var 68,6 milljónir króna. Þar af nam launakostnaður og aðkeypt vinna rúmlega 21 milljón króna. Morgunblaðið/Ernir Björn Bragi Arnarsson hefur verið í ýmsum rekstri á síðustu árum. Fullt tungl fyllir vasa Björns Braga ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.